Þjóðviljinn - 10.10.1986, Blaðsíða 16
MðÐHUiNN iriftJttrJHnrjrjrMjifrAR
1936-1986 ÞJÓÐVIUINN 5Q ÁRA
Fðstudagur 10. oklóber 1986 230. tðlublað 51. ðrganour
Aðalsími: 681333. Kvöldsími: 681348. Helgarsími: 681663:
Hlýðni
Veitinga-
húsin tóm
Ólga meðal
veitingamanna.
Útlendingar koma ekki
og landinn situr heima.
Daufthjá
leigubílsstjórum. Bjórí
Bolette!
Við höfum enn ekki fengið
fulinægjandi skýringar á því
hver sendi frá sér þá fréttatil-
kynningu þar sem inælst var til
þess að borgarbúar og aðrir ís-
lendingar færu sem minnst á
veitingastaði næstu daga vegna
leiðtogafundarins. Þessi tilkynn-
ing kom í fjölmiðlum i byrjun vik-
unnar og staðreyndin er sú að
veitingahúsin hafa verið hálftóm
síðan, sagði Erna Hauksdóttir
framkvæmdastjóri sambands
veitinga- og gistihúsa í samtali við
Þjóðviljann.
Mikillar gremju gætir meðal
veitingamanna vegna þessa, því
erlendir aðilar sem hér eru stadd-
ir vegna leiðtogafundarins hafa
ekki fyllt upp í auð sæti íslend-
inga á veitingahúsunum. Eins
þykir það tíðindum sæta, að fáir
hafa enn sem komið er sótt
veitingasali um borð í norska
skemmtiferðaskipinu Bolette
sem liggur við Faxagarð, en þjón-
ustan þar er opin öllum almenn-
ingi og m.a. bjór til sölu.
Auk þess eru margir leigubíl-
stjórar sem ekki eru í þjónustu
stjórveldanna gramir, vegna þess
að lítið hefur verið að gera, þar
sem almenningi heíur verið talin
trú um að vonlaust sé að fá leigu-
bfla þessa dagana. Staðreyndin
mun hins vegar vera önnur og
hefur lítið verið að gera í leigu-
bflaakstri undanfarna daga.
Löggan
Ber út
Þjóðviljann
Ingibjörg Valdimarsdóttir sem
ber út Þjóðviljann á Laufásveg og
víðar um Þingholtin fær óvænta
aðstoð við blaðburðinn nú um
helgina, - lögreglan ætlar nefni-
lega að bera út blöðin í húsin
kringum bandaríska sendiráðið,
dvalarstað Reagans forseta f
heimsókninni.
I kringum sendiráðið er öllu
lokað og fær þangað enginn að
koma nema fbúar og Reagan-
menn. En Þjóðviljinn kemst
engu að síður til sinna manna, og
vonandi líka til Ronalds Reagans
þótt hann sé ekki enn kominn á
sívaxandi áskrifendalista.
-m
Lœkjartorg
Gjörningur
Cheo Cruz Ulloa, kólumbískur
listamaður, fremur í dag klukkan
16.30 gjörning á Lækjartorgi, og
heitir hann ,,Encuentro“ sem
þýðir fundur.
Með gjörningnum vill lista-
maðurinn túlka afstöðu sína til
atburða líðandi stundar, einkum
nú þegar lífi á jörðinni er meiri
hætta búin en nokkru sinni.
“Annað hvort gengur þetta, eða gengur þetta ekki“ sagði Páll Magnússon rétt áður en hann átti að fara í loftið í gær.
Förðunarkonan Anna María býr Pál undir ferðina
Allt í hnút
á Stöð 2
Fyrsta útsending Stöðvar 2 trufluð afhljóðbilunum. ístað
beinnar útsendingar afReagan var gamanmynd þarsem hann
kom við sögu. Páll: Töpuðufyrstu lotu
1
Sovéskir útlagar
í Reykjavík
Halda á lofti
mannréttinda-
kröfum
Meðal þeirra sem komnir eru
tU landsins til að vckja athygli á
málstað sínum meðan
heimspressan stendur hér við eru
þrír sovéskir útlagar, sem hafa
heima fyrir sem erlendis barist
gegn mannréttindabrotum í landi
sínu - Ljúdmfla Alexéeva sagn-
fræðingur, Alexander Goldfarb
líffræðingur og Alexander Slepak
læknir.
