Þjóðviljinn - 28.05.1986, Blaðsíða 13
HEIMURINN
Skilríkjadeilur
Stjómmalasamband ekki rafið
Vesturveldin, Bandaríkin, Bretlandog Frakkland hafa neitaðþeimfregnum að þau œtli að
slíta stjórnmálasambandi við A-Pjóðverja eftir aðþeir tilkynntu nýjar reglur um framvísun
skilríkja og kröfðustþess að diplómatar sýndu vegabréf ístað hefðbundinnaskilrikja
Bonn — Bandarísk yfirvöld
neituðu í gær þeim fregnum
sem bárust frá vestrænum
diplómötum í Austur-Berlín,
að Vesturveldin hefðu í hyggju
að slíta stjórnmálasambandi
við Austur-Þjóðverja vegna
þess að þeir hafa krafið vest-
ræna diplómata um vegabréf á
mörkum Austur- og Vestur-
Berlínar í stað diplómatapassa
eins og venjan hefur verið.
Skák
Sterkasta mót til þessa?
í tilkynningu Bandaríkja-
stjórnar um þetta efni sagði að
fregnir um þetta væru óná-
kvæmar, Bandaríkjamenn hefðu
ekkert slíkt í hyggju. Fulltrúar v-
þýsku stjórnarinnar sem haft var
samband við könnuðust ekki við
vangaveltur um slit á
stjórnmálasambandi við A-
Þýskaland.
Vesturveldin líta á þessar nýju
reglur A-Þjóðverja um framsal
skilríkja sem leið þeirra til að
gera borgamörkin í Berlín að nýj-
um alþjóðlegum landamærum.
Vesturveldin líta svo á að öll
Berlín sé enn hersetin samkvæmt
samkomkomulagi sem gert var í
lok stríðsins. Þau hafa neitað að
semja við A-Þýskaland um mál-
ið, hafa þess í stað snúið sér til
Sovétríkjanna.
Bugojno — Á síðasta sunnu-
dag hófst í smábæ í Júgósla-
víu sterkasta skákmót sem,
haldið hefur verið, eftir því
sem Júgóslavar segja.
í fyrstu umferð mótsins sem fór
fram á mánudag, sigraði Ant-
hony Miles Ljubomir Ljubojevic
frá Júgóslavíu. Flann sýndi að
hann hafði náð sér eftir niður-
lægjandi ósigur sinn gegn
heimsmeistaranum Kasparof í
Sviss fyrir stuttu. Eftir enska
byrjun vann Miles Ljubjevic í 22
leikjum.
Önnur mikilvæg skák í fyrstu
umferð var viðureign Spasskís og
Karpofs. Þeir sömdu um jafntefli
eftir 23 leiki. Spasskí sem nú teflir
fyrir Frakkland hóf skákina með
Sikileyskri vörn sem Karpof
hafði aldrei séð í fyrri viður-
eignum sínum gegn Spasskí.
Af öðrum keppendum á þessu
sterka móti má nefna Jan Tim-
man frá Flollandi, Lajos Portich
frá Ungverjalandi og Sovét-
mennina Igor Sokolof og Artúr
Júsúpof. Karpof sagði í viðtali í
síðustu viku að skákirnar á þessu
móti væru þær síðustu sem hann
tefldi opinberlega þar til hann
settist gegnt núverandi heims-
meistara í einvígi um titilinn sem
hefst í Englandi í sumar.
