Þjóðviljinn - 02.09.1986, Síða 8

Þjóðviljinn - 02.09.1986, Síða 8
MANNLIF MANNLIF Námsgagnastofnun Hér er rekið ÖFLUGT var lagt til að þetta verkefni yrði flutt til Námsgagnastofnunar. Umræður fóru fram allt til 1984 er Ragnhildur Helgadóttir, þá- verandi menntamálaráðherra tók af skarið og lét flytja námsefnis- gerðina hingað. Miklar umræður urðu um þennan flutning og yfir- leitt voru menn samþykkir þess- ari breytingu, en þó með þeim fyrirvara að nægilegt fjármagn fylgdi. - Sú varð hins vegar ekki raunin, því mikið vantaði á að það fjármagn fengist sem verk- efnið krafðist og hefur það mjög hamlað áframhaldandi þróunar- Asgeir Guðmundsson, námsgagnastjóri. Úr afgreiðslu Námsgagnastofnunar. Héðan fara allar námsbækur til skólanna og á síðasta ári voru þær alls taldar i 600-700 þús. eintökum. starfi í námsefnisgerð. Sam- kvæmt athugunum sem gerðar voru á störfum í Skóla- rannsóknadeild á þessum tíma kom í ljós að um 40-80% starfsins fór til námsefnisgerðar. Þetta fékkst ekki viðurkennt nema að litlum hluta.“ - Hvaða áhrifhefurþetta haft á starfsemina? „Við höfum þurft að fresta framkvæmdum við fjölda mörg verkefni, bæði gerð nýs námsefn- is og endurskoðun og endur- vinnslu á eldra efni. Ef slíkt svelti verður til lengdar í stofnuninni verðum við innan tíðar í sömu sporum og 1970 þegar stöðugt þurfti að endurprenta gamalt efni og lítið fjármagn var til nýrra verkefna. Við lifum á tímum mikillar tækni og krafan um að mæta tæknibreytingum hefur aldrei verið meiri en nú. í því sambandi má nefna að nú er í vinnslu í samvinnu við mennta- málaráðuneytið gerð hugbúnað- ar til notkunar í kennslu. Það segir sig sjálft að slíkt krefst fjár- magns og öllum finnst sjálfsagt að skólinn komi til móts við aðkall- andi þarfir þjóðfélagsins hverju sinni.“ Jafnréttis gætt? - Nú hafa verið gerðar athug- anir á námsbókum sem sýna að hlutur stráka í þeim er mikill á kostnað stelpnanna. Hafið þið endurskoðað námsbœkurnar út frá þessu sjónarhorni? „Það er markmið okkar að fara að lögum. Erfitt er að lagfæra þetta í gömlum bókum nema þær séu sem næst endurskrifaðar og ekki hægt að taka þær úr umferð að svo stöddu meðan nýtt efni er ókomið, en í nýju efni er reynt að gæta jafnréttis. Einnig hefur ver- ið gefið út námsefni um jafnrétti kynjanna." Nýjungar - Hvaða nýjungar eru helstar í starfsemi Námsgagnastofnunar? „Kennslumiðstöð var sett á laggirnar 1982 og megin verkefni hennar er að vera miðstöð kynningar- og upplýsingarstarfs fyrir kennara. Kennslumiðstöðv- ar hafa lengi verið þekktar í öðr- um löndum en kennslumiðstöðin hér á sér þó ekki neina sérstaka fyrirmynd. Reynt hefur verið að laga starfsemi hennar að þörfum íslenskra kennara. Starfsemi hef- ur gengið vonum framar. Árlega koma 10000 gestir til mismunandi langrar dvalar. Hægt er að sækja námskeið, fræðslufundi eða leita upplýsinga um innlend og erlend námsgögn og þar er einnig vinnu- aðstaða til verkefnagerðar svo eitthvað sé nefnt. Eftir að þessi þjónusta hófst hefur verið m.a. samþykkt í Alþingi þingsályktun- artillaga um að koma á kennslu- miðstöðvum úti á landi í flestum fræðsluumdæmum. Þegar ervísir slíkra stöðva við fræðsluskrifstof- ur.