Þjóðviljinn - 31.05.1986, Qupperneq 1
1936-1986 ÞJOÐVILJINN 50 ARA
31
120. tölublað 51. örgangur
mai
1986
laugar-
dagur
ÞJOÐVIUINN
SUNNUDAGS-
BLAÐ
MENNING
HEIMURINN
ÍÞRÓTTIR
Borgarstjórnarkosningarnar
Nú er tækífærið
Efstu menn G-listans: Fólk erað
snúast á sveifmeð
Alþýðubandalaginu. Baráttaner
að skila árangri. Vonum að
meðbyrinn skili sér í dag.
Tœkifœrið til að gefa
Sjálfstœðisflokknum einkunn.
Tœkifœrið til að hefja nýja sókn.
Pað munar um þig!
Maður fínnur að fólk er að
snúast á sveif með Alþýðu-
bandalaginu svo ég er bjartsýnn,
sagði Sigurjón Pétursson efsti
maður á G-listanum í samtali við
Þjóðviljann í jgær.
Kristín Á. Olafsdóttir 2. maður
á G-listanum sagði:
- Það má blindur maður heita,
sem ekki sér og finnur óréttlætið
sem þrífst undir stjórn Sjálfstæð-
isflokksins í Reykjavík, - og auga
margra hafa opnast síðustu daga.
Ég finn að kosningabaráttan er
I dag
velgjum
við íhaldinu
undir uggum
XG
að skila árangri, - og þó að ekki
takist að fella meirihluta Sjálf-
stæðisflokksins, þá er víst að
vindurinn er farinn úr Sjálfstæð-
isflokknum. Við höfum fundið
fyrir meðbyr - og ég vona að
hann skili sér á kjördag. Draum-
urinn er orðinn nærtækari síðustu
daga - vonin um að okkur takist
að efla aðhaldið og hleypa frísk-
um anda inní borgarstjórnina.
Þess vegna skora ég á alla að gera
það sem í hvers manns valdi
stendur til að gera sigur okkar
sem mestan. Best væri náttúrlega
ef fjórði maðurinn kæmist inn -
en ég viðurkenni að það þyrfti
óskaskiptingu þar til. En það
munar um hvert atkvæði, og það
munar um þig. Nú er tækifærið að
gefa íhaldinu einkunn, sagði
Kristín Á. Ólafsdóttir varafor-
maður Alþýðubandalagsins, 2.
maður á G-íistanum.
- Þó eru enn nokkrir óráðnir
og ég tel að enginn stuðnings-
maður G-listans ætti að setjast
fyrir framan sjónvarpið að kvöldi
kjördags nema vera þess fullviss
að hafa gert allt sem í hans valdi
stendur til að tryggja góðan ár-
angur. Þá eigum við líka ánægju-
lega kosninganótt í vændum,
sagði Sigurjón Pétursson að lok-
um.
Þau skipa fjögur efstu sæti G-listans í Reykjavík: Sigurjón Pétursson, Kristín Ólafsdóttir, Guðrún Ágústsdóttir og Össur
Skarphéðinsson.
Davíð
Stoltur af Ölfusvatni
Sjónvarpsumrœðurnar ígœrkveldi. Spenna milli Össurar og Davíðs.
Borgarstjórinn notaði stór orð. Gortaði sig af Ölfusvatni og Granda.
Kvað alla viðmœlendur sína segja ósatt!
Landakaupin á ölfusvatni vöfðust fyrir borgarstjóranum í sjónvarpsþættinum í
gærkveldi. Ljósmyndin var tekin í sjónvarpssal. -E.ÓIason
- Eg er stoltur af Ölfusvatni,
ég er stolur af Granda, sagði Da-
víð Oddsson borgarstjóri í sjón-
varpsumræðunum í gærkveldi.
Össur Skarphéðinsson gagnrýndi
meirihlutastjórn Sjálfstæðis-
flokksins harkalega og lýsti því
yfír í lokin að hann vildi gjarnan
komast inní borgarstjórn til að
kljást við íhaldið.
- Þú ert grobbari, þú hefur
ekkert vit á þessu, dylgjur, mis-
skilningur. í þessa veru voru við-
brögð borgarstjórans við
gagnrýni minnihlutaflokkanna
sem bjóða fram til borgarstjórnar
í sjónvarpinu í gærkveldi. Með
þvílíkum orðum vísaði borgar-
stjóri öllum ásökunum á bug.
Auk Össurar og Davíðs tóku þau
Áshildur Jónsdóttir, Sigrún
Magnúsdóttir, Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir og Bjarni P. Magnús-
son þátt í umræðunum.
Það leyndi sér ekki að mesta
spennan var á milli Davíðs borg-
arstjóra Sjálfstæðisflokksins og
Össurar Skarphéðinssonar mál-
flytjanda Alþýðubandalagsins. -
Ef Þjóðviljaliðið hefði verið inni í
borgarstjórn í vetur - þá hefðu
kjarasamningarnir ekki verið
gerðir á íslandi, sagði borgar-
stjóri og kveinkaði sér undan af-
stöðu G-listans í launamálum.
Þátturinn markaðist af
táknrænum málum fyrir stjórn-
unarhætti Sjálfstæðisflokksins
Ölfusvatnsmálinu og Grandamá,-
inu - en borgarstjóri átti mjög í
vök að verjast.
-óg