Þjóðviljinn - 12.10.1986, Qupperneq 5
Velheppnuð
hátíð
Nóbelsskáldinu var að sjálf-
sögðu boðið á Háskólahátíð-
ina um síðustu helgi. Á eftir
var hann spurður hvernig
honum hefði líkað, og Halldór
sagðist vera afskaplega
lukkulegur, - ég heyrði eigin-
lega ekki neitt. ■
Glannaleg
Sólveig
Auk Maríu E. Ingvadóttur
formanns Hvatar er líklegt að
Sólveig Pétursdóttir, 33 ára
lögfræðingur, kunni að ná
góðum árangri í prófkjöri
íhaldsins í Reykjavík. Margt
bendir þó til að hún hafi ekki
náð því flugi í byrjun lotunnar
sem er nauðsynleg fyrir til-
tölulega lítt þekktan kandídat.
Sólveig er hins vegar með
ættartengslin í góðu lagi. Hún
er dóttir Péturs Hannes-
sonar, sem var formaður Óð-
ins, félags Sjálfstæðismanna
í verkalýðshreyfingunni. Pét-
ur vinnur hjá Vélamiðstöð
borgarinnar, og hefur góð
sambönd um flokkinn í gegn-
um starfið og formennsku
sína fyrrum hjá Óðni, þau
munu væntanlega nýtast
dóttur hans vel. Þess utan er
bróðir Sólveigar, Hannes
Pétursson læknir, formaður
félags Sjálfstæðisflokksins í
Bústaðahverfi. Drýgst mun þó
tengdafjölskyldan reynast
Sólveigu. Maður hennar er
annar lögfræðingur, Kristinn
Björnsson, sem er sonur
Björns Hallgrímssonar,
bróður Geirs, fyrrverandi for-
sætisráðherra.
Batteríið í kringum Geir ætl-
ar að styðja Sólveigu með
oddi og eggju og hefur þegar
lagt henni til kosningaskrif-
stofu í húsakynnum fyrirtæk-
isins, H. Ben. Auk þess mun
Erna Finnsdóttir, eiginkona
Geirs, beita áhrifum sínum af
krafti. En fyrir borgarstjórnar-
kosningarnar fór Sólveig líka í
prófkjör, og þá sá Erna, sem
ella tekur ekki mikinn þátt í
stjórnmálum, sig knúna til að
skrifa undir opinbera stuðn-
ingsyfirlýsingu við Sólveigu.
Innan Sjálfstæðisflokksins
er þó merkjanleg nokkur van-
trú á Sólveigu. Þannig náði
hún ekki nema 20. sæti í próf-
kjörinu fyrir borgarstjórnar-
kosningarnar. Og nú hefur
Sólveigu tekist að móðga for-
ystukonur úr Sjálfstæðis-
flokknum með glannalegri
prófkjörsauglýsingu sem birst
hefurnokkrumsinnum íMorg-
unblaðinu. En þar er því lýst
yfir að Sólveig Pétursdóttir sé
„Sjálfstæðismaður sem telji
hagsmuni kvenna betur borg-
ið í markvissri framkvæmd
Sjálfstæðisstefnunnar en í
starfi þverpólitískra hags-
munahópa". En þetta er þvert
á það sem helstu forystukon-
ur Sjálfstæðisflokksins eru að
gera í dag í hinum ýmsu sam-
tökum, og með þessu hefur
sem sagt Sólveigu tekist að
vinna sér mótstöðu þeirra.
Það var um það bil það síð-
asta sem hún hafði efni á eftir
frekar slappa b^rjun...B
Niður
með alkóhólinn
Gróskan í íslenskri kvik-
myndagerð skýtur víðar upp
kolli en í leiknum myndum
stórmógúlanna. Um þessar
mundir er Myndbær, fyrirtæki
Jóhanns Briem, að hefja
tökur á mynd fyrir áfengis-
varnarráð sem á að sýna ung-
lingum Reykjavíkurborgar
hversu illa þeim farnast sem
alkóhólinn klífa. Styrr stóð um
myndina á sínum tíma, því
borgin greiðir stórfé til hennar.
Fulltrúar Alþýðubandalagsins
og annarra minnihlutaflokka
töldu að betur mætti verja
fénu til annars konar forvarn-
arstarfs. En tökur eru sem-
sagt að byrja og að minnsta
kosti hluti myndarinnar mun
verða leikinn. Eggert Þor-
leifsson mun til dæmis fara
með smáhlutverk í myndinni,
og einnig Bjössi bolla, alias
Magnús Ólafsson. Stjórn-
andi myndarinnar er Valdim-
ar Leifsson... ■
Maríutími
hjá íhaldi
Talsvert gekk á í herbúðum
reykvískra íhaldskvenna áður
en framboðsfrestur rann út til
prófkjörs. Söstrene Rafnar,
þær Asdís og Ingibjörg, auk
Halldóru, sem mynda nokk-
uð sterkt valdabatterí í Hvöt
reyndu við Valgerði Bjarna-
dóttur (Benediktssonar, for-
sætisráðherra) sem hrygg-
braut þær og hafnaði alfarið
að fara í prófkjörið. Um stund
staðnæmdust þær við nafn
Láru Margrétar Ragnars-
dóttur, framkvæmdastjóra
Stjórnunarfélagsins, sem
var til í tuskið. Lára Margrét
var hins vegar óþekkt innan
flokksins og því féllu þær
Ásdís og Ingibjörg frá fram-
boði hennar. Nú hyggjast þær
hins vegar beita sér fyrir Mar-
íu E. Ingvadóttur, formanni
Hvatar ( Reykjavík.
