Þjóðviljinn - 17.05.1986, Side 17
HEIMURINN
Tsjernóbíl
Þær heita Natasja og Nada. Þær voru nágrannar á heimilum sínum nálægt
Tsjernóbíls. Slysið breytti lífi þeirra eins og svo margra annara. Nú búa þær í
sórstökum búðum fyrir þær tugþúsundir sem voru fluttir burtu frá slysstaðnum.
Lundúnum — Bandarískur
læknir sagði í gær að nú hefðu
13 manns látist vegna kjarn-
orkuslyssins í Tsjernóbíi.
Robert Gale, beinasérfræðing-
ur við Kaliforníuháskóla sem ver-
ið hefur í Moskvu til aðstoðar við
meðferð þeirra sem fengu í sig
geislun, sagði í gær að 11 manns
hefðu látist vegna geislunar, tveir
fórust í kjarnorkuverinu þegar
slysið átti sér stað. Gale sagði
ennfremur að minnsta kosti
100.000 manns yrðu að láta fylgj-
ast með sér alla ævi vegna áhrifa
geislavirkni. Hann sagðist ásamt
sovéskum læknum hafa áhyggjur
af langtímaáhrifum geislavirkn-
innar.
í Bonn tilkynnti v-þýska
stjórnin að hún ætlaði að þrýsta á
um að Sovétstjórnin borgaði þær
hundruð milljónir dala sem hún
ætlaði að borga v-þýskum bænd-
um í skaðabætur vegna
minnkaðrar sölu út af geisla-
virkni. Stjórnin setti takmarkanir
á sölu landbúnaðarafurða þegar
vart varð mikillar geislavirkni í
ýmsum héruðum V-Þýskalands.
Talsmaður stjórnarinnar Fried-
helm Ost, sagði: „Sú vöntun upp-
lýsinga og þær röngu upplýsingar
sem bárust ekki og bárust frá
Moskvu, neyddu okkur til að
taka ákvarðarnir sem ollu skaða.
Þann skaða verður nú að borga
fyrir.“ Ost gagnrýndi Gorbatsjof
Sovétleiðtoga fyrir að nefna eícki
bætur til annarra ríkja í sjón-
varpsávarpi sínu um Tsjernóbíl í
vikunni sem leið.
Talsmaður sovéska utanríkis-
ráðuneytisins sagði að Sovét-
menn myndu ekki greiða vest-
rænum ríkjum skaðabætur vegna
Tsjernóbíls slyssins. Hann sagði
að mynduð hefði verið fölsk ólga
og því hefði orðið að grípa til fyrr-
nefndra varnaraðgerða. Sovésk
yfirvöid tilkynntu einnig í gær að
ef v-evrópskur tækjabúnaður
sem var í kjarnaofninum, hefði
valdið slysinu, myndu yfirvöld
þar í landi fara fram á skaðabætur
frá vestrænum yfirvöldum. Paul
Zieber, forstöðumaður stofnun-
ar í Hamborg sem sér um mark-
aðsrannsóknir í A-Evrópulönd-
um, sagði að í öllum sovéskum
kjarnaofnum væri mælitækja-
búnaður sem framleiddur hefði
verið í V-Evrópu, mikið til í Fra-
kklandi og V-Þýskalandi.
Kiev
Varúð með matvömr
Moskvu — Þremur vikum eftir
kjarnorkuslysið í Tsjernóbíl er
sala á mjólkurafurðum og
grænmeti ekki leyfð á,22 úti-
mörkuðum í Kiev í Úkraínu
sem er 130 km. frá kjarnorku-
verinu.
í frétt sovéska dagblaðsins
Sovjetskaja Rossja segir að öll
framleiðsla, jafnvel blóm, sé
geislunarprófuð og þvegin áður
en hún er send á markað. Dag-
blaðið gagnrýndi einnig þær frétt-
ir vestrænna fjölmiðla að úkra-
ínskur landbúnaður hefði orðið
fyrir miklum skakkaföllum vegna
slyssins. „í raun og veru er aðeins
um að ræða 30 ferkílómetra svæði
umhverfis kjarnorkuverið sem
gagnrýndi Gbrbatsjof viðbrögð á
vesturlöndum og sagði að þau
hefðu haft neikvæð áhrif á mögu-
legan leiðtogafund Bandaríkj-
anna og Sovétríkjanna.
Yfirmaður Intourist (ferða-
skrifstofa ríkisins) í Kiev, Vla-
dimir Fedorsjenkó, sagði í gær að
tæki til að mæla geislavirkni í far-
angri fólks og á því sjálfu, hefði
verið komið fyrir á öllum hótel-
um í borginni. Enn hefði engin
geislavirkni yfir hættumörkum
mælst við þessar mælingar. Fe-
dorsjenkó sagði að um það bil
1300 ferðamenn væru nú í borg-
inni, fólk frá Argentínu, V-
Þýskalandi, Kanada, Indlandi og
Frakklandi.
fór illa út úr slysinu. Landbúnað-
ur annars staðar gengur eðlilega
fyrir sig,“ sagði í frétt úkraínska
dagblaðsins.
Landbúnaðarsérfræðingar á
Vesturlöndum hafa undanfarnar
vikur velt því fyrir sér að slysið
muni hafa haft alvarlegar afleið-
ingar á sovéskan landbúnað þar
sem gjöfulustu landbúnaðar-
svæði Sovétríkjanna eru í Úkra-
ínu. Nú samþykkja þeir flestir
hins vegar að áhrifin af slysinu
verði lítilvæg hvað varðar land-
búnað. Stjórnvöld í Moskvu hafa
hvað eftir annað gagnrýnt vest-
ræna fjölmiðla og yfirvöld fyrir
að ýkja fréttir af afleiðingum
slyssins. Síðast í fyrrakvöld
Grœningjar
Svindl
Trieste á ftalíu
varð að Tsjemóbíl
Róm — Frakki sem í vikunni
var sakaður um aö hafa selt
platkvikmynd af kjarnaofnin-
um í Tsjernóbíl til ítalskra og
bandarískra sjónvarpsstöðva,
hefur verið handtekinn og
kærður fyrir svindl.
