Þjóðviljinn - 10.10.1986, Side 15

Þjóðviljinn - 10.10.1986, Side 15
ÍÞRÓTTIR Spánn Stórmeistarajafn- tefti í Madrid Real Madrid og Barcelona gerðu stórmeistarajafntefli, 1-1, í spænsku 1. deildinni í knatt- spyrnu í fyrrakvöld. Stuðnings- menn beggja liða voru óhressir með sína menn og margir hinna 110 þúsund áhorfenda hentu sess- um sínum inná vöilinn þegar flautað var af til að láta vanþókn- un sína í Ijós. Angel Pedraza kom Barcelona yfir strax á 6. mínútu eftir mikil mistök hjá Iandsliðsmanninum Ricardo Gallego í vörn Real en Hugo Sanchez náði að jafna fyrir Real úr tvítekinni vítaspyrnu á 29. mín. eftir að Emilio Butragu- eno hafði verið felldur. Staða efstu liða á Spáni: Barcelona...........8 4 4 0 13-5 12 Real Madrid.........8 4 3 1 17-9 11 Atl.Madrid..........8 4 3 1 12-7 11 Espanol.............8 3 4 1 12-8 10 Sp.Gijon............8 4 2 2 13-9 10 Valladolid..........8 4 2 2 9-8 10 -VS/Reuter Wieder Punktfiir <<Zwerg» Island Der frúhere BRD-lntema-| tionale «Siggi» Held sorgte als I islándischer Nationalcoach I fúr den zweiten EM-Streich: 14 Tage nach dem 0:0 gegen Frankreich trotzte der Fuss- ball-«Zwerg» auch der Sowjet-1 union einen Punkt ab - 1:1 in | Reykjavik. Vor 7000 Zuschauem boten I die Islánder eine taktische I Meisterleistung. Beide Tore fielen in der ersten Halbzeit: Lutonmálið Afangasigur llsland - UdSSR Enska knattspyrnusambandið heimilaði í fyrradag 1. deildarlið- inu Luton Town að banna stuðn- ingsmönnum aðkomuliða aðgang að veUi sínum í leikjum FA- bikarsins, ensku bikarkeppninn- ar. En jafnframt verður liðum sem fá hugsanlega heimaleiki við Luton í keppninni heimilt að úti- loka stuðningsmenn Luton frá þeim leikjum. Luton var sem kunnugt er vís- að úr deildabikarnum fyrir að meina stuðningsmönnum að- komuliða aðgang en í 1. deild má félagið hafa þennan hátt á til vor- sins. Luton er greinilega að ná undirtökum í málinu, stuðningur við aðgerðir félagsins er mikill og með þeim hefur því tekist alger- lega að koma í veg fyrir óeirðir á heimaleikjum sínum það sem af er þessu keppnistímabili. -VS/Reuter Tottenham Claesen og Ar- diles á Anfield Fyrsti leikur hjá báðum Tvær stjörnur, önnur ný en hin gömul, leika væntanlega í fyrsta skipti með Tottenham á þessu keppnistímabili þegar liðið sækir Liverpool heim á Anfleld í 1. deilc’ -*-r' Staðan í 1. deild kvenna í handknattleik eftir leikina í fyrrakvöld: Fram................2 2 0 FH..................2 1 Valur...............2 1 Stjarnan............2 1 Víkingur............2 1 KR..................2 1 ÍBV.................1 0 Ármann...........1 0 0 39-33 4 1 51-24 2 1 41-34 2 1 40-38 2 1 34-34 2 1 35-39 2 1 15-23 0 1 10-40 0 Markahæstar: Sigurbjörg Sigþórsdóttir, KR..........16 GuðríðurGuðjónsdóttir, Fram...........14 Erla Raf nsdóttir, Stjörnunni.........13 í vetur verður leikin þreföld um- ferð í deildinni, þ.e. 21 leikur á lið. ensku knattspyrnunnar á morg- un. Nico Claesen, markakóngur Belgíu í heimsmeistarakeppninni í Mexíkó, leikur sinn fyrsta leik eftir að hafa verið keyptur frá Standard Liege fyrir 600 þúsund pund. Argentínumaðurinn Ossie Ardiles leikur einnig að öllum líkindum með - hann er að ná sér á strik á ný eftir að ferli hans virt- ist lokið í fyrravor vegna þrálátra meiðsla. -VS/Reuter Gudjohnsson erzielte