Þjóðviljinn - 22.06.1986, Qupperneq 7
VEIÐI
Vildi ekki vera án veiðinnar
Kristján Kristjánsson í KK-sextettinum veiðir og hnýtir flugur af mikilli ástríðu
Kristján Kristjánsson er
líklega þekktastur fyrir veru
sína í KK-sextettinum hér á
árum áður, en þeir eru
væntanlega færri sem vita
að maðurinn er haldinn
mikilli veiðidellu og hefur
svo verið um áraraðir. Auk
þess hefur hann unun af því
að hnýta flugur og hefur
náð ágætri kunnáttu í þeirri
list, eins og veiðimenn vilja
kalla þessa iðju.
Blaðamanni er enda boðið inn
á skrifstofu Kristjáns þar sem
hann hefur komið sér upp að-
stöðu fyrir hnýtingarnar. „Ég hef
hnýtt lengi og hef mjög gaman af
þessu. Það er orðið nokkuð al-
gengt að menn hnýti sínar flugur
sjálfir og mér er óhætt að segja að
það hafi færst talsvert í vöxt. Og
það eru hér á landi margir frábær-
ir hnýtarar, bæði leikmenn og
atvinnumenn," segir hann þegar
talið berst að hnýtingunum.
Svo dregur hann fram listilega
hnýtta flugu, sem hann segir vera
sitt uppáhald. „Þetta er Matuka-
hnýtt fluga og heitir Black gho-
ast. Nýsjálendingar tóku upp á
því að hnýta þessa tegund og
kenna hana við fuglategund sem
heitir Matuka. Upphaflega not-
uðu þeir nefnilega fjaðrir úr þess-
um fugli.“
Veiðimenn með
sérstaka tilfinningu
Kristján var nýkominn úr
nokkurra daga veiðiferð þegar
blaðamaður kom í heimsókn.
Hann hafði m.a. farið í urriðann í
Ég fæ mig aldrei saddan af íslenskri náttúru. Hún er svo yndisleg. Mynd. Sig.
Laxá í Laxárdal, sem er mjög vin-
sæll staður meðal veiðintanna.
„Ég var þarna með alveg geysi-
lega skemmtilegum veiðifé-
lögum. Það er eins og sumir
veiðimenn hafi alveg sérstaka til-
finningu fyrir þessu, hvort sem
þeir renna í ár eða stöðuvötn.
Þeir hafa alveg sérstaka tilfinn-
ingu fyrir vatninu og því hvernig
fiskurinn hagar sér. Það er alveg
sama hvernig aðstæður eru, þeir
finna alltaf fiskinn, eða fiskurinn
þá.“
Hefur þú þessa tilfinningu?
„Nei, ég hef þetta ekki, en ég
hef óskaplega gaman af svona
mönnum. Sumir halda að þeir
hafi þetta ef þeir eru heppnir einu
sinni, en það er mikill misskiln-
ingur.
Það er geysilega margt sem
menn þurfa að athuga við þessar
veiðar. Það er t.d. mjög mikil-
vægt að hitastig vatnsins sé rétt.
Síðasta daginn sem við vorum
þarna fyrir norðan hafði vatnið
hitnað um ein tvö stig, fór upp í
níu stig, og það munaði því að
fiskurinn tók mun betur en
áður. Best er ef hitastig vatnsins
er svipað og lofthiti. Það er mjög
fínt ef hitinn er svona 10-12 stig,
en það er ekki oft sem maður nær
því.“
Stöngin fyrir
aftan sœtið
Hefurðu alltaf haft þennan
áhuga á veiði?
„Ég byrjaði nú á þessu þegar ég
var ungiingur, en það var ekkert í
líkingu við það sem nú er. Ég var
hljómlistarmaður í mörg ár og
þegar ég hætti því stofnaði ég
Verðlistann. Þá ferðuðumst við
hjónin um landið í mörg ár og
stöngin var alltaf bak við sætið
hjá mér, en ég mátti aldrei snerta
hana meðan á þessu stóð.
Svo var lausaverslun á landi
bönnuð, það var líklega 1969, og
þá byrjaði karl á þessu af alvöru.
ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 7
Seinna fór ég svo að hnýta
flugur.“
Þú minntist á tónlistina. Ertu
alveg búinn að leggja þaðfrá þér?
„Ég var í músíkinni í fjölda-
mörg ár og þá vann maður 6
kvöld í viku, ólíkt því sem nú ger-
ist. En nú er ég alveg búinn að
leggja þetta frá mér. Ég seldi
meira að segja saxófóninn minn
núna um daginn, góðum músík-
ant.
