Þjóðviljinn - 02.09.1986, Side 2

Þjóðviljinn - 02.09.1986, Side 2
Saumastofur Uppsagnir á Hvolsvelli Urgur í þorpsbúum Ollum starfsmönnum við saumastofuna Sunnu á Hvols- velli hefur verið sagt upp störfum frá 1. desember næstkomandi. Mikiil urgur er í fóiki á Hvolsvelli og Ijóst að ef ekki leysist úr mun lokun stofunnar verða mikið áfall fyrir atvinnulíf þorspbúa. Að sögn Ágústs Inga Ólafs- sonar hjá Kaupfélagi Rangæinga er nú búið að segja upp öllu starfsfólki við prjóna- og saumastofuna Sunnu á Hvols- velli, alls 27.íStarfsmönnum. Er það fyrst og fremst vegna verk- efnaskorts stofunnar, en þeir að- ilar sem hún vinnur fyrir hafa ekki lagt inn pantanir, auk þess sem verð fyrir prjónavöru hefur verið iágt lengi. Af því ástandi sem ríkir nú í framleiðslumálum prjónavöru er því ljóst að ekki verður hægt að halda rekstri sto- funnar gangandi. Vandamál sem þessi hefði komið upp fyrr, en nú væri útlit óvenju dökkt og hefðu aldrei fyrr komið til þess að starfsfólki væri sagt upp. Enn- fremur sagði Ágúst Ingi að unnið væri að því að reyna að útvega verkefni fyrir stofuna, en útlit væri mjög dökkt. Ása Guðmundsdóttir starfs- maður hjá Sunnu sagði að mikill urgur væri í þorpsbúum vegna þessa. „Þetta er mikið áfall fyrir þorpið og stór hluti þeirra sem vinnur við Sunnu er eldri konur sem ekki fá vinnu annarsstaðar. Margra bíður því ekkert annað en atvinnuleysisbætur auk þeirra áhrifa sem þetta hefur á félags- legu hliðina", sagi Ása Guð- mundsdóttir á Hvolsvelli. - GH Sjávarréttafyrirtækið Marska á Skagaströnd ætlar að setja heimsmet á Heimit- risaofni sem smíðaður hefur verið. Gestum á sýningunni verður síðan boðið að issýningunni. Er ætlunin að baka risasjávarréttaböku á 10 fermetra pönnu í smakka... Ljósm. E.ÓI. Skyldi Lucy vera á víxli Seðlabanki Geir inn í gær settist ný maður í Seðla- bankastjórastól: Geir Hallgríms- son, fyrrverandi þingmaður, borgarstjóri, forsætisráðherra, utanríkisráðherra. Hann tekur við af Davíð Ólafssyni sem varð sjötugur á árinu og sest nú í helg- an stein. Bankastjórn Seðlabankans er þá skipuð þeim Jóhannesi Nor- dal, Geir Hallgrímssyni og Tóm- asi Árnasyni, og er Jóhannes for- maður stjórnarinnar. - m Verðlag Blöðin hækka Dagblaðaverð hækkar frá og með 1. september. Áskrift að Pjóðviljanum kostar nú 500 krónur á mánuði, og í lausasölu kostar blaðið 50 krónur (helgar- blaðið 55 krónur). Grunnverð auglýsinga er nú 330 krónur dálk- sentímetrinn. Húsnœðislánakerfið Stórkostlegar félagslegar umbætur Nýja húsnœðislánakerfið gekk ígildi ígær. Ásmundur Stefánsson: Mikilvœgastiþáttur síðustu kjara- samninga. Sigurður E. Guðmundsson: Líkur á að allflestir lífeyrissjóðirnr kaupiskuldabréf. Skuldabréfasalafrá áramótum 1354 miljónir „Við lítum á breytinguna á húsnæðislánakerfinu sem einn mikilvægasta þátt síðustu kjara- samninga. Að mínu viti fela þær í sér stórkostlegar félagslegar um- bætur og byltingu fyrir þá sér- staklega sem eru að kaupa sér sína fyrstu íbúð“, sagði Ásmund- ur Stefánsson forseti ASÍ um það húsnæðislánakerfi sem gekk í gildi í gær. Að sögn Sigurðar E. Guð- mundssonar framkvæmdastjóra Húsnæðisstofnunar liggur ljóst fyrir að flest allir lífeyrissjóðirnir munu kaupa skuldabréf