Þjóðviljinn - 05.06.1986, Síða 3
FRETTIR
19. júní blaðið
Viðfangsefnið
karimenn
19. júní, ársrit Kvenréttindafé-
lags íslands, er kominn út í 36.
skipti og er blaðið að þessu sinni
nokkuð fyrr á ferðinni en venju-
lega.
Efni blaðsins í ár er aðallega
helgað körlum og viðhorfum
þeirra til jafnréttis kynjanna og
þeirra breyttu kynhlutverka sem
umbreytingar síðustu tveggja
áratuga hafa haft í för með sér.
Rætt er við fjölda karla um þessi
mál frá ýmsum hliðum. Meðal
þeirra sem tjá sig um þessi mál af
fullri hreinskilni eru Þórarinn
Eldjárn rithöfundur. Heiðar
Jónsson snyrtir og Ævar
Kjartansson útvarpsmaður. Þá
má nefna viðtöl við unga karl-
menn sem starfa undir stjórn
kvenna.
Tilfinningalíf karla er tekið til
umfjöllunar í fróðlegum greinum
eftir þau Nönnu K. Sigurðardótt-
ur, félagsráðgjafa og Sigtrygg
Jónsson sálfræðing, en þau líta
hvort sínum augum á bókina og
fyrirbærið íslenskir elskhugar. Þá
skrifar sr. Ólafur Skúlason
greinina Að slá í sundur hjóna-
rúmið og rekur orsakir aukinna
skilnaða, en Guðfinna Eydal sál-
fræðingur skrifar um ólík við-
brögð karla og kvenna í skilnað-
armálum.
í blaðinu eru einnig rifjaðir
upp helstu viðburðir ársins 1985 í
máli og myndum,einskonarheim-
ildasafn um lokaár kvennaár-
atugarins. í því samhengi er gerð-
ur samanburður á kvennafrí-
dögunum tveimur í grein eftir
Lilju Ólafsdóttur og viðtölum við
fjölda kvenna. Þá er rætt við tvær
konur úr framkvæmdahópi ’85-
nefndar, auk greina um listahátíð
kvenna, Kvennasmiðjuna, undir-
skriftasöfnun Friðarhreyfingar
ísl. kvenna og fleira.
„Þetta blað er í mörgu svipað
og þau fjölmörgu tímarit sem gef-
in eru út núna en munurinn er sá
að þetta blað er gefið út af hug-
sjónaástæðum en ekki í gróðra-
skyni“ sögðu félagar í ritstjórn
blaðsins.
Ritstjóri 19. júní er Jónína M.
Guðnadóttir.
Björgvin Hermannsson í fjáröflunarnefnd Landssamtaka hjartasjúklinga og RúrikKristjánsson.formaðurfjáröflunamefndar.meðveggspjaldsöfnunarinnar.
ERT ÞU
GOÐUR?
FIAROFLUN
5. OG 6. IUNI 1986
ti) tækjakaupa fyrir enduriiæfingardeild
hjartasjúklinga ad Reykjalundi
itéjm' lanossamtok hiartasiuklinca
Landssamtök hjartasjúklinga
Safna fyrir þolprófunartæki
Söfnun í dag og á morgunfyrir tœkjakosti til
endurhœfingardeildar hjartasjúklinga að Reykjalundi.
Merkjasala og kostar merkið 100 krónur. Kjörorð
söfnunarinnar: „Ertþú hjartagóðuru
HVAD SEGJA ÞEIR UM JAFNRtTTID?
K)KAKINN [t DIAKN
HCIOAA IONSSON
AVAH KJAKTANSSON
AD SLA i SUNDUR HJÓNARÚMIÐ
TUJINNINGALÍF KARLA
ÁRJD 19851MAU OG MYNDUM
19. júnf blaðið er helgað körlum að
þessu sinni.
í dag og á morgun gangast
Landssamtök hjartasjúklinga
fyrir fjársöfnun um land allt undir
kjörorðinu „Ert þú hjartagóð-
ur?“ og verður fénu varið til
kaupa á tækjum fyrir endurhæf-
ingardeild hjartasjúklinga að
Reykjalundi.
