Þjóðviljinn - 15.10.1986, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 15.10.1986, Blaðsíða 3
FRETTIR Suðurland Hættir prófkjöri D-listinn valinn af kjördœmisráði Akjördæmisráðsfundi íhalds- manna á Selfossi um síðustu helgi var ákveðið að hætta próf- kjörum um framboð til þings. Þess í stað tilnefnir útþanið kjör- dæmisráð á listann, alls tæplega 250 manns. Óskar Magnússon á Eyrar- bakka, formaður ráðsins, sagði Þjóðviljanum að helstu ástæður væru þær að ljóst lægi fyrir að Sjálfstæðismenn á Suðurlandi væru ánægðir með þingmenn sína, og hugsanlegt prófkjör hefði fyrst og fremst snúist um varamenn. Þá væri hér verið að reyna að komast frá fornri skipt- ingu innan héraðs. Aðal- og var- afulltrúar í kjördæmisráðinu hafa tilnefningarrétt, og að auki verð- ur kosinn aukafulltrúi fyrir hvern aðalfulltrúa til þess eins að til- nefna. Hver fulltrúi á að tilnefna sex menn, óháð búsetu, og fara tilnefningar fram 25. október. í síðasta prófkjöri Sjálfstæðis- manna á Suðurlandi var fyrirfram ákveðið að í fjórum efstu sætun- um yrðu fulltrúar frá gömlu sunn- lensku kjördæmunum, Vest- mannaeyjum, Árnes-, Rangár- valla- og Vestur-Skaftafellssýsl- um. í kosningunum þar á undan lenti flokkurinn í vanda með þessa skiptingarreglu, og leiddi til sprengiframboðs Eggerts Haukdals á L-lista úr Rangár- vallasýslu. Þingmenn Suðurlands af D-lista eru nú Þorsteinn Páls- son, Árni Johnsen og Eggert Haukdal. í fjórða sæti síðast var Skaftfellingurinn Siggeir Björns- son. - m Nýtt Ríki verður opnað í Hagkaupshúsinu í ágúst á næsta ári. Áætlaður kostnaður við innréttingar og frá- gang er 40 milljónir. Auk þess verður varið 55 milljónum króna í byggingu yfir Breiðholtsríki í Mjóddinni og eru þá upptaldar framkvæmdir á vegum ÁTVR á næsta ári. Áætlaðar tekjur af sölu áfengis og tóbaks á næsta ári eru um 4 milljarðar króna og er það 12% aukning á sölu - eða hækkun á verði - miðað við árið í ár. Svefngalsar Spólandi spildu- Ijón Ný hljómplata. Útgáfan styrkt af Búvörudeild Sambandsins Svefngalsar svífa nú út á Ijós- vakann með spilduljónið spólandi í öldugangi hans. Það er Blaðstýft-aftan, sem hefur sent frá sér nýja hljómplötu með hljómsveitinni Svefngalsar og kallast hljómplatan Spilduljónið. Það er leikarinn Júlíus Hjör- leifsson, sem er potturinn og pannan á bak við þessa hljóm- plötu. Öll lög hennar eru eftir hann auk þess sem hann hefur sett saman flesta texta plötunnar. Þá sér rödd hans um að koma textunum til skila. Aðrir hljómsveitarmeðlimir eru þau Guðrún Gunnarsdóttir, söngur, Sigurgeir Sigmundsson, gítar, Níels Ragnarsson, hljóm- borð, Björn Vilhjálmsson, bassa og Birgir Baldursson, slagverk. Búvörudeild Sambandsins styrkti útgáfu þessarar plötu það veglega að aðstandendur útgáf- Júlíus Hjörleifsson með Spilduljónið undir stýri á spilduljóni. Mynd Sig. unnar geta sofið rólegir fyrir pen- ingaáhyggjum. Helmingur alls efnis á plötunni tengist sveitam- enningu og því þótti við hæfi að leita til Sambandsins um stuðn- ing. Auk þess prýðir Massey