Þjóðviljinn - 15.10.1986, Síða 2
HSPURNINGIN—
Hvað finnst þér um
niðurstöðu leiðtogafund-
arins í Reykjavík?
Tryggvi Sigurðsson sálfræðingur.
Mér finnst það alveg ömurlegt að
ekkert skuli hafa komið út úr fundun-
um. Ég hafði aldrei raunverulega trú
á að samkomulag næðist en vonaði
það þó. Mér fannst Gorbatsjof koma
miklu betur fyrir en Bandaríkjaforseti.
hann var meira sannfærandi og lagði
meiri vinnu í að útskýra fyrir fólki hvað
var að gerast, bæði þegar hann kom
og áður en hann fór.
Elsa Flnnsdóttir skrifstofumaður.
Ég er mjög skúffuð yfir þessu. Það
biðu allir spenntir eftir niðurstöðum
en svo fór þetta svona. Ég er ekki
bjartsýn á að leiðtogarnir nái nokkr-
um árangri í Washington þegar þeir
hittast þar, ekki eftir þetta. Mér fannst
leiðtogarnir vera misjafnir, annar var
mun þyngri en hinn tók þessu léttar.
Katrín Gisladóttir
13 ára, nemandi í 7. bekk í Haga-
skóla.
Mér finnst árangurinn af fundinum
ekki nógu góður. Eg vildi að leiðtog-
arnir hefðu samið um að engin kjarn-
orkuvopn væru leyfð í heiminum. Þeir
hefðu átt að komast að einhverju
samkomulagi, og halda kannski einn
fund í viðbót úr því að þeir voru að
hittast.
Jón Pétursson lögregluþjónn.
Ég varð fyrir vonbrigðum með nið-
urstöður fundarins. Ég var ekki bjart-
sýnn fyrir en maður vonaði að sam-
komulag myndi nást þegar maður
hélt að eitthvað væri að ske. Gorbat-
sjof kom mjög vel fyrir sjónir að mínu
mati, það var meiri alvöruþungi í því
sem hann sagði. Ég held að leiðtog-
amir hittist ekkert í Washington á
næstunni eftir þessar niðurstöður.
Ingibjörg Svala Þórsdóttir
starfsmaður fréttamiðstöðvar-
innar í Hagaskóla.
Ég varð ekkert hissa á að ekki
skyldi koma meira út úr þessu. Ég var
alls ekki bjartsýn á árangur, og þetta
kom mér því ekki á óvart. Ég held að
Gorbatsjof hafi unnið mikið á í áliti alls
staðar í heiminum, hann stóð sig bet-
ur en Reagan.
FBÉTTIR
Ferðamálaráð
Birgir Þorgilsson Ferðamálaráði: 3500 manns komu vegna leiðtogafundar
Tekjur íslendinga sennilega nokkur hundruð miljónir
eir sem störfuðu að þjónustu
við þá sem hingað komu
vegna fundarins sýndu það enn og
sönnuðu að ferðaþjónustan getur
tekist á við og leyst verkefni af
þessari stærðargráðu, sagði Birg-
ir Þorgilsson hjá ferðamálaráði í
samtali við Þjóðviljann í gær.
Þegar upp var staðið tókst að
leysa gistivandann sem við blasti
fyrstu dagana eftir að tilkynnt var
um ieiðtogafund í Reykjavík, og
staðreyndin varð reyndar sú að
fjölmörgum gistiherbergjum var
óráðstafað. Birgir sagðist í gær
áætla að 3000-3500 manns hefðu
komið til landsins vegna leiðtog-
afundarins.
„Þetta var stórt verkefni, en
fyrirvarinn lítill, en fólk var
ánægt með þá þjónustu sem það
fékk hér. Blaðaskrif hafa verið
jákvæð, með aðeins þremur
undantekningum sem ég kannast
við. Sendiráð okkar í Bonn kom
nú reyndar leiðréttingu í þýska
dagblaðið Bild vegna furðuskrifa
þess um verðlag á gistingu á ís-
landi, en auk þess fengum við
neikvæða umfjöllun í spænska
dagblaðinu E1 Paiz og í bresku
blaði. Annars geta þeir sjálfum
sér um kennt sem létu okra á sér,
þeir hefðu getað fengið mun
ódýrari gistingu," sagði Birgir.
