Þjóðviljinn - 16.07.1986, Síða 8
MENNING
Atli Ingólfsson, Kristján Kristjánsson og Nína Björk Árnadóttir verða meðal þeirra skálda sem lesa upp Ijóð sín í kvöld.
Ljóðakvöld
Upplestur
í Norræna
Þrjár kynslóðir ljóðskálda lesa í kvöld
Félgsskapurinn þarfi sem
kallar sig Besta vin Ijóðsins
lætur ekki sitja við orðin tóm í
umhyggjusinnifyrirþessari
„lífmögnuðustu eigind móð-
urmálsins" eins og Þorsteinn
frá Hamri nefndi Ijóðið í merkri
grein hér í blaðinu á sunnu-
daginn.
Bestu vinirnir efna til ljóðak-
völds í Norræna húsinu í kvöld og
hefst lesturinn klukkan níu. Þar
munu Ijóð sín lesa Jón úr Vör,
Nína Björk Árnadóttir, Vigdís
Grímsdóttir, Gyrðir Elíasson,
Atli Ingólfsson, Kristján Krist-
jánsson, Sjón, Wilhelm Emils-
son, Margrét Lóa Jónsdót.tir og
Hrafn Jökulsson. Sumsé blanda
þekktra og óþekktra Ijóðara.
Hrafn mun einnigsjá um kynn-
ingu á tveimur látnum heiðurs-
mönnum þeim Sveini Jónssyni
framtíðarskáldi, 1892-1942 ogJó-
hanni Jónssyni sem lést 1932 og
er meiningin að sýna að Jóhann
hafi ekki bara verið skáld eins
ljóðs þ.e.a.s. Söknuðar. Viðar
Eggertsson leikari mun lesa ljóð
þessara skálda.
Pá mun Guðjón Guðmundson
Ieika nokkur lög. Einhverjar af
bókum ungskáldanna verða til
sölu í Norræna húsinu í kvöld en
miðaverð er aðeins 250 krónur.
FÖSTUDAGUR 18. JÚLÍ
17:00 Hlaðvarpinn
Hátíðin sett með opnun
tveggja myndlistarsýninga.
fneöri sal:
Sýning Ednu Cers Winberger-
s fráSvíþjóð. Hún hefurtekið
þátt í fjölda samsýninga og
verið með einkasýningar í Sví-
þjóð og Kanada. Flest verka
hennar eru unnin í batík og
sækir hún efniviðinn gjarnan í
norræna goðafræði.
íefri sal:
..gests augað". Sýndar
myndír sem unnar hafa verið í
ferð norræna myndlistar-
manna um ísland 3.-16. júlí.
20:30 Iðnó
Farfa-ie ikhópurinn frá Dan-
mörku sýnir „Giftur Guði" eða
„Hin ómögulega ást". Verkið
fjallar um átakamikið tímabil í
lífi hins þekkta, rússneska
dansaraNijinski. Farfa-
leikhópurinn starfar innan
Odinleikhússins sem verið
hefur í fremstu röð nútímaleik-
húsaumárabil.
Aðgangur400 kr.
21:00 Tjaldrokk á Háskolavelli
Pukl- Vundervoolz og Sielun
Vejletsem erfrægasta rokk-
hljómsveit Finna idag. Þeir
hafa spilað á tónleikum víða í
Evrópu, m.a. í Englandi,
Þýskalandi og Rússlandi.
Aðgangur500kr.
LAUG ARDAGUR 19. JÚLÍ
13:30 Skrúðgangafrá Lækjartorgi
Skrúðganga með þátttöku
leikhópsins Veitmamma hvað
ég vil?og Ludvika Mini Cirkus
frá Svíþjóð.
Ludvika Mini Cirkuser hópur
barna sem sýnir fimleika,
trúðaleik og ýmsar listir fjöl-
leikahússins. Gengið verður
að samkomutjaldinu þar sem
gangan endar með sýningu
Ludvika Mini Cirkus.
Aðgangur250 kr.
15:00 Hlaðvarpinn
Hugarþel til forna. Fyrri hluti.
Fyrirlestur og umræður á veg-
um Yggdrasils semernorræn
áhugasamtök um fornnor-
ræna menningu, seiðlist og
„shamanisma". Sænski alls-
herjargoðinn Thure Claus
heldurfyrirlestur.
Fyrri hlutinn fjallar um áhuga-
verðar heimildir um fornnor-
ræna menningu, seið og notk-
unhans.
17:00 Borgarskáli Eimskips
viðSigtún
Stórsýning, Norrænlista-
sveifla. Opnuð samsýning nor-
rænna myndlistarmanna. Um
50 listamenn sýna í 1500m2
húsnæði Borgarskála.
Þar verða auk þess tónleikar,
dans og leiksýningar. Sjá nán-
arídagskrá.
20:30 Iðnó
Farfa.„Giftur Guði". Önnur
sýning.
21:00 Tjaldrokk- Centaur-
GreifarnirogAston Reymers
rivaler semeráttamanna
rokksveit frá Svíþjóð. Tónlist
þeirra er dillandi blanda af
Suður-Amerískum töktum,
djassi ogrokki.
