Þjóðviljinn - 11.06.1986, Síða 7

Þjóðviljinn - 11.06.1986, Síða 7
Umsjón: Páll Valsson Listahátíð Tónlistin er tungumál Guðni Franzson og Ulrika Davidson ræða um íslenska nútímatónlist sem þau spila í Norræna húsinu í kvöld Guðni og Ulrika að æfa Sporðdrekadans eftir Kjartan Ólafsson sem hér er helst þekktur fyrir La líf. (Mynd. Sig.) Listahátíð þjónarekki einung- is því hlutverki að kynnafyrir okkur íslendingum listirann- arra þjóða og það sem hlotið hefur viðurkenningu sem mikil list. Hún á líka að kynna okkar eigin list og þau umbrot sem þar eiga sér stað. Því hljóta tónleikar Guðna Franz- sonar klarinettleikara og Ul- riku Davidson píanóleikara í kvöld að teljasttil merkratíð- inda í tónlistarlífinu, að þau munuflytja7verk eftir jafnmörg af okkar yngstu tón- skáldum. Og ekki dregur það úrað margsinnishefurverið bent á aö í músik okkar yngstu tónskálda sé mikla nýsköpun að finna og margt merkt að gerast. Tónskáldin sem þau flytja verk eftir eru: Hákon Leifsson, Kjart- an Ólafsson, Hróðmar Ingi Sigur- björnsson, Haukur Tómasson, Lárus Halldór Grímsson, Hilmar Þórðarson og Guðni sjálfur. Þau Guðni og Ulrika voru spurð útí aðdraganda þessara tónleika. Guðni: „Eg fékk þessa hug- mynd einhvern tíma, að gaman væri að búa til svona tónleika. Sum þessara verka voru þá þegar til og ég talaði við nokkur tón- skáld til viðbótar, sem öll voru reiðubúin til þess að semja verk fyrir klarinett og píanó. Þannig var nú byrjunin. Síðan kom Listahátíð inn í þetta og sam- þykkti að hafa þessa tónleika undir sínum hatti, en pró- grammið, efnisskráin lá þá alveg fyrir og tónleikarnir mótaðir. Við höfum unnið að þessum tónleikum meira eða minna síðan í janúar, svona í skorpum. Við Ulrika vorum í sama skóla í Am- sterdam og höfum áður starfað saman, þannig að þetta gekk allt vel og fjögur tónskáldanna eru líka í Amsterdam og við höfum unnið þetta með þeim. Þeir hafa breytt verkunum ef eitthvað hef- ur komið illa út og þannig prófað sig áfram. Þetta hefur sem sagt verið unnið í náinni samvinnu við tónskáldin." Má greina einhver líkindi með verkunum, - eitthvað sem bendir til ungra íslenskra tónskálda á of- anverðri tuttugustu öld? UIrika:„Ég get ekki heyrt á músíkinni að hún sé íslensk. Það eru engin þjóðerniseinkenni á henni, engin sterk tengsl við ís- lenska alþýðutónlist til dæmis. Nútímamúsíkin virðist yfirleitt fylgja öðrum línum. Mín tilfinn- ing gagnvart þessum verkum er að þarna eru góð tónskáld á ferð- inni sem vinna mjög heiðarlega að sinni tónlist." Guðni: „Þessi verk eru ákaf- lega ólík og hafa öll sín sérkenni. Þetta eru persónuleg verk, en sameiginlega þeim er kannski hægt að tala um vissa ákefð. Það eru sterkar tilfinningar í þessum tónsmíðum, því veldur kannski æskan. Menn eru að brjótast út og sanna sig, sýna að þeir geti þetta. En það er erfitt að setja verkin í einhverja kategóríu. Þau eiga sameiginlegt að vera skrifuð erlendis undir áhrifum ýmissa út- víkkunarstrauma, en bakgrunn- urinn og hugmyndirnar eru ís- lenskar." - En má draga einhverjar ályktanir, að loknum þessum tón- leikum, um íslenska nútímamús- ík, hvert hún stefni ogþess háttar? Guðni: „Allt eru þetta auðvit- að ungir menn sem hafa ekki al- veg fundið sinn grundvöll, nema kannski Lárus sem er elstur. í eðli sínu er nútímatónlistin al- þjóðleg, en samt eru ákveðin áhrif frá íslandi, hugsunarháttur- inn er þannig. Að spila er líkt og að tala. Tónlistinni svipar til tungumálsins á vissan hátt, og er undir áhrifum frá því. Ég nefni verk Hauks Tómassonar; það er mjög íslenskt. En ef við lítum til dæmis á verk Hilmars Þórðar- sonar, sem er orðið þriggja ára gamalt, þá sést af því að ákveðin breyting hefur orðið á þeim stutta tíma sem síðan er liðinn. Það verk er alveg á útopnu, það er þrungið af reiði og þvílíkri ákefð að það verður að vera síðast á efnisskránni, annað kemur ekki til greina. Þetta lá í tímanum, en þetta tímabil algerrar opnunar er liðið.