Þjóðviljinn - 30.12.1986, Blaðsíða 13
AFMÆU
Framhald af bls. 6.
landsbyggðinni. Mér kom gleði-
lega á óvart hversu góðan skiln-
ing borgarfulltrúinn í Reykjavík
hafði á hinum fjölþættu vandam-
álum landsbyggðarinnar. Hún
lagði sig alla fram um að kynnast
aðstæðum fólksins þar enn betur,
setti sig í þess spor, og vann að
lagfæringu löggjafarinar af sömu
trúmennskunni og dugnaðinum
og ætíð hefur einkennt hana. Þá
kynntist ég vel víðsýni hennar og
næmum skilningi á högum og
kjörum annarra.
Þessa sá ekki síður stað í trygg-
ingaþættinum, þar sem Adda
Bára átti sinn góða hlut að því að
lyfta kjörum aldraðra og öryrkja
upp úr þeirri eymd sem þau
höfðu verið í ásamt með vinnu að
margvíslegum umbótum á þessu
viðfeðma sviði, þar sem svo mik-
ils er vert að mannlegi þátturinn
verði eigi útundan.
Vel mætti oftar og betur minn-
ast mikilvægra sigra þessara ára,
þar sem þau Magnús og Adda
Bára tóku til hendinni af fram-
sýni og reisn með hag hins
veikburða og vanmegnuga að
leiðarljósi.
Kæra Adda Bára, innilegar
skulu hamingjuóskir mínar í dag
til þín, en ekki síður óska ég
hreyfingu okkar til hamingju
með þig.
Og eina leifturmynd í lokin:
Það er átaka- og örlagastund
innan hreyfingarinnar og fylking-
ar síga saman og óvægilega er
tekist á. Þá kveður sér hljóðs
kona lágvaxin og lætur ekki
mikið yfir sér. En hún færist öll í
aukana í ræðustólnum, setur
fram skoðanir á skýran og ljósan
hátt, svo að hvergi verður mis-
skilið, leiðir saman sjónarmið til
farsællar niðurstöðu, skírskotar
jafnt til skynsemi og tilfinninga,
ærinn hiti að baki orðanna, þótt
engin séu stóryrðin.
Eg undrast enn áhrif þessarar
ræðu, en Adda Bára er heldur
engum lík þegar hún tekur sig til.
Svo einfalt er það nú, mín kæra.
Megum við áfram njóta þín í
farsælu flokksstarfi. Eigðu gnótt
gifturíkra gleðidaga í framtíð-
inni.
Helgi Seljan
Einhvern veginn finnst mér al-
veg ómögulegt að hugsa um aldur
í sambandi við hana Öddu Báru.
Hún var gömul, þegar ég kynntist
henni fyrst ungri, þegar komin í
ábyrgðarstöður í sósíalískri
hreyfingu og kunni á flestu skil,
fannst mér, menntuð í því sem þá
var talið dæmigert karlafag, dug-
leg, nákvæm og ein af fáum kon-
um á þeim tíma, sem hélt því til
streitu að lifa fullu lífi, - bæði
nota menntun sína í starfi og
njóta þess að eiga börn og heim-
ili. Og núna, rúmlega þrjátíu
árum síðar, er hún enn ung, opin
fyrir nýjum hugsanagangi og hug-
myndum og tilbúin að meta þær
og vega sjálfstætt hvaðan sem
þær eru sprottnar. Hún Adda
Bára er nefnilega ein af þeim
sjaldgæfu manneskjum, sem
hlusta grannt eftir hvað aðrir
segja og meina áður en hún tekur
afstöðu til þess og er þá sama
hvort um er að ræða pólitískan
andstæðing eða skoðanabróður.
Þessvegna er svo gott að leita til
hennar til að ræða málin og gegn-
umlýsa þau og þessvegna hefur
henni svo oft verið falið að setja
niður ágreining, verið skipuð í
hóp til að samræma skoðanir og
koma með niðurstöðu, sem allir
eiga nokkurnveginn að geta fellt
sig við. Mannasættir og málam-
iðlari semsagt, - ekki öfundsvert
hlutverk, og hefur enda oft feng-
ið að gjalda þess úr báðum áttum
í senn, að þannig fengin sam-
ræmd niðurstaða er að sjálfsögðu
aldrei óskaniðurstaða neins.
