Þjóðviljinn - 15.10.1986, Blaðsíða 16

Þjóðviljinn - 15.10.1986, Blaðsíða 16
Alþýðubandaiag og Kvennalisti munu ekki greiða atkvæði með Rainbow-samningnum um flutninga til hersins, sem lagður var fyrir alþingi í gær. Hjörleifur Guttormsson, Sig- ríður Dúna Kristmundsdóttir og Guðrún Helgadóttir gagnrýndu harðlega einstök efnisatriði samningsins sem m.a. á að víkja til hliðar þeim íslenskum lögum sem kunna að stangast á við hann. í máli sínu lögðu þau þó megináherslu á þá peningalykt sem af samningnum væri og kennd hefur verið við aronsku. Hjörleifur Guttormsson benti á að þegar dollarar væru í boði sameinuðust hugir og hjörtu hermangara jafnt innan Sjálf- stæðisflokks og Framsóknar- flokks. Þá heyrðist jafnvel úr þeim herbúðum að aðstaða fyrir amerískan her á landinu væri ekki gulltryggð nema dollararnir skiluðu sér. I sumar hefðu þeir jafnvel haft á orði að endurskoða „varnarsamninginn“ ef molarnir af borðum herranna syðra héldu ekki áfram að skila sér. Hins veg- ar væri harkan ekki sú sama í samskiptum við Bandaríkin þeg- ar kæmi að hinum stærri málum á alþjóðavettvangi. Þá gilti það eitt að styggja ekki vininn í vestri. Rifjaði hann upp þegar ísland eitt Norðurlanda, greiddi at- kvæði á þingi SÞ í fyrra gegn til- lögu Svíþjóðar, Mexíkó og fleiri ríkja um afvopnun og frystingu kjarnorkuvopna. Hann minnti einnig á áhuga utanríkisráðherra á því að íslendingar tækju þátt í geimvopnaáætlun Bandaríkj- anna, en hann kom fram í skýrslu Matthíasar til þingsins í vor. Fulltrúar Alþýðuflokks lýstu ánægju með samninginn. Stjórn- arþingmenn fögnuðu einnig ákaft. -ÁI Framsókn Steingrímur r a Reykjanes Steingrímur Hermannsson for- sætisráðherra og formaður Fram- sóknarflokksins lýsti því yfir í gær á aðalfundi kjördæmisráðs Fram- sóknarflokksins sem haldinn var í Hafnarfirði í gærkvöldi að hann myndi gefa kost á sér í efsta sæti listans í Reykjaneskjördæmi. Steingrímur hefur um árabil ver- ið þingmaður Vestfirðinga. Þetta er í fyrsta sinn sem formaður Framsóknarflokksins býður sig fram á höfuðborgarsvæðinu. - vd DMÐVIUINN ITItffJWirtlf ARA 1936-1986 ÞJÓÐVILJINN 50 ÁRA_Mlðvlkudagur 15. október 1986 234. tölublað 51. árgangur Aðalsími: 681333. Kvöldsími: 681348. Helgarsími: 681663. Rainbow-samningur Tveir flokkar á móti Alþýðubandalagið og Kvennalistinn hafna samningunum sem aronskum. Hjörleifur Guttormsson: Mótmœltþegar skrúfað erfyrir dollarakranann, en ekki í hinum stœrri málum Slátursalan Minni eftirspum 5 slátur í kassa kosta 1000 krónur. Dregurgóðærið úrsö/u? Slátursala stendur nú sem hæst og f höfuðborginni hefur verið handagangur í öskjunni hjá Slát- urfélaginu að Skútuvogi 4 undan- farið eftir fremur daufa byrjun. Hægt er að kaupa slátur eitthvað fram í næstu viku hjá SS. Markús Sigurðsson hjá SS sagði í samtali við Þjóðviljann að salan yrði trúlega minni en í fyrra. „Þá seldum við um 40 þús- und slátur en mér sýnist allt benda til að þetta losi rétt um 30 þúsund í ár.