Þjóðviljinn - 12.10.1986, Qupperneq 15

Þjóðviljinn - 12.10.1986, Qupperneq 15
Gjörningur í þágu friðar Kólumbíski fjölllistamaðurinn Cheo Cruz Ulloa framkvœmdi friðargjörning íAusturstrœti ö föstudaginn. Sigurður Mar festi gjörninginn ö filmu LEIÐARI We wish you suœess Zhelaém úspékha Þá eru þeir Reagan og Gorbatsjof komnir til landsins. Áður en Reagan lagði af stað kvaðst hann vilja ræða við hinn sovéska leiðtoga um öll helstu vandamál, sem halda vöku fyrir mönnum, og reyna að leysa þau í anda friðar og frelsi. Gorbatsjof kom til íslands með áskorun um að stórveldi jafnt sem smærri ríki taki hönd- um saman um að bægja frá dyrum kjarnorkuvá og helst útrýma kjarnorkuvopnum fyrir aldamót. Vitanlega er ekki nema gott eitt um slíkar yfirlýsingar að segja. Og vitanlega tekur heimsbyggðin þeim með nokkrum fyrirvara vegna þeirrar dapurlegu reynslu undanfarinna áratuga, að góð áform í ræðum hafa ekki nema sjaldan skilið eftir sig áþreifanlegan árangur hvort sem um er að ræða afvopnun eða blátt áfram sköpun þess andrúmslofts, sem gerir samskipti þjóða að miklum mun skárri en þau hafa lengst af verið allt frá því að verstu hrinur kalda stríðsins voru hjá liðnar. En hvað sem misjafnri reynslu líður, þá höf- um við öll rétt til að vona hið besta - og menn spá því, að í sjónmáli sé nú samkomulag sem varðar meðaldrægar eldflaugar í Evrópu og gæti síðan dregið ýmislegt jákvætt á eftir sér á öðrum sviðum. Eins og margoft er tekið fram þessa daga, þá þykir mönnum nú meiri líkur fyrir því en verið hefur um alllangt skeið, að „þeir séu þrátt fyrir allt farnir að hreyfa sig,“ eins og þýska vikuritið Spiegel festi á forsíðu sína á dögunum ásamt mynd af þeim Reagan og Gorbatsjof þar sem þeir takast í hendur, hvor um sig standandi inni í eldflaug. Þegar menn komast að þeirri niðurstöðu um væntanlega framvindu mála, þá hafa þeir sjaldnast hugann við það, hvernig meta ber yfirlýsingareða góðan vilja leiðtoga. Menn þykj- ast blátt áfram sjá fram á það, að báðir leiðtog- arnir sjái sér hag í því að nokkuð miði í samko- mulagsátt - að minnsta kosti á sviði kjarnorku- vígbúnaðar. Reagan er farinn að hafa áhyggjur af orðstí sínum í sögunni. Hann þarf að hressa upp á stöðu sinna manna í væntanlegum kosningum. í þriðja lagi þarf hann að komast hjá því, að þvergirðingshætti af hans hálfu verði kennt um ! ef fundir æðstu manna fara út um þúfur - þar | með mundi dýpka það bil sem staðfest er milli Bandaríkjamanna og ríkja Vestur-Evrópu. Gorbatsjof þarf á árangri í afvopnunarmálum að halda til að fá svigrúm til að bæta efnahag lands síns. Og hann þarf líka að taka tillit til bandamanna sinna í Austur-Evrópu, þótt þeir hafi ekki látið mikið fara fyrir eigin frumkvæði í alþjóðlegum samskiptum til þessa. Við viljum líka líta svo á, að almenningsálitið í heiminum eigi drjúgan þátt í því að leiðtogarnir eru „komnir á hreyfingu.“ Kröfur um frið og niðurskurð vígbúnaðar hafa risið einna hæst í Evrópu - og við getum með góðri samvisku sett þá staðreynd í samband við það, að mestar líkur eru nú taldar á því að hér í Reykjavík verði einmitt samið um niðurskurð þeirra meðal- drægu kjarnorkuvopna sem staðsett eru í Evr- ópu. Á þessari stundu eru flest blæbrigði hins póli- tíska litrófs sameinuð í óskum um að vinnufund- 'ur æðstu manna stórveldanna beri góðan ár- angur. - áb Sunnudagur 12. október 1986 ÞJÓÐVILJINN - SIÐA 15

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.