Sovétríkin
„Tsjemóbfl“ tónleikar í
Moskvu
ERLENDAR
FRÉTTIR
INGÓLFUR
hjörleifsson'RtU ItK
Moskvu — Sovéskir popparar
ætla að halda tónleika á Olym-
píuleikvanginum i Moskvu til
styrktar hjálparstarfi eftir
kjarnorkuslysið í Tsjernóbíl
Engin opinber tilkynning hefur
verið gefin út um þessa tónleika
enn fréttir af þeim hafa borist frá
manni til manns undanfarna
daga. Meðal listamanna eru
helsta söngkona Sovétmanna,
Alla Púgatsjóva, og rokkhljóm-
sveitin Avtograf. Tónleikarnir
S-Afríka
Tugþúsundir án heimilis
í Crossroads
Heimilislausir svartir menn í Crossroads, nú búsettirí
flóttamannabúðum, hafa heitiðþvíað snúa aftur til heimkynna sinna
sem yfirvöld vilja nú rífa
Crossroads—Þúsundir svartra
S-Afríkumanna sem búsettir
hafa verið í Crossroads í Jó-
hannesarborg hétu því í gær
að endurbyggja eigin bústaði í
blóra við bann yfirvalda við
slíku.
Eftir viku óeirðir eru nú 33
látnir og að minnsta kosti 30.000
manns eru heimilislausir. Heimil-
islausir íbúar í Crossroads sem nú
eru í flóttamannabúðum sem
settar hafa verið upp við hverfið,
sögðu fréttamönnum í gær að
þeir myndu flytja aftur inn í
Crossroads. Þeir segjast þannig
ætla að ögra öfgasinnuðum
hægrimönnum í hópi hvítra, ein-
nig stjórnvöldum en þau vilja að
íbúar Crossroads flytji í annað
hverfi, Khayelitsha, nokkra kíló-
metra í burtu en þar er verið að
byggja aðra bústaði fyrir svarta.
Yfirvöld hafa lengi haldið því
fram að svartir verði að flytjast
frá Crossroads sem er í nágrenni
flugvallarins í Höfðaborg. Khay-
elitsha er meira einangrað en
Crossroads og þar er auðaveldara
að hafa með höndum eftirlit.
Róttækir í hópi svartra hafa kom- .
ið sér fyrir í KTC búðunum við
Crossroads og svarta íbúa þar
grunar að nú muni hvítir öfga-
sinnar ráðast að þeim búðum.
Svartir róttæklingar hafa lengi á-
sakað lögreglu fyrir að aðstoða
hvíta öfgasinna í árásum þeirra á
svarta eða líta að minnsta kosti í
aðra átt þegar þeir athafna sig í
hverfum svartra. Svartir íbúar
Crossroads héldu því nýlega fram
að svo virtist sem yfirvöld vildu
koma þeim burtu svo hægt væri
að rýma til í Old Crossroads en
þar munu vera helsta aðsetur
öfgasinnaðra hvítra manna. Þar
spruttu upp fyrstu byggðir svartra
manna þegar svartir virtu að vett-
ugi kynþáttaaðskilnaðarlögin og
hópuðust til Höfðaborgar í leit að
vinnu.
Nú vofir sjúkdómahætta yfir
flóttamannabúðum svartra við
Crossroads. Fulltrúi heilbrigðis-
yfirvalda á staðnum staðfesti
nefnast „Reikningur 904“, eftir
þeim reikningisem sovéskum al-
menningi gefst kostur á að leggja
inn fé á, til styrktar hjálparstarfi
eftir kjarnorkuslysið. Fulltrúar
leikhúsa í Moskvu hafa gefið
fréttamönnum upplýsingar um
tónleikana og þeir segja að vest-
rænum sendiherrum verði boðið
á þá.
Nú hafa 19 manns látist af völd-
um slyssins og 92.000 manns hafa
þurft að yfirgefa heimili sín í nánd
við Tsjernóbíl.
Þetta líka...
Washington — Tilkynnt var í Hvíta
húsinu i gær að Bandaríkin myndu
halda sig innan marka Salt-2
samningsins að sinni en myndu ef
til vill rjúfa hinn óstaðfesta samn-
ing um eftirlit með vopnauppbygg-
ingu síðar i sumar.
Moskvu — Varaforseti Sýrlands,
Abdel-Halim Khaddam, fór í gær til
Sovétríkjanna til viðræðna við þar-
lenda ráðamenn. Þar var fyrir einn
helsti ieiðtogi Líbýumanna sem
þegar hafði rætt við Gorbatsjof,
Sovétleiðtoga.