“ „Það er erfitt að geta sér til um ástæðurnar Stundum finnst manni eins og salan haldist í hendur við efnahagsástandið og að góðærið dragi fremur úr eftir- spurninni“. Hjá SS selja þau 5 slátur saman í kassa og kostar það 1000 krón- ur. Ef menn kjósa saumaðar Vambir hækkar verðið í 1.425 kr. I slátursölu SS á Skútuvogi: Margrót Sigurðardóttir, Helga Gísladóttir, Markús1 Sigurðsson og Borghildur Þórðardóttir. (mynd: EÓI) Krístín Nefndakjör felldi konumar út Kvennalisti missti aðild að 5 nefndum. A-flokkarnir létu hvor sittsœti til Kvennó en Sjálfstæðisflokkurinn setti Framsókn stólinn fyrir dyrnar Alþýðubandalag og Alþýðu- flokkur létu Kvennalista eftir sitt sætið hvor flokkur í allsherj- arnefnd Sameinaðs þings og í landbúnaðarnefnd neðri deildar við nefndakjör á alþingi í gær. Kvennalistinn hélt nefndarsætum sínum í efri deild og í fjárveitinga- Kvikmyndasjóður Eyjólfur að hressast Kvikmyndasjóður ætti að rétta úr kútnum á næsta ári eftir ára- langt fjársvelti. Miklar deilur hafa orðið á und- anfömum árum vegna niður- skurðar á framlögum til sjóðsins sem á þessu ári fékk aðeins 16 milljónir króna úr ríkissjóði. Á næsta ári er áætlað að verja 55 milljónum til sjóðsins sem er rúmlega þreföldun. Þar af skal verja 8 milljónum króna til kaupa á hentugu húsnæði fyrir Kvik- myndasjóð og Kvikmyndasafn. nefnd sem er 9 manna nefnd, en missti aðild að 5 nefndum öðrum, þar á meðal utanríkismálanefnd. Þetta eru þótt furðulegt megi virðast, afleiðingar þess að Kristín S. Kvaran gekk í þing- flokk Sjálfstæðismanna á dögun- um. Við þá riðluðust svo hlutföll milli stjórnar og stjórnarand- stöðu að Framsóknarmenn fengu 2 menn í stað eins í öllum 7 manna nefndum sameinaðs þings og neðri deildar. Kvennalistinn missti hins vegar sinn fulltrúa í sömu nefndum. Páll Pétursson, formaður þing- flokks Framsóknarmanna sagði í gær að þeir hefðu ekki viljað ryðja Kvennalistanum út úr heilbrigðis- og trygginganefnd neðri deildar, þar sem Guðrún Agnarsdóttir hefði unnið mjög gott starf og eins hefðu þeir viljað láta konunum eftir annað sæti sitt í félagsmálanefnd neðri deildar. Sjálfstæðisflokkurinn hefði hins vegar harðneitað og hótað að stilla sjálfur upp 4 mönnum, út- hýsa Kvennalistanum og yfirtaka þar með hreinan meirihluta í þessum nefndum. „Við gátum ekki látið frúna (þ.e. Ragnhildi Helgadóttur ráðherra) hafa hreinan meirihluta í heilbrigðis- og trygginganefnd,“ sagði Páll, „og urðum því að taka bæði sæt- in“. Páll sagði aldrei hefði komið til tals að láta eftir annað sætið í utanríkismálanefnd. „Þær fá áheyrnaraðild ef þær óska eftir henni,“ sagði hann. -ÁI Seltjarnarnes Forsetinn víttur Félagsmálaráðherra hefur á- talið forseta bæjarstjórnar Sel- tjarnarness fyrir að reka Arnþór Helgason af fundi bæjarstjórnar 24. september. Segir í bréfi ráð- hcrra að slík framkoma gagnvart blindum manni sem kjörinn sé til trúnaðarstarfa sé í alla staði óeðlileg og þess vænst. að slíkt komi ekki fyrir oftar. í bréfi til ráðuneytisins segist Amþór Flelgason fagna skjótum viðbrögðum ráðherra. Hins veg- ar sé hér ekki aðeins um misrétti við fatlaðan einstakling að ræða heldur tilræði við lýðræðið í landinu. Allir eigi að hafa rétt til að starfa, ekki vegna þess að þeir séu fatlaðir heldur þrátt fyrir fötl- un sína. Deilan hafi snúist um það hvort hann mætti hafa með sér upptökutæki á fundinn og bæjarstjóri hafi farið með stað- lausa stafi þegar hann fullyrti að að í bæjarmálasamþykkt væru hljóðritanir bannaöar. -v.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.