Þjóðviljinn - 22.06.1986, Page 6
VEIÐI
Veiðimaðurinn
Munar
tugum
þúsunda
Getur keypt útbúnað á 1000 kr. og allt
uppítugi þúsunda
Silungsveiði og laxveiði
tilheyrir hinn ótrúlegasti
búnaður og veiðimaðurinn
virðist næstum endalaust
geta bætt á sig hinum ýmsu
tækjum og tólum.
Pessi búnaður býðst á mjög
mismunandi verði, ailt eftir því
hvað til stendur og hvað maður
vill leggja í íþróttina. Þjóðvilja-
manni lék forvitni á að vita hvað
herlegheitin kosta og brá sér því í
Útilíf í Glæsibæ, sem er ein þeirra
verslana sem veiðimenn
heimsækja gjarna. Ekki gafst
tími til að fara í aðrar verslanir og
því höfum við engan samanburð
milli verslana, en gera verður ráð
fyrir að verðmunur sé all nokkur.
Verðlagsstofnun hefur ekkert
eftirlit með verðlagningu þessara
vara, kaupmenn mega leggja á
þetta eins og þeim dettur í hug.
Sölumenn í Útilífi upplýstu að
það er mjög algengt að keyptur sé
pakki fyrir börn, þar sem er að
finna kaststöng með hjóli, spóna
og fleira og fást slíkir pakkar í
þessari verslun fyrir 1040-2000
krónur. Þetta er það allra ódýr-
asta og hentar börnum og byrj-
endum ágætlega, segja þeir.
5.5 feta kaststöng kostar 770-
1800 krónur. Heppilegt hjól á
slíka stöng 720-1440. Heppilegt
fyrir byrjendur og í raun
fullnægjandi útbúnaður þegar
spónar og annað smálegt hefur
bæst við.
Kaststangir sem mælt er með
fyrir fullorðna kosta á bilinu
1150-13400 krónur, bæði fyrir sil-
ung og lax. Síðan kaupa sumir
stígvél sem kosta 2110-2670 krón-
ur. Vöðlur kosta 3220-5960, en
þær síðarnefndu eru sokkavöðlur
og með þeim þarf skó sem kosta
upp í 3400 krónur.
Þeir sem vilja vera mjög sport-
legir kaupa sér veiðivesti fyrir allt
að 3280 krónur og eða veiðijakka
sem kostar 3920.
Fluguveiðimaðurinn fær hjól
við sitt hæfi fyrir 1000-3800 krón-
ur, stöng á 1400-15800 og línu á
1090-2130 krónur.
Eins og sjá má af þessu geta
menn útbúið sig fyrir rúmar 1000
krónur og allt upp í tugi þúsunda.
—gg
Landssamband stangveiðifélaga
Alliríveiðiídag!
Veiðidagur fjölskyldunnar 22. júní. Ókeypis veiði í Þingvallavatni,
Elliðavatni, Kleifarvatni, Vífilsstaðavatni, Langavatni og víðar
Veiðidagurinn tókst með
afbrigðum vel í fyrra og við
vonum bara að það sama
verði uppi á teningnum í ár,
sagði Rósar Eggertsson rit-
ari Landssambands stang-
veiðiféiaga, sem verður
með Veiðidag fjölskyldunn-
ar í dag.Það verður í annað
sinn sem slíkur dagur er
skipulagður.
„Landssambandið býður upp á
fría veiði í Þingvallavatni og við
ætlunr að reyna aðstoða þá sem
þurfa á aðstoð að halda, kenna
fólki að kasta og þess háttar ef
með þarf. Stangveiðifélag
Reykjavíkur verður með Elliða-
vatn og býður fólki að veiða þar
ókeypis, Armenn verða í Vífils-
staðavatni, ég geri ráð fyrir að
Hafnfirðingar verði með Kleifar-
vatn. Borgnesingar verða með
Langavatn og auk þess má gera
ráð fyrir að fólki verði boðið í
veiði víðs vegar um landið.
Þetta tókst alveg sérstaklega
vel í fyrra, enda fengum við sól-
skin allan daginn. Það er vonandi
að við verðum eins heppin núna,
en veiðimaðurinn hefur nú oft
þurft að bíta í það súra epli að láta
rigna svolítið á sig. Þá er bara að
búa sig,“ sagði Rósar.
—gg
Rósar Eggertsson.
GÖTT KAST GEFUR FISK
SilSiak