Þjóðviljinn - 06.08.1986, Qupperneq 16
DJÓÐV1UINN
, 1936-1986 ÞJÓÐVILJINN 50 ÁRA_
Flugslys
Voitim í bensínsturtu
.. Litil flugvél brotlenti á Hellisheiði. Ingólfur Ingvarsson farþegi:
- Hrœddur um að það kviknaði í vélinni
Flugvél brotlenti á Hellisheiði
seinni partinn á mánudag. Flug-
vélin var af gerðinni Cessna 152,
tveggja sæta. Vélin var í flugtaki
þegar hún endasteyptist um 150
metra frá flugbrautinni. Talið er
að mótorinn í vélinni hafi bilað
með þeim afleiðingum að hún er
gjörónýt og flugmaður skarst illa
á andliti. Einn farþegi var í vél-
inni og sakaði hann lítið.
„Flugmaðurinn rotaðist strax
og lá ofan á mér,“ sagði Ingólfur
Ingvarsson farþegi í vélinni. „Ég
var dálítið hræddur um að það
myndi kvikna í vélinni því meðan
ég var að reyna að losa öryggis-
beltin lak bensín ofan á hausinn á
okkur úr bensíntanknum. Við
vorum í bensínsturtu. Þegar við
vorum loksins lausir þá gekk mér
ágætlega að koma flugstjóranum
út úr vélinni. Skömmu síðar kom
slökkviliðið og sjúkrabíll á stað-
inn.“
Aðspurður sagðist Ingólfur
ekkert vera hikandi við að fara
aftur í flugvél. „Þetta er eins og
bílslys. Maður fer aftur í bifreið
þó maður lendi einu sinni í á-
rekstri."
Guðbrandur Björgvinsson var
flugmaður vélarinnar og var hann
fluttur á sjúkrahús. Hann er á
batavegi.
„Vélin TF-STY er einkaflug-
vél, og við vorum í útsýnisflugi á
leið til Stykkishólms. Við lentum
bara á Hellisheiði til að taka
bensín, og það fór svona illa,“
sagði Ingólfur að lokum.
SA.
Sauðárkrókur
Tilfinnan-
legt tjón
Viðgerð og breytingar á
togurunum Drangey og
Skapta dregst úr hömlu
Isamningum var gert ráð fyrir
að viðgerðunum á togurunum
yrði lokið 8. júlí og 5. ágúst en nú
er ljóst að þeim lýkur ekki fyrr en
15. ágúst og 3. september og
auðvitað er þetta mjög slæmt því
við verðum fyrir tilfinnanlegu
rekstrartjóni, sagði Bjarki
Tryggvason forstjóri Útgerðarfé-
lags Skagfírðinga í gær. Togarar
félagsins, Drangey og Skapti, eru
í viðgerð og breytingu úti í Þýska-
landi og skipasmíðastöðin hefur
ekki staðið við gerða samninga.
Bjarki sagði að eina leiðin til að
fá bætur vegna þessa tjóns væri
þegar kæmi að því að greiða fyrir
viðgerðirnar, þar sem þessi skip-
asmíðastöð hefði verið tekin til
gjaldþrotaskipta og því lítið af
henni að hafa.
Þrátt fyrir að togararnir tveir
væru frá veiðum hefur tekist að
halda uppi ágætri atvinnu á
Sauðárkróki. Fiskur hefur verið
fenginn frá Siglufirði og Akur-
eyri, auk þess sem 3ji togarinn á
Sauðárkróki, Hegranes, hefði
aflað mjög vel að undanförnu og
var hann síðast í gær að landa
fullfermi á Sauðárkróki. -S.dór
Hvalveiðimálin
Viðræður
vestra
Eftir hád«p í gær háfst fundur
þeirra MUMín ÁsgrHnssonar
sjávarútvegsNMMrra og BaMri-
dge vMMUpáaráMwrra Banda-
ríkjanna um hvalveiðimál okkar
íslendinga og hótanir Banda-
ríkjainanna um viðskiptaþving-
anir þeirra vegna.
Fyrir hádegið funduðu emb-
ættismenn um þetta sama mál en
ráðherrafundurinn hófst eftir há-
degið. Vegna tímamismunar var
engar fréttir að hafa af fundinum
í gær. -S.dór
Ingólfur Ingvarsson varfarþegiíSessnavélinnisem brotlenti á Hellisheiði. „Ég varhræddurumaðþaðkviknaðiívélinni, því bensín lak á okkur." Ljósm. Ari.
m Loðnuveiðarnar
Þarf meira en gott skap
Jón Reynir Magnússonforstjóri SR:
Pað er ekki nóg að skap manna lœgi, þaðþarfpeninga til að kaupa loðnuna.