Hann var spurður um hugsan-
legar tekjur okkar af þessum við-
burðum. Hann sagði erfitt um
það að segja, en gerði ráð fyrir að
þar væri um að ræða nokkur
hundruð miljónir. Auk þess hefði
landið fengið ómetanlega kynn-
ingu um allan heim vegna
leiðtogafundarins og það opnaði
margar dyr sem áður voru lokað-
ar.
-gg
Kristján Gíslason, framkvæmdastjóri Radíómiðunar hf. afhendir Tryggva Páli Friðrikssyni, formanni Landssambands
hjálparsveita skáta fyrsta Dancall farsímann, en hann var gjöf frá fyrirtækinu til LHS.
Hjálparsveitirnar
Farsími á hverja sveit
Asunnudaginn færði
Landssamband hjálparsveita
skáta hverri aðildarsveit sinni
farsíma að gjöf. Tilefni þessarar
gjafar er 15 ára starfsafmæli
Landssambandsins og góð rekstr-
arafkoma þess á árinu.
Margar af hjálparsveitunum
tóku þátt í öryggisgæslu vegna
leiðtogafundarins og var tækifær-
ið notað er henni lauk á sunnu-
dagskvöld og farsímarnir afhentir
við formlega athöfn við Höfða.
Fyrir valinu urðu Dancall far-
símar, en þeir eru mest seldu far-
símar á íslandi. Það er fyrirtækið
Radíómiðun hf. sem flytur inn
símana og við þetta tækifæri færði
Kristján Gíslason, framkvæmda-
stjóri Radíómiðunar, LHS, einn
farsíma að gjöf. LHS og aðildar-
sveitirnar 21 eru því enn betur en
áður í stakk búnar að takast á
hendur margþætt björgunar- og
þjónustustörf.
Umferðin
Virðum
hvíta stafinn
í dag 15. október er alþjóða-
dagur „Hvíta stafsins“ aðal-
hjálpartækis blindra við að kom-
ast leiðar sinnar jafnt utan húss
sem innan, og forgangsmerki
þeirra í umferðinni.
í frétt frá Blindrafélaginu segir
að það krefjist langrar þjálfunar
að læra að nota hvíta stafinn svo
hann komist að sem mestum not-
um. Ökumenn og aðrir vegfar-
endur taki nú í ríkara mæli tillit til
blindra og sjónskertra sem nota
stafinn og er skorað á ökumenn
aðvirða hvíta stafinn sem stöðv-
unarmerki og vegfarendur hvatt-
ir til að sýna blindum og sjón-
skertum fyllstu tillitssemi.
Hvíti stafurinn gefur blindum færi á að
ferðast um í umferðinni á eigin veg-
um.
Eimskipafélagið
Ræður erlenda hótelsérfræðinga
Ákvörðun Eimskipafélagsins um hótelbyggingu við Skúlagötuna verðurgrundvölluð á niðurstöðum úttektarsérfræðinganna
Eimskipafélagið hefur ráðið til
sín bandaríska sérfræðinga til
þess að kanna það hvort að það sé
rekstrargrundvöllur fyrir því að
byggja hótel á lóð sem félagið á
við Skúlagötuna.
í nýju deiliskipulagi Skúla-
götunnar er gert ráð fyrir hótel-
byggingu á lóð Eimskipafélagsins
við miðja Skúlagötuna. Af hálfu
Eimskipafélagsins hefur þó enn
ekkert verið ákveðið um hvort
lóðin verði nýtt undir byggingu
hótels og eru bandarísku sérfræð-
ingarnir nú að gera svokallaða
hagkvæmnikönnun sem ákvörð-
un Eimskipafélagsins verður
byggð á.
„Okkur finnst óþarfi að finna
hjólið upp mörgum sinnum og
þess vegna fengum við þessa sérf-
ræðinga okkur til aðstoðar,"
sagði Hörður Sigurgestsson for-
stjóri Eimskips um ráðningu sérf-
ræðinganna til verkefnisins.
Hörður sagði að enn væri mjög
óljóst hvað úr yrði, en að rætt
hefði verið um 180 herbergja hót-
el. Hvort hótelið yrði byggt af
þeim eða öðrum, innlendum aðil-
um eingöngu eða í samstarfi við
erlenda aðila, væri allt óráðið
sagði Hörður.
-K.Ól.
>2 SIÐA - ÞJÓÐVILJINN Miövikudagur 15. október 1986