Þjóðviljinn - 12.10.1986, Qupperneq 13
Joan Baez átti hug og hjörtu áheyrenda á tónleikunum í Óperunni. Mynd E.ÓI.
Friðartónleikar
Blóð í bombunnar slóð
Frábœrir tónleikar á rólegu nótunum ííslensku
óperunni. Joan Baez velfagnað
Það rennur blóð í bombunnar
slóð, en það er vel meint, söng
Bubbi Morthens þegar hann opn-
aði aldeilis frábæra friðartón-
leika í Islensku óperunni í gær.
Bekkir óperunnar þétt setnir fólki
á öllum aldri, stemningin góð og
kímnin í lagi.
Bubbi, Megas, Bergþóra,
Björk, Sigtryggur og Valgeir
skiluðu sínu með sóma eins og við
var að búast, en það fór ekkert á
milli mála að sú sem beðið var
eftir var Joan Baez. Hún kom
fram á sviðið undir dynjandi lóf-
aklappi og það mátti sjá sælusvip
á andlitum margra þeirra í sain-
um sem hrifust af þessari banda-
rísku þjóðlagasöngkonu og bar-
áttukonu á 7. áratugnum. Baez er
komin hingað í þeim tilgangi að
leggja áherslu á kröfuna um af-
vopnun og frið og hafði sinn boð-
skap að færa þeim höfðingjum
sem ræða heimsmálin í Höfða
þessa dagana.
Gorbatsjof sagði hún að yrði
að draga allt sovéskt herlið frá
Afganistan, leyfa Sakharof að
fara úr útlegðinni í Gorkí og láta
af fangelsunum manna vegna
skoðana þeirra, ef honum væri
alvara með að breyta ímynd So-
vétríkjanna gagnvart heiminum.
Ef Ronald Reagan var alvara
þegar hann sagðist ætla að vinna
gegn ofbeldi í heiminum, sagði
hún, þá verður hann að sýna það
og sanna að bandaríkjastjórn
fordæmi mannréttindabrot hvar
sem er í heiminum, ekki bara
sums staðar. Hann verður að
hætta allri íhlutun í málefni Nic-
aragúa og hætta stuðningi við
Contra skæruliða og svo ætti
hann að láta vera að styðja Pinoc-
het, sem er morðingi sagði hún.
Og um leiðtogafundinn:
Leiðtogafundir leiða að minnsta
kosti það af sér að við getum gert
okkur í hugarlund hvernig það er
að geta lifað afslappað, án þess
að búa stöðugt við þá spennu sem
vopnakapphlaupið skapar hjá
okkur.
-gg
Von um „Reykjavfloirsamkomulag“
Þráttfyrirfréttaleynd ríkir bjartsýni um niðurstöðu á Reykja-
víkurfundunum. Framkoma Gorbatsjof-hjónanna enn eitt
merki um nýjan stíl í Kreml
Síðustu tíðindi af leiðtogunum
Reagan og Gorbatsjof þykja
benda til þess að í aðsigi sé ein-
hverskonar samkomulag sem
leiðtogarnir staðfesti í Reykjavik
í dag.
I gærkvöld var tilkynnt að
fundinum í dag hafi verið flýtt um
hálftíma og hefst hann klukkan
tíu á Höfða. í gær voru skipaðir
tveir vinnuhópar, annar um af-
vopnunarmál og hinn um al-
mennari efni, mannréttindi og
svæðisbundnar deilur, og hófu
hóparnir fundi sína um áttaleytið
í gærkvöldi.
Verði af samkomulagi má bú-
ast við að það fjalli fyrst og fremst
um meðaldrægar eldflaugar í
Evrópu, en hugsast getur að til-
raunabann komi þar til einnig við
sögu með einhverjum hætti. í
fyrrakvöld gáfu Bandaríkjamenn
út yfirlýsingu um stefnu sína í
bannmálum, og þótt þar hafí flest
verið sagt áður gæti sjálf umræða
þeirra um tilraunabann bent til
að þeir séu á því sviði að sveigja
til afstöðu sína til að greiða fyrir
samkomulagi um eldflaugar.
Hugsanlegt er að Sovétmenn taki
tillit til bandarískra óska í
mannréttindamálum, til dæmis
um brottflutning gyðinga.
Gorbatsjof boðaði í gær til
blaðamannafundar í dag, senni-
lega klukkan tvö í Háskólabíó.
Þessi tilkynning kom nokkuð á
óvart, og samstundis varð vart
óánægju í bandarísku sendinefn-
Stórir strákar horfast í augu. Verður Höfði fæðingarheimili samkomulags um afvopnunarmál? (Mynd: RAX)
dinni, og heyrðust þaðan þær
raddir að með slíkum fundi væri
verið að brjóta samkomulagið
um fréttaleyndina. Fundurinn
gæti þó verið leikur í stærra tafli
og ekki víst að hann beri að skilja
sem beina ögrun Gorbatsjovs við
Bandaríkjamenn. Sá orðrómur
kom fljótlega upp að leiðtogarnir
geymdu sér síðdegið í dag til
hugsanlegra frekari viðræðna, og
bent á að brottfarartími leiðtog-
anna var í gærkvöldi enn ekki á-
kveðinn. Það styður kenningar
um samkomulag á fundinum að á
blaðamannafundi hjá Sovét-
mönnum í gær var fullyrt að
menn hefðu vænst of lítils af
fundinum.