“ - Hvernig hafa viðtökur verið? „Kennslumiðstöð hefur verið mjög vel tekið, enda ber gesta- fjöldinn því vitni, en þóeru marg- ir sem aldrei láta sjá sig hér. Sum námskeiðanna eru vel sótt en önnur minna. Við höfum lagt áherslu á að hafa þau fjölbreytt, þannig að þau tengist sem flest- um námsgreinum. Mörg þeirra hafa tengst fólki utan skólanna, s.s. fóstrum, læknum og hjúkrun- arfólki, foreldrum og mikil sam- skipti hafa orðið við aðila á frjáls- um markaði og höfum við lagt áherslu á að Kennslumiðstöð sé öllum opin. Foreldrar eru sér- staklega velkomnir til að kynna Kénnslumiðstöðin býður upp á ýmsa þjónustu t.d. í formi sýningareintaka sem ganga má í og að veita aðstöðu til að útbúa kennslugögn. sér það námsefni sem í boði er.“ - Hvað með aðsókn? „Hún hefur verið misjöfn og við oft orðið fyrir vonbrigðum enda mikil vinna lögð í undirbún- ing námskeiða, funda eða sýn- inga. Uppbygging og starfsemi Kennslumiðstöðvar hefur verið unnin í náinni samvinnu við samtök kennara, skólaþróunar- deild menntamálaráðuneytisins, fræðsluskrifstofur, Kennarahá- skóla íslands og fjölda sér- fræðinga á ýmsum sviðum. Landsbyggðarfólk á oft erfitt með að sækja hér dagskrár, sér- staklega yfir vetrartímann, og höfum við oft fengið orð í eyra frá - þeim er við auglýsum glæsileg námskeið. Ég vona að tæknin komi okkur til hjálpar í þessum efnum. - í raun sýnist mér að hér sé á ferðinni þróunarstarfsemi sem jafnt og þétt breiðist út og verði innan tíðar eðlilegur hluti skólastarfs. Kennslumiðstöð Námsgagnastofnunar verður eðlilega móðurstöð þessarar starfsemi og ég sé fyrir mér að starfsemi kennslumiðstöðva úti á landi mótist af þeim aðstæðum sem skólamir þar búa við.“ - En frœðslumyndadeild, í hverju felst starf hennar? „Fræðslumyndadeild yfirtók Fræðslumyndasafn ríkisins sem á sér álíka langa sögu og Ríkisút- gáfa námsbóka. Fyrir þremur árum byrjuðum við að kaupa inn efni á myndböndum og sömdum við erlenda myndbandaframl- eiðendur um dreifingu efnis. Þró- unin hefur verið mjög hröð. Við eigum nú rúmlega 300 titla á mynböndum og u.þ.b. 1200 á filmum. Þetta efni hafa skólarnir fengið lánað. En breytingar ger- ast ört í myndbandamálum og nú hafa verið gerðir samningar við nokkur erlend fyrirtæki um ótak- markaða fjölföldun á fræðsluefni til skólanna. Þetta boðar þá breytingu að í stað þess að senda efni fram og til baka, geta skóla- rnir keypt þetta efni gegn vægu gjaldi og haft það standandi í hillu eins og hverja aðra bók. Myndbandanotkun í kennslu Það skal tekið fram sérstaklega að fræðslumyndadeild aflar einn- ig mynda fyrir framhaldsskólana, sérskóla og háskóla og hefur notkun þeirra farið stöðugt vax- andi. Til viðbótar er væntanlegt samkomulag við íslenska sjón- varpið um dreifingu á völdu fræðsluefni sem þar er framleitt og sent út.“ - Hafa myndböndin leyst kvik- myndirnar af hólmi? „Það hefur sýnt sig að útlán kvikmynda hafa staðið í stað en aukning verið í útlánum mynd- banda. Ég hef þá trú að notkun kvikmynda muni minnka, enda þótt gæði þeirra séu miklu meiri. Er það ekki síst vegna þess hve þróunarstarf Þaö er algengt aö stofnanir á vegum ríkisins skjótist skyndilega fram í sviðsljósið og veröi umræðuefni fjölmiðla um tíma. Slíkar umræður hafa oft á sér ómálefnalegt yfirbragð og bera með sér að þeir sem hæst tala hafa yfirborðskennda þekkingu til að bera. Ein slík er Námsgagnastofnun, sem hlaut viðlíka útreið á síðastliðnu hausti. Út í þá sálma verður ekki farið, en hvaða starfsemi skyldi fara fram á hennar vegum? Má telja starfsemi hennar mikilvæga fyrir þjóðarbúið? Til að svara því og fleiru lagði blaðamaður leið sína niður í hið margfræga Víðishús, til að hitta að máli námsgagnastjóra, Ásgeir