María nýtur þó ekki
óskoraðs stuðnings í röðum
sjálfstæðiskvenna. Þannig
eru skoðanir skiptar á henni
meðal áhrifakvenna í Hvöt.
En það styrkir Maríu, að
Ragnhildur Helgadóttir ráð-
herra, styður hana. Sjálf er
María komin á fullan skrið.
Fyrir hálfum mánuði varð hún
fertug og notaði afmælið til að
skora pólitísk prik. Hún bauð
nefnilega til sín fulltrúaráði
Sjálfstæðisflokksins í Reykja-
vík, en í því eru formenn hverf-
afélaganna meðal annars.
Auk þess bauð hún gömlum
formönnum Hvatar og lands-
sambands sjálfstæðis-
kvenna. Þetta hefur að sjálf-
sögðu vakið öfund meðal ým-
issa annara kvenna í
slagnum, en aðrir sjá þetta
sem merki um drift og dugn-
að, enda er töggur í konunni.
Fyrir nokkrum árum varð hún
ekkja, og við fráfall manns
síns tók hún sig upp með
tveimur börnum og fluttist
suður til Reykjavíkur. Þar hóf
hún nám í viðskiptafræði og
starfar nú hjá Sambandinu,
og er fyrir það litin hornauga
af ýmsum í flokknum.
Frami Maríu hefur verið
skjótur. Eftir tæpt ár í stjórn
Hvatar var hún orðin formað-
ur félagsins. Ýmsir spá að í
vændum sé nýtt „Maríutíma-
bil“ í flokknum og vísa þá til
þeirrar tíðar þegar hinn mikli
skörungur María Maack var í
forsvari fyrir íhaldskonum.
Ýmis konar skjálftamælingar
á Hvatarkonum hafa þó leitt í
Ijós að María nýtur alls ekki
óskoraðs stuðnings. Til að
mynda er óvíst að hún nái
langt á meðal yngri kvenna í
fiokknum, sem margar líta á
Hvöt sem hálf hallærislegan
félagsskap kvenna með
smekk fyrir sams konar slæð-
um.
Um þessar mundir rekur
María Bautann á Akureyri
með öðrum. Ýmsir í Sjálf-
stæðisflokknum henda nú
gaman að því að á meðal
reykvískra íhaldsmanna á
þingi kunni senn að verða
kona, sem rekur fyrirtæki á
Akureyri, starfar hjá SÍS og
býr útá Seltjarnarnesi... ■
Vovka úthýst
Umstangið í kringum leið-
togafundinn hefur bitnað á
mönnum með ýmsu móti.
Þannig átti Sinfóníuhljóm-
sveitin bókað herbergi á Hótel
Sögu fyrir Vovka Ashkenazy
píanóleikara, sem lék einleik
með hljómsveitinni s.l.
fimmtudag. Vovka var hins
vegar úthýst af Sögu vegna
leigunáms ríkisstjórnarinnar
og var þá bjargað um gistingu
á einkaheimili Ármanns Arnar
Ármannssonar hvatamanns
að byggingu Tónlistarhúss í
Reykjavík. ■
Fimm af tuttugu
Tuttugu sóttu um þrjár stöður
á fréttastofu útvarpsins ný-
lega. í útvarpsráði í gær voru
umsækjendur vegnir og
metnir, og fengu fimm um-
sækjendur atkvæði útvarps-
ráðsmanna. Þau þrjú sem
helst komu til álita voru
Kristín Þorsteinsdóttir sem
var blaðamaður á Vísi og DV,
og er nú orðin candmag í ís-
lensku, Sturla Sigurjónsson
sem nú er á útvarpinu og Þor-
valdur Friðriksson fornleifa-
fræðingur. Að auki voru nefn-
dir til Jón Guðni Kristjáns-
son á Tímanum, gamall Þjóð-
viljamaður og fyrrverandi rit-
stjóri á Þjóðlífi, og Ingvar
Gunnarsson. Kristín, Sturla
og Jón Guðni fengu meðmæli
fráfréttastofu og málfarsráðu-
nauti, en sýnilega er Þorvald-
ur sá mannkostamaður að
þeir í ráðinu telja ekki þörf
neinna pappíra. Útvarpsstjóri
ræður endanlega í störfin.
HAPPDRÆTTI DVAIARHEIMILIS ALDRAÐRA SJÓMANNA