Þjóðviljinn - 28.05.1986, Qupperneq 3
FRETTIR
Rafmagnsveita Reykjavíkur
Innheimtumönnum hótað
Fjármálastjórinn segir innheimtumenn sinna illa starfi sínu.
Starfsmaður veitunnar: Vœri nœr að gefa skýringar á stórskuldum ýmissa
fyrirtœkja. Borgarstjóri látinn stöðva lokanirmeðan miskunnarlaust
er lokað í blokkunum
Eg held að yfirmönnum Raf-
magnsveitu Reykjavíkur vaeri
nær að gefa viðhlítandi skýringar
á því hvers vegna sum stórfyrir-
tæki hér í borginni hafa komist
upp með að skulda stórfjárhæðir
sem Rafmagnsveitan hefur síðan
tapað að fullu, í stað þess að ráð-
ast með þessum hætti að inn-
heimtumönnum fyrirtækisins og
kenna þeim um slælega inn-
heimtu, sagði einn af starfsmönn-
um Rafmagnsveitunnar í samtali
við Þjóðviljann.
Nokkrir af innheimtumönnum
veitunnar fengu á dögunum mjög
harðort hótunarbréf frá Eiríki
Briem fjármáiastjóra Rafmagns-
veitunnar. í bréfinu segir m.a.:
Kennarasambandid
Mótmæla
styttingu
skolaskyldu
Stjórn Kennarasambands ís-
lands varar við hugmyndum um
styttingu skólaskyldunnar, en
Sverrir Hermannsson, mennta-
málaráðherra reifaði í síðustu
viku hugmyndir um styttingu
skólaskyldunnar og skólaársins.
í ályktun frá KÍ segir að stytt-
ing skólaskyldu dragi úr almennri
menntun í landinu og bent er á að
skólaskylda í nágrannalöndunum
sé 9 ár. Síðan segir orðrétt:
„Verði af styttingu skólaskyldu
munu unglingar á hinu viðkvæma
gelgjuskeiði standa frammi fyrir
afdrifaríku vali og ábyrgð sem
þeir hafa ekki þroska til að axla.“
Þá segir að þessi ráðstöfun
komi verst niður á barnmörgum
fjölskyldum þar sem þetta hafi í
för með sér stóraukinn kostnað
fyrir foreldra. Einnig er hætta á
að unglingar sem erfiðast eiga
uppdráttar verði fyrstir til að
hverfa frá námi en þeir sem
flosna úr námi 13 ára hafa litla
sem enga atvinnumöguleika,
slíkt iðjuleysi gæti leitt til ó-
reglu, fíkniefnaneyslu og annarra
félagslegra vandamála. Því var-
ar stjórn Kl við hugmyndum
menntamálaráðherra.
—Sáf
Háskólanám á Akureyri
Verði undjr-
stjórn HÍ
Félag háskólamenntaðra
hjúkrunarfræðinga um háskóla-
nám í hjúkrunarfræði á Akureyri
sendi frá sér ályktun þar sem
segir m.a. „Fundurinn... leggur
áherslu á mikilvægi þess, að fag-
leg umsögn Námsbrautar í hjúkr-
unarfræði verði lögð til grund-
vallar ákvarðanatöku varðandi
hugsanlegt háskólanám í hjúkr-
unarfræði á Akureyri. Fundurinn
ítrekar, að slíkt nám verði alfarið
undir beinni stjórn Námsbrautar
í hjúkrunarfræði í Háskóla ís-
lands, ef af verður.“
„Samkvæmt tölulegum upplýs-
ingum sem liggja fyrir um afköst
þín við lokanir, hringingar og
undirritun yfirlýsinga svo og upp-
lýsingum um yfirferð um þau
svæði sem vinnufyrirmæli segja
til um, er óhjákvæmilegt að gera
alvarlega athugasemd við ó-
fullnægjandi afköst þín og við-
veru. Ekki verður séð, að ítrek-
aðar ábendingar deildarstjóra
viðskiptadeildar um nauðsyn
aukinnar virkni við innheimtu.
hafi haft teljandi áhrif á afköst
þín. Verði ekki gjörbreyting á
viðveru og vinnuafköstum af
þinni hálfu er óhjákvæmilegt að
grípa til frekari aðgerða,“ segir í
bréfi fjármálastjóra til inn-
heimtumanna.
„Það er dæmigert af yfir-
mönnum að kenna okkur um slæ-
lega innheimtu á sama tíma og
fjölmörg stórfyrirtæki þurfa ekki
annað en að hringja í toppana
eða jafnvel borgarstjórann til að
láta hætta við lokunaraðgerðir.
Ég veit líka ekki betur en Raf-
magnsveitan hafi gert 10 miljón
króna kröfu í þrotabú Hafskips
vegna vangreiddra rafmagns-
reikninga. Það væri fróðlegt að fá
skýringu á þeirri skuldasöfnun og
hver gaf þá gjaldfresti. Nú er
þetta glatað fé. Á sama tíma er
lokað miskunnarlaust í blokkun-
um og jafnvel lokað úti í götum,“
sagði starfsmaður Rafmagns-
veitunnar.
