Þjóðviljinn - 11.06.1986, Side 13
HEIMURINN
S-Afríka
Crossroads — Hópar svartra
manna nutu aðstoðar hvítra
lögreglumanna og hermanna
þegar þeir réðust inn í
Crossroads hverfið í Höfða-
borg í gær.
Svartir menn hafa barist í þessu
hverfi undanfarna daga og hafa
10 manns látist í þessum átökum.
Það eru íhaldssinnaðir svartir
menn sem berjast gegn svörtum
róttæklingum, í gær var barist
með byssum, kylfum, öxum og
járnstöngum. Lögreglan aðstoð-
aði hina íhaldssinnuðu Witdo-
eke, eins og þeir nefna sig (Hinir
hvítklæddu), með því að kasta
táragassprengjum inn í búðir rót-
tækra, Hinir hvítklæddu kveiktu
síðan í búðunum.
í gær hafði ekki frést af mann-
falli, þrír fréttamenn sem fylgd-
ust með átökunum munu hins
vegar hafa særst lítillega.
Stutt frá, inni í Höfðaborg,
voru umræður í gær á s-afríska
þinginu þar sem ríkisstjórnm
gerði tilraun til að ná fram sam-
þykki um hörð lög um öryggiseft-
irlit áður en minningarathafnir
um óeirðirnar í Soweto hefjast á
mánudaginn. Lögreglan óttast að
þegar þeirra atburða verður
minnst, nái sú ólga hámarki sem
verið hefur undanfarna mánuði
og 1600 manns hafa látist í.
Lögin sem stjórnin vill fá sam-
þykkt eru mjög óljós en kveða á
um að yfirvöld geti gripið til á-
kveðinna ráðstafana til að kveða
niður ókyrrð meðal svartra.
Stjórnin hefur meirihluta í að-
aldeild hvíta minnihlutans en nær
lögunum líklega ekki í gegnum
þingið fyrir 16. júní nema hún
komi með málamiðlunartillögu.
Þingdeild svartra og indversk ætt-
Spennan er nú orðin slík að svartir róttæklingar berjast gegn íhaldssinnuðum
svörtum mönnum, og þeir ungu taka þátt í því með því sem tiltækt er.
aðra manna hefur ekki sam-
þykkt tillögurnar. Desmond
Tutu, biskup, og aðrir andstæð-
ingar kynþáttaaðskilnaðarstefn-
unnar, hafa hvatt fólk til að virða
ekki bann stjórnvalda við að
koma saman til að minnast at-
burðanna í Soweto fyrir 10 árum.
Lögreglan berst með svörtum
gegn svörtum
Kína
Fyrsta
kynlífs
ráðgjafar-
þjónustan
Peking — Fyrsta ráðgjafarþjón-
ustan varðandi kynferðismál
hefur hafið starfsemi sína í
Kína.
Þessi þjónusta er í borginni Harbin
í norð austur hluta Kína og er ætlað
að fást við kynkulda, nymphomaniu
(sjúkleg vergimi, er slíkt nefnt í ensk-
felenskri orðabók), afbrigðlilega kyn-
hegðan og ófijósemi. Heilongjang
dagblaðið sagði nýlega frá þessu og
sagði að þessi þjónusta væri á sjúkra-
húsi borgarinnar. Þessari þjónustu er
ætlað að berjast gegn þeim vandamál-
um sem koma upp vegna fáfræði,
hún hefur aftrað því að margar kín-
verskar konur fái notið kynlífe, segir í
blaðinu.
Skæruliðar bíða átekta.
Nicaragua
Pióöveriamir
enn í
Managua — Nicaraguastjórn
tilkynnti í gær að hún myndi
framlengja vopnahlé sitt
gagnvart skæruliðum til mið-
nættis (í gærkvöld) ef það
mætti verða til að V-
Þjóðverjarnir sem FDN sam-
tökin (Lýðræðisfylking Nicar-
agua) hafa rænt, yrðu látnir
lausir.
