Þjóðviljinn - 16.07.1986, Qupperneq 7

Þjóðviljinn - 16.07.1986, Qupperneq 7
DIODHUINN Umsjón: Páll Valsson Birgir Edvardsson framkvæmdastjóri N'ART meö ágætt plakat hátíðarinnar glaður á svip, enda styttist í að mikil vinna hans og hans fólks skili sér í öflugri hátíð. (LjósmyndAri) Hátíð Alhlióa menningarhá tíó NARTIÐ hefst á föstudag. Birgir Edvardsson: Sviptum borgina gráu hulunni Áföstudaginn hefstí Reykjavík norræn menningarhátíð; fjölbreytt hátíð með þátttöku listamannafráöllum Norðurlöndunum og margra listgreina. Öðrum þræði er hátíðin hugsuðsem afmæliskveðjatil Reykjavíkur vegna 200 ára afmælis borgarinnar. En frá 3. júlí hafa margir lista- menn ferðast um landið sér til upplifunar og koma þeir til borg- arinnar nú í byrjun hátíðar. Framkvæmdastjóri Norrænu menningarhátíðarinnar, sem hef- ur skammstöfunina N‘ART, er Birgir Edvardsson. Hann var spurður um hátíðina, aðdrag- anda og markmið: Langur aðdragandi „Þetta er nú nokkuð gömul hugmynd, að fá hingað gott lista- fólk og halda hátíð. Ein hugsunin á bakvið hátíðina, hugsun sem ferðin þjónar aðallega, er að láta mætast útlent listafólk og svo okkar einstaka og fallega land. Að sjá hvað kemur út úr slíku samspili. Það munum við meðal annars sjá á sýningu sem kölluð verður ...gests augað og verður sett upp í Hlaðvarpanum á föstu- daginn. Þar verða sýndar myndir sem gerðar voru í ferðinni. En með aðdragandann þá má segja að ég hafi farið að hugsa um þetta í alvöru svona uppúr ára- mótum 1984—1985. Síðan þróað- ist hugmyndin hægt og bítandi og fyrir svona ári síðan þá var kom- inn nokkur skriður á þetta mál. Það má líkja þessu öllu við há- stökk. Ef tilhlaupið er mátulega langt þá stekkurðu hærra. Og þú verður að stefna nógu hátt. Ef þú ætlar að stökkva 1.60 þá verð- urðu að hugsa stökkið þannig að þú ætlir að stökkva 1.80.Málið er að stefna nógu hátt og gefast aldrei upp. Breið og alhliða hótíð Ferð listamannanna um landið hefur gengið vel, þótt veðrið hafi sett nokkurt strik í reikninginn í blábyrjun, þegar það var slydda og 2 gráðu hiti í Mývatnssveit. En síðan hefur verið mikil blíða og allt gengið ljómandi vel.“ „Við höfum reynt að vanda val listamanna á hátíðina eins og hægt var og hafa mikla breidd. Það hefur tekist vel ekki síst vegna þess hversu vel listamenn tóku í þetta. Langflestir voru til í að koma. Peningahliðin var og er auðvitað barátta eins og alltaf er. Allt hitt er bara skemmtivinna. Við ætlum að halda góða alhliða hátíð í höfuðborginni á 200 ára afmælinu; reyna að sýna fólki að það er hægt að skemmta sér í þess nánasta og hversdagslega um- hverfi. Svipta gráu hulunni af borginni, það er okkar markmið. Stiklað ó efni Mín uppáhaldshugmynd varð- andi þessa hátíð er Lista- skálahugmyndin. Þar sýna í Borgarskála Eimskips við Sigtún um það bil 50 myndlistarmenn frá öllum Norðurlöndunum og fleiri uppákomur verða þar á sviði tónlistar, dans og fleira. Aðrir staðir eru Tjaldið og Félagsstofn- un Stúdenta sem má segja að verði miðstöðvar þessarar hátíð- ar. í Félagsstofnun verður starf- ræktur klúbbur sem verður opinn öll þau kvöld sem hátíðin stend- ur.“ - Ef þú stiklur nú um dagsk- rána og nefnir svona það sem þér þykir sæta mestum tíðindum. „Já, það er alltaf erfitt að taka eitthvað út, en það má reyna. Það er til dæmis mikill viðburður að hingað skuli koma hópur frá danska Odin leikhúsinu sem er meðal fremstu leikhúsa. Þá held ég að sýning Svíanna í Mimens- emblen teljist til tíðinda. Það er mjög mögnuð og falleg sýning sem byggð er á hinni frægu skáld- sögu Hermanns Hesse Steppenw- olf og fleiri skrifum Hesse. Það ætti líka að vera tilbreyting fyrir landann að fá að horfa á Ludvika Mini Cirkus sem er barnasirkus; 40 krakkar frá Svíþjóð sem fara með trúðaleik og ýmislegt sem tilheyrir sirkus. I djassinum er það svo Niels Henning Örsted Pe- dersen sem slítur hátíðinni með tríói sínu sem íslendingar þekkja að góðu, en það má einnig nefna kvintett Arild Andersen sem leikur núna á sunnudagskvöldið í Tjaldinu. Og svona mætti lengi telja." Leikrit eftir Magnús - Hvað með íslenska hlutann á hátíðinni? „Hann er talsvert stór. Margir myndlistarmenn sýna í Borgar- skálanum, íslenski dansflokkur- inn kemur fram og ýmsar rokk- sveitir spila í Tjaldinu. Þá verða flutt tónverk eftir Lárus H. Grímsson; tvö frumflutt af Guðna Franzsyni og Þóru Stínu Johansen. Sýndurverður Skottu- leikur eftir Brynju Benedikts- dóttur og Stúdentaleikhúsið frumsýnir nýtt leikrit eftir Magn- ús Pálsson. Þá má nefna að hlutur rithöf- unda verður meiri en getið er í þessari dagskrá sem nú liggur fyrir. Það er verið að ganga frá ýmsum upplestrum og meðal annars mun sænski höfundurinn Reidar Jönson koma og tala. Ég vil líka minna á rokkið þar sem boðið verður upp á góðar dagskrár. Þar er ástæða til að nefna sérstaklega finnsku rokk- hljómsveitina Sielun Veljet sem spilar melódískt og kraftmikið rokk. Mjög alhliða góð hljóm- sveit sem ég hugsa að fólk verði hrifið af.“ -pv Miðvikudagur 16. júlí 1986 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 7

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.