Þjóðviljinn - 03.10.1986, Síða 2

Þjóðviljinn - 03.10.1986, Síða 2
P-SPURNINGIN- Hvað finnst þér um breyttan útsendingatíma sjónvarpsfrétta? Guðni Arnarson sendibílstjóri: Mér finnst mjög gott að færa dag- skrána framar að kvöldinu. Mér finnst það bara betra að öllu leyti. Hjaiti Elíasson rafvirkjameistari: Það er nú ekki komin nein reynsla á þetta ennþá en mér líst að sumu leyti vel á að færa dagskrána framar. Það má ekkert vera þannig að það sé óbreytanlegt, hvorki fróttatími né annað. Sigríður Guðjohnsen, djassballettkennari: Útsendingatími sjónvarpsfréttanna skiptir mig engu máli, því ég vinn á kvöldin og missi alltaf af þeim hvort eð er. María Benediktsdóttir, hús- móðir og starfar við Mennta- skólann í Hamrahlíð: Maður verður að venjast þessu breyttafyrirkomulagi og stilla sig inn á það til að geta horft á fréttatímann. Það er óhjákvæmilegt að breyta stundatöflu heimilisins ef maður vill horfa á eitthvað sérstakt svo snemma. „ ...... ''ri'mtn,. ’JV’ ■’.. Halldóra Jónasdóttir, hús- móðir og afgreiðslumaður: Mér finnst þetta alveg ömurlegt. Ég vinn í búð og það er aldrei lokað fyrr en kl. 6 sem þýðir að maður er ekki kominn heim fyrr en á milli kl. 6.30 og 7. Þá er eftir að sinna matnum og húsverkum þannig að ég missi oftast af fréttatímanum. Þetta er óþarflega snemma á dagskránni. FRETT1R Verkamannabústaðir Ráðherra var seinn til Félagsmálaráðherra skipaði ekkiformann verkamannabústaða í Kópavogifyrr en 13. ágúst. 19eldriíbúðirkeyptará árinu ogl7nýjarafhentaríþessum mánuði. Hafin bygging 40 íbúða strax eftir áramót Það er vissulega rétt sem kom fram í Þjóðviljanum á þriðju- dag að stjórn verkamannabú- staða í Kópavogi hefur verið laus í böndunum í sumar. Ástæðan er hins vegar sú að félagsmálaráð- herra skipaði ekki formann fyrir nýrri stjórn fyrr en 13. ágúst, sagði Heiðrún Sverrisdóttir bæjarfulltrúi og fyrrum stjórnar- maður verkamannabústaða í Kópavogi í samtali við Þjóðvilj- ann í gær. Kjörtímabil stjórna verka- mannabústaða rennur út strax að loknum byggðakosningum. Bæj- arstjórn Kópavogs kaus sína full- trúa í nýja stjórn 27. júní en hún gat ekki komið saman fyrr en um miðjan ágúst af fyrrnefndum ástæðum, sagði Heiðrún enn- fremur. „Hins vegar fer því fjarri að síðasta stjórn VBK hafi verið verklaus. Við keyptum m.a. 19 eldri íbúðir á almennum markaði á þessu ári og í þessum mánuði verða afhentar 27 íbúðir í þremur fjölbýlishúsum við Sæbólsbraut". „Þá er látið að því liggja í frétt Þjóðviljans að bæjaryfirvöld hafi ekki verið tilbúin með lóðir á næsta byggingarsvæði verka- mannabústaða í Suðurhlíðum. Stjórn verkamannabústaða var úthlutað lóðum undir fimm fjöl- býlishús fyrir allt að 80 íbúðir í september á síðasta ári. Hefði verið sérstaklega eftir því leitað væru þessar lóðir fyrir löngu orðnar byggingarhæfar. Fyrri stjórn flýtti sér hins vegar hægt við nýbyggingar vegna mikils byggingakostnaðar á þeim tíma og kaus að verja meira fé til kaupa á eldri íbúðum. Hins vegar hefur nýja stjórnin, eftir að hún varð starfhæf, slegið undir nára og er nú undirbúningur að bygg- ingum í næsta áfanga vel á veg kominn og ætlunin að byrja þar á amk 40 íbúðum strax á næsta ári,“ sagði Heiðrún að síðustu. -v. Kemur Bítlahártískan aftur? Verð á þjónustu rakara hefur hækkað verulega undanfarna mánuði. Mynd Sig. Rakarar Miklar verðhækkanir Verðlagsstofnun vinnurað ítarlegri verðkönnun. Herraklipping kostar núfrá 450 uppí630 kr. Verðlagsstofnun vinnur þessa dagana að verðkönnun á þjónustu rakara í höfuðborginni og samkvæmt hcimildum Þjóð- viljans hefur ástandið ekki batn- að síðan síðasta könnun var gerð í maí síðastliðnum. Sú könnun leiddi í Ijós að verð á herra- og barnakiippingum hafði hækkað verulega umfram framfærsluvísi- tölu og kauptaxta, eða um 57- 60% á tímabilinu janúar 1985 til maí 1986. Á sama tímabili hækkuðu kauptaxtar um 32%. Þjóðviljinn gerði skyndikönnun hjá tíu rak- arastofum á höfuðborgarsvæðinu og kom í ljós að barnaklipping getur kostað frá 370 krónum upp í 477 krónur og herraklipping frá 450 krónum upp í 630 