Þjóðviljinn - 31.05.1986, Side 19
MINNING
Kristján Bimir Siyurðsson bómn, Ármúia víð Djúp
Fœddur 1937 - Dáinn 1986
Laugardagurinn 5. apríl síð-
astliðinn líður mér seint úr minni.
Morgunn hans lofaði góðu og
leyst hafði af jörðu um nóttina,
en umhleypingar í veðri og eigi
sýnt hvað verða vildi veðurs. Það
hallar af hádegi og klukkan verð-
ur 15.00, en er hún nálgast
fullnað hinnar sextándu stundar
hringir síminn og mér hlær hugur
í brjósti með því ég átti von á
vinarhringingu hér úr héraðinu,
gekk að símtólinu og lyfti ...
Hvílíkt reiðarslag! Kollega
minn og vinur á ísafirði tjáir mér
voðaviðburði: Flugvél hafði far-
ist í Ljósufjöllum og Kristján á
Ármúla var meðal farþega.
Snemma vors 1982 renndi ég
heim að Ármúla, er ég kom fyrir
Kaldalón, af Snæfjallaströnd, að
hitta og heilsa hinum nýja land-
nema og fjölskyldu hans. Það var
málningarlykt í stofum og
hreingerningar í gangi, en fjör í
auga og gleði ríkjandi, fullt að
gera, fögnuður starfs og vors.
Þannig man ég hinn látna vin
minn enn í dag. Með okkur tók-
ust þá þegar góð kynni, sem áttu
þó eftir að aukast því ekki leið á
löngu áður en hann tók að sér
organistastörf við Melgras-
eyrarkirkju, en ekki aðeins þar,
heldur var strax til hans leitað á
aðrar að fara, Nauteyri, Unaðs-
dal, Vatnsfjörð. Brást hann ævin-
lega vel við og var ekkert sjálf-
sagðara. Með' honum var afar
gott að starfa og viðmót hans allt
lifandi og hlýtt. En organisti í
sveit gengur ekki aðeins í kirkj-
una til að spila þar við embættið,
heldur liggur bak við mikil æfing
og veit ég að söngæfingarnar á
Armúla voru mönnum tilhlökk-
unarefni, eins og frú Ása Ketils-
dóttir á Laugalandi tekur fram í
ágætri minningargrein um hann.
Er augljóst að þetta starf hans svo
og önnur ýmis, og þá eigi síður
viðkynninguna við þau hjón á
Ármúla, hefur söfnuðurinn
metið að verðleikum. Sést þetta
berlega á minningargreinum
þeim er um hann voru ritaðar af
heimamönnum og nágrönnum
hans. Fyrir hönd safnaðanna hér í
prestakallinu vil ég þakka þetta
óeigingjarna starf hans. Er því
ekki að leyna að fráfall hans var
mikið áfall kirkjulegu starfi og
vandséð hversu fylla skal það
skarð er nú er orðið.
Kristján heitinn var athafna-
maður. Hann vildi líf og umsvif.
Eitt sinn, nú fyrir tæpu ári, rakti
hann fyrir mér hugmyndir sínar
um verklega hluti og framfarir í
sveit sinni og er ekki að efa að
þeir draumar hans hefðu orðið að
veruleika, og eiga e.t.v. eftir að
verða það. Hitt mun þó öllum
ljóst, að með honum hvarf sá
aflvaki og vilji er líklegastur var,
að til dygði holdtekju hugmýnda
þeirra er hann gekk með. Á einni
stundu er hann lýsti draumi sín-
um um stóra hluti og ræddi mögu-
leika þá er fyrir hendi voru, sá ég í
honum mann vorsins og birtunn-
ar, mann stórræða og breytileika,
mann sem unni héraði sínu og
skildi hvers var þörf, mann
áræðni og hvatleika.
Ég varð þess áskynja er á leið
kynni okkar að hann ól með sér
djúprætta trú, eða öllu heldur
finnst mér að hann hefði getað
sagt með Einari Benc
„... ég á mér djúpan grun, sem
nóttin elur ...“
og ég veit ekki hvort þessi logi
tendraðist af kynnum hans við
samferðamenn, eða barnstrú
hans vitjaði hans og steig upp úr
undirvitundinni er á leið ævi,
nema hvort tveggja hafi verið.