Aðgangur500 kr.
SUNNUDAGUR 20. JÚLÍ
17:00 Tjaldið
Ludvika Mini Cirkus. Önnur
sýning.
15:00 Hlaðvarpinn
Hugarþel til forna. Síðari hluti.
Goðsagnir. Ásatrú og nútíma-
maðurinn. Fyrirlesturog um-
ræðurávegum Yggdrasils.
17:00 Borgarskáll
„Bouffons". Látbragðsleikurí
ýkjustíl, „burlesquemime",
saminn og fluttur af Michaela
Grant og Asa Kalmér úr Mim-
ensemblen fráSvíþjóð.
Aðgangur200kr.
20:30 Iðnó
Farfa:„GifturGuði“. Þriðja
sýning.
21:00 Kjarvalsstaðir
Píanótónleikar. Sæsk-gríski
píanódúettinn Ulfog Lefki
Lindahl kynna norræn tón-
skáld og leika verk þeirra fjór-
hent á píanó. Ulf og Lefki
Lindahl hafa leikið víða, bæði
sem píanódúett og einleikarar
með sinfóníuhljómsveitum.
Aðgangur300 kr.
21:00 Tjaldið
Djasstónleikar. Masqualero,
kvintetf Aritds AndersenUá
Noregi. Arild Andersen er einn
þeirra sem tóku að spila nýja
tegund djasstónlistar á sjö-
unda áratugnum. Hann hefur
m.a. leikið með Stan Getz og
ChickCorea.
Aðgangur700 kr.
MÁNUDAGUR 21. JÚLÍ
21:00 Hlaðvarpinn
Valdabarátta á Sturlungaöld
og heimsmynd nútímans.
Danski rithöfundurinn Jon Hö-
yer flytur fyrirlestur.
20:30 Félagsstofnun stúdenta
Stúdentaleikhúsið frumsýnir
sjónleikinn „De kommer með
kista og henter meg".Höfund-
ur og leikstjóri Magnús Páls-
son.
Aðgangur300 kr.
21:00 Tjaldið
Tónleikar. Fluttverk eftir Lár-
usH. Grímsson.Tvöþeirra
eru frumflutt á N'ART 86. Flyt-
jendur: Guðni Franzson á
klarinett, Þóra Stína Johansen
á sembal og synthesizer, Wim
Hoogewerf á gítar. Hljóð-
stjórn: Lárus H. Grímsson.
Aðgangur300 kr.
22:30 Hljómskálagarðurinn
Forfeðraákall. Yggdrasil leiðir
athöfn sem helguð er forfeðr-
umokkar.
ÞRIÐJUDAGUR 22. JÚLÍ
20:30 Tjaldið
MimensemblenVá Svíþjóð
sýnir „Utangarðsmaðurinn".
Verkið er byggt á skáldsögu
Hermanns Hesse, Steppen-
wolf. Þessi magnaða sýning
hefur hvarvetna hlotið frábær-
ar viðtökur. í henni nýtur sín vel
hinn sérstæði leikstíll þessa
hóps þarsem saman fléttast
látbragðsleikur, tónlist, dans
og sterkt líkamlegt tjáningar-
form.
AðganguröOOkr.
21:00 Borgarskáli
Spunaleikurfrá Kramhúsinu.
Þóra Stína Johansenílytur
verk fyrir sembal og synthesiz-
er eftir Kaija Saariaho frá Finn-
landi.
Aðgangur200 kr.
MIÐVIKUDAGUR 23. JÚLÍ
9-18 Hlaðvarpinn
Hvernig magna skalseið.
Námskeiðávegum Yggdra-
sils.
Bækur
Mannkyns-
saga AB
Árin frá 1500 til 1750
Bókaklúbbur Almenna bóka-
félagsins hefur sent frá sér 7.
bindið af Sögu mannkyns og
nefnist það Ný ásýnd Evr-
ópu og tekur yfir tímabilið
1500-1750. Höfundurinn er
Kurt Agren lektorvið há-
skólann í Uppsölum, en þýð-
andi er Helgi Skúli Kjartans-
son.
Bindið fjallað um endur-
reisnartímann sem var geysilegt
breytinga- og byltingaskeið í Evr-
ópu bæði í andlegum og pólitísk-
um efnum. Ný heimsmynd verð-
ur til - jörðin hættir að vera miðja
alheimsins og menn uppgötva að
himinhnettirnir hreyfast eftir
lögum aflfræðinnar fremur en
vilja guðs. Kaþólska kirkjan
missir vald sitt í mörgum löndum
og skáldin heimta andlegt frelsi
og rita eins og þeim býður við að
horfa (Shakespeare, Cervantes).