krónur. f maí í vor var meðalverð á barn- aklippingu 392 krónur samkvæmt könnun Verðlagsstofnunar og meðalverð á herraklippingu var 463 krónur. -vd. Yfirlýsing Framboð fráleitt Séra Sólveig Lára Guðmundsdóttir: Prestur allra minna sóknarbarna en ekki aðeins ákveðins hóps Sólveig Lára Guðmundsdóttir sóknarprestur á Seltjarnarnesi hefur sent Þjóðviljanum eftirfar- andi yfirlýsingu: „Vegna síendurtekinna frétta í dagblöðum um að ég sé að huga að framboði fyrir hina ýmsu stjórnmálaflokka langar mig að taka fram eftirfarandi: Aldrei hefi ég hugleitt að bjóða mig fram til Alþingis, enda hefur alls ekki verið farið þess á leit við mig af nokkrum stjórnmála- flokki. Ég hef hins vegar mjög ákveðnar skoðanir á hlutverki kirkjunnar í nútímaþjóðfélagi og á hvern hátt hún á að blanda sér inní umræðu um samfélagsmál. Kirkjan hlýtur ávallt að berjast fyrir réttlætinu og varpa ljósi á hvert baráttumál stjórnmála- flokkanna út frá boðsicap krist- innar trúar. Kirkjan hlýtur því að taka af- stöðu gagnvart hverju málefni út frá sínum forsendum - burt séð frá því hvað stjórnmálaflokkum finnst um málið. Kirkjan má því aldrei að mínu mati, veigra sér við að taka afstöðu í ákveðnum málum vegna þess að einn stjórnmálaflokkur tengist þeim öðrum fremur. Sem starfsmaður kirkjunnar og sóknarprestur tel ég það frá- leitt að fara í framboð fyrir hvaða stjórnmálaflokk sem er. Ég er prestur allra minna sóknarbarna, en ekki aðeins ákveðins hóps, sem hefur sömu stjórnmálaskoð- anir. Þær fréttir, sem borist hafa í blöðum um hugsanlegt framboð mitt til alþingis finnst mér einnig vitna um fáfræði fréttaflutnings- fólks um starf sóknarprests í fjöl- mennu prestakalli. í lok þessara orða minna lang- ar mig að varpa þessu fram til umhugsunar: Starfsfólk dagblað- anna virðist geta skrifað hvaða hugaróra, sem hrærast um í höfði þess, á þann hátt að lesendum finnst sterkar heimildir liggja að baki. Trygging okkar gagnvart því að blöðin flytji okkur fréttir, sem einhver fótur er fyrir, er því engin. Hér liggur að baki djúp spurn- ing um frelsi og ábyrgð. Við lifum, Guði sé lof, við prentfrelsi - en því fylgir ábyrgð.“ Sjónvarpið Auglýst í miðrí dagskrá í afmælisdagskrá sjónvarpsins á þriðjudagskvöldið var skotið inn auglýsingum í miðjum dagskrárliðnum - Helgi Helgason, auglýsingastjóri Ríkisútvarpsins: Ekki brot á reglugerð. Við setjum þarna inn auglýsinga- merkið sem lœtur áhorfandann strax vita að þarna er auglýsing að koma Þessi afmælisdagskrá sjón- varpsins bauð hreinlega upp á að settur væri auglýsingatími inn f hana og um það var samið við dagskrárgerðarmennina sem stóðu að gerð þessa dagskrárlið- ar,“ sagði Helgi Helgason, aug- lýsingastjóri Ríkisútvarpsins í samtali við Þjóðviljann í gær, um auglýsingatíma sem settur var inn í dagskrárliðinn „Gegnum tíð- ina“, þar sem brugðið var fjósi á starfsemi sjónvarpsins í nútíð og fortíð. í reglugerð frá því í febrúar á þessu ári sem menntamálaráð- herra setti, segir í 1. grein: „Auglýsingar skulu vera skýrt af- markaðar frá öðru dagskrárefni útvarps, hljóðvarps eða sjón- varps, þannig að ekki leiki vafi á að um auglýsingar sé að ræða og skulu þær fluttar í sérstökum al- mennum auglýsingatímum." Helgi sagði að þar sem þessi dagskrárliður hefði verið svo langur hefði ekki þótt óeðlilegt að setja þar auglýsingartíma. Að- spurður um það hvort hann teldi það eðlilegt að auglýsingar væru settar inn í dagskrárliði, sagði Helgi: „Já, í vissum tilvikum. Þetta hefur verið gert áður, til að mynda á áramótafagnaði sjón- varpsins um síðustu áramót og í kosningasjónvarpi, og í hléum á íþróttaleikjum í því tilviki þegar efni býður upp á það.“ -Er þetta þá ekki brot á reglu- gerð um auglýsingar í sjónvarpi? „Nei ég tel það ekki vera. Við setjum þarna inn auglýsinga- merkið sem lætur áhorfanda strax vita að þarna er auglýsing að koma, þar með erum við búnir að láta vita að þarna sé auglýs- ing,“ sagði Helgi. IH >2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 3. október 1986

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.