í áróðurstaflinu sem sífellt
stendur yfír milli stórveldanna og
leiðtoga virðast Sovétmenn hafa
átt nokkra góða leiki í Reykjavík.
Áður en fyrri fundurinn hófst í
dag þótti blaðamönnum léttara
yfir Gorbatsjof en Reagan og yf-
irlýsing hans á flugvellinum í gær
féll í góðan fjölmiðlajarðveg. At-
hygli pressunnar hefur fremur
beinst að Gorbatsjof en Reagan,
og Raísa Gorbatsjova hefur fyllt
vel í það tómarúm sem frétta-
leyndin skapaði og alið enn á
þeirri kenningu að í æðstu stjórn
Sovétríkjanna sé nýr og nútíma-
legri stíll að ryðja sér til rúms.
- m/IH
Það ríkti stríðsástand á stundum
Jón Hákon Magnússon: Starfið ífréttamannamiðstöðinni gengið mjög vel.
Þetta hefur gengið alveg merki-
lega vel miðað við hve undir-
búningstíminn var stuttur, sagði
Jón Hákon Magnússon um skipu-
lagsstarfið í fréttamannamiðstöð-
inni í Hagaskóla, en hann er einn
þeirra sem hefur borið ábyrgð á
því og séð um fyrirgreiðslu við
fréttamenn.
„Það hefur verið keðja í gangi
sem hefur gengið mjög vel og
okkur hefur tekist að leysa flest
öll aðsteðjandi vandamáí á stutt-
um tíma. Það sem er ánægjulegt
er það að útlendingarnir virðast
vera mjög ánægðir með skipu-
lagið og ákaflega þakklátir þegar
þeim er veitt fyrirgreiðsla", sagði
Jón. Jón sagði að þau vandamál
sem komið hefðu upp væru aðal-
lega af tvennum toga. Annars
vegar í tengslum við fjarskiptin
þegar mest mæddi á þeirri þjón-
ustu og hins vegar leiðindi sem
hefðu komið upp vegna út-
deilingu á leyfum til fréttamanna
til þess að komast inná Höfða-
svæðið en takmörkuðum fjölda
fréttamanna og ljósmyndara er
hleypt svo nálægt leiðtogafundin-
um. „Á tíðum hefur ríkt hér
stríðsástand vegna þessa. Þeir
sem ekki hafa komist með hafa
sumir hverjir orðið brjálaðir af
bræði og blótað landi og þjóð í
sand og ösku. Hún er þó fljót að
renna af þeim reiðin og þá verða
þeir ókei“, sagði Jón að lokum.
-K.ÓI.
Gyðingarnir héldu uppi myndum af fjölmörgum trúbræðrum sínum sem ekki
hafa fengið að flytja frá Sovótríkjunum. Mynd Sig.
Gyðingar
Mótmælt með
ÍSRAEL
THANKS ISLAlNDS
and 'ALTHING'world's tst purVuvmeut
for ENABUNG US to PRfcM for
KELEASE or SUVIET ttvmv.
bænum
Gyðingar sem staddir eru á ís-
landi vegna leiðtogafundarins
héldu bænastund utandyra á
hvfldardegi sínum í gær. Bæna-
stundina tileinkuðu þeir þeim 400
þúsund gyðingum í Sovétríkjun-
um sem hafa óskað eftir því að fá
brottfararleyfi þaðan og héldu á
lofti myndum af mörgum þeirra.
í grenjandi roki og rigningu
komu þeir sér fyrir, fyrir framan
Melaskólann með bænasjöl og
lásu uppúr Torahbókinn en það
eru kaflar úr Gamla testamentinu
sem eru skrifaðir á léreft. Nokkr-
ir kristnir íslendingar tóku þátt í
bænastundinni með gyðingun-
um. -K.ÓI.
Sirius leggur að í Hafnarfjarðarhöfn síðdegis í gær eftir að skipverjar höfðu átt í
stappi við hafnaryfirvöld í Reykjavík landhelgisgæslu og öryggisverði leiðtog-
ans meðan skipið var úti á sundunum úti fyrir Höfða. Mynd E.ÓI.
Grœnfriðungar
Féllust á
Hafnarfjörð
Grænfriðungaskipið Síríus
lagðist að bryggju í Hafnarfjarð-
arhöfn um kl. 16.30 í gær.
