Þjóðviljinn - 03.10.1986, Side 12
ALÞÝÐUBANDALAGiÐ
Vesturland
Aðalfundur kjördæmisráðs
Aðalfundur kjördæmisráðs Alþýðubandalagsins á
Vesturlandi verðurhaldinn í Rein á Akranesi,
sunnudaginn 5. október kl. 14.00.
Dagskrá: 1) Venjuleg aðalfundarstörf.
2) Skipun í verkalýðsmálaráð Abl.
3) Umræður um þriðja stjórnsýslustigið.
Framsaga Skúli Alexandersson.
4) Önnur mál. - Stjórn kjördæmisráðs.
Alþýðubandalagið Norðurlandi vestra
Aðalfundur kjördæmisráðs
Aðalfundur kjördæmisráðsins á Norðurlandi vestra verður um næstu
helgi á Siglufirði og hefst laugardaginn 4. október kl. 14.00 í Suðurgötu 10.
Svavar Gestsson formaður Alþýðubandalagsins verður á fundinum.
Venjuleg aðalfundarstörf. Stjórnin.
Alþýðubandalagið í Vestmannaeyjum
Aðalfundur
Aðalfundur Alþýðubandalagsins í Vestmannaeyjum verður haldinn laugar-
daginn 4. október n.k. í Alþýðuhúsinu og hefst hann kl. 13.30.
Dagskrá: 1) Venjuleg aðalfundarstörf. Mætum öll. Stjórnin
Fundir á Austurlandi
Stöðvarfjörður - Aðalfundur
Alþýðubandalagið Stöðvarfirði boðar til aðalfundar í Samkomuhúsinu
föstudaginn 3. október kl. 20.30. Dagskrá: 1) Aðalfundarstörf. 2) Kjör
fulltrúa á aðalfund kjördæmisráðs. 3) Alþingismennirnir Helgi Seljan og
Hjörleifur Guttormsson sitja fyrir svörum. 4) Önnur mál. - Stjórnin.
Árnessýsla
Aðalfundur
Aðalfundur Alþýðuubandalagsins í uppsveitum Árnessýslu verður haldinn í
Aratungu nk. föstudag 3. október kl. 21.00.
Dagskrá: 1) Venjuleg aðalfundarstörf. 2) Kosning fulltrúa á aðalfund kjör-
dæmisráðs á Suðurlandi. 3) önnur mál. - Stjórnin.
Alþýðubandalagið
Sauðárkróki
Almennur fundur
Almennur stjórnmálafundur
verður haldinn á Sauðárkróki
föstudaginn 3. október kl.
20.30 í Villa Nova.
Svavar Gestsson og Ragnar
Arnalds verða á fundinum.
Fundurinn er öllum opinn.
Alþýðubandalaglð.
Alþýðubandalagið í Hafnarfirði
Aðalfundur
Alþýðubandalagið í Hafnarfirði boðar til aðalfundar fimmtudaginn 9. októ-
ber kl. 20.30 á Skálanum, Strandgötu 41.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf
2. Breytingar á reglum bæjarmálaráðs
3. Stjórnmálaviðhorfið, kosningar og þingsetning. Framsaga: Geir Gunn-
arsson
4. Önnur mál. Stjórnin
Alþýðubandalagið Siglufirði
Almennur fundur
Almennur stjórnmálafundur verður haldinn í Alþýðuhúsinu á Siglufirði nk.
laugardag 4. október og hefst kl. 16.30.
Svavar Gestsson og Ragnar Arnalds verða á fundinum. Fundurinn er
öllum opinn. Alþýðubandalagið
Suðurland
Aðalfundur Kjördæmisráðs
Aðalfundur kjördæmisráðs AB á Suðurlandi verður haldinn í Ölfusborgum
dagana 11.-12. október. Aðalmál fundarins, aðalfundarstörf, forvalsreglur,
forvalsdagar, önnur mál. Gestur fundarins verður Svavar Gestsson.
Matur og gisting á staðnum, svo tilkynna þarf þátttöku í tíma, vegna undir-
búnings. Stjórn kjördæmisráðs
ÆSKULÝÐSFYLKINGIN
Dagskrá landsþings ÆFAB
3. - 5. okt. 1986 í Olfusborgum
Föstudagur 3. okt.:
20.00 Setning Kristín Ólafsdóttir. 20.20 Skýrslur fluttar, umræður: a) fram-
kvæmdaráðs, b) gjaldkera, c) deilda, d) Utanríkismálanefndar, e) Verka-
lýðsmálanefndar, f) Birtis. 23.00 Lagabreytingar og hópvinna kynnt. 23.30
Hlé.
Laugardagur 4. okt.:
9.00 Lagabreytingar, fyrri umræða. 10.00 Hópavinna: a) unnið að þingmál-
um, b) Almenn stjórnmálaályktun, c) lagabreytingar. 12.00 Matur. 13.00
Nýjar aðferðir í baráttunni gegn vígbúnaðarkapphlaupinu og efnahag-
skreppunni í heiminum, framsaga: Olafur Ragnar Grímsson.
14.45 hlé.
15.00 Verkalýðshreyfingin og viðfangsefni hennar á komandi vetri, fram-
saga: Ásmundur Stefánsson.
16.45 hlé.
17.00 Hópavinnu framhaldið. 20.00 matur. 21.30 kvöldbæn.
Sunnudagur 5. okt.:
9.00 Lagabreytingar seinni umræða. 10.00 Hópavinna, niðurstöður. 12.00
Matur. 13.00 Kosningar framundan og Alþýðubandalagið, framsaga:
Svavar Gestsson. 14.45 hlé. 15.00 Kosningar. 16.30 Þingslit.
Þingið er opið öllum ÆF-félögum. Þátttökugjald er 1.500 kr., innifalin ein
heit máltíð á laugardagskvöldinu. Félagar sem greiða þurfa háan ferða-
kostnað utan af landi fá V2 fargjaldið greitt.
Skráið ykkur sem allra fyrst, vegna takmarkaðs fjölda svefnplássa. Nánari
upplýsingar færð þú hjá Önnu á skrifstof unni í síma 17500. - Framkvæmd-
aráð ÆFAB.
Svavar Ragnar
SKÚMUR
GARPURINN
í BUDU OG STRÍÐU
Þetta er sigur fyrir konur!
Þetta staðfestir að það sem
konur hafa að segja er
mikilvægt!
Núna, meira en nokkru
sinni fyrr, sönnum við
fyrir karlmönnum að við
erum jafningjar þeirra!
TÍ
KROSSGÁTA
Nr. 4
Lárétt: 1 fjas 4 fíkniefni 6 ellegar
7 rumur 9 könnun 12 reiðmaður
14 mánuður 15 kúst 16 kvabbi 19
tár 20 vanþóknun 21 út
Lóðrétt: 2 forfaðir 3 hægfara 4
lán 5 barði 8 hvassi 10 hækkaður
11 truflaði 13 orka 17 stök 18 fugl
Lausn á síðustu krossgátu:
Lárétt: 1 æska 4 glöð 6 tól 7 rist 9
ósar 12 kisan 14 ger 15 asi 16
æstur 19 arfa 20 niða 21 Agnar
Lóðrétt: 2 sói 3 atti 4 glóa 5 öra 7
reglan 8 skræfa 10 snarir 11
reiðan 13 sat 17 sag 18 una
12 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 3. október 1986