Þjóðviljinn - 16.07.1986, Blaðsíða 14
Akureyri
Vilja ráðgjafaþjónustu
Skora áfélagsmálaráðherra ogstjórn
Húsnæðisstofnunar að koma upp útibúi
frá stofnuninni hiðfyrsta á Akureyri
„Fundur á vegum Húsnæðis-
stofnunar ríkisins um ráðgjafa-
þjónustu á Norðurlandi, haldinn i
Alþýðuhúsinu á Akureyri 15. júlí
1986, fagnar þeirri afstöðu fél-
agsmálaráðherra að stuðla að
aukinni ráðgjafaþjónustu í hús-
næðismálum á Norðurlandi.
Jafnframt bendir fundurinn á
þörf fyrir víðtækari þjónustu
húsnæðisstofnunar úti á lands-
byggðinni. Skorar fundurinn á
félagsmáiaráðherra og stjórn
húsnæðisstofnunar ríkisins að
beita sér fyrir því að stofnað verði
utbú frá húsnæðisstofnun á Ak-
ureyri hið fyrsta.“
Ofangreind ályktun var sam-
þykkt á fundi sem haldinn var í
Alþýðuhúsinu á Akureyri í gær, á
vegum Húsnæðisstofnunar ríkis-
ins. Samkvæmt fundarboði sem
sent var fulltrúum sveitarstjórna,
verkalýðsfélaga og lánastofnana
á Norðurlandi, átti fundurinn að
taka afstöðu til hugmynda sem
fram hafa komið um að á Akur-
eyri yrði komið á fót ráðgjafa-
þjónustu í líkingu við þá sem
Húsnæðisstofnun hefur starfrækt
í Reykjavík frá því í ársbyrjun
1985.
Grétar Guðmundsson for-
stöðumaður ráðgjafastofnunar-
innar var fulltrúi Húsnæðisstofn-
unar á fundinum og kynnti hann
m.a. samkomulag sem lánastofn-
anir, lífeyrissjóðir og verka-
lýðsfélög á Suðurnesjum gerðu
með sér um stofnun ráðgjafa-
þjónustu þar í samvinnu við
Húsnæðisstofnun.
Það var samdóma álit fundar-
ins að það væri fyrst og fremst í
verkahring Húsnæðisstofnunar
að standa að ráðgjöf til húsbyg-
gjenda hvort sem um væri að
ræða aðstoð við þá sem lent hafa í
greiðsluerfiðleikum vegna mis-
gengis launa og lánskjara eða
gerð greiðsluáætlana fyrir þá sem
hyggja á byggingu eða kaup
húsnæðis en samkvæmt lögum
sem taka gildi í haust eiga slíkar
áætlanir að liggja fyrir þegar fólk
sækir um lán til Húsnæðisstofn-
unar.
-yk/Akureyri
Amarflug
Hallgrímur er nú að þreifa fyrir sér með útflutning á harðfiski til Grænlands. Mynd -yk.
Fiskiðja H.A.
Ríkisábyrgð
í sjónmáli
Hörður Einarsson:
Veik fjárhagsstaða en góður grunnur
rátt fyrir veika fjárhagsstöðu
er þarna ákveðinn grunnur í
félaginu sem við teljum að hægt sé
að byggja á, sagði Hörður Ein-
arsson nýkjörinn stjórnarfor-
maður Arnarflugs hf.
Á aðalfundi um síðustu helgi
var gengið frá 52 miljón króna
hlutafjáraukningu. Á næstu
dögum búast menn við að 43 milj-
ónir bætist við en þá verða komn-
ar inn þær 95 miljónir sem settar
voru sem skilyrði fyrir 2,5 miljón
dollara ríkisábyrgð.
í samtali við Þjóðviljann sagði
Hörður Einarsson að leitað yrði
nýrra leiða í innflutningi og
jafnvel stofnað nýtt hlutafélag
með þátttöku Arnarflugs og
þeirra aðla sem hagsmuna eiga að
gæta í innanlandsfluginu.
Auk þeirra Harðar Einars-
sonar og Sveins R. Eyjólfssonar
eru nú stærstu hluthafarnir í Arn-
arflugi: Samvinnuferðir, Hótel
Saga og Helgi Þór Jónsson.
G.Sv.
Viðgerða- og
ráðgjafarþjónusta
leysiröll vandamál húseigenda. Sér-
hæfðir á sviði þéttinga og fl.
Almenn verktaka.
Greiðslukjör. Fljót og góð þjónusta.
Sími 50439 eftir kl. 7 á kvöldin.
Auglýsið í Þjóðviljanum
Laus staða
Hálf staða bókasafnsfræðings til skráningarstarfa í þjóðdeild
Landsbókasafns íslands er laus tll umsóknar.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og starfsferil skulu
hafa borist menntamálaráðuneytinu fyrir 25. júlí næstkomandi.
Menntamálaráðuneytið,
9. júlí 1986.