“ - En hvernig er að semja verk fyrir sjálfan sig? Ert þú að kanna möguleika klarinettsins... ? Guðni: „Nei, það má segja að ég fari alveg í hina áttina. Þetta verk mitt er meira samið fyrir prógrammið. Ég samdi það eftir að ég hafði fengið öll hin verkin, mér fannst að það vantaði svona verk inní dagskrána. Þetta er lítið og einfalt verk, hljóðlátt og alls engin tæknififf." - Eins ogfram kemur hérna þá streyma ung tónskáld til náms í Amsterdam. Er ekki ákveðin hætta fólgin í því að blómi ís- lenskra tónsmiða lœri allur ísama landi, sömu borg og kannski hjá sama fólki? Guðni: „Það má kannski segja að það feli í sér vissar hættur. En eins og þessi verk leiða í ljós, þá eru tónskáldin að vinna með mjög ólíkar hugmyndir. Þannig að ég hef engar áhyggjur af því að þetta leiði til einhæfni, alls ekki. Við höfum haft styrk hvert af öðru í Amsterdam, og getað gert ýmsa hluti í sameiningu sem ekki hefði verið hægt værirðu einn, haldið tónleika og þess háttar. I Holland er líka gott land og sér- lega opið fyrir nýjungum. Annars er ég alkominn þaðan. Þetta er búinn að vera góður tími, en ég vil ekki ílengjast þarna, heldur freista gæfunnar annars staðar.“ - Hvað tekur svo við? Ulrika: „Við ætlum að reyna að spila þessa dagskrá víðar, að minnsta kosti í mínu heimalandi, Svíþjóð og vonandi á fleiri stöð- um í Evrópu. Fyrst búið er að setja saman svona dagskrá með verkum ungra íslenskra tón- skálda þá hljótum við að vinna að því að fara með það eins víða og hægt er.“ - Og á þessum miklu landkynn- ingartímum er ekki úr vegi að benda útflutningsaðilum fs- ienskrar menningar á dagskrána í Norræna húsinu í kvöld. -pv Ungur Ijóðasöngur Thomas Lander: Tilgerðarlai's inn- lifun og kunnátta. Fátt er jafn yndislegt og Ijóða- söngur, þ.e.a.s. sé hann framinn af tilgerðarlausri inn- lifunog kunnáttu. Hvorttveggja hefur kornungur Svíi, Thomas Lander, sem kom fram á Listahátíðartónleikum í Gamla bíói s.I. laugardag til að bera. Hann er baritón af léttara tagi, aðeins 25 ára og stundar víst enn nám við sinn góða skóla austur í Stokkhólmi. Og vissuleg er rödd hans langt frá að vera fullþroskuð, það eru þó nokkur ár í það. Én Lander hefur þá sjaldgæfu lýrísku innlifunargáfu sem er undirstaða alls ljóðasöngs sem máli skiptir. Og kunnátta hans í raddbeitingu og músíköl- skum blæbrigðum, er með ólík- indum. Enda náði hann að töfra troðfullan salinn, bæði í löngum Schumannbálki, lögum eftir Fauré, Richard Strauss og ekki síst ítalann Ottorino Respighi. Samt á drengurinn að hafa verið með flensu. Ég tek nú ekkert mark á því. Undir- eða öllu heldur með- leikari var sá frægi Jan Eyron, og eru held ég fáir honurn jafnsnjall- ir í píanóspili við ljóðasöng. Það er alveg sérstök kúnst sem ekki verður stunduð í hjáverkum. LÞ Miðvikudagur 11. júnf 1986 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 7

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.