Þjóðviljinn - 15.10.1986, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 15.10.1986, Blaðsíða 1
1936-1986 ÞJÓÐVILJINN 50 ÁRA október 1986 miðviku- dagur 234. tölublað 51. örgangur Ríkisstjórnin ÍÞRÓTTIR MENNING HEIMURINN Lax Engar kjarabætur Haust- göngur Stjórninstefnir að2% kauphœkkun 1987í4-5% verðbólgu. Gertráð fyrir hœkkun þjóðartekna fram yfir kauphœkkun Ríkisstjórnin telur að svigrúm til kauphækkana á næsta ári sé aðeins 2% sem í 4-5% verð- bólguspá þýðir minna en ekki neitt! Þjóðhagsáætlun, sem forsætis- ráðherra lagði fram á alþingi í gær byggist á því að útgjöld þjóðar- búsins aukist ekki nema um 2% á næsta ári, þó þjóðartekjur aukist um 3% Til að ná megi þessu marki segir að halda þurfi aftur af útgjöldum hins opinbera í fjárf- estingum og samneyslu og að „ráðstöfunartekjur heimilanna megi heldur ekki aukast í heild umfram þetta mark, nema sparn- aður aukist verulega." Þá segir að æskilegt sé að þetta svigrúm verði nýtt til að bæta kjör þeirra sem verst eru settir og að ríkisstjórnin vilji bæta skipulag launamála m.a. með því að reyna að samræma raunverulega greidd laun og umsamin. Það er því greinilega óáran framundan í launamálum þrátt fyrir góðæri og auknar þjóðart- ekjur. Það skal nýtt til að lækka halla á ríkissjóði, grynna á er- lendri skuldasöfnun og loks til að greiða niður verðbólguna þannig að hún verði svipuð og í ná- grannalöndunum. -ÁI Síðbúnar laxagöngur virðast komnar í nokkrar ár eftir góð- viðrið og rigningar haustsins. Þannig tjáði bóndi úr Reykhóla- sveitinni góðar göngur hafa kom- ið í síðustu viku í Bæjará og Laxá í Reykhólasveit, en þar hefur veiðin verið dræm í sumar. f Tón- afossi í Bæjaránni sáust um 25-30 laxar, og þar á meðal voru einnig nokkrir mjög stórir sjóbirtingar að sögn. Laxatorfa varð einnig vart í hyljum í Laxánni. -ÖS Nóbel Eli Wiesel fékk fríðar- verðlaunin Elie Wiesel, Gyðingur, nú bandarískur ríkisborgari og rit- höfundur, hlaut friðarverðiaun Nóbeis í ár fyrir óþrjótandi bar- áttu sína gegn mannvonsku, kúg- un og ofbeldi þessarar aldar. Wiesel hefur 12 sinnum verið útnefndur til friðarverðlauna Nó- bels, einn þeirra sem tilnefndi hann nú var Lec Walesa, leiðtogi hinna bönnuðu verkalýðssam- taka, Samstöðu í Póllandi. Wies- el hefur verið óþreytandi á að minna fólk á mannvonsku þessar- ar aldar með því að vísa á herferð nasista gegn Gyðingum í síðari heimsstyrjöldinni. Sjá umfjöllun Árna Bergmanns um Wiesel á bls. 13. -IH/Reuter Leikfélagið Stefán hættur Þrír sóttu um stjórastöðu hjá LR Þrír sóttu um starf leikhús- stjóra Leikfélags Reykjavíkur, en umsóknarfrestur rann út 10. okt- óber. Athygli vekur að Stefán Baldursson leikhússtjóri sækir ekki um aftur. Þau sem sækja um eru Þórhild- ur Þorleifsdóttir, Hallmar Sig- urðsson og Árni Ibsen. Stefán sagði í samtali við Þjóð- viljann að hann teldi sig hafa starfað nógu lengi sem leikhús- stjóri. „Ég starfa til hausts á næsta ári og hef þá verið í þessu starfi í 7 ár. Eg fékk margar á- skoranir frá starfsfólki um að halda áfram og mér þykir vænt