Þjóðviljinn - 12.10.1986, Síða 9

Þjóðviljinn - 12.10.1986, Síða 9
Gestaboð á pestartímum. Leikarar taldir frá vinstri. Pernilla Östergren, Bibi Andersson, Per Myrberg, Jan Olof Strandberg, Per Mattsson, Lil Terselius og Johan Rabaeus. Ljósm. Bengt Wanselius. Júri Ijúflingur Steinunn Jóhannesdóttir skrifar fró Stokkhólmi Einn er sá kostur við að fara burt, aðfyriraugu berýmis- legt, sem maður annars ekki fengi að sjá. Lengi hafði mig langað til að sjá leiksýningu eftir sovéska leikstjórann Júrij Lujubimov. Hróður hans hefur farið víða um lönd og hann hefur gert leikhús sitt Taganka í Moskvu eitt af frægustu leikhúsum okkar tíma. 1958 setti hann upp Góðu sál- ina í Sezuan eftir Brecht með nemendum sínum í einum af leik- listarskólum borgarinnar, og með þeirri sýningu hófst enn nýtt tímabil í léikhúslífi heimsveldis- ins, segja fróðir menn. Sýningin var flutt inn á Taganka og Jurij gerðist síðan leiðtogi þess og skapari. En þótt hann væri með- limur í kommúnistaflokknum, varð honum einatt á að fara svo í taugarnar á yfirvöldunum með sýningum sínum, að þeim þótti lítill stuðningur í honum og hans framlagi til þjóðlífsins. 1984 ák- váðu þau að losa sig við pirring- inn vegna hans og sögðu honum að fara. Sýningar hans héldu áfram að ganga, en nafn leik- stjórans Ljubimovs var strikað út. Það var einnig strikað út úr félagatali flokksins og að lokum var hann sviptur sovéskum ríkis- borgararétti. Ljubimov dregur hvergi dul á, hve sárt honum svíður. Sárt var að vera rekinn frá leikhúsinu, sem hann hafði gert heimsfrægt. Sárt að vera sviptur leikurum sín- um og samstarfsmönnum, þar á meðal David Borowskij, sem sumir íslendingar kunna að minnast vegna leikmyndarinnar í Náttbóli Gorkijs í Þjóðleikhús- inu 1976. En sárast var að vera gerður útlægur úr föðurlandi sínu og rændur möguleikanum til að vinna á tungu mæðranna. Tung- umálið er, sem kunnugt er, mikil- vægasta næring hvers leikhús- Iistamanns. Síðan 1984 hefur Ljubimov sem sagt verið landlaus leikstjóri og unnið verk sitt á framandi grund í ýmsum borgum Evrópu og ísrael. í haust kom hann hing- að til Stokkhólms í boði Dra- maten. Og laugardaginn 27. sept- ember gafst borgarbúum síðan tækifæri til að sjá forsýningu Gestaboðs á pestartíinum, byggðu á samnefndu ljóði Alex- anders Pusjkins og brotum úr nokkrum leikritum hans. Eða eins og segir í leikskrá: „Á meðan drepsóttin geisar í borginni, safn- ast íbúarnir saman til gestaboðs á torginu. Þeir sitja umhverfis borð og stytta sér stundir við að íklæð- ast gervum nokkurra persóna úr örstuttum sorgarleikjum Pusjkins." Þættirnir heita: Ágjarni riddarinn, Steingestur- inn, Mozart og Salieri, (fyrir- mynd Peters Shaffers að Amade- usi) og að lokum er lítið Faustbrot. Og hvernig var? Undursamlegt. Ég fann ekki betur en hver ein- asti leikhúsgestur væri heillaður og með kökk í hálsinum af gleði eða sorg, þegar hann þakkaði fyrir sig í lokin með því að rísa úr sæti og beina lófatakinu upp á neðri svalir leikhússins, þar sem hinn sovéski meistari sat. Ég hef sjaldan orðið vitni að einlægari hrifningu