Þjóðviljinn - 05.06.1986, Page 15

Þjóðviljinn - 05.06.1986, Page 15
Uruguay- V. Þýskaland „Stoltur af mínum mönnurn" Réttlœtinufullnœgt þegar Allofs jafnaði í lokin „Ég tek ofan fyrir mínum mönnum, ég er stoltur af þeim. Þeir þurftu að beita öllum sínum Úrslit leikja á HM I gær, markaskorarar og liösuppstillingar: B-riðill: Paraguay-írak 1-0 (1-0) Toluca, 4. júní Dómari: Picon (Mauritius) Áhorfendur 12,500 1-0 Romero (35.) Paraguay: Fernandez, Torales, Zabala, Schettina, Delgado, Nunez, Ferreira, Romero, Cabanas, Canete, Mendoza (Gpasch 88.). irak: Hammoudi, Allawi, N. Shaker, B. Shaker, Hussein, Mohammed (Hameed 67.), Radhi, Saeed, Gourgies (Qassem 80.), Hashem, Uraibi. E-riðill: Uruguay-V.Þýskaland 1-1 (1-0) Queretaro, 4. júní Dómari: Christov (Tékkoslóvakíu) Áhorfendur 32,000 1-0 Alzamendi (5.), 1-1 Allofs (85.) Uruguay: Alvez, Qutierrez, Acevedo, Diogo, Bossio, Batista, Alzamendi (Ramos 81.), Barrios (Saralegui 57.), Da Silva, Fra- ncescoli, Santin. V.Þýskaland: Schumacher, Briegel, Berthold, Förster, Augenthaler, Eder, Matthaus (Rummenigge 70.), Magath, Brehme (Littbarski 46.), Völler, Allofs. Danmörk-Skotland 1-0 (0-0) Nezahualcoyotl, 4. júní Dómari: Nemeth (Ungverjalandi) 1-0 Elkjær (57.) Skotland: Leighton, Gough, Malpas, McLeish, Miller, Souness, Strachan (Bannon 74.), Aitken, Nicol, Sturrock (McAvennie 60.), Nicholas. Danmörk: Rasmussen, Busk, Niel- sen, M. Olsen, Bertelsen, Lerby, Arne- sen (Sivebeck 74.), J. Olsen (Mölby 79.), Berggren, Elkjær, Laudrup. Leikir í dag A-riðill: (talía-Argentína A-riðill: Búlgaria-S.Kórea C-riðill: Frakkland-Sovétrikin hæfileikum og úthaldi og voru með mikla yfirburði í 70 mínútur af leiknum. Markið í lokin var mikill léttir,“ sagði Franz Beck- enbauer landsliðseinvaldur Vestur-Þjóðverja eftir 1-1 leikinn gegn Uruguay í gær. Að því mæltu steig hann uppí þyrlu sem flutti hann á leik Skotlands og Danmerkur. Uruguay hafði forystu í 80 mín- útur. Alzamendi skaut í þvers- lána og niður eftir varnarmistök Vestur-Þjóðverja á 5. mínútu — Christov dómari dæmdi sam- stundis mark enda lenti boltinn greinilega innan við marklínuna. Síðan beittu Uruguayar geysi- sterkum varnarleik, þrátt fyrir þunga pressu fengu Vestur- Þjóðverjar fá færi til að skora. Klaus Augenthaler þrumaði í samskeytin í seinni hálfleiknum en loks fimm mínútum fyrir leiks- lok náði Klaus Allofs að jafna. Uruguay verður greinilega Skotum og Dönum mjög erfiður andstæðingur. Vörnin er mjög öflug og skyndisóknir liðsins með Sydney Picon, fyrsti dómarinn frá eynni Mauritíus við austur- strönd Afríku sem dæmir leik á HM, var í sviðsljósinu í leik Par- aguay og írak í gær. Þegar Picon flautaði til hálfleiks var knöttu- rinn á leið í mark Paraguay eftir skalla frá Ahmed Radhi. Leik- menn Irak mótmæltu mjög en Picon varð ekki haggað — leikur- inn var búinn áður en knötturinn fór yfir línuna og Paraguay vann því 1-0. Evaristo De Macedo, hinn brasilíski þjálfari írak, var mjög ósáttur við ákvörðun dómarans., „Markið kom beint eftir horn- spymu, annað hvort átd Picon að flauta til hálfleiks áður en hún var tekin eða dæma markið gilt. Bobby Robson landsliðs- einvaldur Englands sagði í gær að ósigurinn gegn Portúgal í fyrra- kvöld væri varnarmönnum sínum að kenna. „Þeir misstu ein- beitinguna og stóðu allir og horfðu á þegar Manuel skoraði.