Þjóðviljinn - 11.06.1986, Page 1
1936-1986 ÞJÓÐVILJINN 50 ÁRA
MENNING
HEIMURINN
ÍÞRÓTTIR
Framarar skutust uppí þriðja sæti 1. deildarinnar í knattspyrnu í gærkvöldi með því að sigra Breiðablik 1-0 á Kópavogsvellinum. Blikarnir eru hinsvegar í þriðja
neðsta sæti eftir tapið. Þór vann ÍBV 4-3 í hörkufjörugum leik á Akureyri. Á mynd Ara sækir Guðmundur Steinsson landsliðsmaður úr Fram að tveimur varnar-
mönnum Breiðabliks. ,, . . , , TC
Sja iþrottir bls. 15
Fjárlagagerðin
Vandiim er mikill
Dalvík
Nýsköpun
fædd
Á Dalvík hefur tekist meirihlut-
asamstarf milli Alþýðubanda-
lagsins og lista Sjálfstæðismanna
og óhá'öra. Framsóknarflokkur-
inn var áður enn í meirihluta með
(jóra bæjarstjórnarfulltrúa, en
tapaði tveimur fulltrúum í kosn-
ingunum nú, einum til Alþýðu-
bandalags og einum til Sjálfstæð-
ismanna og óháðra.
Að sögn Svanfríðar Jónasdótt-
ur, efsta manns Alþýðubanda-
lagsins á Dalvík, lá ljóst fyrir eftir
kosningar, að bæjarbúar vildu
gefa Framsókn frí það kjörtíma-
bil sem nú fer í hönd.
Aðal kosningamálið í nýaf-
stöðnum kosningum voru tengsl-
in milli Framsóknarflokksins og
KEA. Eitt af því sem nýi meiri-
hlutinn þarf að fást við er að
endurskoða samstarf bæjarins og
KEA.
Alþýðubandalagið er með tvo
menn í hinum nýja meirihluta en
listi Sjálfstæðismanna og óháðra
þrjá. Verður auglýst eftir bæjar-
stjóra. Flokkarnir rnunu svo
skiptast árlega á um að hafa sinn
mann sem forseta bæjarstjórnar
og formann bæjarráðs. Að lík-
indum verður Alþýðubandalagið
nteð formann bæjarráðs þetta
árið en Sjálfstæðisflokkurinn
forseta bæjarstjórnar. -Sáf
Ragna Ólafsdóttir: Ómetanlegt
aö finna allan þann stuðning sem
ég fékk. Ljósm. E.ÓI.
Melaskóli
Ragnasett
í stöðuna
Menntamálaráðherra setti í
gærmorgun Rögnu Ólafsdóttur í
stöðu yflrkennara við Melaskóla.
Aður en ráðherra tók málið til
afgreiðslu hafði hinn umsækj-
andinn um stöðuna, Jón Sigurðs-
son, dregið umsókn sína til baka.
„Ég er mjög ánægð nteð úrslit
þessa máls,“ sagði Ragna Ólafs-
dóttir í samtali við Þjóðviljann í
gær. „Þetta hefur verið mjög erf-
iður tími. jafnvel þótt maður hafi
haft réttlætið sín megin."
Ragna sagði að það hefði tekið
talsverðan toll af sér að ganga í
gegnum þá lífsreynslu að vera
hafnað af Fræðsluráði vegna pó-
litískra skoðana sinna og þurfa
síðan að sitja undir ýmsurn æru-
meiðandi ummælum. Hún sagði
að það hefði verið ómetanlegur
styrkur að finna allan þann stuðn-
ing sem henni var sýndur meðan
máli gekk yfir.
„Ég vona bara,“ sagði Ragna,
„að þetta mál hafi kennt þeim í
Fræðsluráði einhverja lexíu og
svona atvinnuofsóknir verði ekki
á dagskrá næsta kjörtímabil."
-g.sv.
SteingrímurHermannssonforsœtisráðherra: Vandinn ermikill en
hann hefur verið það oft áður. Það sem ríkissjóður lagði til
kjarasamninganna í vetur liggur nú á honum meðfullum þunga.