og sannari hyllingu og hef ég þó fyrr heyrt hrópað húrra í leikhúsi, að ekki sé minnst á óperu, þar sem það virðist plags- iður. Þessi hylling var þrungin merkingu: Lengi lifi hugrekkið, fantasían og hið frjálsa orð! Það sannaðist sem sé þetta kvöld, að á sínum bestu stundum á LEIKHÚSIÐ ekki sinn líka. Leikhúsið lifir. Og Ljubimov lifir, hversu mjög sem reynt er að strika hann út af hinu sovéska sakramenti. Þetta var engin venjuleg leiksýning. Það var ekki einu sinni neitt eitt leikrit, sem lá til grundvallar, heldur samsetning- ur leikstjórans úr verkum skáld- sins, sem var undanfari stór- meistaranna Tolstojs og Dosto- jevskijs og Thechovs. Skálds sem er nafnið tómt fyrir flestum vest- urlandabúum, þó það sé höfuð- skáld Rússa. En leikhús var það. Leiksýning, sem bjó yfir öllum þeim töframætti, sem slíkt fyrir- brigði mannlífsins getur falið í sér. Og gagnrýnendur hafa ekki sparað stóru orðin. „Fullkomið undur á Dramaten," segir einn. „Hin æðsta sæla og dýpsta sorg,“ segir annar. „Það sem er á borð borið á pestartímum, hugnast vel,“ sá þriðji. „Ljubimov hefur læknað Dramaten,“ sá fjórði og þannig mætti lengi rekja upp- hrópanir og útleggingar. Það sem einkennir þessa sýn- ingu fyrst og fremst er stórkost- legt hugmyndaflug. Leikararnir sýna flestir á sér margar hliðar og það er næsta ótrúlegt hvað hægt er að gera umhverfis borð, sem alla sýninguna stendur í forg- runni. Þar á ofan sitja þeir mest í stólum sínum, sem aftur á móti eru á hjólum, og gera þeim kleift að flytja sig hratt um sviðið. Og þegar þörfin krefur breyta þeir borðinu í kirkjugarð, styttu, draug eða eitthvað annað með hjálp risastórs silkiborðdúks og ljósa. Ljósin í þessari sýningu eru reyndar kapítuli út af fyrir sig og að dæma af vitnisburði sjónar- votta að öðrum sýningum Lju- bimovs þá er lýsingin venjulega eitthvað, sem gerir þær frá- brugðnar flestum öðrum sýning- um. Lýsingin í þessari sýningu er ævintýraleg. Aldrei áður hef ég séð aðra eins litagieði. Nema á diskógólfi. þar sem vélrænt til- breytingarleysið eyðileggur þó áhrifamáttinn. Ljubimov notar mjög sterka liti. Blóðrautt, flöskugrænt. Dimmblátt. Hvítt. Gult. Fjólublátt. Auk marglits logans í púnsbollunum. Nískan, hatrið, flærðin, óttin, öfundin, þráin, ástin, öll ástríðan er undir- strikuð með sterkum litum. Samt er eins og einfaldleikinn sé aðals- merki þessarar sýningar. Hún er djörf en aldrei ofhlaðin. Hugleysið á fyrirlitningu Lju- bimovs ómælda. Það hefur kom- ið skýrt fram í viðtölum við hann. Og hugrekki hefur hann sjálfan ekki skort í áralangri baráttu sinni fyrir leikhúsi sínu og lista- mannsheiðri. Og þeir sem gerðu Vesturlöndum þann greiða að varpa honum á dyr sovétanna, hafa auðsjáanlega ekki brotið hann á bak aftur, þó þeir hafi gert honum lífið erfitt. Hann stendur keikur með sín sextíu og átta ár, lágvaxinn en þéttur á velli með gáfurnar geislandi úr augunum, gráhærður, fallegur og glað- beittur. Kannski var það einmitt gleð- in, þrátt fyrir allt, sem kom áhor- fendum þesarar sýningar mest á óvart. Við áttum ekki von á því að hlæja