Þjóðviljinn - 31.05.1986, Síða 17

Þjóðviljinn - 31.05.1986, Síða 17
HEIMURINN Danmörk Viðskiptabann á S-Afríku Danska stjórnarandstaðan ruddi ígær brautinafyrir viðskiptabann S-Afríku með þvíað samþykkja slík lög, þau taka gildi 15. júní nœstkomandi með sex mánaða aðlögunartíma Kaupmannahöfn — Danska þjóðþingið samþykkti í gær til- lögu stjórnarandstöðunnar um að banna öll viðskipti við S-Afríku til að mótmæla stefnu stjórnarinnar í S-Afríku í kyn- þáttamálum. Þar með er Dan- mörk orðin fyrsta þjóðin sem tekur þetta skref. Eftir þá blóðugu atburði síð- ustu viku þegar her S-Afríku réðst inn í þrjú nágrannaríki sín, er ljóst að umheimurinn verður að mótmæla. „Þó það kosti okkur eitthvað að framfylgja þeim lífsreglum sem viðhöfum sett okkur, verðum við bara að sætta okkur við það,“ sagði talsmaður Jafnaðarmanna. Paul Schluter, forsætisráðherra, fordæmdi þá „fyrirlitningu" sem S-Afríka hefði sýnt áliti umheimsins en sagði að viðskiptabann Dana á S-Afríku eitt og sér gæfi Dönum aðeins hreina samvisku,en væri ekki rétta leiðin til að berjast gegn kynþáttaaðskilnaðarstefn- unni. „Það er Danmörk sem ein- angrast vegna þessarar tillögu en ekki S-Afríka,“ sagði Schluter. Frá danska þjóðþinginu. Danska minnihlutastjórnin sat hjá við atkvæða- greiðslu um viðskiptabann. Spánn ETA sprengir á Costa Del Sol Aðskilnaðarhreyfing Baska, ETA, tilkynnti ígærað hreyfingin hefði komiðfyrir þremur sprengjum á stœrstu hótelum á sólarströndinni Malaga — Skæruliðar aðskiln- aðarhreyfingar Baska, ETA, til- kynntu í gær að þeir hefðu komið fyrir sprengjum í þrem- ur stærstu hótelunum á Costa Dei Sol á Spáni. í fyrradag sprakk lítil sprengja í fjögurra stjörnu hóteli á Fueng- irola nálægt Malaga. Nokkrar skemmdir urðu á neðstu hæð hót- elsins en enginn særðist. Þeir þús- und ferðamenn sem dvöldust á hótelinu, Las Palmeras, voru fluttir á brott klukkustund áður en sprengjan sprakk þar sem hringt hafði verið á hótelið og látið vita um að sprengja væri í byggingunni. ETA hreyfingin lýsti ábyrgð á hendur sér og að liðsmenn hreyfingarinnar hefðu komið fyrir þeim tveimur sprengjum sem aftengdar voru á þriðjudaginn á hótelum í Tor- remolinos. Lögregluyfirvöld höfðu tilkynnt að gasleki hefði valdið sprengingu í Hotel Cer- vantes í Torremolinos á þriðju- daginn. ETA tilkynnti að önnur sprengja sem komið hefði verið fyrir í Hotel Melia hefði ekki sprungið. Óeinnkennisklæddir lögreglu- þjónar fínkembdu öll hótel á Fu- engirola í leit að sprengjum í alla fyrrinótt. Gestir á Las Palmeras hótelinu sögðu að þeim hefði brugðið nokkuð en sögðust fegn- ir að enginn hefði slasast. „Þetta var lítil sprenging en nógu hávær til að ég hentist upp úr sæti mínu,“ sagði breskurferðamaður sem dvelst á hótelinu. Um það bil 600 Bretar eru á hótelinu. Margir þeirra voru á nautati, að horfa á Bretann Frank Evans frá Manc- hester kljást við nautið. Fyrr í vikunni barst fjölmiðlum tilkynning frá ETA hreyfingunni um að samtökin myndu hefja sprengjuherferð á suðurströnd Spánar sem er undirlögð hótelum fyrir ferðamenn. Þjónusta við ferðamenn er umfangsmesti at- vinnuvegurinn á