Þjóðviljinn - 02.09.1986, Blaðsíða 3
FRÉTTIR
Kópavogur
Ráðherra svíkur samninga
Nám í hótel- og veitingagreinum átti að hefjast í Kópavogi í haust samkvœmt 3ja ára gömlum samningi.
Ekkibyrjað að byggjahúsið. Bœjarráð Kópavogs heimtar skýr svör umhvað Sverrirhyggstfyrir
9 ®
Bæjarráð Kópavogs telur sig
ekki lengur geta unað van-
efndum menntamálaráðuneytis-
ins varðandi uppbyggingu fram-
haldsskólans í Kópavogi og hefur
óskað eftir því við ráðuneytið að
það gefi svör um st efnu ráðuneyt-
isins í málefnum framhaldsnáms í
bænum. Segir í samþykkt bæjar-
ráðs að hafi stefna ráðuneytisins
breyst frá samningum þar að lút-
aiidi frá 1982 og 1983, telji bæjar-
ráð nauðsynlegt að hafnar verði
viðræður milli aðila um breyting-
ar á þeim samningum.
Heiðrún Sverrisdóttir bæjar-
fulltrúi Alþýðubandalagsins í
Kópavogi og formaður skóla-
nefndar sagði í samtali við Þjóð-
viljann að í maí 1982 hafi verið
undirritaður samningur milli
ríkisins og Kópavogskaupstaðar
um skólahald á framhaldsskóla-
stigi. Þar hefði Kópavogskaup-
staður tekið á sig stigvaxandi
kostnað með tilkomu fjölbrauta-
skóla í bænum, en áður hefði þar
verið hefðbundinn menntaskóli
auk framhaldsdeilda í Víghóla-
skóla.
„í þessum samningi frá 1982
var m.a. gert ráð fyrir því að taka
upp kennslu á tilteknum sviðum
Skák
Breiðholts-
strákarnir
norrænir
meistarar
nær það sama og var fyrir samn-
inginn frá 1982. Slíkt getur
auðvitað ekki gengið lengur og
því höfum við óskað eftir við-
ræðum við ráðherra um hvað
hann ætlist fyrir í þessum mál-
um“, sagði Heiðrún að síðustu.
Ekki náðist í Sverri Hermanns-
son menntamálaráðherra í gær.
-v.
Mjólkurvörur
Mjólkin
hækkar mest
Mjólk og ýmsar mjólkurafurð-
ir hækkuðu í gær yfirleitt um
rúmlega 3%. Ástæðan er að sögn
Guðmundar Sigurðssonar hjá
Verðlagsstofnun annars vegar sú
að framleiðslukostnaður hjá
bændum hcfur hækkað um
2,9%, en hins vegar hefur milli-
liðakostnaður hækkað um 3,2%,
fyrst og fremst vegna launahækk-
ana.
Mjólkurlítrinn kostaði fyrir
hækkun 36,20 krónur en kostar
nú 37,50 krónur og hefur því
hækkað um 3,6%. Peli af rjóma
kostaði áður 57,80 krónur, en
kostar eftir hækkun 59,70 krón-
ur. Hækkunin nemur3,3%. Skyr
hækkar um 3,4% og ostar um
3,2%, en smjör hækkar ekki í
verði.
Guðmundur sagði í gær að upp
úr miðjum þessum mánuði yrði
ákveðið nýtt verð á kjöti, en hann
gat ekki sagt til um hversu miklil
hækkun yrðu á kjötinu. -gg
Afmæli hér og afmæli þar, - þetta er nú meira afmælisárið! í gær kom röðin að Samvinnutryggingum, sem
héldu uppá 40 ára starf með því að bjóða viðskiptavinum í kaffi og kökur í húsnæði sínu í Ármúlanum í Reykjavík,
og með því að gefa út veglega afmælisútgáfu af fréttablaði sínu, Gjallarhorni. Full ástæða fyrir samvinnusinnaða
tryggingamenn að gleðjast, Samvinnutryggingar hafa í meira en þrjá áratugi verið stærsta vátryggingarfélag á
landinu. (mynd: KGA)
verknáms og síðar var undirritað-
ur samningur við ríkið um að
komið yrði upp húsnæði fyrir hót-
elgreinar í Kópavogi og yrði þar
starfræktur fullkominn skóli í
þeim greinum auk allra matvæla-
greina iðnfræðslunnar. Skyldi
þessi skóli, sem hluti framhalds-
skólans í Kópavogi, taka til starfa
haustið 1986. Búið er að teikna
hinn nýja skóla og samþykkja
teikningar í bæjarstjórn Kópa-
vogs en menntamálaráðherra
neitar að staðfesta teikningarnar
og ekkert fjármagn hefur enn
verið sett á fjárlög til að hefja
framkvæmdir", sagði Heiðrún í
samtali.
„Hér er um alvarlegt mál að
ræða, ekki aðeins fyrir Kópa-
vogsbúa heldur er illa búið í dag
að námi í hótel- og matvælagrein-
um og bráðnauðsynlegt að gera
þar bragarbót á. Við munum ekki
una því til lengdar að Sverrir Her-
mannsson menntamálaráðherra
brjóti á okkur samninga. Þrátt
fyrir að kostnaður bæjarsjóðs
vegna framhaldsnáms hafi stór-
hækkað er framboð á námi hér
Sambandið
Skáksveiti Seljaskóla vann
Norðurlandamót grunnskóla í
skák sem fram fór í Gerðubergi
um helgina. Breiðhyitingarnir
hlutu l3*/2 vinning af 20 mögu-
legum.