Samtök kvenna
á vinnumarkaði
Konur kjósi
ekki
íhaldið
Samtök kvenna á vinnumark-
aði hafa sent frá sér áskorun til
kvenna um að kjósa ekki ríkis-
stjórnarflokkana.
í samþykkt sem tengihópur
samtakanna sendi frá sér þann
25. maí segir að ríkisstjórnar-
flokkarnir beri ábyrgð á fátækt
fjölda fólks þar sem laun hafi ver-
ið skert mjög á síðustu misserum
og þar hafi konur orðið verst úti
enda flestar á lægstu launatöxt-
um.
Samtökin hvetja konur til að
hefna þess í héraði sem hallaðist
á Alþingi og veita stjórnarflokk-
unum ekki atkvæði sitt í komandi
seitarstjórnarkosningum.
Samtökin vekja athygli á því
hversu stór atvinnurekandi
Reykjavíkurborg er og að borg-
ina skorti ekki fé fremur en ríkið,
þó að stjórnvöld kjósi að verja
því í þágu annarra en iaunafólks.
Ing
Unglingabókahöfundurinn Olga Guðrún Árnadóttir smellir kossi á verðlaunahafann í barnabókakeppninni, eiginmann-
inn Guðmund Ólafsson. Sá litli lætur sér þó fátt um fárið finnast. Ljósm.: E.ÓI.
Barnabókahöfundtar
Guðmundur
bestur
Guðmundur Ólafs-
son hlaut barnabóka-
verðlaunfyrir bók
sína Emil og Skundi
íslensku barnabókaverðlaunin
voru afhent í fyrsta sinn í gær en
alls tóku 45 manns þátt í þessari
keppni sem efnt var til af Verð-
launasjóði íslenskra barnabóka.
Verðlaunin hlaut höfundur bók-
arinnar Emil og Skundi, Guð-
mundur Ólafsson leikari.
í verðlaunaskjalinu sem
Ólafur Ragnarsson formaður
stjórnar Verðlaunasjóðsins af-
henti Guðmundi við athöfnina
segir m.a. „Sagan er vel samin og
skemmtileg. Persónusköpun er
góð, söguhetjan trúverðug og
bregst við vandamálum á trú-
verðugan hátt. Söguþráður er
spennandi og umhverfi allt rót-
fast í íslenskum veruleika“.
Verðlaunasjóðurinn var stofn-
aður í tilefni af sjötugsafmæli
barnabókahöfundar Ármanns
Kr. Einarssonar og afhenti hann
Guðmundi verðlaunaféð sem
nemur 40 þúsundum króna.
K.Ól.
Sálfrœðideild skólanna
Skortur á vistunarúiræðum
Víðir Kristinsson: Skortur á starfsfólki og vistunarúrræðum. Vantar
stefnumörkun á þessu sviði hér á landi
Asálfræðideildum skólanna er
bæði skortur á starfsfólki og
vistunarúrræðum. Við erum sí-
fellt í þeirri aðstöðu að þurfa að
nýta okkur fjórða og fímmta
besta úrræðið fyrir börnin því
annað er ekki fyrir hendi, sagði
Víðir Kristinsson forstöðumaður
Sálfræðideildar skóla í Réttar-
holtsskólanum.
„Sérkennsluúrræðið sem við
höfum þurft að nýta okkur mikið
er langt frá því að vera
fullnægjandi. í sérkennslubekkj-
unum eru mjög blandaðir hópar
sem eiga í mörgum tilfellum alls
ekki saman s.s. vangefin börn,
börn sem búa við erfiðar heimi-
lisaðstæður en eru vel gefin, og
geðveik börn. Oft leysast vanda-
mál þeirra barna sem búa við erf-
iðar heimilisaðstæður ekki nema
þau komist í burtu frá heima-
högunum. Þess vegna er mjög að-
kallandi að komið verði á fót sól-
arhringsvistun fyrir þessi börn í
tegnslum við skólakerfið, eða
nokkurs konar heimavistar-
skóla,“ sagði Víðir.
Víðir sagði jafnframt að það
vantaði algjörlega ákveðna
stefnumörkun á þessu sviði hér á
landi. „Innan uppeldisfræðinnar
eru í grófum dráttum tvær stefnur
í gangi. Annar vegar blöndun
þessara barna við aðra nemendur
og hins vegar aðskilnaður. f orði
kveðnu hér á landi telja rnenn sig
fylgja sömu stefnu og í nágrann-
alöndunum sem felst í því að
nemendur séu sem minnst að-
skildir. í raun er þessari stefnu
ekki fylgt eftir nema að tak-
mörkuðu leyti. Ef framkvæmd
hennar ætti að takast sem skyldi
þyrftu úrræðin innan skólanna að
vera fjölbreyttari. Þessi stefna er
dýrari í framkvæmd m.a. vegna
þess að þessi lausn krefst fleira
starfsfólks. Það er auðvitað engin
lausn að hafa í sama skóla allar
tegundir af vandkvæðum ef eng-
inn er til þess að sinna þeim eins
og raunin hefur verið,“ sagði
Víðir Kristinsson að lokum
-K.Ól.
Mi&vikudagur 28. maí 1986 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 3