Þjóðviljinn - 11.06.1986, Page 12
Brubeck
Framhald af bls. 8 •
Toto song, lagi af japönskum ætt-
um. Þar náðu feðgarnir prýðilega
saman og Chris Brubeck sýndi
þar eins og í öðrum lögum að ætt-
ernið er ekki eina ástæðan fyrir
veru hans í hljómsveitinni.
Saxófón- ogflautuleikarinn Mila-
tello stóð vel fyrir sínu og spilaði
oft með ágætum. En það er ör-
ugglega erfitt að þurfa að hálfu að
leika Paul Desmond og vera svo
með 2-3 stíla á tenór, altó og
flautu. En þetta þurfa svo margir
leikarar að gera.
Fyrra lagið var það sem dregið
hafði að flesta gesti: Take 5. Var
þar flest með hefðbundnum hætti
utan að Brubeck spilaði einhvern
hálfklassískan konsert í sólo stað
- kannski hefur hann verið eftir
Schönberg eða Milhaud, hina
frægu kennara hljómsveitarstjór-
ans. í Someday my prince will
come flæddu svo hljómaskvamp-
ið og smekkleysurnar í píanó-
leiknum út yfir alla bakka og varð
í þeim skilningi hápunktur hljóm-
leikanna, sem tókust ekki illa
þrátt fyrir áðurnenda hnökra -
bandið lék vel saman og spilaði af
meiri krafti en margir höfðu búist
vil.
Djasstónleikar
Listahátíðar
Fyrirkomulagið á djasstónleik-
unum tveimur á Listahátíð hefur
vakið mikla hneykslun og reiði.
Astæðan mun vera sú að með því
að bjóða Ólafi Laufdal þrjá mat-
arkonserta í Broadway hafi Lista-
hátíð komist ódýrt frá gistingu á
Hótel Borg sem sami Laufdai
rekur um þessar mundir. Og það
var greinilegt á Broadway s.l.
sunnudagskvöld að Hrafni
Gunnlaugssyni hafði tekist að
standa við samninginn; fólk var
að úða í sig mat um öll salarkynn-
in. Brubeck átti að spila í
„concert-hall“ samkvæmt samn-
ingum, en er svoleiðis ekki bara
túlkunaratriði? Pað hefur komið
á daginn að seinkunin á tón-
leikum Herbie Hancocks var
honum sjálfum að kenna - hann
nöldraði yfir því að fólk fengi sér
bita undir tónleikunum. Hvað
heldur maðurinn að hann sé?
Það er í samræmi við hugrekki
nefnds Krumma að ákveða að
fórna tveimur djasskonsertum og
einu flamencosjói til að létta hót-
elkostnað Listahátíðar (þótt þeg-
ar til kom hafi víst sumir þeirra
erlendu gesta sem áttu að gista á
Hótel Borg orðið að hírast í
skonsum útí bæ). Að láta Claudio
Arrau spila á Fender Rhodes við
pylsuvagninn í Austurstræti hefði
altént sýnt ákveðna dirfsku! En
það er öruggara að prófa frjáls-
hyggjukenningar íhaldsdreng-
janna á utangarðsmúsíkinni. Að
ráðast á garðinn þar sem hann er
lægstur er Matthildingum sam-
eiginlegt hvort sem þeir standa
fyrir borgarstjórn eða listahátíð
og er nú hlátur tregur - nema þá
yfir því að þjóðin hafi í þeim
þriðja eignast nýjan Kristmann.
SKÚMUR
Ég hélt nú alltaf að ég gæti
staðist samkeppnina!
ÁSTARBIRNIR
Bash
En það er greinilegt að svefninn og
ásóknin í draumalöndin
eru mér yfirsterkari!
GARPURINN
ALÞÝÐUBANDALAGIÐ
AB Selfoss og nágrennis
Almennur félagsfundur
verður haldinn fimmtudaginn 12. júní kl. 20.30 að Kirkjuvegi 7
Selfossi. Fundarefni: Staðan í bæjarmálum. Félagar fjölmennið!
Stjórnin.
Frá skrifstofu Alþýðubandaiagsins
Sumartími
Skrifstofa Alþýðubandalagsins í Miðgarði, Hverfisgötu 105 verður
opin í sumar til kl. 16:00.
Alþýðubandalagið
AB Akureyri
Bæjarmálaráð
Fundur verður haldinn í bæjarmálaráði Alþýðubandalagsins á Akureyri
fimmtudaginn 12. júní. Þetta er fundurinn sem vera átti mánudaginn síð-
asta. Nánar auglýst síðar.
Alþýðubandalagið í Reykjavík
Aðalfundur -
verður haldinn fimmtudaginn 19. júní kl. 20.30 í Miðgarði Hverfisgötu 105.
Nánar auglýst síðar. - ABR.
ÆSKULÝÐSFYLKINGIN
ÆFAB
Stjórnarfundur
Æskulýðsfylkingar Alþýðubandalagsins verður haldinn á Akranesi helgina
13.-15 júní. Dagskrá: 1) Skýrslur deilda. 2) Fjármál. 3) Starfið framundan.
4) Önnur mál.
Framkvæmdaráð
Sími 681333.
FOLDA
í BLÍÐU OG STRÍÐU
2 3 □ ■ 5 3 7
LJ 8
e 10 □ 11
12 13 n 14
• □ 15 16 S
17 18 # 18 20
21 □ 22 23 □
24 s 25
KROSSGÁTA
NR. 10
Lárétt: 1 viðkvæði 4 hólf 8
minnislaus 9 hóti 11 jörð 12 sára-
bindi 14 sýl 15 aumt 17 örlátur 19
kyn 21 fótbúnað 22 reikningur24
svalt 25 jafningja
Lóðrétt: 1 innyfli 2 æsi 3 hlæja 4
hret 5 ílát 6 gras 7 ásjóna 10 ill-
girni 13 málmur 16 rífa 17 bón 18
skaut 20 hald 23 tón
Lausn á síðustu krossgátu.
Lárétt: 1 bors 4 laus 8 atvinna 9
efni 11 pant 12 klinku 14 AA 15
narr 17 mókir 19 áls 21 ýta 22
pfpa 24 strý 25 saga
Lóðrétt: 1 brek 2 rani 3 stinni 4
lipur 5 ana 6 unna 7 satans 10
fljótt 13 karp 16 rápa 17 mýs 18
kar 20 lag 23 ís
12 SIÐA - ÞJÓÐVILJINN IMiðvikudagur 11. júní 1986