Þjóðviljinn - 27.09.1986, Síða 12

Þjóðviljinn - 27.09.1986, Síða 12
LAUS STAÐA HJÁ REYKJAVÍKURBORG Viðskiptafræðingur Félagsmálastofnun Reykjavíkurborgar óskar að ráða viðskiptafræðing í fjármála- og rekstrar- deild. Hér er um að ræða nýja stöðu sem mun hafa að viðfangsefnum innra eftirlit varðandi fjárhagsað- stoð og umsjón með rekstri stofnana í þágu aldr- aðra ásamt verkefnum á sviði tölvuvæðingar. Þetta er fjölbreytt starf sem gefur góða reynslu og vinnuaðstaða er góð. Upplýsingar gefur yfirmaður fjármála- og rekstr- ardeildar í síma 25500. Umsóknum ber að skila til Starfsmannahalds Reykjavíkurborgar Pósthússtræti 9, 6. hæð á sérstökum umsóknareyðublöðum sem þar fást. Endurmenntun í netagerð Námskeið í netagerð Námsefni skv. námsskrá: Efnisfræði netagerðar. Iðnteikning netagerðar. Verktækni netagerðar. Námskeiðið fer fram í Reykjavík dagana 25. okt. - 3. nóv. 1986 í húsi Iðntæknistofnunar íslands, Keldnaholti. Kennslustundir verða 90, eða 10 stundir á dag að jafnaði. Leiðbeinandi verður Guðni Þorsteinsson fiskifræðingur. Námskeiðið verður sniðið fyrir nema í netagerð og starfandi sveinum í iðngreininni verður gefinn kostur á að taka þátt í námskeiðinu að hluta til eða öllu leyti. Innritanir þurfa að hafa farið fram fyrir 22.10. 1986. Nánari upplýsingar og innritanir verða í símum 91 -24120 Lárus Pálmason og 91 -622624 Jón Sigurðsson milli kl. 9-17 virka daga. Iðnskólinn í Reykjavík Nót, sveinafélag netagerðarmanna. A Kópavogskaupstaður - deiliskipulag Auglýst er deiliskipulag við Álfaheiði og vestur- hluta Hlíðarhjalla í suðurhlið Digraness í sam- ræmi við grein 4.4. í skipulagsreglugerð frá 1. ágúst 1985. Teikningar ásamt greinargerð svo og skilmálum og leiðsöguteikningum fyrir reit merktan „B“ liggja frammi á skrifstofu bæjarverkfræðings Fannborg 2, 3. hæð, frá og með 30. sept. til 30. okt. 1986. Athugasemdir ef einhverjar eru skulu vera skrif- legar og berast bæjarverkfræðingi fyrir 31. okt. 1986. Bæjarverkfræðingur PÓST- OG SÍMAMÁLASTOFNUNIN óskar að ráða: BRÉFBERA til starfa við póst- og símstöðina í Hafnarfirði. Upplýsingar veitir stöðvarstjórinn í Hafnarfirði í símum 50555 og 50933. Alúðarþakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför Jóns Kolbeinssonar Hátúni 4 Valgerður Guðmundsdóttir Pálína M. Kristinsdóttfr Ella Kolbrún Kristinsdóttir Karólína Kolbeinsdóttir MFA Menningar- starf og alþýðu- menntun „Þarna var samankominn hóp- ur fóiks frá öllum Norðurlöndun- um og það var stórkostlegt að sjá það vinna saman þrátt fyrir tungumálaerfiðleika og alit slíkt“, sagði Þráinn Hallgrímsson starfsmaður MFA, en hann ásamt Malin Olsson sá um hálfs- mánaðar námskeið í Ölfusborg- um á vegum Norræna MFA skólans, sem er nýlega lokið. „Alls var þetta 30 manna hóp- ur, 7 þátttakendur frá hinum Norðurlöndunum og 2 íslending- ar. Verkefni námskeiðsins var að við skoðuðum samstarf verka- lýðsfélaganna og sérstaklega verkalýðsmál hér á landi. Erindi sem voru flutt, voru um samstarf Norðurlandanna í menningarmálum, þar sem Árni Gunnarsson leiddi umræður. Helgi Guðmundsson ræddi hvernig vinna má með fólki í strjálbýli að menningarmálum og Sigrún Valbergsdóttir fjallaði um mun á leikmönnum og fag- mönnum í listum. Þá fjallaði Eiður Guðnason um hvernig Norðurlönd geta brugðist við utanaðkomandi fjölmiðlum og Árni Björnsson ræddi um sjálf- stæði íslendinga. í bland við þetta var farið í skoðunarferðir þar sem bæði vinnustaðir svo og perlur ís- lenskrar náttúru voru skoðaðar. Þá vorum við einnig með þjóðleg kvöld þar sem hver þjóð um sig var með sína þjóðlegu dagskrá. „Mér fannst þetta takast mjög vel. Það ríkti mikill