Þjóðviljinn - 03.10.1986, Blaðsíða 15
Handbolti
ÍÞRÓTTIR
Stjaman líklegust
Mikil pressa á okkur, segir Páll Björgvinsson þjálfari
„Það verður erfitt að standa
undir svona pressu, bæði fyrir
mig og leikmennina. Þetta er svo-
lítið lúmskt, ég er hræddur um að
ég verði að vera búinn að berja
þetta úr mínum mönnum fyrir
fyrsta leikinn á miðvikudaginn,“
sagði Páll Björgvinsson, þjálfari
Stjörnunnar, í samtali við Þjóð-
viljann, eftir að Stjarnan hafði
sigrað með yfirburðum í skoð-
anakönnun þjálfara og fyrirliða
1. deildarinnar í handknattleik í
fyrradag.
Stjarnan er sigurstranglegasta
lið 1. deildar ef marka má könn-
unina. Garðabæjarliðið fékk 253
stig af 260 mögulegum en annars
varð niðurstaðan þessi:
1. Stjarnan.................253
2. Valur....................229
3. FH.......................197
4. KR.......................185
5. Víkingur.................182
6. Fram.....................143
7. Breiðablik...............114
8. KA.......................108
9. Haukar....................82
lO.Ármann....................69
Undanfarin þrjú ár hafa
knattspyrnumenn gert slíkar
skoðanakannanir í upphafi
keppnistímabils og spár þeirra
um meistara hafa alltaf komið
fram. „Ég vona svo sannarlega að
það gildi um handboltann líka,“
sagði Páll. Lið Hauka og Ár-
manns geta huggað sig við að
knattspyrnumönnunum hefur
gengið öllu verr að spá um hverjir
falli í 2. deild.
-VS
Evrópukeppnin
Sigumiark Katowice
á síöustu stundu
Framarar vörðust vel en skoruðu ekkifrekar
en hin íslensku liðin
GKS Katowice sigraði Fram 1-
0 í síðari leik liðanna í Evrópu-
keppni bikarhafa í knattspyrnu
sem fram fór í kolaborginni Kat-
owice í Póllandi í gær.
Framarar vörðust vel og léku
skynsamlega og allt stefndi í jafn-
tefli en átta mínútum fyrir leiks-
lok tókst Marek Koniarek, fram-
herjanum eldfljóta sem skoraði 2
mörk í fyrri leik liðanna, að skora
sigurmark Katowice.
Katowice sigraði því 4-0
samanlagt og leikur í 2. umferð.
íslensku félagsliðin náðu því ekki
að skora mark í Evrópuleikjun-
um í ár, og fengu á sig 30 í sex
leikjum. Aðeins einu sinni áður,
árið 1970, hefur útkoman verið
verri og það hefur aðeins einu
sinni fyrr gerst, árið 1972, að ekki
eitt einasta mark hafi verið
skorað. Félögin hafa þó til máls-
bóta að sjaldan hafa andstæðing-
arnir verið sterkari en einmitt í
ár. -VS
Unglingalandsleikur
Leikið við
Austur-Þjóðverja
A Laugardalsvellinum á morgun
Unglingalandslið íslands og
Austur-Þýskalands í knatt-
spyrnu, skipuð leikmönnum 16
ára og yngri, leika fyrri leik sinn í
Knattspyrna
Guðmundur
í Hannover
Guðmundur Torfason, marka-
kóngur úr Fram, fer frá Póllandi
til Hannover í Vestur-Þýskalandi
til að kanna aðstæður hjá Hanno-
ver 96, efsta liðinu í 2. deild þar í
landi. Með honum fer umboðs-
maðurinn Willi Reinke sem hefur
komið mörgum íslenskum knatt -
spyrnumönnum í atvinnu-
mennsku.
-VS
Evrópukeppninni á Laugardals-
vellinum á morgun, laugardag,
kl. 14.
Lárus Loftsson þjálfari valdi
eftirtalda 16 leikmenn:
Markverðir:
Kristján Finnbogason, KR
Þorsteinn Þorsteinsson, Þrótti
Aðrir leikmenn:
Arnar Grétarsson, Breiðabliki
Árni Halldórsson, lA
Árni Kvaran, Stjörnunni
Axel Vatnsdal, Þór A.
Guðbjartur Auðunsson, Fram
Gunnar Andrósson, Fram
Gunnar Másson, Val
Halldór Kristinsson, KA
Haraldur Ingólfsson, lA
Haukur Pálmason, Fram
Ingólfur Ingólfsson, Stjörnunni
Jóhannes Jónsson, Víkingi
Jörundur Sveinsson, Stjörnunni
Sigurður Bjarnason, Stjörnunni
Aðgangur verður ókeypis og er
barna- og framhaldsskólanem-
endum sérstaklega boðið á
leikinn.
Valsmenn
Fyrri
í kvöld
Valsmenn leika í kvöld fyrri
leik sinn við Urædd frá Noregi í
IHF-kcppninni í handknattleik.
Leikið verður á heimavelli
Urædd í Porsgrunn, skammt frá
Osló, og síðari leikur félaganna
fer einnig fram þar, á morgun.
Urædd hefur verið í hópi bestu
liða Noregs undanfarin ár og er
nánast ósigrandi á heimavelli sín-
um þannig að Valsmenn eiga erf-
iða lciki fyrir höndum.
-VS
Valur Ingimundarson hefur
titilvörnina í kvöld, nú sem þjálfari
UMFN auk þess að leika með liðinu.