Ætlun skipverja var að liggja í
Reykjavíkurhöfn meðan Reagan
og Gorbatsjof funda í Reykjavík,
en strax fyrir helgi varð ljóst að
það yrði ekki ieyft. Þá kom til
greina að fara í Sundahöfn. ís-
lensk yfirvöld lögðu þá tillögu
fyrir örygsisverði leiðtoganna, en
þeim leist ekki meira en svo á
nærveru grænfriðunga og þver-
tóku fyrir að slíkt leyfi yrði gefið.
Um tíma leit út fyrir að græn-
friðungar ætluðu að láta sverfa til
stáls og freista þess að komast til
hafnar í Reykjavík, en landhelg-
isgæslunni tókst að semja við þá
áður en til þess kom. -gg
Einar Vilhjálmsson hleypur síðasta spölinn með friðarkyndilinn inn í Hljómskálagarðinn. Mynd Sig.
12 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 12. október 1986
Friðarkyndillinn
Vtð viljum frið!
UmlOOO börn viðstödd afhendingu friðarkyndils Barna-
hjálpar Sameinuðu Þjóðanna
Krakkar þið viljið frið, er það
ekki? Júhúú! svöruðu um þúsund
börn Hermanni Gunnarssyni
íþróttafréttaritara og fundar-
stjóra á fundinum í Hljómskála-
garði í gær þar sem logi frá frið-
arkyndli Sameinuðu þjóðanna
var afhentur íslensku þjóðinni
undir kjörorðunum: Börnin
þarfnast friðar.
Kyndilför friðarlogans, sem
skipulögð er af Barnahjálp Sam-
einuðu þjóðanna vegna 40 ára af-
mælis Barnahjálparinnar og
Friðarárs Sameinuðu þjóðanna,
mun koma við í 50 löndum á
þremur mánuðum. Hingað kem-
ur eldurinn frá Belfast á N-
írlandi og héðan fer hann til Isra-
el, en kyndillinn var hingað send-
ur nú í tilefni af fundi þeirra Re-
agans og Gorbatjofs.
Bjarni Friðriksson júdómaður
tók við kyndlinum í Keflavík í
gærmorgun, en til Reykjavíkur
var hann fluttur með boðhlaupi
40 íslenskra afreksmanna í íþrótt-
um. í námunda Hljómskála-
garðsins sameinuðust um 1000 ís-
lensk skólabörn íþróttamönnun-
um og hlupu með þeim síðasta
spjölin. Þar tóku á móti þeim
forseti íslands Vigdís Finnboga-
dóttir og Steingrímur Hermanns-
son forsætisráðherra auk fulltrúa
íþróttahreyfingarinnar og Barna-
hjálpar Sameinuðu þjóðanna.
“Megi friður fylgja þessum loga“
sagði Steingrímur þegar hann tók
við kyndlinum og eftir að Vigdís
hafði flutt ávarp af þessu tilefni
kveikti forsætisráðherra með
kyndlinum á friðarloga íslend-
inga sem mun brenna þar til fundi
leiðtoganna lýkur í dag.
-K.ÓI.
Lögreglan
Sunnudagur 12. október 1986 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 13
Þakka almenningi
skilninginn
Þetta hefur gengið mjög vel.
Það hefur ekkert óvænt komið
upp á og það eru allir ánægðir
með hvernig til hefur tekist. En
þetta er ekki búið, við getum ekki
slappað af fyrr en leiðtogarnir
eru báðir farnir úr landi, sagði
Böðvar Bragason lögreglustjóri í
samtali við Þjóðviljann eftir
síðari fund þeirra Reagans og
Gorbatsjofs í gær.
Lögreglumenn stóðu í ströngu
í kuldanum í Reykjavík í gær.
Böðvar sagði alla menn hafa ver-
ið kallaða til sem hægt var að
munstra, alls líklega um 600
manns. „Mönnum var auðvitað
kalt í nepjunni, en við höfum
reynt að sjá þeim fyrir aðhlynn-
ingu og einhverju heitu oní sig.“
Böðvar sagði samstarfið við
hina erlendu öryggisverði hafa
gengið vel. Þeir hafi áttað sig á að
þeir séu hér gestir og lagt sig fram
um að samstarf gæti tekist vel. Þá
hafí þeir lokið lofsorði á fram-
göngu íslenskra k'ollega sinna.
„Eg get ekki annað en þakkað
almenningi í Reykjavík fyrir
þann skilning sem hann hefur
sýnt á þessu umstangi vegna
fímdarins. Það hefur ekki verið
hjá því komist að valda ýmsum
óþægindum, en allir hafa tekið
því vel. Þó með undatekningum
sem sanna regluna. Ég vona bara
að allt gangi samkvæmt áætlun á
morgun," sagði Böðvar í gær.
~gg
Öryggisgæslan vegna leiðtogafund-
arins er meiri en íslendingar hafa
nokkru sinni átt að venjast en jafnvel
hundar voru kallaðir til. Mynd E.ÓI.