Þjóðviljinn - 11.09.1986, Síða 16
1936-1986 ÞJÓÐVIUINN 50 ÁRA
Fimmtudagur 11. september 1986 205. tölublað 51. órgangur
Aðalsími: 681333. Kvöldsími: 681348. Helgarsími: 681663.
Húsnœðislögin og verkfallsrétturinn
Seiðarannsóknir
Lánsréttur ekki í hættu
Forseti ASÍ og félagsmálaráðherra algerlega sammála.
Mannlegri túlkun á lögunum heitið ífélagsmálaráðuneyti
Það er fráleitt að láta sér til
hugar koma, að þátttaka í
verkföllum eða annarri kjarabar-
áttu geti leitt til þess að hlutað-
eigandi glati rétti sínum til að fá
húsnæðisstjórnarlán samkvæmt
hinurn nýju lögum, sagði Ás-
mundur Stefánsson forseti Al-
þýðusambands íslands í viðtali
við Þjóðviljann.
„Það ríkir alger samstaða um
þennan skilning, og hann er
öllum svo augljós, að ef einhverj-
um lögfræðingum dytti í hug að
fara út í einhvern leikaraskap
með þetta mál er það sjálfgefið,
að tekinn yrði af allur vafi með
lagasetningu.“
„Ég er algerlega sammála þess-
um orðum forseta Alþýðusam-
bandsins“, sagði Alexander Stef-
ánsson félagsmálaráðherra, þeg-
ar Þjóðviljinn bar ummæli Ás-
mundar undir hann. „Fólk þarf
ekki að óttast um verkfallsrétt-
inn, eða annað sem verndað er í
vinnulöggjöfinni. Þessi húsnæð-
islög voru sett til að hjálpa fólki
en ekki til að hegna því fyrir verk-
föll. Eins og þegar önnur mikil-
væg lög taka gildi, mun sjálfsagt
töluvert verða leitað til ráðuneyt-
isins um túlkun og lögskýringar.
Okkar stefna er sú að vera mann-
legir í túlkun okkar, og ef ein-
hverjir óeðlilegir hnökrar á lög-
unum koma í ljós verður það
snarlega lagfært með lagasetn-
ingu.“
Félagsmálaráðherra vildi einn-
ig taka fram, að hann teldi að
skrif Þjóðviljans, um að þessi lög
kynnu að verða túlkuð af ein-
hverjum sem hemill á verkfalls-
rétt, væru mjög óeðlileg.
Um það ætlar Þjóðviljinn ekki
að deila við félagsmálaráðherra,
en blaðið fagnar því, að ráðherra
skuli hafa tekið af öll tvímæli
varðandi túlkun á þessum hluta
og heitið mannlegri túlkun á öðr-
um greinum þeirra.
- Þráinn
Nígería
Skreiðin
ósekl
Skipið hefur veriðfyrir
utan Lagos í rúma viku
Ekkert hefur ræst úr skreiðar-
sölumálinu í Nígeríu, að sögn
Árna Bjarnasonar hjá íslensku
umboðssölunni.
Skipið sem sigldi með
skreiðina hefur nú verið fyrir
utan höfnina í Lagos í rúma viku
og er beðið eftir greiðslutrygg-
ingu frá Nígeríumönnum. „Við
erum sallarólegir", sagði Árni
Bjarnason í gær. í skipinu eru
60.000 pakkar af skreið, 45 kg
hver, en til samanburðar má geta
þess að í landinu eru nú til
120.000 slíkir pakkar.
- GH.
Lélegt
hjá
þorskinum
Góð útkoma með loðnu-
og karfaklakið en slakt
hjá þorski ogýsu
Árleg könnun Hafrannsóknar-
stofnunar á útbreiðslu fiskseiða
og ástandi sjávar í kringum
landið bendir til þess að ekki hafi
tekist vel til með þorskklakið í vor
og að 1986 árgangurinn af þorski
verði slakur. Enda þótt þorsk-
seiði hafi fundist víða umhverfis
iandið og þau verið sæmilega á sig
komin, var hvergi mikið af þeim.
Fyrstu athuganir benda því til
þess að árgangurinn verði með
slakara móti.