Spáni og er enn að aukast. Spænsk yfirvöld til- kynntu í gær að þau hefðu þegar fyrirskipað öryggisááetlanir sem skipulagðar voru þegar ETA framkvæmdi svipaðar spren- gingar á Costa Del Sol árið 1979. Talsmaður þess ráðuneytis sem sér um flutninga og ferðaþjón- ustu sagði að reynslan hefði sýnt að sprengjuherferð ETA á ferða- mannastöðum hefðu haft lítil áhrif á ferðamannaþjónustuna. ETA samtökin sprengdi 19 litl- ar sprengjur á síðasta sumri við Miðjarðarhafsströnd Spánar. Yf- irleitt vöruðu þeir við sprenging- unum og aðeins einu sinni slasað- ist fólk. Þá fengu sænsk hjón dá- litlar skrámur. Spánverjar gera ráð fyrir að 45 milljónir ferða- manna heimsæki landið á þeSsu ári. í fyrra voru þeir 43 milljónir. ETA skæruliðar hafa í hyggju að sprengja á Costa Del Sol í sumar. Þeir hafa yfirleitt látið vita fyrirfram og enginn hefur særst hingað til. Viðskiptabannið var samþykkt með 76 atkvæðum gegn 5, 63 þingmenn sátu hjá. Óll stjórnar- andstaðan geiddi tillögunni at- kvæði sitt en allir fjórir stjórnar- flokkarnir sátu hjá. Danir fluttu inn varning frá S- Afríku fyrir 1,7 milljarð sænskra króna á síðasta ári. Hins vegar voru 80 % þeirrar upphæðar vegna kolainnflutnings sem danska þingið bannaði innflutn- ing á fyrr í þessum mánuði. Út- flutningur Dana til S-Afríku nam 613 milljónum danskra króna á síðasta ári. Það var aðallega vél- búnaður til landbúnaðar, ýmis efni og lyf. Lyfjaútflutningur er undanþeginn hinu nýja viðskipt- abanni. Danskir skipaeigendur vöruðu við því að nýju lögin sem taka gildi 15. júní næstkomandi með sex mánaða aðlögunartíma, myndu hafa hrikalegar afleiðing- ar ef samningar um flutning danskra skipa til hafna í S-Afríku yrði bannaður. Schluter sagði að bannið myndi leiða til frekara atvinnu- leysis í Danmörku, án þess að það hefði nokkur varanleg áhrif í S-Afríku. Hann sagði einnig að sameiginlegar aðgerðir allra Norðurlandanna gegn S-Afríku væru fýsilegri. Talsmaður stjórn- arandstöðunnar sagði hins vegar að líf þúsunda manna í S-Afríku væri nú í hættu og ekki væri tími til að bíða eftir alþjóðlegu samkomulagi um viðskiptabann. Pólland Elsta hand- ritið fundið Varsjá — Landsbókasafn Pól- lands hefur fengið elsta hand- rit í Póllandi sem vitað er um, 1200 ára gamalt Nýja Testa- menti sem var í vörslu ungs manns sem hafði ekki hug- mynd um þann fjársjóð sem hann hafði undir höndum. Andrzej Piber, bókavörður sagði í gær að maður sem hefði komið með handritið, bundið í skinn, hefði ekki haft hugmynd um að hann væri með handrit í höndunum sem skrifað var í lok 8. aldar. Bókin var rottuétin í einu horninu og einhverju sinni hafði helst rauðvín á hinn helga texta. Annnarsvarhandritiðísvo góðu ásigkomulagi að hin rauða, græna og gulleita lýsing í handrit- inu er enn mjög skýr. Talið er að munkar hafi gert handritið að tilskipan Karla- magnúsar í Aachen. Síðan mun það hafa verið geymt í Heilögu Maximin klaustri í Trier í Þýska- landi til 1802 þegar innrásarherir Napóleóns rændu klaustrið. Árið 1894 fannst handritið upp á lofti í húsi einu í Koblenz. Piber telur að þar hafi rottur nagað það. Piber sagði að