Oft hefur mér fundist, að ýmis
þau einkunnarorð sem gefin voru
Njáli eigi við um þessa konu, en
hann var „heilráður og góðgjarn-
...hógvær og drenglyndur ... og
leysti hvers manns vandræði er á
hans fund kom". Og nú veit ég,
að Öddu Báru finnst of til jafnað,
en ég verð að fá að segja þetta
hér, því þessir eiginleikar tel ég
að skýri margt á hennar pólitíska
ferli. Það hlýtur að vera fleirum
en mér undrunarefni, þegar litið
er til baka, að þessi hæfi stjórn-
málamaður skuli aldrei hafa setið
á þingi. Það skyldi þó aldrei
koma í ljós, að það taki talsverð-
an tíma og krafta að leysa vand-
ræði og að drenglyndi, góðgirni
og hógværð séu á stundum allt að
því andstæða þeirra eiginleika,
sem ýta mönnum áfram á vett-
vangi alþingis? Sem betur fer höf-
um við Reykvíkingar í staðinn
fengið að njóta starfskrafta Öddu
Báru í borgarstjórn okkar og við
sósíalistar höfum fengið að njóta
krafta hennar í félagsstarfinu,
fyrst í Æskulýðsfylkingunni og
Sósíalistaflokknum og síðan Al-
þýðubandalaginu. Sjálfsagt
verða aðrir til að rekja svo verð-
ugt sé margvísleg ábyrgðarstörf
hennar á þessum vettvangi, en
sjálfa langar mig á þessum tíma-
mótum í lífi hennar fyrst og
fremst að þakka þau lóð, sem hún
hefur fyrr og síðar lagt á skálar í
baráttu kvenna fyrir jafnri stöðu
og jöfnum réttindum og fyrir
betra mannlífi. Þar höfum við
konur átt öruggan málsvara hvar
sem hún hefur verið stödd, í
félags- og heilbrigðismálum
borgarinnar, sem aðstoðarmaður
heilbrigðis- og tryggingamálaráð-
herra, í þverpólitísku kvenna-
starfi og kvennastarfi Alþýðu-
bandalagsins og ekki síst í mála-
tilbúnaði og umfjöllun innan
flokks, þar sem oft hafa verið
teknar ákvarðanir, sem síðan
hafa mótað umræðu og alyktanir
á mun víðara sviði. Sérstaklega
langar mig að þakka í þessu sam-
bandi þann manneskjulega skiln-
ing sem þessi málsvari okkar hef-
ur ævinlega haft á því, að það er
ekki konum sjálfum að kenna
hvernig málum er háttað, að það
geta ekki allar það sama og hún
bara ef þær eru nógu duglegar og
að það þarf vissa hjálp og jafnvel
tímabundin forréttindi til að hóp-
ar í minnihluta aðstöðu nái jafnri
stöðu.
Nú þykir líklega sumurn nóg
kornið, en þar sem ég óttast að í
tilefni dagsins verði aðallega
dregin upp í blaðinu okkar mynd
af alvarlega stjórnmálamannin-
urn og veðurfræðingnum má eg til
að bæta við, að afmælisbarnið er
kátust kvenna í góðra vina hópi,
syngur og leikur við hvern sinn
fingur og munu mér seint líða úr
minni æðislegar samverustundir í
Kaupmannahöfn þegar við
nokkrar íslenskar konur úr ólík-
um pólitískum flokkum bjuggum
saman á hóteli og könnuðum
leikhús, verslanir, veitingahús og
krár stórborgarinnar. Þótt Adda
Bára umgengist jafnan Bakkus af
fullkominni varúð stóð ekki á
henni að fylgja okkur eftir hvert
sem var í könnunarleiðöngrun-
um. Eða kvöldvökurnar okkar
AB kvenna í Ölfusborgum. Fyrir
þessar stundir ber líka að þakka
um leið og sett er fram sú ósk, að
við fáum að njóta afmælis-
barnsins enn um langan veg.
Vilborg Harðardóttir
S-Afríka
Bann á
„Svarta
menntun“
Yfirvöld í S-Afríku hafa sett á bann á
námsskrá íbúa sem þeir hafa sett í skóla
til mótvœgis við hinar opinberu
námsskrár
Jóhannesarborg - Yfirvöld í S-
Afríku veittu í gær embættis-
mönnum sínum mikil völd til
þess að stöðva „aðra mögu-
leika,“ óopinbera, í kennslu-
málum í skóium svartra í
landinu.
Þá tilkynnti Sameinaða lýð-
ræðisfylkingin, (UDF) ein stær-
stu samtökin sem berjast gegn
kynþáttamisréttinu í landinu, að
þau hygðust ögra nýlegum tak-
mörkunum yfirvalda á fréttafrelsi
í landinu.
Nýjar reglur sem birtar votu í
sérstökum ríkisstjórnartíðindum
ígærogundirritaðar afP.W. Bot-
ha forseta landsins, gefa kennslu-
málaráðuneytinu víðtæk völd til
að banna nemendum að sækja
skóla, einnig að banna námskeið
þau sem sem stjórnvöld hafa ekki
samþykkt. Fjölmargir samfélags-
hópar hafa sett saman áætlanir
um svonefnda „alþýðumenntun"
í skólum svartra sem vera á til
mótvægis námsskrá yfirvalda. Að
áliti þessara hópa er sú námsskrá
einungis þáttur í að framlengja
kynþáttamisrétti landsins.