Guðmundsson. „Námsgagnastofnun tók við af Ríkisútgáfu námsbóka og Fræðslumyndasafni ríkisins en um það voru samþykkt lög 1979 og stofnunin tók til starfa 1980. Frá þeim tíma hefur mikið uppbyggingar- og þró- unarstarf verið unnið sem tengist öllum þáttum starf- seminnar. Til þess að koma þessu áleiðis til skólanna hef- ur kynningarstarf verið stór- aukið t.d. með útgáfu frétta- bréfa, dreifibréfa og kynningarrita þannig að kenn- arar eiga ávallt að vita á hverju þeir eiga kost frá stofnuninni. Þetta þróunarstarf hefur auðvitað takmarkast af fjár- veitingum en stöðug barátta hefur verið háð fyrir fjármagni. Þessi slagur hefur sjaldan bor- ið tilætlaðan árangur að okkar mati ef undan er skilið árið 1985 og ekki er laust við að manni finnist að stjórnmála- menn og ýmsir embættismenn hafi lítinn áhuga og skilning á þörfum stofnunarinnar til að sinna hlutverki sínu lögum samkvæmt". - En er ekki von á betri við- tökum miðað við orð núverandi menntamálaráðherra um bœtta menntastefnu? Breyttir þjóðfélagshættir „Við höfum átt von á betri af- greiðslu stjórnvalda en raun hef- ur orðið. En oft hafa ekki farið saman orð og gjörðir. En svo ég svari spurningu þinni þá leyfi ég mér að vona að núverandi menntamálaráðherra berjist fyrir því að Námsgagnastofnun fái um- talsverða hækkun fjárveitinga fyrir næsta ár. Allt of margir bæði ráðamenn og aðrir lifa í gamla tímanum og líta þróunarstaf í skólamálum hornauga. Það er líkt og þeim finnist að skólinn eigi að vera eins og þeir vöndust hon- um í sinni bernsku og álíti að hann geti verið áfram með sínu gamla sniði, þrátt fyrir breytingar í þjóðfélaginu. Áð sjálfsögðu verður skólinn að taka mið af þjóðfélagsháttum sem hafa breytt uppeldisvenjum í grund- vallaratriðum." - Hvernig þá? „Heimilin eru allt önnur nú en áður. Á flestum heimilum vinna báðir foreldrar úti, gæslu- eða uppeldisstofnanir taka við börn- unum eða þau ganga sjálfala. Þá er þriðja kynslóðin víðast ekki lengur hluti af heimilinu. Þetta þýðir að skólinn verður að taka á sig aukna ábyrgð ekki aðeins hvað varðar nám heldur einnig uppeldi. Ég er þeirrar skoðunar að framtíðarskólinn verði heilsdagsskóli fyrir alia og skoða verði kennslu og allt skólastarf í því ljósi.“ Skólakerfið tekið í gegn - Hafa þá miklar breytingar átt sér stað í námsgagnagerð? „Skólarannsóknadeild var stofnsett 1966 og var þá fljótlega tekin sú ákvörðun að endurskoða allt námsefni grunnskólans. Sú ákvörðun var tekin í ljósi þess að það væri eina færa leiðin til að hafa áhrif á bætt skólastarf. Þar var unnið geypilegt þróunarstarf í námsgagnagerð, sérstaklega á ár- atugnum ’70-’80 og raunar eftir það. Samningur var gerður á milli ráðuneytis og Ríkisútgáfunnar um útgáfu efnisins. Þar myndað- ist oft flöskuháls, þar sem tiltækt efni komst ekki til kennara vegna fjárskorts Ríkisútgáfunnar. Það varð oft til þess að rof myndaðist í útgáfu ákveðinna verka og kenn- arar fengu ekki framhald efnis samkvæmt áætlun þar um. Skapaði það oft mikla erfiðleika í skólastarfi og hefur það án efa leitt til neikvæðra viðhorfa margra til nýja efnisins, þótt langflestir hafi fagnað breyting- unum. Það segir sig sjálft að það er mikið verkefni að taka allt náms- efni heils skólakerfis fyrir og endurskoða það. Ég vona að það verði aldrei aftur, því námsefni þarf að vera í stöðugri endur- skoðun.