Engra tíðinda að vœnta úr loðnubrœðslumálunum fyrren verðið lœkkar á loðnunni
Ríkisspítalarnir
Mikill
skortur á
iðjuþjálfum
Einnig vantar sjúkra-
þjálfara en fjöldatak-
markanir eru ígildi í
sjúkraþjálfaradeild HÍ
þótt deildin anni ekki
eftirspurn
kortur á hjúkrunarfræðing-
um er ekki það eina sem háir
heilbrigðisþjónustunni í landinu.
Að sögn Péturs Jónassonar starfs-
mannastjóra ríkssíptalanna er nú
mikill skortur á iðjuþjálfum og
eins vantar marga sjúkraþjálfara
til starfa.
Fjöldatakmarkanir eru í gildi í
sjúkraþjálfaranámi við Háskóla
íslands og skýtur það óneitanlega
skökku við þar sem deildin annar
ekki eftirspurn í stéttina að sögn
Péturs. Iðjuþjálfun erekki kennd
hér á landi og verður fólk að
sækja þá menntun erlendis frá.
Um tveir tugir erlendra starfs-
manna eru nú við störf á spítulun-
um og er meirihluti þeirra hjúkr-
unarfræðingar en einnig eru þrír
erlendir sjúkraþjálfarar við störf.
-vd.
að var haft eftir Kristjáni
Ragnarssyni formanni LÍÚ
um helgina að nú þegar skap
manna færi að lægja myndu loðn-
uveiðar og bræðsla hefjast af full-
um krafti. „Því miður þarf meira
en gott skap til að hefja loðnu-
bræðslu, það þarf peninga líka,“
sagði Jón Reynir Magnússon for-
stjóri Sfldarverksmiðja ríkisins í
samtali við Þjóðviljann í gær.
Jón sagði að alger kyrrstaða
ríkti í málinu. Menn hefðu aðeins
verið að þreifa á því hvort við-
semjendur bræðslunnar í verð-
lagsráði væru tilbúnir til að stytta
gildistíma núverandi loðnuverðs,
en það gildir til 15. sept. nk. en
svo hefði ekki verið.
„Ég á því ekki von á neinum
breytingum þar til loðnuverðið
verður aftur ákveðið í septemb-
er, enda er ekkert sem bendir til
þess að verð á lýsi fari uppá við
frá því sem nú er,“ sagði Jón
Reynir.
Síldarverksmiðja ríkisins á
Raufarhöfn tekur enn á móti
loðnu, en aðeins einn bátur, Gísli
Árni hefur landað þar til þessa.
Fleiri bátar eru nú komnir á mið-
in en veiði hefur engin verið um
helgina vegna brælu. Jón Reynir
sagði að það yrði stjórnvalda að
ákveða hvort SR tekur áfram á
móti loðnu á 1900 kr. tonnið ef
bátum sem vilja landa á Raufar-
höfn fjölgar. -S.dór
Helgarumferðin
Bílbeltin fækkuðu slysum
72 umferðaróhöpp um helgina. Metvika í umferðarþunga
Síðastliðna viku slógu lands-
menn öll fyrri met I umferðar-
þunga á vegum úti samkvæmt
mælingum Umferðarráðs og lög-
reglu. Frá síðastliðnum þriðju-
degi og þangað til í gær óku
79.260 bílar um Vesturlandsveg,
Þingvallaveg og Suðurlandsveg.
Helgin var óvenju slysalítil
miðað við þennan fjölda að sögn
Óla H. Þórðarsonar hjá Umferð-
arráði og vill Umferðarráð þakka
landsmönnum eindreginn stuðn-
ing við nýhafið átak ráðsins og
lögreglu gegn hraðakstri og ölv-
unarakstri.
73 voru þó kærðir fyrir meinta
ölvun við akstur og 72 umferðar-
óhöpp urðu frá föstudagskvöldi
til sunnudagsmorguns. í 10 tilvik-
un var ekið út af vegi, 11 sinnum
ultu bflar á vegi og árekstrar urðu
í heild 45 talsins. Ekið var á gang-
andi vegfarendur þrisvar og jafn-
oft á skepnur. Enginn slasaðist
lífshættulega í þessum slysum en
4 meiddust þó mikið en 18 manns
lítið. Lögreglan tiltók sérstaklega
að í 5 slysum þar sem fólk notaði
bflbelti sluppu 16 ómeiddir en í 3
slysum þar sem engir notuðu bfl-
belti slösuðust 9 manns. Bfibelt-
anotkun var almenn og einnig
ljósanotkun.
-vd.