Þjóðviljinn - 27.09.1986, Síða 6
ÍÞRÓTTIR
Adidas
Gullskórinn afhentur
Gullskór Adidas var afhentur í fjórða sinn hér
á landi í gær. Hann hlaut að venju markahæsti
leikmaður 1. deildar, Guðmundur Torfason úr
Fram, sem skoraði 19 mörk í deildinni á nýloknu
keppnistímabili. Sigurjón Kristánsson úr Val
fékk silfurskóinn og Guðmundur Steinsson úr
Fram bronsskóinn. Þeir skoruðu 10 mörk hvor í
sumar en Sigurjón lék einum leik færra en Guð-
mundur og það færir honum silfrið.
-VS
V*l»ri Lobanovskl: Vitum hreinlega ekki hvernig við eigum að Ijúka þess
keppnistfmabili en svona verður þetta að vera.
- Nú ert þú þjálfari bæði Di-
namo Kiev og sovéska landsliðs-
ins. Leikmenn Kiev hafa íár leikið
í sovésku deildakeppninni, Evr-
ópubikarnum, alþjóðlegum
mótum, og með landsliðinu í
heimsmeistarakeppninni og öðr-
um landsleikjum. Er ekki mikið
álag á þeim?
„Jú, þetta er geysilega erfitt
fyrir þá og álagið er of mikið. Við
vitum hreinlega ekki hvernig við
eigum að ljúka þessu keppnistím-
abili, það er hálfur þriðji mánuð-
ur eftir af því og mikið af leikjum.
Við erum að reyna að halda leik
liðsins á sama háa planinu allan
tímann. En svona verður þetta að
vera, það er ekkert hægt að gera
annað en að ljúka þessu pró-
grammi. Þetta er of mikið og of
erfitt og það væri ekki hægt að
bjóða leikmönnunum uppá ann-
að svona ár. En næsta ár verður
mikið auðveldara, leikirnir verða
færri og álagið ekki eins mikið,“
sagði Valeri Lobanovski.
Hann hefur þjálfað lið Dinamo
Kiev í 12 ár og á þeim tíma hefur
það verið stórveldi í sovéskri
knattspymu. Sex sinnum hefur
það orðið sovéskur meistari og
þrívegis bikarmeistari, auk þess
að sigra tvisvar í Evrópukeppni
bikarhafa. Dinamo Kiev er eitt
albesta félagslið Evrópu og so-
véska landsliðið eitt albesta
landslið í heimi um þessar mund-
ir. Það verður fróðlegt að fylgjast
með Lobanovski og liðum hans á
báðum vígstöðvum á næstunni.
-VS
Lutonmálið
Atkvæða-
greiðsla
Mál Luton Town, sem rekið
var úr enska deildabikarnum í
knattspyrnu á dögunum, var
tekkð fyrir á sérstökum fundi hjá
yfirstjórn deildakeppninar i gær.
Þar var ákveðið að bera brottvís-
unina undir atkvæðagreiðslu hjá
fulltrúum allra 92 deildaliðanna
sem fram fer í aðalstöðvum Aston
Villa þann 6. október. Ef meiri-
hluti greiðir Lutpn atkvæði
endurheimtir félagið sæti sitt í
deildabikarnum. -VS/Reuter
Badminton
TBR beint í
8-liða úrslit
TBR tekur að vanda þátt í Evr-
ópukeppni félagsliða í badminton
sem að þessu sinni fer fram í Hol-
landi um helgina. Frábær árang-
ur TBR síðast færir liðinu sæti í
8-liða úrslitum, án forkeppni, og
þar er líklegt að mótherjarnir
verði Olve, meistarar Belgíu.
6 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN
Einkaviðtal Þjóðviljans við Valeri
Lobanovski, þjálfara Dinamo
Kiev og sovéska landsliðsins í knattspyrnu
Álagið
er alltof
mikið
Ánœgður með mitt lið íMexíkó og keppnin var skemmtileg en
ekkert nýtt komfram
Það vakti mikla athygli þegar So-
vótmenn skiptu um landsliðs-
þjálfara í knattspyrnu aðeins
þremurvikumáðuren
heimsmeistarakeppnin hófst í
Mexíkó fyrr á þessu ári. Við emb-
ættinu tók Valeri Lobanovski - þá
nýbúinn að leiða Dinamo Kiev til
sigurs í Evrópukeppni bikarhafa.
Þar sýndi Dinamo Kiev glæsi-
lega knattspyrnu og sigraði Atlet-
ico Madrid 3-0 í leik sem lengi
verður í minnum hafður. Sovéska
landsliðið hafði hinsvegar ekki
sýnt neina stórkostlega tilburði,
tryggði sér sæti í lokakeppninni í
Mexíkó eftir mikinn barning og
náði sér ekki á strik í æfínga-
leikjum framanaf þessu ári.