“ - Hvers vegna var þetta megin verkefni skólarannsóknadeildar? „Megin ástæðan var að það hafði verið mikil stöðnun í útgáfu kennsluefnis og fjölmargar kennslubækur notaðar svo ára- tugum skipti án þess að gerðar væru á þeim markverðar breytingar. Þetta hafði mikil áhrif á skólastarfið, kennslu- hættir voru fábreyttir og efni í boði fátæklegt og kennarar höfðu því litla sem enga valkosti. Fram- setning og uppsetning efnis var ekki með þeim hætti að það vekti áhuga kennara eða nemenda. Hundruð kennara í landinu tóku þátt í þróunarstarfinu í samvinnu við skólarannsóknadeild með því að semja efni, tilraunakenna það og meta. Það var ómetanlegt starf og gjörsamlega fráleitt að einhver fámennur þröngur hópur hafi staðið að nýritun námsefnis, en sú gagnrýni hefur komið fram, m.a. í Alþingi og í fjölmiðlum." - Um áramót 1984 -1985fluttist námsefnisgerð til Námsgagna- stofnunar? Fjármagnssvelti „Undir lok áttunda áratugarins fóru fram í Skólarannsóknadeild umræður um framhald námsefn- isgerðar. í álitsgerð frá þeim tíma Skólavörubúð. Hér er hægt að fá allt frá blýöntum upp í sérhæfðustu kennslu- og námsgögn. Ljósm.: KGA. Breytt þjóðfélag þolir ekki staðnað skólakerfi. Vona að slíkt hendi aldrei skólakerfi okkar. Fjármagnssvelti getur stuðlað að því og þannig hamlað því að stofnunin fari að lögum. Býyfir þeirri bjartsýni að trúa því að ráðamenn muni veita stofnuninni það fjármagn sem hún þarf til að vera rekin sómasamlega myndböndin eru auðveld í notk- un.“ - Hvað með framtíðarplön? „Við erum byrjaðir að fram- leiða eigið myndefni, en það þarf að gera stórátak í gerð íslenskra fræðslu- og kennslumynda. Hér á landi er nú fjöldi fagmanna sem kann til slíkrar vinnu, er til þess þarf aukið fjármagn". - Ef svo við snúum okkur að öðru, Námsgagnastofnun rekur verslun? „Já, starfsemi Skólavörubúðar hófst 1956 og á því 30 ára starfsaf- mæli um þessar mundir. Hún var sett á laggirnar af brýnni nauð- syn, fyrst og fremst til að útvega skólunum sérhæfð náms- og kennslugögn. Ríkið hefur aldrei lagt neitt sérstakt fjármagn til hennar og hefur hún þurft að standa undir kostnaði og stund- um gert betur.“ - Það hafa stundum risið gagnrýnisraddir á þessa verslun sem hafa sagt að ríkið œtti ekki að standa að slíkum rekstri, það vœru nógir aðrir til. - Er það ekki rétt? „Ekki tel ég það. Aðrir hafa lítt sinnt þessum sérhæfða markaði og hæpið að skólastarfið geti byggt á ótryggri þjónustu fjölda aðila. Á seinustu árum hefur ver- ið unnið skipulega að því að gera verslunina að sérhæfðri skóla- vöruverslun og auka þjónustu við skóla landsins. Það hefur sýnt sig að skólarnir þurfa mjög á þeirri þjónustu að halda, ekki síst dreifbýlisskólarnir sem ekki hafa í mörg hús að venda. Til að koma enn til móts vð þarfir skólanna höfum við komið á pöntunar- þjónustu til að útvega sérhæfðar skólavörur sem ekki eru til hér á landi og lítill sem enginn markað- ur er fyrir. Hefur sú þjónusta fengið góðar viðtökur.“ - Hvað með önnur stór mál? „Á meðal stærstu verkefna undanfarinna tveggja ára er tölv- uvæðing stofnunarinnar. Á síð- asta ári voru gefnir út 220 titlar og afgreidd voru 6 - 700 þúsund ein- tök til skólanna af mismunandi námsefni. Það segir sig sjálft að slíkt verkefni krefst tölvuvæðing- ar og er sú vinna langt á veg kom- in.