Þau hafa í hyggju að efna til
blaðamannafundar hér í borg á
morgun og taka þá dæmi af til-
teknum málum. Alexéeva ber
m.a. fyrir brjósti mál Anatólí
Martsjenko sem hefur setið alls
um 20 ár í sovéskum fangelsum
og fleiri samviskufangar koma
við sögu. Þeir Goldfarb og Slep-
ak berjast m.a. fyrir því að feður
þeirra fái að fara úr landi, en
Slepak eldri mun sá sovéskur
gyðingur sem lengst hefur verið
neitað um leyfi til að fara úr
landi.
Alexéeva telur, að þótt á und-
anförnum mánuðum hafi ýmsar
jákvæðar breytingar orðið í Sov-
étríkjunum, þá sé hlutskipti
andófsmanna og samviskufanga
síst betra en áður.
Við erum furðuróleg. Annað
hvort gengur þetta, eða
gengur þetta ekki, sagði Páll
Magnússon fréttastjóri Stöðvar 2
rétt áður en fyrsta útsending
stöðvarinnar átti að hefjast í gær.
Og ýmislegt fór öðruvísi en ætl-
að var. Dagskráin hófst nokkrum
mínútum eftir áætlun með ávarpi
sjónvarpsstjóra, Jón Óttars
Ragnarssonar, en útsendingin
var án hljóðs. Því var þó, að
þessu sinni, snarlega kippt í lag
og Jón fékk að ljúka ávarpi sínu á
meðan Reagan kom til Keflavík-
ur. Til þess að bæta áhorfendum
upp missinn, bauð stöðin uppá
breskan gamanþátt þar sem Re-
agan kom rækilega við sögu sem
skopfígúra. Eftir að gamanþætti-
num lauk, tóku hljóðbilanir við á
ný og sátu áhorfendur fyrir fram-
an Seiko-klukkumynd á skjánum
næsta hálftímann, eða þar til
auglýsingar fóru í loftið. Um-
ræðuþáttur var sendur út um leið-
togafimdinn, og að honum lokn-
um kom Páll Magnússon á skjá-
inn og sagði Stöðvarmenn hafa
tapað fyrstu lotu, - en fall væri
fararheill.
Að sögn tæknimanns á Stöð 2,
var ástæðan fyrir röskuninni, bil-
un í hljóðtækjum. -K.Ól.
SLSC
Gúmmílistar - segulkantar
á hurðir, sniðnir eftir máli, á allar
gerðir fsskápa.
PÁLL STEFÁNSSON
umboðs- & heildversluu
Blikahóium 12, 111 Reykjavík, sími i9it/2530
|Hjármögnunarfelagið Lýsing hf.
j , óskar að ráða
ramkvæmdastjóra
F
jármögnunarfélagiö Lýsing hf. óskar aö ráöa
FRAMKVÆMDASTJÓRA. Starfið krefst víðtækrar viðskipta-
fræöimenntunar og starfsreynslu. Við leitum að einstaklingi,
sem tilbúinn er að taka að sér krefjandi starf í nýju fyrirtæki
með öfluga bakhjarla.
L
ýsing hf. er alíslenskt hlutafélag í eigu
Búnaðarbanka Islands, Landsbanka íslands, Brunabóta-
félags íslands, Sjóvátryggingarfélags íslands hf. og Líftrygg-
ingarfélags Sjóvá hf. Félagið mun m.a. annast fjármögnunar-
leigu og er ætlað að tryggja að forysta hérlendis á þessu
sviði verði í íslenskum höndum. í stjórn Lýsingar hf. eru:
Helgi Bergs, Jón Adolf Guðjónsson, Ingi R. Helgason, Einar
Sveinsson, Sólon Sigurðsson og Brynjólfur Helgason.
U
'msóknum um starf framkvæmdastjóra,
ásamt upplýsingum um starfsferil og menntun skal senda
stjórn félagsins í pósthólf 57, 121 Reykjavík fyrir 24. október
n.k. Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál og
þeim svarað.