Þjóðviljinn - 06.08.1986, Side 14
MENNING
Wy Lögtaksúrskurður
Að beiðni Bæjarsjóðs Siglufjarðar kvað fógeta-
réttur Siglufjarðar upp eftirfarandi úrskurð 3. júlí
sl.:
„Lögtak til tryggingar gjaldföllnum en
ógreiddum útsvörum og aðstöðugjöldum
álögðum 1985 og eldri, gjaldfallinni en ógreiddri
fyrirframgreiðslu útsvara og aðstöðugjöldum
álögðum 1985 og eldri, hækkun útsvara og að-
stöðugjaida skv. úrskurði skattstjóra og gjald-
föllnum fasteignagjöldum álögðum 1985 og 1986
í Siglufirði, allt ásamt áföllnum dráttarvöxtum og
kostnaði mega fara fram að liðnum 8 dögum frá
birtingu auglýsingar um úrskurð þennan, á kostn-
að gjaldenda en á ábyrgð bæjarsjóðs Siglufjarð-
arkaupstaðar."
Framanritað tilkynnist viðkomandi hér með.
Siglufirði 24. júlí 1986
Innheimtustjóri.
jJU Starf
félagsmálastjóra
Auglýst er laus til umsóknar staða félagsmálastjóra
hjá Isafjarðarkaupstað. Umsóknarfrestur er til 13. ág-
úst n.k.
Nánari upplýsingar veitir undirritaður eða fé-
lagsmálastjórinn á skrifstofu bæjarsjóðs að Austur-
vegi 2 ísafirði eða í síma 94-3722.
Bæjarstjórinn á ísafirði.
Kennarar - kennarar!
Grunnskólann á Hofsósi Skagafirði vantar kenn-
ara í eftirtaldar greinar: íþróttir, smíðar, dönsku
og kennslu yngri barna að hluta.
Um er að ræða 1V2 stööu og því tilvalinn mögu-
leiki fyrir tvo að deila með sér. Gott húsnæði er í
boði og leikskóli á staðnum.
Allar frekari upplýsingar veita skólastjóri Svandís
Ingimundar í síma 91-41780 og formaður skóla-
nefndar Pálmi Rögnvaldsson í símum 95-6400
og 95-6374.
Útboð
Byggingarnefnd flugstöðvar á Keflavíkurflugvelli
óskar eftir tilboðum í hússtjórnarkerfi fyrir nýju
flugstöðina á Keflavíkurflugvelli og nefnist verkið
FLUGSTÖÐ Á KEFLAVÍKURFLUGVELLI
HÚSSTJÓRNARKERFI
FK-25
Verkið nær til:
a) Hússtjórnarkerfis, sem inniheldur m.a. stjórn-
stöð, brunaviðvörunarkerfi, Halon bruna-
slökkvikerfi, klukkukerfi, Ijósastýringar og
tengingar viö tölvustjórnbúnað loftræsti- og
snjóbræðslukerfa.
b) Hönnunar smíði, uppsetningar, prófunar og
viðhalds í flugstöðvarbyggingunni í samræmi
við útboðsgögn. „
Verkinu skal lokið eigi síðar en 30. mars 1987.
Útboðsgögn verða afhent hjá Rafhönnun hf., Ár-
múla 42, 108 Reykjavík, gegn 10.000.- króna
skilatryggingu, frá og með þriðjudeginum 5. ág-
úst 1986.
Tilboðum skal skila til:
Varnarmálaskrifstofu utanríkisráðuneytisins
Skúlagötu 63
105 REYKJAVÍK
eigi síðar en 22. september 1986, kl. 14.00.
Reykjavík, 28. júlí 1986
Byggingarnefnd flugstöðvar
á Keflavíkurflugvelli.
vföe iíi3<f9kc íttaze
Mystík
Námskeið um dulvitund
Gísli Þór Gunnarsson heldur fyrirlestra og kynnir spáspilið Mímisbrunn
Gísli ÞórGunnarsson mun
halda námskeið 9.-10. ágúst
að Þrídrangi, Tryggvagötu 18,
Reykjavík, þarsem hann
kynnirviðurkenndarleiðirtil
að virkja það sem Indverjar
kalla dulvitund mannsins (Ak-
ashic Records).