1
Qunnar Þorvarðarson og Einar Bollason fagna sigrinum í C-keppninni
sl. vor. Nú bíða þeirra mörg og stór verkefni næstu þrjú árin.
Körfubolti
Einar og Gunnar
ráðnir til 1989
Stefntað um 100 leikjum nœstuþrjú árin
Einar Bollason og Gunnar Þor-
varðarson skrifuðu í gær undir
nýjan þriggja ára samning við
Körfuknattleikssamband ís-
lands, um þjáifun A-landsliðs ís-
lands. Þeir munu stjórna liðinu
framyfir Norðurlandamótið vor-
ið 1989 og ætla að bæta við þrem-
ur mánuðum, launalaust, ef Is-
land kemst í úrslit Evrópukeppn-
innar þá um sumarið.
Einar og Gunnar hafa náð góð-
um árangri með íslenska landslið-
ið og skemmst er að minnast Evr-
ópukeppninnar sl. vetur. Þá vann
ísland C-keppina hér á landi og
stóð sig með prýði í frumraun
sinni í B-keppninni.
Áætlað er að landsliðið leiki
nálægt 100 leikjum á þessum
þremur árum og taki þátt í 12-15
mótum, heima og erlendis. Með-
al verkefna eru Polar Cup, Ól-
ympíuleikar smáþjóða í Mónakó,
Evrópukeppni og Bandaríkja-
ferð á árinu 1987, undankeppni
Ólympíuleikanna 1988 auk Polar
Cup 1989. Þá er stefnt að ferð til
ísraels næsta haust og Asíuferð í
október 1988, auk fleiri verk-
efna.
-VS
Körfubolti
UMFNogKR
leika í kvökl
Valur og UMFN sigurstranglegust
Keppni í úrvalsdeildinni í
körfuknattleik hefst í kvöld með
leik íslands- og Reykjanesmeist-
ara UMFN og Reykjavíkurmeist-
ara KR. Leikið verður í Njarðvík
kl. 20.
Hinir tveir leikirnir í fyrstu um-
ferð fara fram á sunnudaginn.
Haukar og Fram leika í Hafnar-
firði kl. 14 og Valur mætir ÍBK í
Seljaskólanum kl. 20.
Þjálfarar úrvalsdeildarliðanna
spáðu í spilin í gær og á þeim var
að skilja að Valur og UMFN
myndu berjast um íslands-
meistaratitilinn. ÍBK, KR og
Haukar yrðu í slagnum um hin
tvö sætin í úrslitakeppninni en
Framarar ættu mjög erfiðan vet-
ur framundan.
Jon West, Bandaríkjamaður-
inn sem nú þjálfar Val, sagði að
geta íslenskra körfuknattleiks-
manna hefði komið sér á óvart og
greinilegt væri að miklar framfar-
ir hefðu orðið í íþróttinni hér á
landi undanfarin ár.
-VS
Knattspyrna
Maradona mis-
tekst líka!
Víti í stöng og Napoli féll
Diego Maradona, argentínski
knattspyrnusnillingurinn, skaut í
stöng úr vítaspyrnu í fyrrakvöld
og það kostaði lið hans, Napoli
frá Italíu, sæti í 2. umferð UEFA-
bikarsins.
Napoli lék við Toulouse í
Frakklandi og hafði unnið fyrri
leikinn 1-0. Að lokinni framleng-
ingu í fyrrakvöld stóð 1-0 fyrir
Toulouse og liðin því jöfn, 1-1.
Gripið var til vítaspyrnukeppni
og Maradona tók síðustu spyrnu
Napoli- og skaut í stöngina. Evr-
ópudraumur Napoli fékk þar
með skjótari endi en vonir stóðu
Handbolti
Umferð á miðvikudaginn
Keppni í 2. og 3. deild hefst í kvöld
Keppni í 1. deild karla í hand-
knattleik hefst á miðvikudaginn
kemur. Þá verður leikin heil um-
ferð, fimm leikir, en í vetur leika í
fyrsta sinn 10 lið í 1. deild.
Leikirnir eru þessir:
Stjarnan-Ármann
Haukar-Valur
Víkingur-KR
Fram-KA
Breiðablik-FH
Þrjár fyrstu umferðirnar verða
leiknar í' þessum mánuði. Þá
kemur þriggja vikna hlé vegna
landsliðsferðar en keppni hefst á
ný þann 12. nóvember og leiknar
sex umferðir til viðbótar á þessu
ári. í janúar verða leiknar um-
ferðir 10 til 12, þá verður fimm
vikna hlé, til 20. febrúar, en síð-
ustu sex umferðirnar verða
leiknar frá þeim tíma til 5. apríl
þegar mótinu lýkur.
Keppni í 2. og 3. deild karla
hefst í kvöld. í 2. deild mætast
Afturelding-ÍBK, Grótta-ÍR og
í A-HK en á morgun leika ÍBV og
Reynir. Leikur Fylkis og Þórs A.
sem tilheyrir fyrstu umferð verð-
ur leikinn síðar. í 3. deild mætast
ÍS og Völsungar í kvöld en Völs-
ungar leika síðan við UMFN í
Njarðvík á morgun.
Fyrstu leikirnir í 1. deild
kvenna verða á morgun, laugar-
dag. Þar mætast Valur-KR,
Fram-Stjarnan og FH-Víkingur.
Fjórði leikur 1. umferðar,
Ármann-ÍBV, fer fram síðar í
mánuðinum. Fyrsti leikur 2.
deildar kvenna er í kvöld, milli
Breiðabliks og ÍBK. -VS
Föstpdagur 3. október 1986 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 15