Þjóðviljinn - 31.05.1986, Qupperneq 7

Þjóðviljinn - 31.05.1986, Qupperneq 7
DJÚÐVILJINN Listahátíð 1986 Umsjón: Mörður Árnason Veislan hafin! Menntamálaráöherra stígur í dag klukkan tvö í pontu á Kjarvalsstöðum, segir nokkur vel valin, og þarmeð hefst hálfsmánaðar listaveisla í höfuðborginni. Listahátíð var fyrst haldin fyrir sextán árum og þótti þá nokkuð djarft tiltæki, - en þótt ýmsir vindar hafi leik'ð um hátíðina síðan hefur hún unnið sér sess sem tilhlökk- unarefni meðal alls almennings ogaflgjafi í menningarlífi. Einkenni hátíðarinnar nú er að aðstandendur hafa kosið að fækka viðburðum nokkuð þannig að ekki skyggi hver á annan, og áhugamenn þurfi ekki tímans vegna að velja á milli. Gildustu listabændur eru nokkuð sammála um að á hátíðinni nú beri einna hæst sýningu Picasso-verka á Kjarvalsstöðum, Strindberg-uppsetningu Ingmars Berg- man í Pjóðleikhúsinu, heimsókn Doris Lessing, píanó- tónleika Claudio Arrau í Háskólabíó, og tónleika djass- meistarans Dave Brubeck, - en með þessum eru merkis- atburðir á hátíðinni engan veginn upptaldir. Hér á síðunni minnum við á upphafsviðburði Listahá- tíðar 1986, með kynningu hátíðarmanna. Þóra Friðriksdóttir listráðunautur á Kjarvalsstöðum og þau Ragna Róbertsdótt- ir og Eyjólfur Einarsson úr sýningarnefndinni við tréskurðarmyndir Sæmundar Valdimarssonar. Reykjavík í myndlist Kjarvalsstaðir efna til sýningar á Listahátíð er nefnist REYKJAVÍK í M YNDLIST í tilefni 200 ára af- mælis Reykjavíkurborgar. Til sýningarinnar var boðið öllum starfandi myndlistarmönnum á landinu, og skyldu verkin hafa Reykjavík að yrkisefni eða fyrir- mynd. Markmiðsýningarinnarer að hvetja myndlistarmenn til þess að taka virkan og skapandi þátt í afmælishátíðarhöldunum, og jafnframt að gefa almenningi kost á því að sjá hverjum augum listamenn líta borgina. Alls bárust á annað hundrað verk, og dómnefnd, skipuð Huldu Valtýsdóttur borgarfull- trúa og myndlistarmönnunum Eyjóin Einarssyni og Rögnu Ró- bertsdóttur, völdu 60 verk eftir 33 listamenn. Sýningin er í vestursal Kjar- valsstaða, og eitt verk er að auki utan dyra. Hún verður opin í tvo mánuði, þ.e. frá 31. maí til 27. júlí n.k. Karl Kvaran Framlag Listasafns íslands til Listahátíðar að þessu sinni er yfirlitssýning á verkum Karls Kvaran sem opnuð verður sunnu- daginn 1. júní klukkan 15.00 í Listasafninu. Karl Kvaran sýndi fyrst verk sín á Listamannaþingi árið 1950 eftir að hafa stundað myndlistar- nám heima og erlendis. Hann er fulltrúi þeirrar kynslóðar mynd- listarmanna sem tileinkaði sér hina geómetrísku abstraktsjón á sjötta áratugnum. Síðan hefur hann unnið í beinu framhaldi þeirrar stefnu. Vinnubrögð hans eru ákaflega vönduð og myndstíll hans agaður. Sýmngtn stendur til 27. júlí. Engum getur blandast hugur um að sýning á verkum Pablo Pic- asso að Kjarvalsstöðum er stór- merkur listviðburður á íslandi; þessu landi sem liggur svo fjarri alfaraleið í heiminum að heimsbyggðin man varla eftir því, hvað þá heldur að nokkrum í þeirri byggð geti að fyrrabi agði dottið í hug að slíkur stórviðburð- ursem Picasso-sýninginergeti orðið á þessu skeri í norðurhöfum. Enda hefði þessi sýning aldrei orðið að veruleika nema fy rir ein- staka velvild ekkju Picasso, Jacq- ueline Picasso, en allar myndirn- ar á sýningunni eru úr einkasafni hennar. Sýninguna nefnir hún Exposition inattendue. Hún