Húsnæð- isstofnunar. Sigurður sagði að miðað við 1. september hefðu líf- eyrissjóðirnir keypt skuldabréf fyrir 1354 miljónir króna frá síð- ustu áramótum, en á lánsfjárá- ætlun ríkisstjórnarinnar hefði verið gert ráð fyrir kaupum á skuldabréfum fyrir 1530 miljónir króna frá síðustu áramótum til næstu áramóta. Sagði Sigurður að á þeim fjórum mánuðum sem eftir væru af árinu væri jafnvel gert ráð fyrir að skuldabréfa- kaupin færu yfir þetta mark. Aðspurður um hvað nýja lán- akerfið fæli í sér fyrir lántakend- ur, sagði Sigurður, að í fyrsta lagi gæti nú hver sem er fengið lán án þess að tilgreina veðstað. í öðru lagi yrði að liggja ljóst fyrir að fólk hefði borgað í lífeyrissjóð undanfarna 24 mánuði a.m.k. og að fyrir lægi að lífeyrissjóðurinn, sem fólk er í, kaupi skuldabréf af Húsnæðisstofnun fýrir a.m.k. 20% af sínu ráðstöfunarfé og helst fyrir 55%. Réttindi lántak- anda fara síðan eftir því hve stór- um hluta lífeyrissjóður hans hef- ur varið til kaupa á skuldab- réfum. í þriðja lagi, sagði Sigurð- ur, fer lánsfjárhæðin eftir því hvort viðkomandi er að eignast sína fyrstu íbúð eða hvort hann hefur átt íbúð áður. Ef um ný- byggingu er að ræða þá er hám- arkslán, miðað við að lífeyris- sjóðsmálin séu í fullkomnu lagi, 2,1 miljón króna, en sé um eldri íbúð að ræða er hámarkslánið 1470 þúsund krónur. Þá sagði Sigurður að allir umsækjendur fengju umsóknum sínum svarað innan tveggja mánaða frá því að þær bærust stofnuninni, en bið- tíminn eftir lánveitingunni sjálfri væri helmingi styttri hjá þeim sem væru að kaupa í fyrsta skipti en hjá öðrum. Aðspurður um hvernig inn- leiðing nýja lánakerfisins hafi haft áhrif á stöðu bankanna sagði Stefán Gunnarsson bankastjóri Alþýðubankans að ástandið í bankakerfinu núna fyrir mánað- armótin hefði verið náttúruham- förum líkast vegna kaupa lífeyris- sjóðanna á spariskírteinum ríkis- sjóðs, en það hefur þýtt mikið fjárstreymi úr bönkunum þar sem sjóðirnir hafa geymt fé sitt. Þessar ryskingar, sagði Sigurður, geta haft áhrif á bankana gagnvart Seðlabankanum og bitna óhjákaæmilega á getu bankanna til þess að veita önnur lán. „Hins vegar held ég að til langframa hafi þetta ekki á hrif á lausafjárstöðu bankanna. Bank- arnir muna að öllum líkindum að- laga sig fljótt að þessu ástandi", sagði Sigurður. - K.ÓI. Ávinningur verkalýðssamtakanna Þetta sagði Svavar Gestsson fyrrverandi félagsmálaráðherra um nýju húsnæðislögin: Húsnæð- islögin í vetur eru stærsti ávinn- ingur verkalýðshreyfingarinnar undir núverandi ríkisstjórn sem hefur verið fjandsamleg stefnu- miðum verkalýðssamtakanna á flestum sviðum. Stjórnarflokkarnir lofuðu 80% húsnæðislánum fyrir síðustu kosningar. Kjarastefna þeirra stefndi hag íbúðarkaupenda í stórfelldan vanda. Ríkisstjórn- arflokkarnir sviku loforð sín árum saman, en að lokum var stjórnin knúin til undanhalds. Það gerði verkalýðshreyfingin í kjarasamningunum í vetur með því að pína stjórnina til að fallast á þá stefnu sem verkalýðshreyf- ingin og Alþýðubandalagið hafa barist fyrir um árabil: Að stilla saman lífeyrissjóðakerfið í heild og húsnæðislánakerfið. 2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 2. september 1986

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.