schonl nach 13 Minuten das 1:0, Se-j kunden vor dem Pausenpfiff | glich Sulakwelidse aus. Mit zwei Punkten aus zwei I Spielen fúhrt Island nun so- gar die Rangliste der Gruppe 3 an vor der Sowjetunion und I Frankreich, die am 11. Oktober | in Paris aufeinandertreffen. Reykjavik. - 7000 Zuschauer. Island: Sigurdsson; Gislason, Sae. I Jonsson, M. Jonsson; EdvaldssonJ Torfason, Margeirsson, Sig. Jons-I son, Sigurvinsson; Gudjohnsson,| Petursson. Sowjetunlon: Dassajew; Sulakwe-I lidse; Larianow (80. Utowtschenko),| Kusnetzow, Demianenko; Besso-I now, Rats, Alejnikow, Kidjatulin (46.\ Rodionow); Zawarow, Blochin. Tore: 13. Gudjohnsson 1:0, 45. Su-| lakwelidse 1:1. Bemerkungen: Island mit sechsl Auslandprofi: Edvaldsson (Uerdin-1 gen), Torfason (Luzem), Sig. Jons-j son (Sheffield Wednesday), Sigur-f vinsson (Stuttgart), Gudjohnssonl (Anderlecht) und Petursson (Alican-f te). Úrklippan úr Sport þar sem fjallað er um leikinn við Sovétmenn. Island-Sovétríkin „Dvergurínn kom aftur á óvart“ „íslenski knattspyrnudvergur- inn kom öðru sinni á óvart á 14 dögum - eftir 0-0 jafnteflið við Frakkland kom 1-1 jafntefli við Sovétríkin í Reykjavík. Annað „Evrópusjokkið“ hjá hinum fyrrum vestur-þýska landsliðs- manni sem nú er landsliðsþjálfari íslands, „Siggi“ Held,“ sagði svissneska íþróttablaðið Sport fyrir stuttu. í greininni um leikinn segir ennfremur að frammi fyrir 7000 áhorfendum hafi íslenska liðið útfært leikinn á meistaralegan hátt og það sé nú í efsta sæti 3. riðils Evrópukeppnínnar. I lokin eru atvinnumenn íslands sérstak- lega taldir upp en ekki alveg farið rétt með. Þeir eru sagðir hafa ver- ið sex í stað átta og Pétur Péturs- son er talinn með þeim, sem leik- maður Hercules, en þeim Ragn- ari Margeirssyni, Bjarna Sigurðs- syni og Sævari Jónssyni er sleppt. Kannski skiljanlegt þar sem þeir leika í 2. deild í Belgíu og Noregi. -VS Handbolti Löggur Stjöm- unnar fá ekki frí! Ossie Ardiles virðist enn ekki vera búinn að segja sitt síðasta orð í ensku knattspyrnunni. Körfubolti Fimm er frestað Stórveldafundurinn hefur slæm áhrif á íslandsmótið í körfu- knattleik um helgina því hans vegna þarf að fresta fimm leikjum, þar af tveimur í úrvals- deildinni. Fram-Valur og KR- ÍBK áttu að leika í Hagaskólan- um, sem nú er undirlagður sem miðstöð fréttamanna. Eini leikur helgarinnar í úrvalsdeildinni fer fram í kvöld - íslandsmeistarar UMFN fá bikarmeistara Hauka í heimsókn til Njarðvíkur og hefst viðureignin kl. 20. Leik Breiðabliks og Stjörnunn- ar í 1. deild karla í handknattleik sem fram átti að fara á morgun, laugardag, hefur verið frestað. Ástæðan er sú að í liði Stjörnunn- ar eru þrír lögreglumenn, Gylfi Birgisson, Hannes Leifsson og Jónas Þorgeirsson, og þeir fá ekki frí frá störfum vegna leiðtoga- fundarins fræga. Annars verður allt með eðh- legum hætti í handboltanum um helgina. í 1. deild karla leika Val- ur og Víkingur í Laugardalshöll- inni kl. 14 á morgun og á sama tíma mætast FH og KA í Hafnar- firði. Loks leika Ármann og Haukar í Höllinni kl. 14 á sunnu- daginn. II. deildkvennaleikaFramog ÍB V í Höllinni á morgun kl. 15.15 og á sama tíma á sunnudag leika á sama stað Ármann og ÍBV. Loks mætast Valur og FH í Höllinni kl. 21.15 á sunnudagskvöldið. -VS Gylfi Bírgisson, stórskyttan úr Stjörnunni, hefur