Reykt rækja til
Bandaríkjanna
Merkilegur útflutningur hjá dalvískum
harðfiskframleiðanda. Hallgrímur Antonsson: Fólk
afafrískum uppruna kaupir reykta rœkju
umboðs- eða dreifingaraðili
tekur við henni og selur fólki af
afrískum uppruna á svæðinu í
kringum New Jersey og einnig fer
eitthvað til vesturstrandarinnar.
Hallgrímur sagði að upphaflega
hefði það verið Finnbogi Gísla-
son á Akureyri sem bað hann að
þróa reykingu á rækju. Rækjan
þarf að ná ákveðnum litarblæ
sem kemur fram t' reykingunni og
auk þess þarf að þurrka hana
hæfilega áður en hún fer í
reykinguna. Ef þessi rétti litur
kemur ekki fram þýðir ekki að
senda rækjuna vestur, því þeir
taka ekki við henni. Hallgrímur
kvaðst ekki geta annað þessum
markaði nægilega ennþá, m.a.
vegna þess hve erfitt er að fá
rækju, því vinnslustöðvarnar í
landi þurfa á öllu því hráefni að
halda sem þær geta fengið.
Hallgrímur hefur einnig sent
bandaríska fyrirtækinu, að beiðni
þess, ýmsar aðrar fisktegundir,
s.s. reykta og þurrkaða loðnu,
rækjumjöl og herta og reykta bita
úr ýmsum fisktegundum sem
ekki nýtast í annað. Hann kvaðst
ekki telja líklegt að þarna væri að
opnast leið inn á einhvern
umtalsverðan markað þar sem
hann hélt að neysla þessara teg-
unda takmarkaðist við tiltölulega
lítinn hóp fólks. En hér er engu
að síður um nokkuð merkilegan
útflutning að ræða.-yk/Akureyri
Fíkniefnamál
Framkvæmdanefnd
gegn fíkniefnum
að fer ekki mikið fyrir fisk-
verkunarhúsi Hallgríms Ant-
onssonar á Dalvík, svona utan frá
séð, og sömu sögu er að segja þeg-
ar inn er komið. En þegar betur
er að gáð kemur í Ijós að það er
býsna merkileg starfsemi sem
þarna fer fram.
Það eru 3 ár síðan Hallgrímur
fór að verka harðfisk en hvað
fékkst hann við áður?
„Ég var verktaki, byggði hús
og ýmis önnur mannvirki hér á
Dalvík og víðar,“ svarar hann og
segist hafa hætt vegna samdráttar
í byggingariðnaði. „Ég fór nú
hálfgert úr öskunni í eldinn þegar
ég sneri mér að harðfisksverkun-
inni. Það eru of margir að fram-
leiða fyrir þennan innlenda
markað og erlendir markaðir
taka hægt við sér.“
- Hvernigætlistandiáþví?Nú
éta útlendingar harðfiskinn með
bestu lyst þegar þeim er boðinn
hann.
„Já, útlendingar éta fiskinn en
þetta er bara of dýr vara þegar
hann kemur á markað erlendis.
Það þyrfti að gera tæknilegar
breytingar í vinnslunni til að ná
framleiðslukostnaðinum niður.“
Þrátt fyrir þetta hefur Hall-
grímur verið að fikta svolítið við
útflutning á harðfiskinum, m.a.
er hann nú að þreifa fyrir sér á
Grænlandsmarkaði.
En það er e.t.v. ekki harðfisk-
verkunin sem er það merkileg-
asta sem fram fer í Fiskiðju H. A.
á Dalvík, þó að fiskurinn sé
reyndar merkilega góður. í hálft
ár hefur Hallgrímur flutt reykta
rækju til Bandaríkjanna þar sem
14 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN
Forsætisráðherra hefur í sam-
ræmi við ákvörðun ríkisstjórnar-
innar skipað framkvæmdanefnd
til að samhæfa aðgerðir í barátt-
unni gegn útbreiðslu og notkun
ávana- og fíkniefna hér landi.
í frétt frá forsætisráðuneytinu
segir að framkvæmdanefndinni
sé ætlað að vinna að samræmingu
hugmynda og verkefna einstakra
ráðuneyta og leyta eftir samstarfi
við stofnanir og sérfræðinga og
þau mörgu áhugamannasamtök,
sem vilja leggja lið baráttu gegn
þessari vá. Einnig á nefndin að
gera tillögur til ríkisstjórnarinnar
um framkvæmd mála á þessu
sviði.
í nefndinni eiga sæti: Helga
Jónsdóttir, aðstoðarmaður for-
sætisráðherra, formaður, Er-
lendur Kristjánsson, æskulýðs-
fulltrúi ríkisins, Böðvar Braga-
son, lögreglustjóri í Reykjavík,
Gylfi Kristinsson deildarstjóri,
Bjarnveig Eiríksdóttir lögfræð-
ingur, Jóhannes Bergsveinsson
yfírlæknir og séra Jón Bjarman.
—SA