hef- ur sjálf gengt myndirnar upp á Kjarvalsstöðum og opnar sýning- una. Jacqueline Picasso er heið- ursgestur Listahátíðar. Mjög vönduð sýningarskrá með litmyndum af öllum verkun- um á sýningunni hefur verið gefin út. Listrænt verðmæti þessara verka er ómetanlegt. Það er því trú og von framkvæmdastjórnar að allir sem vettlingi valda komi á sýninguna; ólíklegt að önnur eins verði hér á landi í bráð, kannski aldrei. Pablo Picasso hefur verið nefndur snillingur snillinganna. Hann andaðist árið 1973 og hafði þá haft varanlegri og dýpri áhrif á myndlist tuttugustu aldar en nokkur annar myndlistarmaður. Sýningin stendur frá 31. maí til 27. júlí. Og nú er ekki annað eftir en að koma og sjá og draga álykt- un. Berkofsky og Hafliði Við setningu Listahátíðar á Kjarvalsstöðum leikur Martin Berkof- sky píanóleikari þrjú verk eftir Hafliða Hallgrímsson, sem í ár fékk tónlistarverðlaun Norðurlandaráðs. Petta eru þrjú íslensk þjóðlög: Austan kaldinn á oss blés, Ljósið kemur langt og mjótt, og Gríms- eyjargæla. Cecile Licad Þaö hefur verið stefna Listahátíö- ar frá upphafi aö kynna unga listamenn sem eru á hraöri leið til þroska og frama og eiga ótvírætt eftir að setja svip sinn á heims- listarlífð. Einn þessara listamanna á há- tíðinni núna er píanóleikarinn Cecile Licad sem hlotið hefur frá- bærar umsagnir fyrir leik sinn austan hafs og vestan. Frami hennar hefur verið svo mikill og skjótur að hún er nú talin ein af skærustu stjörnum yngstu kyn- slóðar píanóleikara í Bandaríkj- unum. Hún er aðeins 25 ára að aldri en hefur nú þegar leikið með mörgum helstu hljóm- sveitarstjórum heimsins. Hún var nemandi Rodolfs Serkin sem ís- lendingum er að góðu kunnur. Meðal hljómsveitarstjóra ' sent hún hefur leikið með má nefna Andre Previn, Nevilli Marriener. Sir Georg Solti, Rostropovich og Eugene Ormandy. Það er því ekki tilviljun að Cec- ile Licad skipar þann heiðurssess á Listahátíð á leika á opnunar- tónleikum hátíðarinnar klukkan 5 með Sinfóníuhljómsveit fs- lands. Með því vildi fram- kvæmdastjórn Listahátíðar undirstrika þýðingu þess að kynna unga listamenn rétt í þann mund að allar dyr heimsins hafa opnast fyrir þeim eða eru í þann veginn að opnast. Laugardagur 31. maí 1986 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 7 Dagskrá helgarinnar LAUGARDAGUR 31. MAI 14.00 Kjarvalsstaðir 1. Setning Listahátíðar í Reykjavík 1986; Sverrir Hermannsson menntamálaráðherra. 2. Hafliði Hallgrímsson: þrjú íslensk þjóölög; Austan-kaldinn á oss blés. Ljósið kemur langt og mjótt. Grímseyjargæla. Martin Berkofsky leikur á píanó. 3. Afhending verðlauna í smá- sagnasamkeppni Listahátíðar. Doris Lessing rithöfundur af- hendir verðlaunin. 4. Opnun sýningarinnar „Expositi- on inattendue" á verkum Pablo Picasso að viðstaddri ekkju hans, Jacqueline Picasso. 5. Opnun sýningarinnar „Reykja- vík í myndlist". 17.00 Háskólabíó Sinfóníuhljómsveit Islands. Stjórnandi: Jean-Pierre Jacquillat. Einleikari: Cecile Licad, píanó. SUNNUDAGU 1. JÚNÍ 15.00 Listasafn íslands Opnun yfirlitssýningar á verkum Karls Kvaran. 16.00 Iðnó Dagskrá um Doris Lessing rit- höfund. Hún heldur fyrirlestur. 20.30 Broadway Flamenco-flokkur frá Spáni undir stjórn Javier Agra. MÁNUDAGUR 2. JÚNÍ 20.30 Þjóðleikhúsið Flamenco-flokkur frá Spáni (síðari sýning).

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.