Tilkynningin kom í kjölfar
beiðnar Bonnstjórnarinnar til
Sandinista um að þeir hæfu ekki
árásir á FDN á því svæði þar se m
Þjóðverjarnir eru taldir vera í
haldi.
haldi
Bonnstjórnin hefur þegar beð-
ið bandarísk stjórnvöld að beita
áhrifum sínum svo Þjóðverjarnir
verði leystir úr haldi. Nicaragua-
menn hafa haldið vopnahlé frá
því á miðvikudaginn í síðustu
viku að beiðni Bonnstjórnarinn-
ar. Sandinistar hafa nú hins vegar
áhyggjur af því að FDN skærulið-
ar hafi notað sér vopnahléð til að
koma sér betur fyrir í frumskóg-
unum. Einn embættismaður
Sandinista sagði í fyrradag að
FDN skæruliðar myndu ekki láta
Þjóðverjana af hendi fyrr en Re-
agan skipaði svo fyrir.
Karpof heldur
forystunni
Bugojno — Anatólí Karpof
heldur enn forystu með 7 vinn-
inga á skákmóti í Júgóslavíu
sem sérfræðingar halda fram
að sé sterkasta skákmót sem
haldið hefur verið.
Karpof tefldi í gær í 12. um-
ferðinni við Júgóslavann Ljubo-
jevic, sú skák fór í bið og er búist
við jafntefli úr skákinni. Boris
Spasskí samdi um jafntefli við
Sókolof eftir 10 leiki, skák Miles
og Júsúpof fór í bið og er Miles
talinn með vonlausa stöðu.
Sókolof er nú í öðru sæti með
6,5 vinninga og biðskák,
Ljubojevic í þriðja sæti með 6
vinninga og biðskák og Spasskí er
í fjórða sæti með 6 vinninga.
Karpof segist bjartsýnn fyrir
heimsmeistaraeinvígið við landa
sinn Kasparof sem hefst 28. júlí í
Lordon. Bugojno mótið verður
hans síðasta fyrir einvígið.
Halveiðar
Japanir sækja um undanþágu
Japanir hafa tilkynnt að þeir
muni hætta hvaiveiðum árið
1988. Þeir hafa hins vegar sótt
um undanþágur til Alþjóða
hvalveiðiráðsins fyrir 89 litla
hvalveiðibáta sem þeir segja
að sé lífsnauðsynlegt fyrir af-
komu ibúa nokkurra hafnar-
bæja í Japan.
Japanir segja það réttlætismál
að þeir fái slíkar undanþágur til
jafns við Kanadamenn og Sovét-
menn.
Petta líka...
Budapest - Leiðtogar Var-
sjárbandalagsins ræddu á
sameiginlegum fundi í gær
hugmyndir Sovétmanna
um mikla fækkun í hefð-
bundnum herafla banda-
lagsins. Búist er við að
þessi tillaga verði lögð fram
við Nató á næstunni. Til-
lögurnar eru svipaðar þeim
sem Gorbatsjof Sovétleið-
togi tilkynnti á flokksþingi
austur-þýska kommúnist-
aflokksins í vor.
Brussel - Caspar Weinber-
ger, varnarmálaráðherra
Bandaríkjamanna sagði í
gær að Natóríki yrðu yrðu
að vera tilbúin að beita her-
skipaflota sínum víðar en á
hafsvæði bandalagsþjóð-
anna.
Lausanne - Alþjóðaólympí-
unefndin reynir þessa dag-
ana að aftra því að N-
Kóreumenn mæti ekki á Ól-
ympíuleikana í Seoul í S-
Kóreu eftirtvöár. í því skyni
bar hún gær fram áætlun
um að N-Kóreumenn taki að
séreinhvern hluta leikanna,
þó með því skilyrði að N-
Kórea opni landamæri sín
fyrir hverjum þeim sem vill
fylgjast með keppninni þar.
Hamborg - Talsmaður Gre-
enpeace sagði frá því í gær
að skipverjar um borð í
Moby Dick, skipi Grænfrið-
unga sem er í N-Atlantshafi
á eftir hvalveiðiskipum
Norðmanna, hefðu trufiað
skipin við veiðar í gær.