Á sviði stjórnmálanna voru
Frakkland, Spánn, England og
Habsborgarar keppinautar um
völdin. Síðan geisar 30 ára
stríðið, spænska erfðastríðið og
fleiri styrjaldir sem allar miða að
því að efla konungsvaldið - nema
í Englandi og Hollandi þar sem
stjórnarandstöðunni tókst að efla
áhrif borgaranna. Þessi tvö ríki
ruddu síðan brautina til iðnvæð-
ingar og kapítalisma, framleiðslu
á vörum fyrir markað í stórum stíl
og fram kemur stétt kaupsýslu-
manna sem aðhyllist samkeppni í
viðskiptum. Þessi þróun hefur
síðan markað stærstu drættina í
ásýnd heimsins á okkar dögum.
Myndefni bókarinnar er glæsi-
legt og nýtur vel hinna glæsilegu
myndlistarmanna endurreisnar-
tímans.
N’ART ’86
21:00 Kjarvalsstaðir
Mogens Ellegárd frá Dan-
mörku leikur á accordeon.
Ellegárd hefurhlotið
heimsfrægð fyrir leik sinn á
þetta hljóðfæri sem er harmo-
nikka með smástigum skölum
á báðum borðum. Mörg merk-
ustu tónskáld Norðurlanda
hafa samið verkfyrir Ellegárd.
Aðgangur400 kr.
21:00 Tjaldið
Mimensemblen:
„Utangarðsmaðurinn".
Önnursýning.
21:00 Borgarskáli
Dómkórinn syngurundir
stjórn Marteins H. Friðriks-
sonar.
„ Hendur sundurleitar".
Leikrænt dansverk fyrir fimm
dansara og einn leikara eftir
Láru Stefánsdóttur. Verk þetta
var samið sérstaklega fyrir
N'ART '86. Flytjendur eru
dansarar úr íslenska dans-
flokknum ásamt einum leikara.
Aðgangur200kr.
FIMMTUDAGUR 24. JÚLÍ
21:00 Tjaldið
Mimensemblen: „LUangarbs-
maðurinn".
Þriðjasýning.
21:00 Hlaðvarplnn
Einleikurásaxofón. LauriNy-
koop fráFinnlandi.Hannhef-
ur komið áður hingað til lands
og haldið tónleika og vakti þá
verðskuldaða athygli fyrir sér-
stæðatónlistsína.
Aðgangur300kr.
21:00 Félagsstofnun stúdenta
Stúdentaleikhúsið:„De kom-
mer með kista og henter meg“.
Önnursýning.
22:30 Hljómskálagarður
Friðarathöfná vegum Ygg-
drasils.
FÖSTUDAGUR 25. JÚLÍ
20:30 Borgarskáli
Porquettas frá Finnlandi sýna
„Pacificinferno". Sjónleikur/
dans saminn út frá sögu Mic-
hel Tournier um Frjádag.
Leikstíll Porquettas er mjög
sérstakur og þykir yfirstíga alla
venjulega tungumálaörðug-
leika.
Aðgangur400 kr.
21:00 Tjaldrokk-BjarniTryggva-
son - Fölu frymskógardreng-
irnir og Aston Reymer rivaler.
Aðgangur500 kr.
LAUGARDAGUR 26. JÚLÍ
15:00 Iðnó
Revíuleikhúsið: „Skottu-
leikur". Leikstjóri og höfundur
Brynja Benediktsdóttir. Þetta
barnaleikrit, sem fjallar um
þrjár nútímaskottur, var sýnt
síðastliðinn vetur í Breiðholts-
skóla og víða um land.
Aðgangur250kr.
17:00 Borgarskáli
„Subito". Sviðsverk fyrir saxó-
fón, slagverk og dansara.
Flytjendur: Cecilia Roos frá
Svíþjóð, SteingrimurGuð-
mundsson, Elsie Petrén frá
Svíþjóð.
Aðgangur200 kr.
20:30 Borgarskáli
Porquettas: „Pacific inferno".
Önnursýning.
21:00 Kjarvalsstaðir
Svedenborgarkvartettinn frá
Svíþjóð. Þessi ungi strengja-
kvartett hefur þegar vakið
mikla athygli fyrir skemmtilegt
efnisval og persónulega túlk-
un.
Aðgangur300kr.
21:00 Tjaldrokk
Röddin - Bubbi Morthens- Si-
elun Veljet. Aðgangur 500 kr.
SUNNUDAGUR 27. JÚLÍ
15:00 Tjaldlð
Lokahátíð.
Ludvika Mini Circus. Síðasta
'sýning. Leikhópurinn Veit
mammahvaðégvii? mætir
með furðuverur sínar og ferlíki.
Flugdrekahátíð. Ungir sem
aldnir eru hvattir til að mæta og
skreyta himininn með flug-
drekum sínum. Efni til flug-
drekasmíða má fá við tjaldið
alla daga hátíðarinnar.
20:30 Borgarskáli
Porquettas:,, Pacific inferno".
Síðasta sýning.
21:00 Tjaldið
Djasstónleikar. Tríó Niels-
Hennings Örsted-Pedersen
frá Danmörku. Með honum
leika Kenneth Knudsen og
PalleMikkelborg.
Aðgangur800 kr.
8 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 16. júlí 1986