Þjóðviljinn - 03.10.1986, Síða 3
Það er vonandi að þeir Rónald og
Mikjáll reynist heilir á geðsmunum
svo þeir sieppi framhjá sálfræð-
ingum Útlendlngaeftirlitsins.
Einvígið
Jafnt í
biðskákinni
Sigurlíkur
Kasparoffs aukast
Kasparoff og Karpoff sömdu
um jafntefli eftir 45. leik heims-
meistarans í 21. einvígisskákinni
sem tefld var áfram í gær. Staðan
er þá jöfn, IOV2-IOV2, og þremur
skákum óíokið.
Jafnteflið eykur líkurnar á að
Kasparoff haldi tign sinni þarsem
hann telst sigurvegari á jöfnum
vinningum, og hefur hvítt í
tveimur af þremur þeirra skáka
sem eftir eru, en Karpoff þarf að
ná vinningi til að endurheimta
titilinn. Þeir félagar setjast að 22.
skákinni í Leníngrad um tvö-
leytið í dag.
Biðstaðan var þessi á miðviku-
dag (Karpoff með hvítt):
Bb5+, og leikirnir í gær þessir:
42. Kc3 - Ra4+, 43. Kd2 - c4,44.
e5+ - fxe5,45. Re4+ - Ke6. Jafn-
tefli. -m
Kosningar
áfram
Félagsfundur Kvennalistans í
Reykjavík fyrrakvöld ákvað að
bjóða enn fram f næstu þingkosn-
ingum.
I frétt frá Kvennalistanum
segir að allar fyrri ástæður fyrir
sérframboði kvenna séu enn í
fullu gildi. Aðstæður kvenna hafi
versnað í tíð núverandi ríkis-
stjórnar og því aidrei nauðsyn-
legra en nú að konur láti til sín
taka.
Lánskjaravísitalan
14.8%
hækkun
á árinu
Framfærsluvísitalan mun
hækka um 9.9% frá upphafi til
loka þessa árs samkvæmt nýrri
spá Seðlabankans sem birt er í
nýjasta hefti hagtalna mánaðar-
ins.
Spáin gerir jafnframt ráð fyrir
að byggingavísitalan hækki um
15.2% á árinu og lánskjaravísital-
anuml4.8%. _lg.
__________________FRETTIR_______________
Hótelin
Tekin leigunámi
Ríkisstjórnin gefur út bráðabirgðalög: Saga, Loftleiðir, Esja og Holt tekin
leigunámi. Fjölmargir óvissuþœttir varðandi skipulag. Vantar upplýsingar
Ríkisstjórnin tók í gær fjögur
hótel í Reykjavík leigunámi
með bráðabirgðalögum. Hótelin
eru Saga, Loftleiðir, Esja og Hót-
el Holt. Steingrímur Hermanns-
son forsætisráðherra sagði á
blaðamannafundi í gær að þetta
hefði verið gert að frumkvæði
eigenda hótelanna, vafalaust í
þeim tilgangi að auðvelda losun
þeirra.
Hótelin fjögur munu hýsa
hluta föruneyta Reagans og Gor-
batsjofs, en alls óvíst er að það
dugi til. Aðeins eitt fordæmi er
fyrir því að hótel hafi verið tekið
leigunámi. Það var 18. júní 1944,
en þá voru veitingasalir á Hótel
Borg teknir til veislufagnaðar á
lýðveldishátíðinni.
Á fréttamannafundinum í gær
kom fram að óvissa ríkir um fjöl-
marga þætti er varða skipulag
komu Reagans og Gorbatsjofs til
landsins, einkum vegna þess að
þeir sem sjá um skipulag af hálfu
risaveldanna hafa ekki getað
veitt fullnægjandi upplýsingar
um fyrirætlanir sínar. I gær hafði
enn ekki verið ákveðið hvar
leiðtogarnir munu funda. Lík-
'legast er talið að Hótel Saga verði
fyrir valinu, enda koma fáir aðrir
staðir til greina.
| „Okkur vantar mjög mikið af
upplýsingum. T.d. vitum við ekki
hvar forystumennirnir munu
búa, eða hvar þeir funda. Ég er
dálítið óánægður með að hafa
ekki fengið að vita um ýmis at-
riði,“ sagði Steingrímur í gær.
-gg
Sovétmenn
Reykjavík
falleg og
notaleg
BenediktJónsson í
Moskvu: Ekkert
fjölmiðlafár vegna
fundarins í Reykjavík
Það hefur verið haft eftir Sje-
vardnaze að Reykjavík hafi orðið
fyrir valinu m.a. vegna þess að
hún sé falleg og notaleg borg og
líklegt að þar náist einhver árang-
ur, sagði Benedikt Jónsson í ís-
lenska sendiráðinu í Moskvu i
samtali við Þjóðviljann í gær.
„Það er ekki hægt að segja að
hér hafi orðið neitt fjölmiðlafár
vegna fundarins í Reykjavík, það
er lítið um slíkt hér. Sovéskir fjöl-
miðlar gera ekki eins mikið úr
þessu og fjölmiðlar á Vestur-
löndum. Dagskrá útvarps og
sjónvarps var rofin á þriðjudag-
inn til þess að tilkynna um fund-
inn. Tass var reyndar fyrst með
fréttina. Þar sagði að ákveðið
hefði verið að tillögu Gorbatsjofs
að funda í Reykjavík og að so-
vésk stjórnvöld væru íslenskum
þakklát fyrir að ljá fundarstað-
inn,“ sagði Benedikt.