Gísli Þór hefur stundað sjálf-
stæðar rannsóknir á samanburð-
artrúfræði, auk þess hefur hann
lagt land undir fót til að kanna
þann jarðveg sem skapaði helstu
trúarbrögð mannkyns. Auk þess
hefur hann sent frá sér tvær
skáldsögur, Kærleiksblómið
(1981) og A bláþræði (1985).
Síðastliðin þrjú ár hefur hann
stundað háskólanám í Bandaríkj-
unum. Edgar Caycee stofnunin í
Bandaríkjunum veitti honum
styrk til að stunda nám við Atl-
antshafsháskólann (Atlantic Un-
iversity) 1984. Þar fékk hann rétt-
indi til að kenna opinberlega
hluti sem tengjast dálestrum Ed-
gars Caycee. Aukreitis lærði
hann utanskóla til B.A. prófs í
nútíma sálarfræði og þjóðfélags-
vísindum. Síðasta ár hefur Gísli
stundað framhaldsnám í samfé-
lagslegri sálarfræði við Ríkishá-
skóla Kaliforníu.
* Nýlega kom á markað í Banda-
ríkjunum spáspilið „The Magic
Maze“, sem Gísli Þór sauð saman
úr íslenskri rúnafræði og ind-
verskri dulspeki. Spil þetta er
kallað „Mímisbrunnur" á ís-
lensku. Má segja að þar hafi arísk
arfleifð heimsins verið sett fram á
frumlegan hátt. Þeir sem taka
þátt í námskeiðum Gísla Þórs í
Reykjavík og á Akureyri munu
læra aðferðir til að staðsetja sjálf-
ið í eilífðinni. Þessi aðferð kallast
„Mazing“ á ensku, en á íslensku
er hún kölluð „Sálarköfun".
(Þ.e.a.s. það að kafa til botns í
Mímisbrunni). Þátttökugjald
fyrir helgarnámskeiðið er 2500
krónur, en aðgangur að kynning-
arfyrirlestri er ókeypis.
Nánari upplýsingar í síma
622305 og 42888. Skráning fer
fram á eftir kynningarfyrirlestri
þann 7. ágúst kl. 20 að Þrídrangi.
Samskonar námskeið verður
haldið á Lundi við Auðsvöll, Ak-
ureyri, helgina 16.-17. ágúst.
Upplýsingar um námskeið á Ak-
ureyri gefur Fríða Júlíusdóttir í
síma 24283.
Bokjoo Cho frá S-Kóreu.
Tónlist
Píanóleikari
frá Kóreu
Bokjoo Cho heldur
tónleika á Islandi næstu
viku
Fimmtudaginn 7. ágúst kl.
20.30 heldur Bokjoo Cho
píanótónleika í Hafnarkirkju á
HöfníHornafirði.
Bokjoo Cho er fædd árið 1960 í
Suður-Kóreu og stundaði fram-
haldsnám í píanóleik í Vínarborg
hjá Paul Badura-Skoda, en nú
nemur hún hjá prófessor Gunter
Ludwig við tónlistarháskólann í
Köln.
Á tónleikunum mun Bokjoo
Cho leika sónötu í F-dúr eftir Ha-
ydn, sónötu í fis-moll eftir
Brahms, Le tombeau de Couper-
in eftir Ravel og Mefistó vals eftir
Lizst. Hún hefur haldið bæði
einleiks- og kammertónleika í
Þýskalandi og í sínu heimalandi.
Bokjoo Cho mun flytja þessa
sömu efnisskrá í Loglandi Borg-
arfirði mánudaginn 11. ágúst og í
Norræna húsinu í Reykjavík,
miðvikudaginn 13. ágúst.
14 SIÐA - ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 6. ágúst 1986