Thomas Gareno heitir maður-
inn, 24 ára að aldri. Gareno var
handtekinn á miðvikudaginn á
skrifstofum bandarísku sjón-
varpsstöðvarinnar NBC í Róm.
Hann var færður í fangelsi í Tri-
este í gær. Gareno kom á skrif-
stofur RAI sjónvarpsstöðvarinn-
ar ítölsku með kvikmyndafilmu
sem hann sagði að sovéskur
andófsmaður hefði tekið af
brennandi kjarnaofninum í
Tsjernóbíl. Hann var tekinn
trúanlegur og myndin sýnd í ít-
alska sjónvarpinu og síðar í
bandarísku sjónvarpsstöðvunum
ABC og NBC. Kvikmyndin var
hins vegar tekin af verksmiðjum í
Trieste, umluktum reyk. Upp
komst um svindlið þegar símalín-
ur frá Trieste til RAI urðu rauðg-
lóandi, allir vildu leiðrétta mis-
skilning.
Tsjemóbíl skipti sköpum
Nú virðist sú kaldhœðnislega staðreynd ætla að verða ofan á að kjarnorkuslysið í Tsjernóbíl í Úkraínu á
dögunum muni styrkja Grœningja svo mikið að þeir geti haft úrslitaáhrif á þróun mála á sambandsþinginu í Bonn
Bonn — Það pólitíska úrfelli
sem varð eftir kjarnorkuslysið
í Tsjernóbíls hefur valdið mikl-
um breytingum á pólitískum
horfum Græningja í V-
Þýskalandi en landsþing sam-
takanna hefst nú um helgina.
Fyrr á árinu voru þessi stærstu
samtök umhverfisverndarmanna
í Evrópu á kafi í deilunt um
stefnuskrá sína og skoðanakann-
anir gáfu til kynna að þau hefðu
ekki það fylgi sem þyrfti til að
hafa fulltrúa á sambandsþinginu í
Bonn. En nú hefur andstaða hjá
Þjóðverjum aukist að mun gegn
kjarnorkuverum og það kemur
Græningjum til góða. Ljóst þykir
að þeir fái mikið fylgi í kosning-
um til þings í Neðra- Saxlandi í
næsta mánuði.
9% kjósa
Græningja
Nýlega var gerð könnun meðal
þjóðarinnar sem gaf til kynna að
69 % þjóðarinnar væru andsnúin
stefnu stjórnarinnar um að bæta
við kjarnorkuverum. Samkvæmt
sömu skoðanakönnun vildu 54 %
að lokað yrði kjarnorkuverum í
V-Þýskalandi. Þá sagði einnig í
könnuninni að 9 % myndu kjósa
Græningja en þeir hafa löngum
hvatt til þess að kjarnorkuverum
landsins verði lokað.
Græningjar mótmæla á flokksþingi
„Tsjernóbíl er alls staðar,“
sagði talsmaður Græningja, Jutta
Dittfurth, í síðustu viku. „Það
koma þær stundir að maður óskar
þess að hafa ekki haft rétt fyrir
sér,“ bætti hún við. Búist er við
að andstaðan við kjarnorkuver
verði mál málanna á landsþing-
inu um helgina. Þar verður
mótuð stefna samtakanna fyrir
SPD. Það verður ef til vill tekið betur á móti þeim næst.
næstu sambandsþingkosningar
sem haldnar verða snemma árs
1987. „Fulltrúar Græningja sem
deila yfirleitt sín í milli um allt
milli himins og jarðar eru hins
vegar algjörlega sammála um taf-
arlausa lokun allra kjarnorku-
vera í V-Þýskalandi,“ sagði ný-
lega í v-þýska tímaritinu Der Spi-
egel.
Kosningabandalag
við jafnaðarmenn
Undanfarna mánuði hefur ver-
ið hart deilt í samtökunum um
það hvort mynda eigi einhvers
konar kosningabandalag við
jafnaðarmenn fyrir kosningarn-
ar. Sumir telja hins vegar að slíkt
yrði banabiti samtakanna. Græn-
ingjar í Hessen mynduðu nýlega
samband við jafnaðarmenn og
það hafa margir í hreyfingunni
gagnrýnt harkalega. Þeir telja að
með bandalagi við einhvern
hinna hefðbundnu flokka hafi
grunnhugmynd þeirra, um að
samtökin skuli vera andflokks-
leg, verið svikin.
Tsjernóbílslysið hefur gert
notkun kjarnorku að miklu hita-
máli í kosningum til þings í Neðra
Saxlandi. Skoðanakannanir þar
gefa til kynna að ef til vill þurfi
næsta stjórn þar að treysta á fylgi
Græningja til að koma lögum í
gegn. Skoðanakannanir gefa til
kynna að ef jafnaðarmenn fá
44% atkvæða og Græningjar
vinna með þeim gæti það leitt til
þess að hægristjórnin í Bonn
hefði ekki lengur meirihluta í efri
deild sambandsþingsins í Bonn.
Þar með væri kornin upp sú staða
að jafnaðarmenn ættu möguleika
á að koma í veg fyrir lagasetningu
hægristjórnarinnar sambands-
þinginu, æðstu löggjafarsam-
kundu V-Þjóðverja.
ERLENDAR
FRÉTTIR
HJÖRLEÍFSSOn/R £ U1E R
Fleiri látnir
Laugardagur 17. maí 1986 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 17