samhugur og sköpuðust góð kynni. Þema nám- skeiðsins er mjög vítt og gefur því mikla möguleika á efnisvali. Þessi námskéið hafa verið haldin síðan 1980 og var haldið í fyrsta skipti á íslandi nú. Markmið þeirra er m.a. að stuðla að auknum kynnum fólks á Norður- löndum, kynna Norrænt samstarf og auka þekkingu þátttakenda á kjörum, menningu og samfé- lögum Norðurlanda, sagði Þrá- inn. -GH Tölvutœkni Spástefha um • II í tengslum \iti„Tölvur ogþjóð- líf“, sýningu tölvunarfræðinema, munu Reiknistofnun Háskólans og tölvunarfræðinemar gangast fyrir spástefnu um framtíðarþró- un tölvutækninnar, þann 8. októ- ber nk. á Hótel Sögu. Á spástefnunni verður fjallað um helstu nýjungar í tölvutækni og áhrif þeirra í náinni framtíð. Tvö meginatriði verða sérstak- lega til umræðu. Þau eru: 1. Tölvunet og gagnabankar (fyrir hádegi), 2. Gervigreind og tölv- utal (eftir hádegi). Fjórir erlendir fyrirlesarar munu flytja erindi á spástefn- unni. Þeir eru allir sérfræðingar á ofangreindum sviðum hjá helstu tölvuframleiðendum heims, þ.e. IBM, DEC og HP. Hafa þessi fyrirtæki greitt fyrir því að fá þessa menn til landsins. Stephen Mallinson fjallar um helstu nýjungar á sviði tölvuneta, Björn Tuft fjallar um tölvunet en sérstaklega um ISDN-tæknina, Hans Eske Sindby fjallar um gervigreind og þekkingarkerfi og Michele Pracchi fjallar um 5. kynslóð tölva. Fundarstjóri verður Páll Jens- son forstöðumaður. 12 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Söngsveitin Fílharmonía óskar eftir söngfólki VERKEFNI VETRARINS: Carl Orff Catulli Carmina Frans Mixa Fjalla-Eyvindur Ludwig van Beethoven Sinfónía nr. 9 í d-mill op. 125. Upplýsingar gefa: Þóra í síma 43354 og Þorvaldur í síma 38426. VERKAMANNABUSTAÐIR í REYKJAVÍK SUOURLANDSBRAUT 30. REYKJAVIK Járnamann - Verkamenn Viljum ráöa vanan járnamann og verkamenn nú þegar við framkvæmdir okkar í Grafarvogi. Mikil vinna framundan. Mötuneyti á staðnum. Upplýsingar hjá verkstjóra í síma 671773 og 681240. Stjórn Verkamannabústaða í Reykjavík. Útboð Álfabakki 14 í Mjódd. Tilboð óskast í að steypa upp og gera fokhelt verslunarhúsið Álfabakki 14 í Mjódd. Húsið er ca. 1000 m2 að grunnfleti, 3 hæðir og rishæð. Sökklar hafa þegar verið steyptir. Útboðsgögn verða afhent frá og með þriðjudeg- inum 30. september nk. gegn 10.000 kr. skila- tryggingu hjá Hönnun hf., Síðumúla 1, Reykjavík. Tilboð verða opnuð á sama stað þriðjudaginn 21. október nk. kl. 14.00. hönnun hf /x Ráðgjafarverkfræðingar FRV x? Siðumúla 1 • 108 Reykjavík • Sími (91) 84311 Laus staða við Norræna genbankann fyrir land- búnaðar- og garðyrkju- plöntur Norræni genbankinn, í Alnarp, Svíþjóð, óskar eftir að ráða starfsmann með háskólapróf í land- búnaði, garðyrkju, líffræði eða í hliðstæðum greinum. Starfsmanni er ætlað að skipuleggja vinnu gen- bankans á varðveislu vistkerfa í tengslum við slík verkefni á Norðurlöndunum, vinna að útbreiðslu- kortum eftir þörfum, bera ábyrgð á erfðaefni sem haldið er við með vaxtaræxlun, fylgjast með al- þjóðlegri vinnu á ofangreindum sviðum og vinna önnur störf skv. ákvörðun stjórnar. Laun fylgja launakerfi sænskra ríkisstarfsmanna, en staðaruppbót er greidd ef starfsmaður er frá öðru landi en Svíþjóð. Ráðningartími er vanalega 4 ár en mögulegt er að framlengja ráðningu. Umsóknir, ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf, skal senda til: Nordiska Genbanken Box 41 230 53 ALNARP SVERIGE eigi síðar en 31. október 1986. Frekari upplýsingar veitir Ebbe Kjellqvist forstjóri NGB, sími 040-415000 og Þorsteinn Tómasson, Rannsóknastofnun landbúnaðarins, sími 82230.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.