Þetta var gömul gerð af Selmer
Paris. Hann átti kost á nýjum, en
hann fór ekki vel í hann, svo hann
falaði þann gamla af mér. En ég
er alveg hættur að spila.“
Urriðasvœðið
mitf uppáhald
Snúum okkur þá aftur að
veiðinni. Ertu búinn að skipu-
leggja veiðisumarið?
„Ég er búinn að því. Ég tek
sumarfríið eiginlega út í veiðitúr-
um, fer aldrei til útlanda í frí. Ég
fæ mig aldrei saddan af íslenskri
náttúru. Hún er svo yndisleg.
Urriðasvæðið við Laxá er t.d.
eitthvert það yndislegasta í öllurn
heiminum.
Enda er það minn uppáhalds-
staður. Ég tek það fram yfir alla
laxveiði. Bara að vera þarna er
alveg stórkostlegt, þegar maður
kemur þangað norður er eins og
það skipti ekki máli hvað maður
veiðir, staðurinn er bara svo frá-
bær. Maður er alltaf að læra
eitthvað nýtt þótt maður komi
þangað ár eftir ár.“
Þú ert kannski ekki mikill lax-
veiðimaður?
„Ég fór alltaf í Norðurá hér
áður fyrr, en það er bara ekki
hægt að borga þessar upphæðir
fyrir veiðileyfi. Maðurfær urriða-
veiðina í Laxá á skikkanlegu
verði, en laxveiðin er allt of dýr.
Það er búið að sprengja þetta svo
upp að það nær ekki nokkurri átt.
Ég held bara að við séum farnir
að borga það sama og útlending-
ar fyrir þetta, jafnvel meira.
Eins og það er dásamlegt að
veiða í Norðurá. Það er alveg
synd að fólk skuli ekki fá að njóta
þess."
Reiðir veiðimenn
Eru veiðimenn yfirleitt reiðir
yfir því að það skuli vera búið að
gera laxveiði að lúxus?
„Já, menn eru afskaplega sárir
yfir því. Það er nefnilega annað í
þessu. Þegar maður er að veiða
verður ntaður líka að geta séð
landið, ána, sólina, rigninguna og
bara allt sem er í kringum mann.
Maður verður að geta notið þess
um leið og maður hefur gaman af
veiðiskapnum sem slíkum.
Þegar menn borga of mikið vill
þettagleymast. Það er jafnvel til í
því að menn séu að reyna að
veiða upp í veiðileyfið. Svo ég
held mig að mestu við silunginn.
Að vísu er ég með einn dag í
Stóru Laxá í suntar. Það er alltaf
gaman að vera þar.“
Sá stœrsti 25 pund
Þú verður að segja frá stœrsta
fiskinum sem þú hefur landað, er
það ekki ómissandi?
„Stærsti fiskurinn var 25 pund.
Ég náði honum í straumunum þar
sem Norðurá og Hvítá í Borgar-
firði koma sarnan. Þetta var erf-
itt, blessaður vertu, ég var kom-
inn langt niður fyrir veiðisvæðið,
enþað tókst. Þetta varfyrirellefu
árurn síðan og ég er orðinn alveg
úrkula vonar um að fá hann
stærri.
Ég setti að vísu í alveg feiknar-
legt ferlíki fyrir nokkrum árum í
Alviðru í Soginu, en ég missti
liann og var alltaf viss um að ég
myndi missa hann. En þvílíkt fer-
líki. Svo sver og svo langur, það
hefði ekki verið amalegt að ná
honurn á land."
Veiðidellan er ekkert að missa
tökin á þér?
„Nei. Þetta gefur mér svo
mikla sálarró, bæði fluguhnýting-
arnarog veiði í ám og vötnum. Eg
vildi ekki fyrir nokkra muni vera
án þess,“ segir Kristján að lok-
um.
—gg
Veiðidagur fjölskyldunnar
Landssamband stangveiðifélaga hveturtil þátttöku á veiði-
degi fjölskyldunnar á sunnudaginn. Ókeypis veiði og
leiðbeiningar kunnáttumanna víða um land. Kynnið ykkur
aðstæður í heimabyggð ykkar. Leiðbeinendurfrá Lands-
sambandinu verða við Vatnskot við Þingvallavatn frá kl. 10
f.h.
Mætið sem flest með veiðitækin og njótið dagsins.
Gúmmíbátar 1-2-3-4 manna
Árar, handdælur, rafmagnsdælur
Sundlaugar Sundhringir
Vindsængur Sundboltar
Stólar visa - kreditkort
Póstsendum samdægurs
Leikfangahúsið
Skólavörðustíg 10 Sími 14806