Útilokað að ná fram hallalausum fjárlögum að þessu sinni
Því er ekki að neita að það sem
ríkissjóður lagði til kjara-
samninganna í vetur liggur með
fullum þunga á ríkissjóði á næsta
ári. Það er einnig ljóst að við
náum ekki hallalausum fjár-
lögum á næsta ári, það er óraun-
hæft að ætla það. Þess vegna
stöndum við frammi fyrir vanda
varðandi gerð tjárlaga. En hvort
sá vandi er meiri en nokkru sinni
áður skal ég ekki segja um, hann
hefur vissulega verið mikill á
stundum, sagði Steingrímur Her-
mannsson forsætisráðherra í
samtali við Þjóðviljann í gær.
Hann var spurður um þá full-
yrðingu sem eftir honum hefur
verið höfð að skatthækkun sé
óhjákvæmileg, ef halda á uppi
sama þjónustustigi og hingað til.
Steingrímur sagði að ríkisstjórnin
myndi ekki boða skattahækkun í
haust. Hitt væri alveg ljóst að
auka þyrfti tekjur ríkissjóðs ef
halda á uppi þessu þjónustustigi.
Hann benti á í þessu sambandi að
nefnd sem skilaði áliti um skatt-
svik hefði bent á að 3 miljarðar
færu framhjá skattheimtu hér ár-
lega. Hann sagðist myndi leggja
alla áherslu á að bæta skattainn-
heimtuna í fyrstu atrennu.
Þá benti Steingrímur á að þær
byrðar sem ríkissjóður hefði
tekið á sig við kjarasamningana
væru það miklar að það yrði að
dreifa þeim á tvö til þrjú ár, það
væri útilokað að ætla að leysa þær
á einu ári.
Varðandi skuld ríkissjóðs við
Seðlabankann um 7 miljarða
sagði Steingrímur að sú skuld
væri sveiflukennd og sjálfsagt há
nú en myndi lækka þegar á árið
liði, en það tæki sinn tíma að ná
henni niður.
-S.dór
Hafskipsmálið
Aukist að umfangi
Hallvarður Eirtvarðsson rannsóknarlögreglustjóri: Málið hefuraukist
að umfangifráþvírannsóknin hófst. Akvörðun tekin ídag um hvort
óskað verður eftir áframhaldandi gœsluvarðhaldiþeirra tveggja sem
enn eru í gœslu
Bretland
Sapuopera í
Buckingham
Lundúnum - Það sem fólk vill sjá
eru frásagnir í Dynasty stíl, þar
sem kafað er ofan í einkalíflð.
Það er ekki félagsfræðingur
sem hér er vitnað í heldur Philip
prins, eiginmaður Bretadrottn-
ingar sem sakar breskan almenn-
ing um að vilja aðeins frétta af
hneykslismálum í stíl við sápuóp-
eruna margfrægu innan konungs-
fjölskyldunnar. „Fólk vill bara
heyra æsi- og hneykslissögur af
okkur,“ segir prinsinn í viðtali við
enskt kvennablað og er sár.
egar rannsóknarlögreglan tók
við rannsókn Hafskipsmáls-
ins sagði rannsóknarlögreglu-
stjóri, Hallvarður Einvarðsson
að umfang málsins væri mjög
mikið. Hann var spurður að því í
gær hvort rannsóknin hefði leitt
til aukins umfangs málsins og
kvað hann svo vera.
Hallvarður sagði að gæsluvarð-
hald þeirra Ragnars Kjartans-
sonar og Björgólfs Guðmunds-
sonar rynni út í dag og yrði tekin
um það ákvörðun um miðjan dag
hvort óskað yrði eftir framleng-
ingu. Páli Braga Kristjónssyni
var sleppt úr haldi sl. sunnudag
og Helga Magnússyni í fyrradag
og sitja þá Ragnar og Björgólfur
tveir eftir af þeim sex sem hand-
teknir voru í upphafi.
Þá sagði rannsóknarlögreglu-
stjóri að yfirheyrslur yfir öðrum
en þeim sem handteknir voru
hefðu verið í gangi allan tímann
og þeim væri hvergi lokið.
-S.dór