Þjóðviljinn átti einkaviðtal við
Valeri Lobanovski þegar sovéska
landsliðið var að búa sig undir
leikinn við ísland á Laugardals-
vellinum fyrr í þessari viku og
spurði hann fyrst hvernig hafi
verið að taka við landsliðinu rétt
áður en sjálf heimsmeistara-
keppnin hófst.
„Það er geysilega erfitt að taka
við með svona skömmum fyrir-
vara. Undirbúningur fyrir HM
tekur venjulega fjögur ár svo það
er ekki mikið hægt að gera á
þremur vikum. En mér tókst
þetta með því að nota lið mitt,
Dinamo Kiev, sem uppistöðu í
landsliðinu. Ég valdi 12 leikmenn
þaðan og það leysti mörg vanda-
mál, leikmenn þekktust vel og
höfðu spilað mikið saman,“ sagði
Lobanovski.
Sovétmenn byrjuðu glæsilega í
Mexíkó og möluðu Ungverja 6-0
í fyrsta leik. Síðan gerðu þeir
jafntefli við Frakka, 1-1, í stór-
skemmtilegum leik og unnu loks
Kanada 2-0 en tefldu þá fram
varaliði sínu. Leikurinn gegn
Belgíu í 16-liða úrslitunum verð-
ur þeim sem sáu hann lengi
minnisstæður. Eins og menn
muna vann Belgía mjög óvænt,
4-3, eftir framlengingu og það var
mál margra að þar hefði eitt sig-
urstranglegasta lið keppninnar
fallið út. En var Lobanovski
ánægður með þá knattspymu
sem sovéska liðið sýndi í Mex-
íkó?
„Ég er sjaldan mjög ánægður
með leiki því leikmenn ná ekki
oft að framfylgja nákvæmlega því
sem maður hefur sett upp. En í
heild er ég ánægður með hvernig
liðið lék. Að sjálfsögðu voru það
mikil vonbrigði að tapa fyrir
Belgíu, ekki síst þar sem við viss-
um allan tímann að við værum
sterkari aðilinn. En það er ein-
mitt þetta sem er skemmtilegast
við knattspyrnuna, það er aldrei
hægt að reikna hana út, það kem-
ur alltaf eitthvað á óvart.“
- Hefði lið lið þitt getað hreppt
einhver þrjú efstu sætanna í
Mexíkó?
„Það er að sjálfsögðu ómögu-
legt að segja til um slíkt með ein-
hverri vissu. í Mexíkó voru mörg
mjög áþekk lið, hvert þeirra sem
var gat komist í úrslit og við hefð-
um getað það eins og svo margir
aðrir.“
- Ertu ánægður með
heimsmeistarakeppnina að öðru
leyti?
„Keppnin var mjög vel skipu-
lögð og gerð mjög aðlaðandi fyrir
áhorfendur. Flestir leikir ein-
kenndust af mikilli baráttu og
keppnisskapi. En taktískt séð
kom ekkert nýtt fram. Ég get því
miður ekki sagt að ég hafí séð
neinar teljandi framfarir. Ég get
nefnt sem dæmi hollenska lands-
liðið sem lék í HM 1974. Það
sýndi frábæra knattspyrnu og síð-
an hefur ekkert sambærilegt
komið fram. Argentína verð-
skuldaði heimsmeistaratitilinn,
var með vel skipulegt og agað lið
og átti marga frábæra leikmenn,
ekki bara Maradona. Það er ekki
hægt að segja að tilviljun hafi
ráðið því að þeir urðu heims-
meistarar, þótt margir hafi
gagnrýnt þá og dregið verðleika
þeirra í efa.“
Knattspyrna
Meiðsli
hjá Fram
Tveir lykilmanna Fram, Guð-
mundur Steinsson og Pétur
Ormslev, hafa ekkert getað æft
með liðinu fyrir leikinn gegn Kat-
owice í Evrópukcppni bikarhafa
sem fram fer í Póllandi á
fímmtudaginn. Pétur hefur átt
við meiðsli í hné að stríða seinni
part sumars og Guðmundur fékk
blóðeitrun og tognaði síðan í nára
í fyrri leik liðanna. Báðir munu
þó freista þess að leika og ætla að
skokka létt á meðan hinir púla á
æfíngu í Mosfcllssveit í dag.
-VS
Garðabœr
Stjörnudagur
Stjarnan heldur „Stjörnudag"
á sunnudaginn, 28. september.
Dagskráin hefst kl. 13.30 í íþrótt-
ahúsinu Ásgarði og fer fram
jafnhliða þar og á völlum við hús-
ið. Þar verður m.a. boðið uppá
knattspyrnu, handknattleik, kar-
ate, fímleika, blak og borðtennis.
Laugardagur 27. september 1986