Þjóðviljinn - 17.05.1986, Blaðsíða 16
DÆGURMAL
Listapopp
fyrir opnum dyrum
Listahátíð gerir vel við rokk-
unnendur þetta árið: tvær viður-
kenndar og rótgrónar sveitir,
Stranglers og Madness, og
jafnmargar ungar og upprenn-
andi, en þó það þekktar að les-
endur breskra popprita kannast
vel við þá, að ekki sé nú talað um
þá sem fylgjast með hljómplötu-
útgáfu.
Skoska sveitin Lloyd Cole and
the Commotions hefur gefið út 2
breiðskífur og Fine Young Canni-
bals eina þar sem m.a. er að finna
útgáfu þeirra á Presley-laginu
Suspicious Minds. Tveir þeirra
þriggja sem mynda Fine Young
Cannibals voru áður í bresku ska-
hljómsveitinni The Beat, þeir
Andy Cox gítarleikari og David
Steele bassaleikari. Er því vel til
Jundið að láta þá koma fram á
hljómleikum með Madness, sem
á rætur í sömu músik. Það er á
þjóðhátíðardaginn sem Brjálæð-
ið og Kannibalisminn leikur
lausum hala í Höllinni. Kvöldið
áður leikur Stranglers og Lloyd
Cole and the Commotins. Jafn-
framt kemur fram ein íslensk
hljómsveit hvort kvöld.
Hljómleikarnir hefjast kl. 20
bæði kvöldin og er gert ráð fyrir
að þeir standi í 5 klst., en aðgöng-
umiðaverð er 800 kr.. Líklega
verður erfitt fyrir suma að gera
upp á milli hljómleikanna, hafi
* þeir ekki efni á að fara bæði
kvöldin.
Listapopp verður haldið fyrir
opnum dyrum Hallarinnar, en
svæðið í kringum hana verður af-
girt og þjónusta og gæsla að
mestu í höndum unglinga í sam-
starfi við Æskulýðsráö.TJmsjón-
armenn Listapopps leggja
áherslu á að ef ekki tekst að hafa
ailt með sóma, bæði hvað viðvík-
ur framkævmdahlið og fram-
komu hljómleikagesta, verði
langt í næstu rokkhljómleika á
Lloyd Cole and the Commotions. Madness.
FÉLAGSMÁLASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Vonarstræti 4 - Sími 25500
Aldraðir vesturbæingar
Félagsstarf aldraðra, ávegum Félags-
málastofnunar Reykjavíkurborgar,
opnar nýja félagsmiðstöð í KR heimil-
inu við Frostaskjól næstkomandi mið-
vikudag 21. maí, kl. 14.
Dagskrá: 1) Opið hús kl. 14. 2) Kaffi-
veitingar. 3) Ávarp borgarstjóra, Da-
víðs Oddssonar.
Verið velkomin í nýja félagsmiðstöð.
Félagsstarf aldraðra
Félagsmálastofnun
Reykjavíkurborgar
Utboð
Veitingarekstur
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar fyrir hönd
stjórnar tæknisýningar í tilefni 200 ára afmælis
Reykjavíkur óskar eftir tilboðum í leigu á aðstöðu
til veitingareksturs í Borgarleikhúsinu meðan á
sýningunni stendur. Útboðsgögn eru afhent á
skrifstofu vorri, Fríkirkjuvegi 3, Reykjavík. Tilboð-
in verða opnuð á sama stað fimmtudaqinn 5 iúní
n.k. kl. 11 f.h.. J
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR
Fine Young Cannibals.
vegum Listahátíðar. Þá er það
von manna, að Listapopp verði
fastur liður á hátíðinni og festi sig
svo í sessi að hljómlistarmenn
sækist eftir að fá að taka þátt í því,
svo sem eins og er með Hróar-
skeldurokkhátíðina í Danmörku.
En menn eru sem sagt aðeins
uggandi vegna hinnar vondu
framkomu sem áramótagestir
Stuðmanna sýndu í Laugardals-
höll, og ef slíkt endurtæki sig,
gæti orðið erfitt að fá hingað góð-
ar hljómsveitir.
