Þjóðviljinn - 31.05.1986, Side 6
ÍÞROTTIR
Körfubolti
Celtics
með 2-0
Boston Celtics eru komnir með
góða forystu í úrslitaviður-
eigninni gegn Houston Rockets
um bandaríska meistaratitilinn. í
fyrrakvöld unnu Celtics sinn ann-
an sigur í jafnmörgum leikjum,
117-95, og þurfa því aðeins 2 sigra
í 5 leikjum liðanna til að hreppa
titilinn. Larry Bird átti stórleik
með Celtics og skoraði 31 stig en
Kevin McHale gerði 25.
—VS/Reuter
Frjálsar
U-20 í
Keflavík
Unglingameistaramót íslands í
frjálsum íþróttum verður haldið á
íþróttavellinum í Keflavík laugardag-
inn 7. júní. Þátttökurétt hafa allir þeir
sem eru 20 ára á árinu eða yngri, svo
framarlega sem þeir hafa náð til-
skyldum lágmörkum. Skráningar
berist á keppniskortum til skrifstofu
FRÍ eða Helga Eiríkssonar, Heiðar-
holti 4, 230 Keflavík (92-4821) eigi síð-
ar en þriðjudaginn 3. júní, ásamt
þátttökugjaldi sem er 200 krónur á
grein og 400 krónur fyrir boð-
hlaupssveit.
Keppnisgreinar eru þessar, lág-
mörk í svigum: 100 m hlaup (karlar
12,00, konur 13,30), 400 m hlaup (ka
55,00, ko 65.00), 800 m hlaup, 1500 m
hlaup, 3000 m hlaup, 5000 m hlaup,
100 m grindahlaup kvenna (18.50),
110 m grindahlaup karla (18.50),
4x100 m boðhlaup, kúluvarp (ka
10,00, ko 8,00), kringlukast (ka
28,00, ko 26,00), spjótkast (ko
28,00), hástökk (ka 1,75, ko 1,45),
langstökk (ka6,00, ko4,80), þrístökk
(ka 12,00) og stangarstökk (ka 3,00).
Kvennaknattspyrna
Jafnt í
Grindavík
Grindavík og Afturelding
skildu jöfn, 1-1, í fyrsta leik A-
riðils 2. deildar kvenna í knatt-
spyrnu í fyrrakvöld. Leikurinn
fór fram í Grindavík. Leik Skalla-
gríms og Grundarfjarðar var
frestað.
Þór Þorlákshöfn sigraði Selfoss
3-2 í B-riðlinum í fyrrakvöld, í
Þorlákshöfn. Stjarnan vann
Fram 1-0 á miðvikudagskvöldið í
þeim riðli eins og áður hefur ver-
ið sagt frá.
—VS
Unglingaknattspyrnan
Keppnin
hafin
Keppni í 3. og 4. flokki á ís-
landsmótinu í knattspyrnu hófst
nú í vikunni. Leikin var heil um-
ferð í A-riðli 3. flokks og fjórir
leikir í A-riðli 4. flokks. Urslit
urðu sem hér segir:
3. flokkur:
Fylkir-VíkingurR....
ÍK-lBK.......
Valur-lR.....
Týr-Stjarnan.
KR-ÞrótturR..
0-2
4-2
3- 0
4- 4
1-2
4. flokkur:
KR-Breiðablik....................0-4
Víkingur R.-Fram.................0-3
IBK-Selfoss......................2-6
Valur-lK.........................5-0
Þjóðviljinn mun sem fyrr fylgj-
ast vel með unglingaknattspyrn-
unni í sumar og hvetur forráða-
menn yngri flokka til að rétta
hjálparhönd með því að hringja
inn úrslit og fréttir af leikjum.
—VS
Zico hinn heimsfrægi situr sennilega á varamannabekk Brasilíumanna
þegar þeir mæta Spánverjum á morgun. Hann virðist þó vera að ná sér á
strik eftir langvinn meiðsli og ekki er ólíklegt að hann komi eitthvað við
sögu í leiknum.
HM-leikirnir
Rossi ekki í hópnum
Italía-Búlgaría kl. 18 í dag og Brasilía-Spánn kl. 18 á morgun
í beinni útsendingu
Paolo Rossi, stjarna heimsmeist-
arakeppninnöar á Spáni 1982, er ekki
í liði Itala sem hefur vörn heimsbik-
arsins, gegn Búlgaríu, í Mexíkóborg í
dag. Hann hefur átt erfítt með að að-
laga sig hitanum og þunna loftinu í
Mexíkó og er ekki einu sinni valinn í
16-manna hópinn.
Leikur Ítalíu og Búlgaríu hefst kl.