Sovéskir fjölmiðlar hafa síðan
fjallað um málið á hógværan hátt,
en enn sem komið er er umfjöllun
um ísland ekki mjög viðamikil að
sögn Benedikts. Fréttamenn frá
Moskvu eru nú að tínast til lands-
ins og þótt umfjöllun um fundar-
staðinn hafi farið hægt af stað er
ekki loku fyrir það skotið að so-
véskir bosgarar verði einhvers
fróðari um íslenska þegar fundin-
um lýkur.
-gg
Ralph og félagar hans hjá ARD og
Magma Film hafa sitt nokkum veginn
á þurru, en hvemig ætla þeir að
bjarga sér sem koma í næstu viku?
(Mynd: ÞB)
Sæmundur Kr. Guðmundsson hjá Hreyfli er einn af um 70 bílstjórum sem verða i fastri vinnu fyrir bandaríska sendiráðið.
Mynd Sig.
Leigubílar
Kaninn pantar 200
steinsson framkvæmdastjóri
Hreyfils í gær.
Rætt hefur verið um að bíl-
stjórarnir fái 9000 krónur fyrir
daginn hjá sendiráðinu banda-
ríska, en í gær lá enn ekki fyrir
ákvörðun um það. Sögurnar
segja að vinnudagur þeirra verði
allt upp í 18 stundir, en það hefur
heldur ekki verið staðfest. Þjóð-
viljanum var í gær ekki kunnugt
um hvernig Sovétmenn ætla að
útvega fylgdarliði Gorbatsjofs
farartæki. -gg.
Fréttamenn
Hálfur leigubílaflotinn verður ífastri vinnufyrir erlenda gesti.
Bandaríska sendiráðið hefur
tryggt sér afnot af hvorki fleiri né
færri en 200 leigubifreiðum í höf-
uðborginni. Þeir verða í föstu
starfi fyrir fylgdarlið bandaríkj-
aforseta og sinna engu öðru. Auk
þess hafa fjölmiðlar pantað bfla
fyrir sína menn, þannig að það er
ekki fjarri lagi að ætla að um 300
leigubflar sinni ekki öðru en er-
lendum gcstum á næstunni.
Alls eru aðeins um 640 leigu-
bflar í borginni, svo fólk má fara
að búa sig undir að erfitt verði að
ná í bfl á meðan ísland verður í
heimspressunni.
„Það hefur heldur betur verið
líf í tuskunum hjá okkur. Banda-
ríska sendiráðið pantaði hjá okk-
ur 200 bfla, en fá um 70 bfla, ann-
að fá þeir á öðrum stöðvum. Bíl-
arnir hjá okkur eru um 240 og við
getum ekki látið þá alla í fasta
vinnu, við verðum að sinna okkar
kúnnum,“ sagði Einar G. Þor-
Hörgullá ritvélum
Ralph Christians: Fréttamenn munu
lenda íýmsum erfiðleikum
Háskólinn
frestar
Vegna leiðtogafundarins hefur
„opnu húsi“ hjá Háskólanum ver-
ið frestað til 19. október.
Opna húsið er í tilefni 75 ára
afmælis skólans sem minnst verð-
ur nú um helgina og í næstu viku
átti upphaflega að vera sunnu-
daginn 12. en rekst nú á leiðtog-
afund í nágrenninu. Allar aðrar
áætlanir um hátíðarhald í skólan-
um standa óbreyttar.
Það á eftir að reynast erfitt
fyrir marga fréttamenn sem hing-
að koma að útvega sér
fullnægjandi aðstöðu og búnað
hér í Reykjavík. Við stöndum
ágætlega að vlgi þar sem ég var
staddur hér á landi þegar fréttin
kom og þekki hér tU, en margir
eiga eftir að lenda í erfiðleikum,
sagði Ralph Christians kvik-
myndagerðarmaður í samtali við
Þjóðviljann í gær.
Christians hefur starfað all
lengi hér á landi við gerð ýmiss
konar mynda, mest megnis fyrir
þýska sjónvarpið ARD, er m.a.
að vinna að fjögurra stunda þætti
um ísland, sem sýndur verður í
Þýskalandi í desember eða janú-
ar.
Þegar fréttin um leiðtogafund-
inn barst var hann ásamt starfs-
mönnum Magma Film þegar
fenginn til þess að undirbúa
komu 18 manna liðs frá ARD og
vinna síðan með því meðan á
veru leiðtoganna í Reykjavík
stendur. Síðan hefur hann staðið
í ströngu við að útvega það sem til
þarf og hefur gengið vel, en þó
rekið sig á ýmsa veggi.
„Ég hef þurft að leigja upp
mikið af tækjabúnaði, myndver,
bfla, íbúðir, ritvélar, þurft að út-
vega síma og fjarrita og margt
fleira. Þetta hefur gengið vel, en
það á eftir að koma í ljós hvort
dæmið gengur upp hjá öllum
þeim fjölda fréttamanna sem
hingað munu koma. T.d. hef ég
rekið mig á að erfitt er að fá rit-
vélar til leigu og ég er sannfærður
um að leiga á ritvélum verður
stjamfræðileg þegar mest gengur
á.
Sama sagan verður með gistir-
ými. Ég hef heyrt um fréttamenn
sem ætla að gista á Hótel Stykkis-
hólmi og fljúga daglega á milli.
Besta lausnin væri auðvitað að fá
hingað skemmtiferðaskip. En
þau verða mörg vandamálin sem
menn fá að glíma við á næstu
dögum,“ sagði Christians.
________ -gg_
Föatudagur 3. október 1986 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3