“ - Nú skilst mér að þið séuð hér í bráðabirgðahúsnœði. Hvað er að frétta af þeim málum? Hringavitleysan um Víðishúsið „Það er ákveðið að við verðum hér í Víðishúsi. Eins og menn munae.t.v. seldifyrrverandifjár- málaráðherra ofan af okkur húsnæði stofnunarinnar að Tjarnargötu 10 án samráðs og án undargenginnar athugunar á því hvert ætti að flytja starfsemina. Núverandi menntamálaráðherra hefur gengist í að framtíðarlausn fengist í þessum vanda. Innréttingar hér í Víðishúsi eru til bráðabirgða og nú eru að hefjast umtalsverðar lagfæringar á hús- inu að innan og utan og óttast ég mjög að þær lagfæringar trufli starfsemina. En það að eygja loks framtíðarhúsnæði gefur okkur vissulega von um betri daga.“ - Nú hefur verið ákveðið að Myndlista- og handíðaskólinn fái inni fyrir starfsemi sína í Víðis- húsi. Hefur það áhrif á ykkar starfsemi? „Okkur hefur verið úthlutað hér tveimur hæðum til starfsem- innar, en við þurfum einnig hluta af þeirri þriðju. Væntanlega verður farið í endurhönnun á húsnæðinu innan tíðar, þar sem önnur starfsemi verður rekin þar en upphaflega stóð til. Það er að sjálfsögðu hneyksli að láta svona húsnæði, u.þ.b. 5000 fermetra standa ófrágengið og lítið notað heilan áratug, fyrst og fremst vegna mismunandi skoðana og áhugaleysis stjórnmálamanna sem upphaflega deildu hart um kaupin á húsinu. Hingað átti menntamálaráðuneytið að flytja en svo er ekki lengur. Ég vona bara að kraftur verði settur á þetta verk, svo senn ljúki þeirri hringavitleysu sem verið hefur á framkvæmdum til þessa." „Prúttaðferðin“ - Þessa dagana er ríkisstjórnin að funda um fjárlög og upplýs- inga að vœnta innan tíðar hversu miklu verður varið til Námsgagn- astofnunar nœsta fjárhagsár. Þeg- ar þú gerir áœtlun fyrir stofnun- ina, notar þú þá ekki bara „prútt- aðferðina", þ.e. gefur upp hœrri fjármagnsþörf en raun er á? „Nei, áætlun byggist á þeim verkefnum sem eru í gangi, verk- efnum sem hefur verið frestað vegna fjárskorts á undanförnum árum og á nýjum verkefnum sem nauðsynlegt er að hefja vinnu við. Þetta tengist námsefnisgerð, fræðslumyndagerð, starfsemi kennslumiðstöðvar og allri ann- arri starfsemi í stofnuninni. Menn skulu ekki gieyma því að nemendur í skyldunámi hér á landi eiga að fá ókeypis náms- gögn og til eru lög um Námsgagn- astofnun sem ætla henni það verkefni að „sjá grunnskólum fyrir sem bestum náms- gögnum...“ Til að sinna þessu umfangsmikla hlutverki hefur stofnunin 2300 krónur á nem- anda fyrir árið 1986 sem er allt of lítið samanber áætlun fyrir það ár. Áætlun fyrir árið 1987 hljóðar upp á 172 milljónir króna eða sem svarar u.þ.b. 4000 krónum á nemanda. - Mér datt það sisona í hug í sambandi við fréttir í sjón- varpinu um daginn um skuldir sumra fiskverkunarfyrirtækja. Þær eru á bilinu 200 - 800 milljónir og komu víst fáum á óvart. Fjárhagsáætlun Náms- gagnastofnunar er ósköp smá við hliðina á þessum tölum. Rétt er að hafa í huga að Námsgagna- stofnun þjónar 40000 nemendum í grunnskólum landsins sem er Vfe hluti þjóðarinnar og það skiptir meginmáli að bæði þeir og kenn- arar þeirra hafi gott og fjölbreytt námsefni í höndum svo vinnutími þessara aðila verði í senn árang- ursríkur og skemmtilegur. Stjórnvöld ættu að hafa þann metnað að svo geti orðið.“ - Ertu bjartsýnn á aðfjárhagsá- œtlun hljóti náð fyrir augum ráða- manna? „Reynsla síðustu ára gefur ekki tilefni til bjartsýni, - en ég leyfi mér nú samt að vera það“. -GH 8 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Þrlðjudagur 2. september 1986 Þriðjudagur 2. september 1986 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 13

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.