“ Robson var að öðru leyti sáttur IÞROTTIR Klaus Allofs, bjargvættur Vestur- Þjóðverja í gær. þá Da Silva, Francescoli og Alz- amedi í aðalhlutverkum eru stór- hættulegar. Allt leiknir og skemmtilegir leikmenn. Vestur- Þjóðverjar léku sína dæmigerðu knattspyrnu en tókst ekki að riðla vörn Uruguay fyrr en Karl-Heinz Rummenigge fyrirliði kom inná 20 mín. fyrir leikslok. Þegar upp var staðið má segja að réttlætinu , hafi verið fullnægt með jöfn- unarmarkinu - hvort lið er með eitt stig í þessum langsterkasta riðli heimsmeistarakeppninnar í Mexíkó. „Omar Borras þjálfari Urugu- ay sagði jafnteflið mjög sann- gjörn úrslit. „En ég er ekki sáttur við dómarann. Hann hafði af okkur vítaspyrnu í fyrri hálfleik og síðan lét hann Vestur- Þjóðverjana komast upp með samskonar brot og mínir menn fengu að sjá gula spjaldið fyrir,“ sagði Borras. Hann réði úrslitum í þessum leik,“ sagði De Macedo. írakar voru sterkari aðilinn í fyrri hálfleik og Hussein Saeed var nokkrum sinnum nærri því að skora. Taugaslappir leikmenn Paraguay róuðust þegar á leið, mest fyrir tilstilli hins snjalla Julio Romero — sem skoraði sjálfur sigurmarkið á 35. mínútu. Hann lyfti þá boltanum smekklega yfir írakska markvörðinn og í netið. Paraguay hafði síðan yfirburði í seinni hálfleik og hefði hæglega getað bætt við mörkum. Cesar Zabala þrumaði í stöng úr auka- spyrnu af 30 m færi og Alfredo Mendoza skaut í stöng þegar auðveldara var að skora. —VS/Reuter við frammistöðu sinna manna. „Liðið lék vel og skapaði sér næg marktækifæri en tókst bara ekki að skora. Við stefnum þrátt fyrir þetta á efsta sætið í riðlinum, við viljum leika hér í Monterrey í næstu umferð.“ —VS/Reuter —VS/Reuter ✓ Paraguay-lrak Dómarinn í aðalhlutverki Flautaði til hálfleiks þegar írak var að skora Mexíkó Robson ásakar ensku vömina ÞJÓÐVILJINN - SIÐA 15 Danmörk-Skotland Danir efstir í dauðariðlinum Eiga alla möguleika á að komastáfram eftir sigurinn á Skotum Danir eru komnir með foryst- una í „dauðariðlinum'* alræmda, E-riðli heimsmeistarakeppninnar í Mexíkó. Þeir lögðu Skota að velli, 1-0, í gær í síðasta leik fyrstu umferðar keppninnar, og voru vel að þeim sigri komnir. Þetta var fyrsti leikur Dana í úrslitum HM frá upphafi og byrjunin lofar góðu um framhaldið. Liðin voru mjög áþekk að styrkleika, lítið skildi á milli. Skotar sýndu oft ekki síðri sam- leik en hinir leiknu Danir og voru með undirtökin í leiknum fram- anaf. Richard Gough hefði átt að færa þeim forystu á 38. mín. þeg- ar hann var kominn einn gegn Troels Rassmussen markverði en skaut yfir hann og markið. Danir réðu síðan ferðinni framanaf seinni hálfleik og áttu margar góðar sóknir. Það var síð- Julio Cesar Romero skoraði