Karachi — Sprengjur sprungu við
skrifstofur bandarísks og tveggja
saudi-arabískra flugfélaga í höfuð-
borg Pakistan í gær. Einn maður
lést og fjórir særðust.
Moskvu — Helsti ráðgjafi Sovét-
stjórnarinnar í utanríkismálum og
fyrrum sendiherra Sovétríkjanna í
Bandaríkjunum, Anatólí Dobrynín,
hvatti í gær Bandaríkjastjórn til að
taka þátt í „nýrri pólitiskri hugs-
un“, eins og hann orðaði það.
Hann bætti því við að Sovétríkin
ætluöu sér ekki að koma kapítal-
ismanum fyrir kattarnef.
Varsjá — Czeslaw Bielecki, einn
helsti forystumaðurinn í Sam-
stöðu verður dæmdur af herdóm-
stóli bráðlega. Hann hefur verið
ákærður um að hafa ætlað að bylta
ríkisstjórninni með valdi. Bielecki
hefur undanfarið verið í hungur-
verkfalli og hefur matur verið
neyddur ofan í hann.
Grænfriðungar
Moby Dick á Noregsmið
Hamborg — Á næstkomandi
föstudag leggja Grænfriðung-
ar úr höfn í Hamborg um borð í
skipi sínu, Moby Dick og er
ætlunin að trufla veiðar Norð-
manna á hrefnu í N-Atlantshafi
í sumar.
í fréttatilkynningu seni sam-
tökin gáfu út í gær segir að skipið
muni sigla inn í skotlínu fiski-
manna á norsku hvalveiðiskipun-
um. Norðmenn voru þeir einu
sem neituðu að gangast undir
bann Alþjóðahvalveiðiráðsins
varðandi veiðar í ágóðaskyni frá
og með yfirstandandi ári. Hval-
' veiðifloti Norðmanna lét úr höfn
í fyrradag, í þann mund sem al-
þjóðleg alda mótmæla barst til
Noregs vegna áforma Norð-
manna urn að veiða 400 hrefnur á
þessari vertíð.
Grænfriðungar halda því fram
að hrefnustofninn sé í útrýming-
arhættu en norskir embættis-
menn neita þessu harðlega.
Frá hinu hrörlega Crossroadshverfi við Höfðaborg í S-Afríku, fyrir óeirðirnar í
síðustu viku
þetta í gær, hann sagði að fundist
hefði fyrsta taugaveikitilfellið í
búðunum og hvatti yfirvöld til að
bæta ástandið í búðunum.
Óeirðir svipaðar þeim sem áttu
sér stað í Crossroads hafa verið
um allt landið, m.a. hafa átt sér
stað átök milli róttækra svartra
manna og annarra svartra sem
róttæklingar saka um að eiga
samstarf við hvíta.
Frá Héraðsskólanum
Laugarvatni
Umsóknarfrestur um skólavist er til 30. júní. í
skólanum eru 8. og 9. bekkur grunnskóla. Upp-
lýsingar hjá skólastjóra í síma 99-6112.
0Frá
Fjölbrautaskólanum
viðÁrmúla
Innritun fer fram í Miðbæjarskólanum 2. og 3. júní
frá kl. 9.00 til 18.00 og á skrifstofu Ármúlaskóla 2.
til 6. júní frá kl. 8.00 til 15.00. Skólinn býður upp á
nám á eftirtöldum brautum:
Heilsugæslubraut, bæði aðfaranám sjúkraliða-
skólans og til stúdentsprófs, íþróttabraut,
tveggja ára og til stúdentsprófs, Málabraut til
stúdentsprófs, Náttúrufræðibrauttil stúdents-
prófs, Samfélagsbrauttil stúdentsprófs,
Uppeldisbraut, aðfaranám fósturskóla og til
stúdentsprófs, Viðskiptabrauttil almenns
verslunarprófs og stúdentsprófs.
Allar nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu
skólanssíma 84022.
Skólameistari.
ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 17