Þjóðviljinn - 12.10.1986, Page 7
Kristján og Elísabet F. Eiríksdóttir í hlutverki málarans og Toscu. Ljósm. Sig.
menn við stjórnvölinn, þar sem
eru þeir Barbacini hljómsveitar-
stjóri og Paul Ross leikstjóri.
Leikstjórinn hefur gripið til þess
ráðs að færa söguna fram í tímann
fram á 4. áratuginn og ég tel það
vera jákvætt. Þetta gerir það að
verkum að óperan er færð nær
hinum venjulega hlustanda,
þannig að áhrif hennar ættu að
komast betur til skila. Þá finnst
mér Gunnar Bjarnason hafa unn-
ið frábært starf við gerð leik-
myndar og búninga.
Þegar ég talaði við þig síðast
fyrir 4 árum í Spoleto á Italíufórst
þú heldur háðulegum orðum um
óperuflutning á íslandi efég man
rétt og taldir okkur vanta allafag-
mennsku. Hefur orðið breyting á
þessum 4 árum?
Ég held að flestir þeir sem
fylgst hafa með óperuflutningi
hér á landi síðustu 30-40 árin hafi
verið sammála um það að með
flutningi Grímudansleiksins eftir
Verdi hér í Þjóðleikhúsinu í fyrra
hafi verið stigið stökk framávið.
Grímudansleikurinn var vandað-
asta óperuuppfærsla sem hér hef-
ur verið sýnd frá upphafi að ég
held. Það þýðir að framfarir hafa
orðið. Og mér sýnist að það stefni
í mjög góða sýningu á Tosca.
Hvernig höfðar óperan Tosca
til þín? Ertu í essinu þínu í hlut-
verki Cavarodossi?
Tosca er ein af þeim óperum
sem höfða hvað sterkast til mín í
dag. Tónlistin í Tosca er svo
mikið á tilfinningastrengjunum.
íslensk framför
Þannig er ég líka. Ef þú syngur
ekki í Toscu á þeim strengjum, þá
kemst ekkert til skila. Og góður
stjórnandi verður líka að geta
sungið óperuna með hjartanu.
Það er hægt að gæla svo mikið við
tónlistina í Toscu og Puccini ætl-
ast beinlínis til þess að söngvar-
arnir geri það í svo ríkum mæli að
hún verði sem þeirra eigin tónlist.
Puccini var mikill tilfinningamað-
ur, alveg eins og ég er, og í Tosca
er rómantíkin og tilfinningin í há-
vegum höfð. Það er á tilfinninga-
sviðinu sem það kemur fram
hvort þú ert listamaður eða ekki.
Það eru margir sem geta sungið,
en það eru ekki allir sem geta
fengið hárin til að rísa á handlegg
áheyrandans af tilfinningahita.
„Anche l’asion ha una voce“,
sagði Rossini, asninn hefur líka
rödd, en hverju kemur hún til
skila?
Við þökkum Kristjáni Jó-
hannssyni fyrir spjallið og óskum
honum og flytjendum Toscu góðs
gengis.
-61g.
Reykofn til sölu
Til sölu er sjálfvirkur reykofn. Heit og köld
reyking. Góð greiðslukjör. Uppl. í síma 93-8784 á
daginn 8715 (Ragnar) og 8672 (Þorvaldur) á
kvöldin.
SJÚKRAHÚSIÐ
PATREKSFIRÐI
Hjúkrunarfræðingar
Sjúkraliðar
Sjúkrahúsið Patreksfirði óskar að ráða hjúkrun-
arfræðinga og sjúkraliða nú þegar, eða eftir nán-
ara samkomulagi.
Allar upplýsingar gefur hjúkiunarforstjóri í síma
94-1110. Hjúkrunarforstjóri
íbúð óskast
Starfsmaður Þjóðviljans óskar eftir að taka á
leigu 2-3ja herb. íbúð sem fyrst. Tvennt í heimili.
Reglusemi og öruggar mánaðargreiðslur. Uppl. í
síma 28825.
ran Gagnfræðaskólinn
' Mosfellssveit
Gangavörð vantar nú þegar við skólann. Um er
að ræða 1/2-dags starf. Vinnutími frá kl. 10-14.
Upplýsingar veitir á skólatíma Einar Georg Ein-
arsson skólastjóri og Helgi R. Einarsson yfir-
kennari, símar 666186 og 666586.
sp
W
Tilboð
Óskar í eftirtaldar bifreiðar og tæki sem verða til sýnis þriðju-
daginn 14. október 1986 kl. 13.00 - 16.00 í porti bak við
skrifstofu vora að Borgartúni 7, og víðar.
fólksbifr. bensín árg.
fólksbifr. bensín árg.
fólksbifr. bensín árg.
fólksbifr. bensín árg.
fólksbifr. bensín árg.
fólksbifr. bensín árg.
fólksbifr. bensín árg.
fólksbifr. bensín árg.
fólksbifr. bensín árg.
3 stk. Mazda 929
1 stk. Volkswagen Golf
1 stk. Toyota Carina DL
1 stk. Ford Cortina 1600
1 stk. Subaru Station
1 stk. Volvo 244 DL
1 stk. Peugeot 504
1 stk. Lada Station 2104
1 stk. Lada Station 1500
4 stk. Subaru Station 1800 4x4
fólksbifr. bensín árg.
3 stk. Lada Sport 4x4 fólksbifr. bensín árg.
1 stk. Volvo Lapplander fólksbifr. bensín árg.
1 stk. Toyota Hi Lux m/húsi 4x4
fólksbifr. bensín árg
1 stk. Isuzu Trooper 4x4
(Skemmdur eftir veltu)
4 stk. Toyota Hi Ace
1 stk. UAZ 452 m/húsi 4x4
1 stk. Toyota Hi Lux pickup 2x4
fólksbifr. bensín árg
1 Moskvwich sendibifr. bensín árg
1 stk. Volvo 465 fólks- og vörufl.bifr.
10 farþ. diesel árg
1980- 82
1982
1981
1979
1978
1975
1978
1986
1983
1981- 83
1980-83
1981
fólksbifr. diesel árg.
sendibifr. bensín árg.
fólksbifr. bensín árg.
1981
1982
1981
1970
1976
1981
1963
Til sýnis hjá Vegagerð ríkisins, Véladeild, Borgartúni 5:
1 stk. Veghef. A Barford Super MGH
m/framdr. og snjóvæng
6x6 árg. 1971
1 stk. Subaru Station 1800 4x4
ógangfær bensín árg. 1982
Tilboðin verða opnuð sama dag í skrifstofu vorri, Borgartúni
7, kl. 16.00 að viðstöddum bjóðendum. Réttur er áskilinn til
að hafna þeim tilboðum sem ekki teljast viðunandi.
INNKAUPASTOFNUN RIKISINS
BORGARTÚNI 7 SÍMI 26844 PÓSTHÓLF 1441 TELEX 2006
Sunnudagur 12. október 1986 PJÓÐVILJINN - SÍÐA 7