Fer- gusson spilduljón umslag plötu- nnar. Að sögn Júlíusar er víða leitað fanga í tónlistarflórunni, allt frá svíngi til pönks. -Sáf I 'ÖRFRÉ1TIR1 Öryggisverðir á Keflavíkurflugvelli eru greini- lega komnir til að vera. í fjárlag- afrumvarpinu fyrir næsta ár eru áætlaðar launagreiðslur fyrir 8 öryggisverði á flugvellinum, og er það í fyrsta sinn sem svo er. Matvæla- og neyðaraðstoð (slendinga verður feljd niður á fjárlögum næsta árs. Á þessu ári nam ríkisframlag til matvæla- og neyðaraðstoðar 4,8 milljónum króna en auk þess var samþykkt sérstök fjárveiting til tækniað- stoðar við Kólumbíu eftir náttúru- hamfarinar þar. Henni verður ekki haldið áfram heldur. Þróunarsam- vinnustofnun íslands fær óbreytt framlag á næsta ári, 24 milljónir króna. Enn fjarlægjumst við (slendingar því markmið Sameinuðu þjóðanna um að ríku þjóðirnar verji 1% af * vergum þjóðartekjum til þróunar- aðstoðar. ( fyrra var hlutfallið 0,06% og mun fara lækkandi á næsta ári. Sagnfræðinga- félagið samþykkti á aðalfundi sínum á dögunum að lýsa vanþóknun á þeirri aðferð sem Sverrir Her- mannsson menntamálaráðherra viðhafði er hann réð Hannes H. Gissurarson í stöðu rannsóknar- lektors í sagnfræði við Sagnf- ræðistofnun Háskólans. Segir í samþykktinni að ráðherra hafi vanvirt það sjálfræði sem aka- demísk fræði eiga tilkall til að njóta. IBM á íslandi hefur efnt til verðlauna- samkeppni meðal íslenskra hug- búnaðariramleiðenda. Hugbún- aðurinn er miðaöur við IBM System/36 tölvur og eru fyrstu verðlaun 500 þús. krónur og önnur verðlaun 200 þús. kr. Til- lögum skal skila fyrir 1. desemb- er n.k. t 4 . . 4*»***»»a þri i mið fim * .** fös lau ■ r.. ♦ sun V. mon \ ♦ ♦ ► ♦ Æmxs ■ ♦ ■ |, | li ú eru hinar vinsælu helgarferðir okkar innanlands komnar í fullan gang. Þetta eru ódýrarferðirsem innihalda flug til Reykjavík- ur frá tuttugu stöðum á landinu en einnig frá Reykjavík til Akureyrar, Egiisstaða, Hornafjarðar, Húsavíkur, Isafjarðar og Vestmannaeyja. Gisterá völdum hótelum og sumstaðar er morgunverður einnig innifalinn. Þessi skemmtilegi ferðamáti gefur einstakling- um, fjölskyldum og hópum möguleika á að . lilI a n jf B Bnm vkB 'm Mmm mmrn M lí.M eykjavik: Flug frá Á kureyri: Gisting á öllum áfangastöðum Flug- Hótel KEA, Hótel Varðborg, leiða, Flugfélags Norðurlands Hótel Akureyri, Hótel og Flugfélags Austurlands. Stefaníu og Gistiheimilinu Gisting á Hótel Esju, Hótel Ási. Loftleiðum, Hótel Borg, Hótel c Óðinsvéum og Hótel Sögu. gilsstaðir: Gisting í \/ Valaskjálf og Gistihúsinu EGS. Y estmannaeyjar: il Gisting á Hótel Gestgjafan- ornafjörður: Gisting um. á Hótel Höfn. safjörður: Gisting á ! íúsavík: Gisting á Hótel Isafirði. Hótel Húsavík. breyta til, skipta um umhverfi um stundarsakir. Áhyggjur og daglegt amstur er skilið eftir heima meðan notið er hins besta sem býðst í ferðaþjónustu hér á landi - snætt á nýjum matsölustöðum, farið í leikhús eða kunningj- arnir heimsóttir. Helgarferð er ómetanleg upplyfting. FLUGLEIÐIR

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.