sigurmark Paraguay. an mikið einstaklingsframtak hjá miðherjanum skæða, Preben El- kjær, sem færði Dönum sigurinn. A 57. mín. óð hann inní skoska vítateiginn, fjölmenn vörnin gat ekkert aðhafst og því síður Jim Leighton, 1-0. Eftir markið voru Danir sterk- ari um stund en síðasta korterið sóttu Skotar talsvert án þess að skapa sér umtalsverð færi. Út- hald þeirra virtist á þrotum í lokin og það kom á óvart á síðustu mín- útunum að þeir skyldu ekki reyna að pressa Danina meira í stað þess að leyfa þeim að dóla með boltann við eigin vítateig. Danir standa nú mjög vel að vígi með að komast í 16-liða úr- slitin, eitt stig til viðbótar gæti dugað. Skotar eiga hinsvegar á brattann að sækja, þeir þurfa nú örugglega 3 stig gegn Uruguay og V.Þýskalandi til að eiga mögu- leika. __VS 4. deild Annar storsigur Bolvíkingar byrja heldur betur hrcssilega í Vestfjarðariðli 4. deildarinnar í knattspyrnu. í síð- ustu viku unnu þeir Reyni Hnífs- dal 10-2 og i gærkvöldi var Stefnir frá Suðureyri gjörsigraður í Bol- ungarvík, 8-0. A ísafirði vann Reynir 1-0 sigur á Badmintonfélagi ísafjarð- ar í gærkvöldi. Þorgeir Jónsson skoraði sigurmarkið. —VS Kópavogur Undir regnhlíf í hálfleik! Algjört aðstöðuleysi við Smárahvammsvöllinn I ausandi rigningu á miðviku- dagskvöldið fór fram fyrsti leikurinn í 1. deild kvenna í knatt- spyrnu á þessu keppnistímabili — á Smárahvammsvellinum í Kópa- vogi. Valur sigraði Breiðablik 3-1 eins og áður hefur verið sagt frá. Undirritaður var þar nálægur og getur ekki lengur orða bundist yfir aðstöðunni, eða réttara sagt aðstöðuleysinu sem þar er boðið uppá. Smárahvammsvöllur er æf- ingasvæði Kópavogsliðanna Breiðabliks, IK og Augnabliks og er staðsettur nokkur hundruð metra frá aðalleikvanginum (sem er lokaður þessa dagana, þar til Breiðablik leikur þar næst í 1. deild). Búningsklefar fyrir vell- ina eru þeir sömu. Við „Smár- ann“ sem svo er jafnan nefndur er hinsvegar ekki nokkurt afdrep fyrir leikmenn eða dómara og of langt að fara til búningsklefanna í hálfleik. f vatnsveðrinu á miðviku- dagskvöldið máttu því stúlkurnar í Val og Breiðabliki híma úti í hálfleiknum, ekkert skjól og eng- in aðstaða til neins. Blikastúlk- urnar voru þó forsjálli, enda orðnar vanar, og voru með regn- hlífar með sér og funduðu og hvfldust undir þeim! Smárinn er geysilega mikið notaður á sumrin, frá maí framí september, bæði undir æfingar og keppni, og svo hefur verið í ára- raðir. Það er því stórmerkilegt að á öllum þessum tíma hafi ekki verið komið upp svo miklu sem einu kofaskrifli sem gæfi þreyttum skjól fyrir veðri og vindum, rétt á meðan þeir búa sig undir áframhaldandi átök. 1 framhjáhlaupi má svo bæta við orðum gamalreynds knattspyrn- ufrömuðar í Kópavogi sem sagði við undirritaðan nú í vikunni: „Það er ótrúlegt að Smárinn, með öllu því álagi sem á honum er skuli vera orðinn betri en sjálf- ur aðalleikvangurinn, eini upp- hitaði knattspyrnuvöllur á Is- landi“. Merkilegt en satt. —VS

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.