Þess má geta að Stranglers
koma með 4-5 aðstoðarhljóð-
færaleikara með sér, enda músik
þeirra nokkuð breytt frá því að
þeir komu hingað fyrir 8 árum.
Alls mun Listahátíð greiða
27.500 pund fyrir að fá hljóm-
sveitirnar 4 til að spila hér.
A
Einstiirzende Neubauten, Alg-
óryþmar, Mikki Dean & De Vunderfo-
olz, Sv/hv draumur, Sveinbjörn
Beinteinsson á rokkhátíðinni Þýska
bomban - hrynjandi byggingar í Rox-
zý 2. í hvítasunnu kl. 21. Búast má við
óvenjulegheitum og öðru kukli.
Frikirkjuvegi 3 - Simi 25800
16 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN
The Shadows með Cliff Richard í kvikmyndinni The Young Ones árið 1961:
Bruce, Cliff og Hank Marvin, gítaristinn sem var fyrirmynd margra gítarhetja
bítlakynslóðarinnar. Bruce Welsh ryþmagítarleikari og söngvari var með Hank í
tríóinu Ijúfa Marvin, Welsh og Farrar sem til varð eftir að Shadows „hættu"
1969. Trommarinn ágæti Brian Bennett hefur leikið eigin verk við undirleik
Sinfóníuhljómsveitar Lundúnaborgar.
Síðasta hljóm-
leikaferðin?
The Shadows munu leika hér í
veitingahúsinu Broadway 12.-
18. júní, og eru hljómleikar
þeirra liður í Listahátíð. Ólíkt
öðrum hljómsveitum 7. áratugar-
ins voru The Shadows þekktastir
og vinsælastir fyrir „instrúment-
al“ lög enda voru Shadows á ferð-
inni áður en Bítlarnir sigruðu
Bretland og heiminn.
Apache var fyrsti smellurinn
þeirra, árið 1960, og jafnframt
þeirra þekktasta lag. Meðfram
spiléríi á eigin vegum voru The
Shadows undirleikshljómsveit
Cliffs Richards.
Hank Marvin og Bruce Wells
hafa verið í Shadows frá upphafi
og gott betur - stofnuðu saman
hljómsveitina The Drifters árið
1958 og léku undir því nafni með
Cliff Richard í laginu Move it,
sem var hans fyrsti smellur. Þeir
breyttu nafni sveitarinnar ári síð-
ar til að þeim yrði ekki ruglað
saman við hina bandarísku Drift-
ers. Mannaskipti voru tíð í sæti
trommara og bassaleikara, en
1961, síðla árs, gekk Brian Benn-
ett til liðs við Shadows. Þessir þrír
mynda núverandi Skugga en
koma hér fram ásamt 7 aðstoðar-
mönnum.
Hvisast hefur að þetta verði
síðasta hljómleikaferð Shadows,
þar sem Hank Marvin, sá snyrti-
legi sólógítaristi, sé að flytja bú-
ferlum til Ástralíu. A
Utboð
Reidhöll I Víöidal
Fyrir hönd Reiðhallarinnar hf. óskar Verkfræði-
stofa Sigurðar Thoroddsen hf. eftir tilboðum í
jarðvinnu á lóð reiðhallarinnar í Víðidal.
Útboðsgögn verða afhent á Verkfræðistofu Sig-
urðarThoroddsen hf., Ármúla4, Reykjavík, gegn
5000 kr. skilatryggingu. Tilboðin verða opnuð á
sama stað fimmtudaginn 29. maí 1986 kl. 11.00.
VERKFRÆÐISTOFA
SIGURÐAR THORODDSENS HF.
VERKFRÆÐIRÁÐGJAFAR FRV.
108 Reykjavík Ármúll 4 Sími (91) 8 44 99
fFóstra
- Egilsstaðir
Fóstrur óskast til starfa á leikskólann Tjarnarland
Egilsstöðum.
Nánari upplýsingar gefur forstöðumaður í síma
97-1283.