Þjóðviljinn - 01.08.1986, Side 7

Þjóðviljinn - 01.08.1986, Side 7
HJOÐWUINN Umsjón: Sigríður Arnardóttir Norskar skátastelpur tjölduðu á ansi óvenjulegan máta. Þeim finnst gaman að koma til íslands og sögðu að það skemmtilegasta á landsmótinu væru strákarnir. Æðislegt í Viðey „Við byrjuðum í skátunum af því að systkini og vinir voru skátar", sögðu þær Valgerður Einarsdóttir sem er í skáta- hreyfingunni Garðbúar, Brynja Bragadóttir Garðbúi og Erla Ellingsen sem er í Haförn- um. Við erum búnar að vera skátar í svona 5-6 ár. Það sem er skemmtilegast eru skálaferðir, útilegur, og að gera draugagang á nóttinni í ferðalögum. Hérna í Viðey er alveg meiriháttar, sér- staklega að fara í vatnasafaríið. Er allt alveg æðislegt hérna? „Já, nema að það þarf að vera Brynja, Valgerður og Erla í miðj- unni: Við erum búnar að vera skátar í 5-6 ár. útilegur eru það skemmtilegasta í skátastarfinu. komin kyrrð klukkan 23.30. Það er of strangt.“ Erla: „Við í mínu tjaldi fórum nú ekki að sofa fyrr en klukkan 4 í nótt. Við vorum að kjafta“. Eiga skátar ekki að gera 1 góð- verk á dag? „Jú, ég er búin að hjálpa frænku minni í allan dag, hún er fótbrotin“, sagði Erla. Eruð þið að vinna eitthvað í sumar? Valgerður er í Vinnuskólan- um, Brynja passar barn og Erla vinnur í eldhúsi. „Það var mjög gaman að fá frí og komast hingað í Viðey“, sögðu þær að lokum. Saint Martin Junglister skátarnir frá Luxemburg. Ljósm.: Ari. Skátar frá Luxemburg 18 skátar frá Luxemburg komu til íslands til að taka þátt í landsmótinu í Viðey. Flestir þeirra hafa aldrei komið hing- að áður. En 4 þeirra eru íslenskir en búa í Lúx. Hvernig finnst ykkur að vera á íslandi? „Það er gaman en allt miklu dýrara hér en heima. Það sem við eigum helst eftir að muna eftir er góða veðrið, landslagið, gott loft, fá tré, fá dýr og hve margir ís- lendingar eru hvíthærðir. íslend- ingar eru líka kaldari í viðmóti en fólk í Luxemburg". Eruð þið búin að sjá eitthvað annað en Viðey hér á íslandi? „Já við komum til landsins viku áður en skátamótið byrjaði og við vorum í Reykjavík, þar var mjög j gaman. Svo fórum við líka út á land en munum ekki hvað stað- ! irnir heita.“ Er skátastarfið á íslandi líkt skátastarfinu ykkar í Lúx? „Ekki mjög, hérna er allt miklu strangara“, sögðu þau að lokum og stilltu sér upp fyrir ljós- myndarann. Föstudagur 1, ágúst 1986 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 7 Spjallað við skáta á landsmóti þei sem er haldið úti í Viðey og lýkur um hel

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.