í öðru varð sæti sveit Dan-
merkur og í þriðja Norðmenn,
báðar sveitir með 12 vinninga. B-
sveit íslands úr Gagnfræðaskóla
Akureyrar varð í fjórða sæti
undan Svíum og Finnum.
Þetta er í sjötta skiptið sem ís-
lensk sveit vinnur mótið síðan ís-
lendingar hófu þátttöku 1977.
Álftamýrarskólinn hefur unnið
tvisvar og Hvassaleitisskóli þri-
svar.
í sigursveit Seljaskóla eru
Þröstur Árnason, Sigurður Daði
Sigfússon, Sæberg Sigurðsson,
Kristinn Friðriksson og Snorri
Karlsson.
Alinn upp í þorpi
Guðjón B. Ólafsson sem tók við forstjórastöðu SÍS ígœr:
Bíð með allar yfirlýsingar
Eg hef lýst því yfir að ég mun
taka mér tíma til að átta mig á
öllum málefnum Sambandsins.
Ef ég tel að einhverjar breytingar
séu nauðsynlegar, þá mun ég
ræða þær fyrst innanhúss og síð-
an gera grein fyrir þeim utan-
húss. Fyrr er ég ekki tilbúin með
neinar yfirlýsingar, sagði Guðjón
B. Ólafsson hinn nýi forstjóri
Sambands ísl. samvinnufélaga í
samtali við Þjóðviljann í gær.
Guðjón sagðist ekki líta á SÍS
og kaupfélögin í landinu sem
stofnanir, heldur lifandi fyrir-
tæki, sem þurfi að aðlaga sig
breyttum aðstæðum í þjóðfé-
laginu á hverjum tíma. Hann
sagði samvinnuformið eins og við
þekkjum það hér á landi í fullu
gildi, en samvinnufyrirtæki
mættu aldrei staðna og því yrðu
þau að endurskoða starfsemi sína
í ljósi breyttra tíma í þjóðfé-
laginu.
Eitt af því sem Guðjón sagðist
hafa áhuga á væri að og taldi það
raunar eitt brýnasta verkefni
samvinnustarfseminnar í
landinu, að finna leið til að fé-
lagar í samvinnuhreyfingunni
finni betur til þess en nú er að þeir
eiga hlut í samvinnufyrirtækjun-
um.
Hann var spurður að því hvort
hann væri farinn að skoða þá
miklu erfiðleika sem mörg
kaupfélög úti á landi ættu nú við
að etja í rekstri sínum. Guðjón
Rás 2
Fjölmiðladraugar velkomnir
Porgeir Astvaldsson: Dyr rásar 2 opnar fyrir fyrri starfsmönnum. Bylgjan stœlir rás 2
„í okkar hérbúðum tekur eng-
inn neinn skyndikipp né fljót-
færnislegar ákvarðanir", sagði
Þorgeir Ástvaldsson útvarpsstj óri
rásar 2 þegar hann var spurður
hvort bryddað yrði upp á ein-
hverjum nýmælum á rásinni
vegna nýtilkominnar samkeppni
við útvarpsstöðina Bylgjuna.
„Við höfum verið með ýmislegt á
prjónunum undanfarið og höld-
um okkar striki áfram án þess að
rjúka upp til handa og fóta“. Að-
spurður sagði hann að honum
fyndist ákveðin líkindi með
stöðvunum tveimur og þá bæði
hvað snertir verðlagningu auglýs-
inga og dagskrárgerð í heild.
„Þarna vinna einnig menn sem
hafa alið hér manninn frá upp-
hafi, þeir Páll Þorsteinsson og
Pétur Steinn og þeir halda sinni
sömu fjölmiðlaframkomu áfram.
Þeir þættir sem nú eru sendir út á
Bylgjunni heyrast mér vera sams
konar og verið hafa á rásinni, og
sama má segja um annað snið á
dagskránni. Það heyra það allir
sem vilja heyra að meira er varla
hægt að líkjast rás 2“, sagði Þorg-
eir.
„Það eina sem ég bið um í þess-
ari umræðu allri er að menn ák-
veði í hvora löppina þeir vilja
standa og geri upp við sig á hvorri
stöðinni þeir vilja vera. Það er
ljóst að menn vinna ekki á báðum
stöðum en hins vegar eru dyr rás-
ar 2 opnar ef menn vilja ganga
þar aftur einsog hverjir aðrir fjöl-
miðladraugar. En í svona sam-
keppni legg ég fyrst og fremst
áherslu á það við mitt fólk að það
vinni með það í huga að það er
best og verður það áfram. Sam-
keppnin og þar með það sem við
höfum heyrt af Bylgjunni kemur
okkur ekki á óvart“. -vd.
Guðjón B. Ólafsson: samvinnuformið
í fullu gildi.
sagði svo ekki vera, en ýmislegt
lægi þó ljóst fyrir, svo sem hinn
óheyrilega hái dreifingarkostn-
aður úti á landi og minni hlutur
en æskilegt væri í allri verslun á
þéttbýlissvæðunum hér syðra.
í ljósi þess að Guðjón hefur nú
starfað erlendis í rúm 11 ár og í
allt 19 ár af þeim 32 sem hann
hefur starfað hjá SÍS, var hann
spurður hvort ekki væri erfitt að
flytjast nú heim og taka við svo
viðamiklu starfi sem forstjórast-
aða hjá SÍS er:
„Ég er alinn upp í litlu þorpi og
því þekki ég vel til lífsins í þeim
fjölmörgu þorpum sem hér eru. í
starfi mínu erlendis tel ég mig
hafa öðlast nokkra víðsýni og
þegar fer saman, þá tel ég það
gagnlegt sambland fyrir mann
sem tekur við því starfi sem ég nú
er að taka við“, -S.dór
ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3