maðurinn sem afhenti handritið hefði sagst hafa erft það eftir afa sinn. Piber neitaði að upplýsa hver þessi ungi maður væri né hversu mikil fundarlaunin væru. Hann sagði hins vegar að þau yrðu rausnar- leg. Elstu bækurnar sem geymdar eru í pólskum bókasöfnum eru að minnsta kosti 100 árum yngri en þetta handrit. Og það hefur lík- lega verið einhvern tíma á 11. öldinni sem þessi orð voru skrif- uð á eina af fremstu síðunum í handritinu: „Megi sá sem tekur þessa bók, fordæmast að eilífu.“ Þetta líka... Halifax — Utanríkisráðhera Banda- ríkjanna, George Shultz, sagði í gær að Bandaríkin væru að færa sig frá Salt II samkomulaginu frá 1979 um kjarnorkuvopn en neitaði að viðurkenna að klofningur væri að myndast í Nato. Washington — Bandarikjastjórn vísaði á bug fullyrðingum sovésks blaðamanns um að líkur á leiðtogafundi Reagans og Gorbat- sjof á þessu ári væru hverfandi. Talsmaður stjórnarinnar sagði að hún byggistenn viðaðslíkurfund- ur yrði haldinn. Kaupmannahöfn — Danska þingið ákvað í gær með tveggja atkvæða meirihluta að setja á stofn sjón- varpsstöð, Rás 2, sem kostuð yrði með auglýsingum. ERLENDAR FRÉTTIR hjörleífssoi/R EUIER Austurríki Strangir dómar í vín- hneykslinu Tveir brœdurfengu 10 ára fangelsisdómafyrir að blanda vín hættulegu efni og selja gervivín Krems, Austurríki — Tveir bræður voru dæmdir í 10 ára fangelsi í gær fyrir þátt sinn í vínhneyksli sem skók austur- riska víniðnað á síðasta ári. Héraðsdómari í Krerns dæmdi þá Robert Grill, 54 ára og bróður hans Jósef, 57 ára, seka um stór- fellt fjármálasvindl. Lyfjafræð- ingur sem vann hjá þeim var dæmdur í fimm ára fangelsisvist og umsjónarmaður vínkjallarans fékk þriggja ára skilorðsbundinn dóm. Mennirnir höfðu verið sakaðir um að hafa blandað efninu Diethelyne-Glycol sem er sæt- efni, í5 milljónir lítra afvíni. Efn- ið er frostvarnarlögur sem getur valdið skemmdum á lifur og heilaskemmdum. Bræðurnir sem fluttu megnið af framleiðslu sinni til V- Þýskalands, voru einnig sakaðir um aö hafa framleitt 28,2 milljónir lítra af gervivíni á árun- um 1978 til 1982. Þó bræðurnir hafi ekki játað á sig allar sakar- giftir, héldu verjendur því fram að þeir hefðu brotið vínlögin en ekki gert sig seka um svindl, slíkt hefði þýtt þyngri dóm. Kviðdóm- ur réttlætti þunga dóma sína með því að benda á þær geysilegu fjár- hæðir sem bræðurnir hefðu haft af viðskiptavinum sínum, 20 milljónir dala, með því að selja gervivín í 8 ár. Þetta eru mestu réttarhöldin sem hafa farið fram eftir að upp komst um vínsvindlið sem stöðv- aði svo til vínútflutning Austur- ríkismanna. Stjórnmálamenn hafa sagt að þetta mál hafi spillt mjög fyrir ímynd Austurríkis- manna á viðskiptasviðinu. Rúm- lega 40 austurrískir framleiðend- ur og seljendur víns hafa nú verið kærðir í tengslum við hneykslið. Fyrir fjórum dögum var vínbóndi nokkur í Burgenland héraði dæmdur í þriggja ára fangelsisvist fyrir að framleiða fjórar milljónir lítra af gervivíni á árunum 1982 til 1985. Laugardagur 31. maí 1986 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 17

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.