18 í dag og verður sýndur beint í ís-
lenska sjónvarpinu. Italska liðið var
tilkynnt í gær en endanleg uppstilling
Búlgara lá ekki fyrir. Hér er öruggt
lið Itala og líklegt lið Búlgara, númer
leikmanna fyrir framan, aldur og
landsleikjafjöldi fyrir aftan:
Ítalía
Markvörður:
1. Giovanni Galli 28/14
Varnarmenn:
2. Giuseppi Bergomi 22/27
3. Antonio Cabrini 28/63
6. Gaetano Scirea 33/73
8. Pietro Vierchowod 27/22
Tengiliðir:
10. Salvatore Bagni 29/25
13. Fernando De Napoli 22/0
14. Antonio Di Gennaro 27/10
Framherjar:
16. Bruno Conti 31/42
18. Alessandro Altobelli 30/38
19. Giuseppe Galderisi 23/5
Varamenn:
4. Fulvio Collovati 29/48
11. Giuseppe Barisi 28/14
12. Franco Tancredi 31/11
15. Marco Tardelli 31/81
17. Gianluca Vialli 21/3
Búlgaría
Markvörður:
1. Borislav Mihailov 23/21
Varnarmenn:
3. Nikolai Arabov 33/28
4. Petar Petrov 25/25
5. Georgi Dimitrov 27/52
13. Alexander Markov 25/17
Tengiliðir:
6. Andrei Yeliaskov 33/47
8. Anyo Sadkov 24/47
11. Plamen Getov 26/7
14. Plamen Markov 29/37
Framherjar:
9. Stoytcho Mladenov 28/47
20. Kostadin Kostadinov 26/33
Varamenn:
2. Nasko Sirakov 24/18
7. Bojidar Iskrenov 23/24
10. Yivko Gospodinov 28/26
12. Radoslav Zdravkov 29/56
15. Georgi Yordanov 22/3
16. Wasil Dragolov 23/0
17. Hristo Kolev 21/7
18. Boytcho Velitchkov 27/32
19. Atanas Pashev 22/0
21. Iliya Diyakov 22/3
22. Iliya Valov 24/8
Á sunnudaginn kl. 18 verður viður-
eign Brasilíu og Spánar sýnd beint í
sjónvarpinu. Það er leikur sem marg-
ir bíða eftir og í gær leit útfyrir að lið
Brasilíu yrði þannig skipað:
Markvöröur:
1. Carlos 31/44
Varnarmenn:
2. Edson 26/31
4. Edinho 30/51
14. Julio Cesar 22/1
17. Branco 21/8
Tengiliðir:
6. Junior 31/42
15. Alemao 24/9
18. Socrates 31/52
19. Elzo 25/5
Framherjar:
8. Casagrande 23/16
9. Careca 26/25
Varamenn:
3. Oscar 31/64
5. Falcao 32/40
7. Muller 20/5
10. Zico 33/83
11. Edivaldo 24/2
12. Paulo Victor 28/15
13. Josimar 24/0
16. Mauro Galvao
20. Silas 20/2
21. Valdo 20/0
22. Leao 36/104
Spænska liðið hefur ekki verið birt
en það skipa eftirtaldir leikmenn:
1. Andoni Zubizarreta 25/9
2. Pedro Tomas Renones 22/5
3. Jose Antonio Camacho 31/64
4. Antonio Maceda 29/35
5. Victor Munoz 29/39
6. Rafael Gordillo 29/62
7. Juan Antonio Senor 28/29
8. Andoni Goikoetxea 29/29
9. Emilio Butrageno 22/11
10. Francisco Carrasco 27/30
11. Julio Alberto Moreno 27/22
12. Enrique Setien 27/3
13. Francisco Xavier Urruti 34/5
14. Ricardo Gallego 27/26
15. Miguel Porlan Chendo 25/1
16. Hipolito Rincon 29/20
17. Francisco Lopez 23/14
18. Ramon Caldere 27/6
19. Julio Salinas 23/3
20. Eloy Olaya 21/3
21. Miguel Gonzalez 23/5
22. Juan Ablanedo 22/0
3. deild
Umdeild á
Norðfirði
Umdeild vítaspyrna færði
Austra frá Eskifirði stig gegn erk-
ióvininum, Þrótti, í Neskaupstað í
NA-riðlinum í gærkvöldi. Úr
henni jafnaði Grétar Ævarsson,
1-1. Þróttarar höfðu verið heldur
líklegri aðilinn til sigurs eftir þó
jafna baráttu og Guðbjartur
Magnason skoraði mark þeirra í
fyrri hálfleiknum.
Fylkir sótti HV heim á Akra-
nes í SV-riðlinum í gærkvöldi og
vann 1-0. Fylkispiltarnir voru
öllu sterkari en heimamenn og
Óskar Theodórsson skoraði
sigurmark þeirra í fyrri hálf-
leiknum.