Er það sérstaklega svokallað
þolprófunartæki sem áætlað er að
kaupa og sagði Magnús Einars-
son læknir að Reykjalundi að
þetta tæki væri notað fyrst er
sjúklingar koma í endurhæfingu
eftir aðgerð, þol manna væri
mjög mismunandi og væri grund-
vallaratriði að geta mælt það ná-
kvæmlega. Tækið mælir súrefnis-
notkun og kolsýringsmyndun lík-
amans.
Söfnunin mun fara fram með
sölu merkis, sem er rautt hjarta
og kostar merki 100 krónur.
Landssamtök hjartasjúklinga
voru stofnuð 1983 og telja nú
milli 700-800 félaga. í fyrra efndu
samtökin til söfnunar fyrir hjarta-
gerðatæki sem tekin verða í notk-
un þegar hjartaaðgerðir hefjast á
Landspítalanum væntanlega
næsta haust. Þessi söfnun núna er
í beinu framhaldi af þeirri söfnun
því endurhæfing er sjúklingum
nauðsynleg eftir aðgerð.
-Ing.
Rás 2
Fjórir nýir sendar
Hlustendum Rásar tvöfjölgar á Vestfjörðum
Nú stendur yflr uppsetning
fjögurra senda fyrir Rás 2 á
Vestfjörðum. Þegar þeir verða
komnir upp ættu útsendingar
stöðvarinnar að nást víðast hvar
á Vestfjörðum.
Nýju sendarnir eru á eftirfar-
andi stöðum (senditíðnin innan
sviga):
Suðureyri við Súgandafjörð (96,0
MHz)
Holti við Önundarfjörð (91,6
MHz)
Bfldudal (98,9 MHz)
Þingeyri (95,4 MHz).
Eftir þessar framkvæmdir
verða sendar Rásar 2 orðnir 32 en
alls eru FM-sendar Ríkisútvarps-
ins að nálgast það að verða 90
talsins. Næsta skrefið í uppbygg-
ingu dreifikerfis Rásar 2 verður
að styrkja kerfið á Austfjörðum.
Þar verða settir upp þrír sendar í
sumar.
Með tilkomu þessara nýju
senda ættu flestir þéttbýlisstaðir á
Austfjörðum og Vestfjörðum að
ná Rás 2. Þorgeir Ástvaldsson
rásarstjóri sagði þó á fundi með
blaðamönnum að seinlega myndi
ganga að koma útsendingum rás-
arinnar inn á hvert heimili í
landinu þar sem FM-útsendingar
eru mjög háðar landslagi og stað-
háttum á hverjum stað.
-ÞH
Listahátíð í dag:
Herbie Hancock í kvöld
Það jafnast ekkert á við ajass
Mikinn feng rekur á fjörur
w
Herbie Hancock spilar í kvöld.
djassrokkgeggjara og annarra
unnenda slíkrar tónlistar, því í
kvöld heldur Herbie Hancock tón-
leika í Broadway sem hefjast
klukkan níu.
Herbie Hancock er eitt af stær-
stu nöfnum í heiminum í dag í
djassi og fönki, en eitt af því sem
einkennir litríkan feril Herbie
Hancock er hversu fjölhæfur
músikant hann er og hefur átt
samstarf við tónlistarmenn úr
öllum áttum tónlistar. Hvort sem
það hefur heitið fönk, elektróník
eða gamall og góður hefðbund-
inn djass hafa spámenn á því sviði
leitað samstarfs við Hancock og
einatt út úr því komið einhver
frumlegheit sem opnað hafa nýj-
ar víddir í tónlistinni.
Kvikmyndaunnendur þekkja
einnig til tónlistar Herbie Hanc-
ocks, því hann hefur gert tónlist
við margar kvikmyndir, meistar-
averk ítalans Antonioni „Blow
up“, sem sýnt var í sjónvarpinu
fyrir nokkrum árum.
Auk tónleika Herbie Hanc-
ocks er á dagskrá Listahátíðar í
kvöld síðari sýning hinna snjöliu
látbragðsleikara Nolu Rae og
Johns Mowat í Iðnó klukkan hál-
fníu.
-pv.
Fimmtudagur 5. júní 1986 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3