gætur á Reagan og Gorbachev í stað leikmanna Breiða- bliks. Sviss Læti í Luzem! Luzern er að ná sér á strik í 1. deildinni í Sviss eftir slæma byrjun í haust. í fyrrakvöld vann liðið 5-1 sigur á Vevey og hefur því gert 11 mörk í síð- ustu tveimur leikjunum. Ómar Torfason lék með Luz- ern en náði ekki að skora, en hann gerði sem kunnugt er 3 mörk í síðasta leik liðsins. Luzern skaust upp um fjögur sæti við sigurinn, úr 13. í 9. sæti. Tíu lið af 16 halda örugglega sæti sínu í deildinni þar sem fækkað verður í 12 fyrir næsta keppnistímabil. Luzern er með 9 stig eftir 10 umferðir en efst eru Neuchat- el og Grasshoppers með 16 stig og Sion með 15. -VS/Reuter Michael Laudrup er einn af mörg- um á sjúkralistanum. Juventus England á Grikkjum ítalir unnu sannfærandi sigur á Grikkjum, 2-0, í vin- áttulandsleik í knattspyrnu sem háður var í Bologna í fyrrakvöld. Giuseppe Berg- omi skoraði bæði mörkin með hörkuskotum. Enginn leikmaður frá Juventus lék með mikið breyttu liði ítala og er það sennilega einsdæmi í knattspyrnusögu landsins. Að- eins einn „gömlu" mannanna úr HM-liðinu frá 1982 lék með, Sandro Altobelli. -VS/Reuter Everton mætir S Sheffield Wed. Nokkrir athyglisverðir í 3. umferð Mikið um meiðsli Juventus, ítölsku meistararnir sem löbbuðu yfir Val í 1. umferð Evrópu- keppni meistaraliða á dögunum hafa enn ekki fengið ó sig mark á þessu keppnistímabili. En horfurnar fyrir leik gegn Fiorentina á útivelli á sunnu- daginn eru ekki góðar því útlit er fyrir að margar stjörnur verði fjarverandi. Michel Platini leikur með franska landsiiðinu gegn Sovétmönnum kvöldið áður og er ekki spenntur fyrir því að spila tvisvar á sama sólarhring- num. Michael Laudrup er tognaður í nára, sem og Gaetano Scirea, og þeir Antonio Cabrini og Massimo Bonini eru einnig meiddir. Juventus hefur eins stigs forystu í 1. deild en Napoli og Como bíða þess nú að risinn mis- stígi sig og eru tilbúin að skjótast á toppinn. -VS/Reuter Karate Stórleikurinn! 3. umferð enska deildabikarsins í knattspyrnu verður án efa viðureign Everton og Sheffield Wednesday á Goodi- son Park í Liverpool. Dregið var til umferðarinnar í gær en hún verður leikin 27.-29. október. Þessi lið mætast: Arsenal-Manch.City Bradford City-Portsmouth Cambridge-lpswich Cardiff-Chelsea Charlton-Q.P.R. Coventry-Oldham Cr. Palace-Nottm. Forest Derby County-Aston Villa Everton-Sheff.Wed. Liverpooi-Leicester Manch.Utd-Southampton Norwich-Walsall/Millwall Oxford-Sheff.United Shrewsbury-Hull Tottenham-Birmingham Watford-West Ham Þarna eru fleiri áhugaverðir leikir svo sem viðureignir ná- grannaliðanna Watford og West Ham og Charlton-QPR. Man.Utd-Southampton lofar einnig góðu, sem og leikur efstu liða 1. og 2. deildar, Crystal Pal- ace og Nottingham Forest. -VS/Reuter Æfingabúðir í Digranesi Karatesamband íslands heldur æf- ingabúðir í íþróttahúsinu Digranesi í Kópavogi um helgina og hefjast þær kl. 20.30 íkvöld. Þæreruopnaröllum karateiðkendum sem hafa náð 9. kyu og eru haldnar til styrktar landslið- inu. Leiðbeinandi verður Atli Er- lendsson landsliðsþjálfari. Kennt verður í kvöld kl. 20.30-22.00 og á morgun kl. 11-12 og 17-19. Föstudagur 10. október 1986 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 15

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.