Skipverjar Moby Dick munu
hafasiglt gúmmíbátum sín-
um i skotlínu hvalveiðibát-
anna þannig að þeir gátu
ekki skutlað hvalinn.
Fundur Alþjóðahvalveiðiráðs-
ins hófst á mánudaginn í Málmey
og verður líklega tekið á málum
sem snerta íslenskar hvalveiðar í
dag. Þá verður ræddar tillögur
varðandi hvalveiðar í vísinda-
skyni. Um er að ræða ályktun þar
sem segir að hvalveiðar í vísinda-
Jóhannesarborg — S-
Afríkustjórn neitaði í gær að S-
Afríkuher hefði gert árásina á
Namibe í síðustu viku eins og
fréttastofa Angóla, Angop, til-
kynnti í síðustu viku.
Tilkynning stjórnvalda í Pret-
óríu kom í kjölfar orða sovésks
embættismanns í Moskvu þess
efnis að Sovétstjórnin íhugaði nú
ýmsar refsiaðgerðir gegn S-
Afríkustjórn. Yfirvöld í Sovét-
ríkjunum hafa, líkt og Angóla-
stjórn, ásakað S-Afríku um árás-
ina. Pretóríustjórn hefur, þar til í
gær, þráfaldlega neitað að ræða
fréttir af árásinni. Tilkynning
Pretoríustjórnar var á þá leið að
þó hún legði það ekki í vana sinn
að bregðast við ásökunum frá
Angóla, neitaði varnarmálaráðu-
neytið því að S-Afríkuher hefði
haft í frammi aðgerðir við hafnar-
bæinn Namibe.
Angop fréttastofan sagði frá
því í gær að skæruliðar Unita
hreyfingarinnar hefðu gert til-
raun til árásar á mikilvæga
olíustöð í bænum Cabinda. Hún
hefði hins vegar mistekist og einn
skæruliði hefði verið skotinn á
ERLENDAR
FRÉTTIR
INGÓLFUR
hjörleifsson'R fc U 1 E R
skyni séu ekki æskilegar. í gær
báru Norðmenn til baka þá yfir-
lýsingu sænska utanríkisráðherr-
ans að Norðmenn hygðust hætta
hvalveiðum í ár og sögðu þa tull-
yrðingu úr lausu lofti gripna.
Ráðherrann sagði þetta í opnun-
arræðu sinni á mánudaginn.
flótta. Þó Angop nefndi það ekki
mun þetta vera olíustöð í eigu
Bandaríkjamanna sem sérþjálf-
aðar hersveitir S-Afriku gerðu
árangurslausa árás á í september
á síðasta ári.
UNITA hreyfingin tilkynnti
hins vegar að hún hefði gert árás
inn í bæinn og eyðilagt skrifstofur
hersins, skrifstofur ríkisins og
skotið til bana 11 stjórnarher-
menn.
Sovétríkin
Rekinn
fyrir
keðjubréf
Moskvu — Félagi í Kommúnista-
flokki Sovétríkjanna hefur verið
rekinn úr flokknum fyrir að senda
fólki keðjubréf. í bréfunum sagði
einfaldlega að það myndi lenda í
klandri ef það sendi bréfin ekki
áfram.
Tojljef heitir maðurinn. Hann
mun einnig hafa verið rekinn úr
Komsomol fyrir „pólitíska vanþekk-
ingu, hjátrú og fyrir að dreifa efni sem
eru hugmyndafræðilega óvinveitt",
segir í Komsomolskaja Pravda í gær.
Angóla
S-Afríka afneitar
árásinni
Pretoríustjórn gafífyrsta sinn út tilkynningu um
fréttir Angop fréttastofunnar íAngóla um að S-
Afríkumnenn hefðu gert árás á sovésk og kúbönsk
skip í höfn þarí landi. Pretoría neitaði fréttinni í
kjölfar fréttar um að Sovétmenn hygðustgrípa til
aðgerða gegn S-Afríku
Miðvikudagur 11. júní 1986 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 13