Hvað um það, þetta lífsviðhorf
Kristjáns heitins hefur létt hon-
um stundir, ef erfitt var og er
vissulega einkenni allra þeirra er
unna lífi og manni á þessari jörð.
Við sáumst síðast á Melgras-
eyri. Hann kvaddi mig í anddyri
hússins og gekk rösklega niður
tröppurnar og settist í bifreið þá
er ók honum á flugvöllinn; hann
hafði spilað sinn síðasta sálm...
Ég sé í grein vinar míns Engil-
berts á Hallsstöðum, stuttri en
gagnorðri, að hann segist vart
hafa harmað fráfall annars manns
fremur, sér óvandabundins.
Undir þetta get ég tekið, þótt ég
hafi staðið yfir moldum margra
Djúpmanna, mér meira eða
minna kærir eftir atvikum. En
hér kemur ekki til aðeins góð við-
kynning við Kristián, heldur og
dálítil eigingirni: Á þennan mann
gat ég og söfnuðirnir alltaf treyst.
Við höfum, og getum fengið,
góða og gilda bændur í Djúp. En
ég læt ósagt að neinn þeirra hafi
af Guði vorum þegið náðargáfu
söngs og hljóðfæraleiks. Vil ég
enn þakka allt hans framlag til
guðsþjónustuhalds í Vatnsfjarð-
arprestakalli, og mun í því tillit
lengi til muna þeirra ára er hans
naut við.
Fjösum eigi lengi um hverful-
leik þessa lífs. Menn segja: Ó
hversu undarlegt..., eða taka sér í
munn hið gamal-gríska: Sá, sem
nýtur hylli guðanna, deyr ungur,
lítum heldur á þennan voðavið-
burð sem eina áminning til okk-
ar:
„Hvað vitum vér menn? Eitt
vermandi ljóð,
ein veig ber vort líf undir tæmd-
um dreggjum.
- Hvað vill sá sem ræður?“
(Einar Benediktsson).
og minnumst þeirra sanninda að í
voru lífi er fátt, er fulltreysta má.
Hér fyrr í dag komu 3 ungar
stúlkur af Drangajökli. Þær
höfðu gist að Gerði ekkju Krist-
jáns heitins, en þau höfðu drifið
upp gistiaðstöðu í hinu gamla
læknishúsi Kaldalóns. Var það
eitt gott framtak af þeim hjónum,
með því Ármúli var í gamla daga
vissulega endastöð og getur verið
það enn í ýmsum tilfellum, eða
staður áningar og hvíldar. Róm-
uðu þær mjög móttökur allar og
veit ég að allt mun þar af myndar-
skap búið. Mun það jafnan verða
talið happ og gifta hvers og eins
er hlýtur góðan lífsförunaut og
var Kristján heitinn í þessu efni
hamingjumaður. Vil ég enda
þessar línur mínar með samúðar-
kveðju til Gerðar og barnanna á
Ármúla. Lifið heil.
Að kveldi hvítasunnudags annars
síra Baldur Vilhelmsson,
Vatnsfirði.
ÍOOAPA
SKmkMOT
í tilefni 100 ára afmælisins efnir Landsbanki íslands til
sögulegs skákmóts í afgreiðslusal Aðalbankans í Austurstræti 11
sunnudaginn 1. júní.
Þar mætast í 12 manna hraðmóti og keppa um 100 þúsund króna
heildarverðlaun fjórir af fremstu skákmönnum íslands á árunum 1955-1960,
þeir Friðrik Olafsson, Ingi R. Jóhannsson, Guðmundur Pálmason
og Ingvar Ásmundsson; fjórir af efnilegustu skákmönnum íslands í dag, þeir
Hannes Hlífar Stefánsson, Þröstur Árnason,
Héðinn Steingrímsson og Sigurður Daði Sigfússon;
og fjórir af fremstu skákmönnum Landsbankans, þeir Hilmar Viggósson,
Jóhann Örn Sigurjónsson, Sólmundur Krístjánsson
og Vilhjálmur Þór Pálsson.
Keppendur tefla allir við alla og tímatakmörk
eru 10 mínútur á hvorn keppanda í skák. Skákstjóri er
Ólafur S. Ásgrímsson. Áhorfendur eru
velkomnir í afgreiðslusalinn meðan
húsrúm leyfir, skákin hefst
kiukkan 14.00. m* Landsbanki
Islands
Banki allra landsmanna í 100 ár
Laugardagur ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 19