um þann stuðning en þetta er mín lokaákvörðun“. Félagsfundur í leikfélaginu tekur lokaákvörðun um hver hlýtur stöðuna. -v VI6 flytjum á Bergþórugötuna! segja bömin á Bamaheimilinu Ós, sem í gær gengu frá Bergstaðastræti 26B til hins til hins nýja húsnæðis bama- heimilisins, sem er hið fræga „bárujárnshús" við Iðnskólann, það sem stóð til að rífa, og var svo hætt við vegna mótmæla, og að lokum leigt Ós-heimilinu. Barnaheimilið reka foreldrar barnanna og hafa lagt nótt við dag undanfarnar vikur við að koma húsinu í lag. Slík samhjálp á vel við því húsið en ein fyrsta félagslega byggð ibúð í borginni. (Mynd: Sig) Eyðni FimmtuÍHiur eru sprautusjúklingar Röskur fímmtungur þeirra sem mælast með eyðnisveiruna (AIDS) í blóði hérlendis, eða sex alls, eru eiturlyfjaneytendur sem sprauta sig. Þetta hlutfall er í hærra kantinum að sögn Ólafs Ólafssonar, landlæknis, því víða í Evrópu er hlutfall sprautusjúkl- inga lægra. „Það er þó best að fullyrða ekki um of, því þessar tölur eru enn svo lágar,“ sagði Ólafur. En alls eru nu 29 íslend- ingar með eyðnis-veiruna, og af þeim eru fjórir með eyðni á há- stigi. Áður hefur einn sjúklingur látist af veikinni hér á landi. Tuttugu hinna 29 með veiruna eru hommar, eða njóta kynlífs með fólki af báðum kynjum. Sex eru eiturlyfjaneytendur sem fyrr segir. Einn fékk eyðnisveiruna með blóðgjöf, en tveir falla utan þessara áhættuhópa að því best er vitað. Af þeim fjórum sem þjást af eyðni á hástigi er einn innan við tvítugt. Þeir sem breiða eyðni einkum út utan áhættuhópanna svoköll- uðu eru eiturlyfjaneytendur sem sprauta sig. „Hafi menn mök við sprautusjúklinga leggja þeir sig í nokkra hættu,“ sagði landlæknir. Hann kvað hlutfall sprautusjúkl- inga af eyðnissjúklingum hér á landi furðu hátt, þó ekki bæri að svo stöddu að spá of alvarlega í þessar tölur þar sem þær væru enn svo lágar. „En í Evrópu er hlutfallið yfirleitt lægra, á milli 10 og 20 prósent. Það er hins vegar hærra í Bandaríkjunum, eða fjórðungur að meðaltali. Auðvit- að þarf að dreifa miklu meiru af upplýsingum um smithættuna af eiturlyfjanotkuninni, einkum á meðal ungs fólks, sem ekki gerir sér alltaf nægjanlega grein fyrir tengslum eyðni og eiturlyfjanotk- unar,“ sagði Ólafur landlæknir. -ÖS Hagvangur Framsókn hrynur Framsókn fær hraklega útreið í skoðanakönnun frá Hagvangi sem opinberuð var á Stöð tvö f gær og hefur samkvæmt könnun- inni tapað þriðjungi fylgis síns í síðustu kosningum. Úrslit í könnuninni urðu þessi (í svigum fyrst tölur úr DV- könnun fyrir þremur vikum, svo kosningatölur ’83): Alþýðuflokk- ur 16,5% (16,5-11,7), Framsókn- arflokkur 13,6% (15,9-18,5), BJ 1,8% (1,2-7,3), Sjálfstæðisflokk- ur 43,8% (42,5-38,7), Alþýðu- bandalag 16,7% (16,2-17,3), Kvennalisti 6,9% (7,8-5,5). Könnunin var tekin bæði fyrir og eftir uppákomuna kringum BJ um mánaðamótin. Þess skal get- iðað í Hagvangskönnununum hefur Sjálfstæðisflokkurinn yfir- leitt meira fylgi, en í öðrum könn- unum, og Alþýðubandalagið minna. - m

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.