Aftur á móti fannst mikið af
stórum ýsuseiðum út af Vest-
fjörðum og Norðurlandi og segir
Hafrannsóknarstofnun allt
benda til þess að ýsuárgangurinn
í ár verði í slöku meðallagi. Út-
breiðsla loðnuseiða var mikil og
heildarfjöldinn vel yfir meðallagi
og allt bendir því til þess að klak-
ið hjá loðnunni í vor hafi tekist
vel. Sömu sögu er að segja um
krafann. Óvenjumikið fannst af
karfaseiðum á svæðinu suðvestur
af Grænlandi og útlitið því gott
varðandi karfaárganginn. - lg.
Loðnan
Skeiðarárhlaup er nú í rénun og að sögn vatnamælingamannanna Bjarna Kristinssonar og Svans Zophoníassonar
var um fremur lítið hlaup að ræða. Þjóðviljamenn voru á ferð þar eystra á þriðjudag. Sjá nánar myndir og frásögn inni í
blaðinu.
Frjálst verð
Samkomulag náðist í verð-
lagsráði í gær um að gefa loðnu-
verð frjálstfrá 15. þessa mánaðar
til 14. október nk.. Gildandi
loðnuverð er 1900 kr. fyrir tonn-
ið.
Ákvörðunin um frjálst verð
byggist á að loðnuverksmiðjur
tilkynni móttökurými til loðnu-
nefndar og jafnframt það verð
sem þær greiða hverju sinni. Skal
tilkynnt verð gilda í 7 daga
minnst, en breyta má út af því
með samkomulagi kaupenda og
seljenda. - lg.
Sveitarstjórnaþing
Sverri andmælt
Alandsþingi Sambands ís-
lenskra sveitarfélaga sem sett
var á Hótel Sögu í gær mættu hug-
myndir menntamáiaráðherra,
Sverris Hermannssonar, um
niðurskurð á fjármagni til skóla-
aksturs og reksturs mötuneyta
harðri gagnrýni viðstaddra.
Sverrir, sem var gestur fundar-
ins, hélt stutt erindi um hug-
myndir sínar, en í þeim felst m.a.
að það fjármagn sem nú er veitt
til skólaaksturs og reksturs mötu-
neyta skuli skorið úr 193 miljón-
um króna í 25 miljónir. Sverrir
sagði að hann myndi í engu hvika
frá áformum sínum hvað þetta
snertir. Þá ítrekaði Sverrir að
víða væri pottur brotin hvað
varðar hagkvæmni í skipulagi
skólaaksturs og ítarlega úttekt
yrði að gera til þess að kanna
hvernig þeim málum er háttað
innan sveitarfélaganna. „Víða
eru tvíburasysturnar ráðdeild og
sparnaður ekki til staðar og þegar
úttektinni er lokið verða þeir
hreinsaðir sem ekki hafa misboð-
ið þeim“, sagði Sverrir.
Málflutningur Sverris mætti
harðri gagnrýni fundarmanna
eins og áður segir, bæði vegna
ásakana hans um bruðl sveitar-
stjórna og vegna þeirra afleiðinga
sem hugmyndir hans kunna að
hafa fyrir jafna aðstöðu til náms.
Fólk benti á, að nú þegar ætti
skólakerfið á landsbyggðinni
undir högg að sækja vegna þeirra
auknu verkefna sem ríkið hefði,
formlega eða óformlega, lagt á
hendur sveitarstjórnanna án þess
að til kæmi aukinn tekjustofn frá
ríkinu. í þessu sambandi var m.a.
talað um viðhaldskostnað við
skólahúsnæði sem samkvæmt
lögum er í höndum sveitarstjórna
og nauðsynlegar aðgerðir sveitar-
stjórna vegna kennaraskortsins
sem nú ríkir vegna kjaramála
kennara, en útlagður kostnaður
sveitarstjórna í formi fríðinda til
þeirra hefur aukist verulega.
Voru sveitarstjórnafulltrúar var-
aðir við þessari þróun. -K.ÓI.
DJÖÐVIUINN
bamahátíð
þann 13. september.
Hátíðin verður haldin í Sóknarsalnum Skipholti 50a og hefst kl. 15.00 (3.00).
Dagskrá:
FÖNDUR: Herdís Egilsdóttir sér um þann þátt hátíðarinnar.
UPPLESTUR: Guðrún Helgadóttir les úr nýrri bók sinni og Guðmundur
Óiafsson les úr verðlaunabók sinni.
GOS OG POPP.
BRÚÐULEIKHÚS: Hallveig Thorlacius sér um og stýrir.
ALLI pG HEIÐA SPRELLA.
BINGÓ. Vegleg verðlaun.
DISKÓ.
Kær kveðja. - Afmælisnefnd Þjóðviljans.