—VS
V. Þýskaland
Átta núll!
Borussia Dortmund burstaði Fort-
una Köln 8-0 í hreinum úrslitaleik lið-
anna um sæti í Bundesligunni í knatt-
spyrnu næsta vetur. Leikið var í Duss-
eldorf í gærkvöldi en liðin voru jöfn
eftir tvo leiki. Staðan var 1-0 í hálfíeik
en Kölnarar sprungu gersamlega 1
seinni hálfleik.
—VS/Reuter
2. deild
2. deild
Jafnað á 91. mínútu
Eftir nær stanslausa sókn allan
seinni hálfleikinn á KA-mölinni í
gærkvöldi skoruðu Völsungar
loks á 91. mínútunni markið sem
færði þeim sanngjarnt stig og vel
það. Wilhelm Fredriksen lék á
tvo varnarmenn í vítateig KA og
sendi á Grétar Jónasson. Hann
renndi boltanum á Kristján Ol-
geirsson sem hamraði hann í
markið, 1-1.
Fyrri leikur var jafn, þokka-
lega leikinn og nokkuð fjörugur.
Þorfinnur Hjaltason markvörður
Völsungs varði glæsilega skot
Haralds Haraldssonar eftir langt
innkast Árna Freysteinssonar á
KA-Völsungur 1-1 (1-0) * ★ ★
12. mín. Árni tók annað slíkt rétt
á eftir, þá skallaði Erlingur Krist-
jánsson á Tryggva Gunnarsson
sem potaði boltanum í mark Hús-
víkinga, 1-1.
Á 20. mín. skaut Kristján í
utanvert hliðarnet KA-marksins
af þvilíkum krafti að markið
færðist úr stað! Erlingur skallaði
glæsilega í þverslá Völsungs-
marksins eftir hornspyrnu Árna
rétt fyrir hlé og síðan átti Björn
Olgeirsson geysifallegt skot á
mark KA af 25 m færi sem
Haukur Bragason varði
meistaralega.
Sókn Völsunga var þung í
Sætur sigur
Siglfirðinga
Þróttur R.-KS 2-3 (1-0) ★ ★ *
seinni hálfleik og þeir áttu að fá
vítaspyrnu á 60. mín. þegar illa
var brotið á Sveini Freyssyni.
Hinum megin varði Þorfinnur vel
frá Tryggva. Allt stefndi í sigur
KA en réttlætinu var fullnægt í
lokin.
Bræðurnir Björn og Kristján
voru yfirburðamenn hjá Völs-
ungi og Þorfinnur varði vel. Er-
lingur og Þorvaldur Örlygsson
voru bestir hjá KA og Hinrik
Þórhallsson stóð fyrir sínum.
Maður leiksins: Kristján Ol-
geirsson, Völsungi.
—K&H/Akureyri
Munurinn á Þrótturum og
Siglfirðingum í gærkvöldi lá í því
að þeir síðarnefndu voru stað-
ráðnir í að sigra, gáfu sig alla í
verkefnið og uppskáru eftir því.
Þróttarar voru hinsvegar einsog
sundurlaus hópur, virtust halda
að sigur væri sjálfsagður og kæmi
án fyrirhafnar.
Þróttur var sterkari aðilinn í fyrri
hálfleik og þá skoraði Nikulás Jóns-
son á 25. mínútu eftir góðan undir-
búning Sigurðar Hallvarðssonar. Þeir
félagar voru bestu menn Þróttar í
leiknum.
Siglfirðingar tóku hinsvegar
leikinn í sínar hendur eftir hlé og
Gústaf Björnsson jafnaði eftir langt
innkast Harðar Júlíussonar á 59. mín.
Sigurður kom Þrótti yfir á ný á 67.
mín. eftir að Nikulás hafði leikið vörn
KS grátt, 2-1, en þetta voru dauða-
teygjur Sæviðarsundsliðsins.
Fimm mínútum síðar var Gústaf
aftur á ferð, var skyndilega einn í víta-
teig Þróttar, hirti boltann eftir mis-
heppnað langskot félaga síns og
skoraði auðveldlega, 2-2. og Gústaf
kom enn við sögu á 77. mínútu. Þá
tók hann hornspyrnu, sniðuga og
beint á Hörð Júlíusson sem, á móts
við nærstöng, skallaði óvaldaður fal-
lega í mark Þróttar. KS átti leikinn
með húð og hári eftir þetta, Þróttarar
komust varla yfir miðju það sem eftir
lifði leiks.
Maður leiksins: Gústaf Björnsson,
KS
—VS
6 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 31. maí 1986
5 Áaic - KFilbJlVaCLI 8t)9r ’ierd •'i;r,toiet.n;» J