Þjóðviljinn - 06.08.1986, Blaðsíða 7
Slegið á létta strengi og ullað framan í Ijósmyndara á þjóðhátíð.
Margir voru orðnir lúnir að lokinni þjóðhátíð og fengu sér kríu í bekkjabílnum sem flutti þá niður að höfn þar sem ferjurnar
biðu eftir þeim. Herjólfur og Smyrill sáu um flutningana en unglingarnir töluðu bara um „Smyrjólf". Mynd Ari.
þær sprungu og lýstu upp allan
Dalinn. Fjallshamrarnir sem
gnæfa yfir Herjólfsdal voru ægi-
legir í fegurð sinni og þögn sló á
fólkið um stund.
Síðan hófst ballið á ný og Stuð-
menn héldu áfram að spila fram
undir morgun. Úthald unga
fólksins var með ólíkindum,
myrkur miðnæturinnar kom og
fór og áfram var dansað eftir að
hljómsveitin hætti. Einstaka
maður lognaðist þó útaf úti um
grundir en gæslumenn svæðisins
voru þá fljótlega komnir með
börur og komu þeim hinum sama
á þægilegri næturstað. Það var el-
skast, sungið, hlegið og dansað
og yfir Dalnum blikaði Venus á
himni.
„Þetta er eyja,
þið vitið það!“
Morguninn eftir sáust merki
næturinnar víða. Rusl var úti um
allt og töluverður fjöldi þurfti að
láta taka í sig spor í sjúkratjaldinu
eftir að hafa stigið á glerbrot eða
„gengið á hnefa.“ Starfsfólk há-
tíðarinnar kepptist við að þrífa til
og sólin skein í syfjuleg andlitin.
Innan um sáust þó nokkrir sem
höfðu greinilega enga þörf fyrir
svefn og voru enn að skemmta
sér. Þeir sem vildu fara í sturtur á
svæðinu urðu að bíða í biðröðum
lengi vel og oftar en einu sinni
urðu allir með tölu frá að hverfa
vegna þess að vatnið var einfald-
lega búið í bili. „Þetta er eyja, þið
vitið það,“ sagði gæslukonan í
íþróttahúsinu og skellihló þegar
hún sá svipinn á úfnum ungmenn-
unum.
Ekki bætti úr skák að fara varð
á hótel og matsölustaði í bænum
til þess að fá sér matarbita annan
en klkístraða hamborgara og fit-
ugar franskar kartöflur og kvört-
uðu margir sáran yfir því. „Skrif-
aðu um hvað það er dýrt á milli í
bekkjarbílum“ sögðu margir við
mig þegar þeir sáu pennann og
blokkina mína og því er hér með
komið á framfæri: 100 krónur á
flugvöllinn og 80 krónur í bæinn
úr Dalnum, hvort tveggja 2 mín-
útna ferðir. Sömuleiðis stend ég
við það loforð að skammast yfir
hreinlætisaðstöðunni: 10 klósett
fyrir 10.000 manns!
Sem sagt, það er mikil upplifun
að fara á þjóðhátíð í Eyjum, bæði
skemmtileg og óskemmtileg en í
heildina var hátíðin góð og mynd-
irnar tala sínu máli um það að
gleðin var við völd þessa verslun-
armannahelgi í Herjólfsdal.
-vd.
Laddi var meðal þeirra sem tróðu upp
á Brekkusviðinu. Hér lýsir hann með
tilþrifum forfeðrum manna í hlutverki
mannfræðingsins Orms. Mynd Ari.
Menn virtust velja sér tjaldstæði í flýti og sumir án mikillar fyrirhyggju. Það er að
minnsta kosti frekar ólíklegt að íbúar þessa tjalds hafi sofið vel. Mynd Ari.
Margir voru með gítar með sér en fullmikið hefur verið leikið á þennan. „Hafðu
ekkert með þér á þjóðhátíð sem þú vilt taka heim með þér aftur..." Mynd Ari.
Bifhjólasamtök lýðveldisins, Sniglarnir, fjölmenntu í Herjólfsdal. Mynd Ari.
Miðvlkudagur 6. ágúst 1986 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 7