svona oft og innilega. Því Ljubimov hafði ekki legið á því, að hann væri bæði svartsýnn og bitur. Svo hlær hann bara að öllu saman. Og það er kannski í þessum hlátri, sem lækninga- máttur leikhúss hans er fólginn. En í sannleikans nafni verður það að segjast, að Ljubimov ein- um ber ekki að þakka það, að Dramaten virðist hafa náð heilsu á ný eftir nokkurt tímabil and- streymis og óánægju. Allt í einu virðast allar sýningar leikhússins takast og það er uppselt á sviðin fimm langt fram í tímann. Endur- koma Bergmans á sjálfsagt ekki minnstan þátt í endurreisn leik- hússins og Ljubimov kallar Dra- maten leikhús Bergmans. Um leið lýsir hann yfir þeirri skoðun sinni að þau leikhús, sem séu mótuð af einum miklum höfundi séu hin einu stóru leikhús. Leikhús Shakespeares, Moliéres, Brechts, Brooks, Mnouchkine. Þar fyrir utan séu til margir góðir leikarar. Jafnvel frábærir. En leikhús án leiðandi skálds nái aldrei umtalsverðri stærð. Sjálfur hafði Ljubimov mjög góðum leikurum á að skipa í sýn- ingu sinni. Fyrsta skal fræga telja Bibi Andersson, sem í haust hóf aftur störf hjá Dramaten eftir tíu ára hlé vegna kvikmyndaleiks. Þá Jan Olof Strandberg, sem lengi hefur verið í úrvalsliði leikhússins og var leikhússtjóri þess um hríð. Þar næst Per Myrberg, einnig úr framvarðasveitinni, sem hefur yljað sænskum eyrum í marga áratugi með sinni hljómfögru og þróttmiklu rödd. í Gestaboðinu leikur hann ekki aðeins á radd- bönd sín, heldur einnig bæði á blokkflautu og trompet með full- um sóma. Lil Terselíus, Per Mattsson, Johan Rabaeus, Pern- illa Östergren og Lakk Magnus- son eru af mið- og yngstu kynslóð leikara hússins og öll vel þekkt hér. Það er einkenni mikilla leik- stjóra að leysa hugmyndaflug og sköpunargáfu hvers leikara úr læðingi. Þess vegna gaf enginn öðrum eftir í þessari sýningu. Samt get ég ekki stillt mig um að nefna Per Mattsson og Per Myr- berg sérstaklega og samleik þeirra í Mozart og Salieri, sem dæmi um tæra list í annars grugg- ugum heimi. Mozart Mattssons átti eitthvað mikið skylt við mús- ik Mozarts. Eftir að sýningar hófust hefur Bibi Andersson lýst gangi æfing- anna í blaðagrein, hvernig tung- umálin tvö hindruðu gagn- kvæman skilning í fyrstu, hvernig sumar kröfur Ljubimovs settu leikarana í varnarstöðu, hvernig gagnkvæmt traustið þróaðist þó yfir í ást og aðdáun, og haming- junni sem gagntók leikarana, þegar leikhúsgestir sneru rassin- um reyndar í þá sjálfa en hrærð- um andlitum að manninum á svölunum. Mikið væri nú gaman, ef Svíar gætu boðið þessum land- leysingja bæði landvist og leikhús, sagði hún. Ekki veit ég hvort af því verð- ur, þó flest bendi til þess, að Lju- bimov sé hvers leikhússmanns hugljúfi. Sjálft nafnið virðist sönnun þess, því Ljubimov er hvorki föðurnafn né ættarnafn, heldur gælunafn, sem leikararnir hans á Taganka gáfu honum. Þeim fannst víst Jurij Petrovitj vera algjör ljubimov, sem mun þýða UÚFLINGUR. Stokkhólmi 7. okt. ’86- Steinunn Jóhannesdóttir Sunnudagur 12. október 1986 ÞJÖÐVILJINN - SÍÐA 9

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.