Þjóðviljinn - 12.10.1986, Qupperneq 18
VElxo/yM^J
tibyí Do yöú 0
LIKE /ECELAMD ?
Denni: Hvernig líst ykkur á ísland?
rGEgWÍI i UKE DAÍ ---------
I (50TTA TSl HANlCY
DAT raciPE///
Ronald: Gott þetta nautakjöt! Verð að fá uppskriftina handa Nansí. 1
Nikolaj
Gorbatsjof
Vinsœll meðal
almennings
Nikolai Gorbatsjof tók við
embætti aðalritara Kommún-
istaflokks Sovétríkjanna að
Konstantín Tsjernenko látn-
um í mars í fyrra. Valdatími
hans er með öðrum orðum
ekki orðinn nema hálft annað
ár, en hann hefur nú (aegar
sett svip sinn áframvindu
mála í landi sínu með mjög
sterkum hætti og hefurýmis-
legt komið mönnum á óvart í
þeim breytingum sem fitjað
hefurveriðuppá.
Gorbatsjof er nú 55 ára að
aldri. Hann þótti umtalsverð yng-
ing í hinni valdamiklu og öldruðu
pólitísku framkvæmdanefnd
Kommúnistaflokksins þegar
hann settist þar árið 1980. Gor-
batsjof er bóndasonur frá Stavr-
opolsýslu. Árið 1955 útskrifaðist
hann frá lagadeild Moskvuhá-
skóla en lagði síðar fyrir sig land-
búnaðarhagfræði. Á námsárum
hófst hans framaferill í Kommún-
istaflokknum, sem varð til þess
að árið 1970 varð hann fyrsti rit-
ari héraðsdeildar flokksins í
Stavropol og skömmu síðar var
hann kosinn í miðstjórn flokks-
ins.
Nýsköpun
Ekki verða hér raktar kenning-
ar manna um það hvernig á því
stóð að einmitt Gorbatsjof varð
handhafi valdamesta embættis í
Sovétríkjunum en ekki t.d. skæð-
asti keppinautur hans, Romanof.
Hitt er víst að Gorbatsjof hefur
síðan gengið fram í því að losna
við bæði stuðningsmenn Roma-
nofs og svo ýmsa þá aðra sem
samdauna voru „öldungaveldi"
því, sem kennt var við hinn langa
valdatíma Leoníds Brésjnéfs.
Um leið hefur Gorbatsjof með
vaxandi þunga boðað nauðsyn
nýsköpunar (perestrojka) í
atvinnulífi landsins - um leið og
hann hefur af hörku haldið fram
þeirri herferð sem hafin var á
valdaári Júrís Andropovs gegn
áfengisböli, skrópasótt og mútu-
þægni.
Stjórn
efnahagslífs
Frá upphafi ferils síns hefur
Gorbatsjof rætt margt um betri
starfshætti, betri nýtingu fjárfest-
ingar, leiðir til að koma í veg fyrir
sóun, leiðir til að nýta framtak
einstaklinga og fyrirtækja. Fram-
an af var mönnum ekki vel ljóst
hvaða dilk þessi ræða mundi
draga á eftir sér. En smám saman
hafa línur skýrst nokkuð. Gor-
batsjof stefndir að auknum áhrif-
um sérfræðinga, að minni völd-
um miðstjórnarstofnana og hann
vill auka efnahagslegt sjálfstæði
fyrirtækja í þá veru, að þau geti
betur umbunað sínu fólki þegar
vel gengur. Hinsvegar er ekki
ljóst, hvort almennt tal um að
gefa upp á bátinn opinberan
stuðning við léleg fyrirtæki geti í
framtíðinni leitt til að þau geispi
golunni. í annan stað er fitjað
upp á tilraunum á matvælafram-
leiðslu og þjónustu, sem líkjast
þeim úrræðum sem gripið hefur
verið til í Ungverjalandi og Kína.
Þetta getur litið þannig út að fjöl-
skyldur leigja af ríkinu land og
búpening, eða þá húsnæði og
búnað - og reka síðan fyrir eigin
reikning lítið mjólkurbú, kaffi-
hús eða annað þess háttar.
Enn er margt á huldu um það,
hve langt þetta „einkaframtak"
muni ganga, hve sterk áhrif
markaðarins verða á verðmynd-
un á nauðsynjum manna. Það er
heldur ekki Ijóst, hvort Gorbat-
sjof á við verulegt andóf innan
flokksins að glíma vegna þessara
nýmæla. Þótt enginn mæli opin-
berlega í mót sjálfum aðalritaran-
um getur það vel verið, að margir
þeir sem til þessa hafa átt náðuga
daga í skrifræðinu og eiga nú að
sýna raunhæfan árangur í starfi,
hugsi þessum „ungling“ í Kreml
þegjandi þörfina. Hitt er svo lík-
legt að Gorbatsjof sé tiltölulega
vinsæll meðal almennings - og
veldur þá mestu að Rússum
finnst framkoma hans öll, bæði
heima fyrir og erlendis, miklu
röggsamlegri en fyrirrennara
hans og svo það, að framboð á
neysluvörum hefur aukist að
undanförnu.
Fjölmiðla-
umrœða
Fjölmiðlar í Sovétríkjunum
hafa orðið miklu opinskárri og
gagnrýnni undanfarna mánuði en
þeir hafa lengi verið. Það er
meira um það, að þeir leiti að
veilum í „kerfinu" en að
„rannsóknarblaðamennska"
miðist aðeins við að segja frá ein-
stökum málum sem ekki er alhæft
um. Verulegt líf hefur færst í um-
ræðuna um umhverfismál -
mengun, náttúruvernd, notkun
kjarnorku og þar fram eftir göt-
um, og andstæðingar bláeygrar
tæknihyggju hafa unnið nokkra
sigra. Til dæmis með því, að nú
hefur verið hætt við þá glæfralegu
tilraun að veita vanti fljótanna
sem renna í Norður-íshafið suður
á bóginn að nokkru leyti og færa
um leið miklar lendur í kaf.
Þær skorður sem málfrelsi eru
settar hafa rýmkað og nú sjá
dagsins ljós ýmsar bækur sem
ekki gátu komist á prent áður. En
andófsmenn heima og erlendis
kvarta yfir því, að hlutskipti
þeirra hafi ekki batnað og að
samviskuföngum sé sýnd sama
harka og áður.
Alþýðumöl
Flestum fréttaskýrendum ber
saman um að á vettvangi alþjóð-
legra samskipta vilji Gorbatsjof
leggja töluvert á sig til að ná
samkomulagi við Bandaríkin um
stöðvun vígbúnaðarkapphlaups
og skref til afvopnunar. Sovét-
menn hafa undanfarna mánuði
gert verulegar tilslakanir í þeim
efnum og Gorbatsjof hefur í tví-
gang framlengt það einhlíta bann
við kjarnorkuvopnatilraunum
neðanjarðar sem hann vonar að
Bandaríkjamenn gangi inn á.
Hann er almennt talinn mun
samningafúsari en fyrirrennarar
hans og margir telja, að hefði
hann mátt ráða þá hefðu Sovét-
menn ekki ráðist í jafn tvísýnt og
dýrkeypt ævintýri og stríðið í Af-
ganistan. Um leið telja margir,
að ef Gorbatsjof nær ekki
áþreifanlegum árangri á fundum
þeirra Reagans, þá muni þeim
hópum vaxa nokkur fiskur um
hrygg í sovésku valdkerfi, sem
telja þýðingarlaust að tala við
Reaganstjórnina nema með
tveim hrútshornum.
-ÁB
18 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN, Sunnudagur 12. október 1986