UDF tilkynnti í gær að hún
hygðist leita frekari staðfestingar
á fréttahömlunum í landinu fyrir
dómstólum á þeim forsendum að
þau séu óskýr og gangi út fyrir
reglugerð um almannaöryggi.
Neyðarástandslögin eru einmitt
byggð á þeirri reglugerð.
HEIMURINN
Kína/Námsmenn
Enn er mótmælt
Námsmenn i Peking fóru íkröfugöngur ímorgunsárið ígærþráttfyrir
að yfirvöld hefðu settstrangar reglurfyrir helgina um kröfugöngur í
landinu. Kínverskir fjölmiðlar eru harðorðir ígarð mótmœla
Peking - Námsmenn í kennara-
háskóla Pekingborgar fóru í
gær í mótmælagöngu í trássi
við bann stjórnvalda við slík-
um mótmælum.
1 fréttablaði í Peking sagði í gær
sagði að hópar 200 og 300 náms-
manna úr kennaraháskóla borg-
arinnar hefðu gengið að þremur
öðrum háskólalóðum. Náms-
menn þar hefðu hins vegar neitað
að taka þátt í göngunni. Þar með
hafi mótmælin leyst upp. Gangan
í gær er sú fyrsta síðan harðar
reglur voru settar á síðasta föstu-
dag um mótmæli. Námsmenn
fóru í gönguna þrátt fyrir marg-
ítrekaðar viðvaranir frá
stjórnvöldum um að halda sig
fjarri götunum. í öllum stærstu
ERLENDAR
FRÉTTIR
HJÖRLEIFSSON R E Lll E R
Olía
Nýjar hækkanir
/ kjölfar nýlegs samnings OPEC ríkja um olíuverð hafa nú borist
fregnir af vœntanlegum olíverðshœkkunum. Stefna uppfyrir20
dollara markið
Lundúnum - Saudí Arabía og
fjölmargir aðrir olíuframleið-
endur gáfu í gær til kynna að
ný alda olíuverðshækkana
væri nú í aðsigi sem komi til
með að hækka hráolíukostnað
um sem nemur tuttugu pros-
entum frá því sem verið hefur
undanfarna mánuði.
Saudí Arabía, Kuwait og íran
tilkynntu viðskiptavinum að bú-
ast mætti við nýju, hærra samn-
ingsverði frá og með 1. febrúar
næstkomandi. Þetta var haft eftir
heimildarmönnum innan olíuiðn-
aðarins. Sovétríkin hafa einnig
tilkynnt að þau hyggist fara fram
á hærra verð fyrir þá jarðolíu sem
þau selja vestrænum ríkjum. Þá
fréttist einnig af nokkrum hækk-
namsmanna
dagblöðum í Kína voru í gær
harðorðir leiðarar um náms-
mannamótmælin í síðustu viku.
Þar sagði að það væri andstætt
stjórnarskránni að andæfa sósíal-
isma og kommúnistaflokki lands-
ins. Þá var fólki ráðlagt að apa
ekki eftir því sem nefnt var plat-
lýðræði kapítalískra ríkja.
í fyrrakvöld vitnaði ríkissjón-
varpið kínverska í einn af leið-
togum landsins, Wang Zhen, þar
sem hann gagnrýnir það fólk sem
útbreiði stjórnleysi, níði Kína og
vinni að allsherjar „vestræningu“
landsins. Dagblaðið í Peking birti
í gær aðvörun við notkun vegg-
spjalda sem eru ólögleg. Blaðið
sagði að vinnuflokkar á hverju
svæði væru ábyrgir fyrir því að
ólögleg veggspjöld væru ekki sett
upp á þeirra vinnusvæði. Náms-
menn hafa mikið notað vegg-
spjöld til að vinna að stuðningi
við mótmælagöngur sínar í að
minnsta kosti tíu borgum víðs-
vegar um Kína í þessum mánuði.
í þessum göngum hefur verið
krafist lýðræðis og frelsis í
landinu. Vestrænn diplómat í
Peking sagði í gær að harðorðar
yfirlýsingar í blöðum undanfarið
sýndu vaxandi óþolinmæði yfir-
valda við mótmælunum. Sagði
hann að það væri nú orðið mjög
hættulegt að fara í kröfugöngur.
unum trá Indónesíu og Brunei.
Þessar aðgerðir koma í kjölfar
samnings OPEC ríkja frá 20. des-
ember síðastliðnum um takmark-
anir á olíuframleiðslu sinni. Þeim
er ætlað að draga úr umfram-
birgðum af olíu á heimsmarkaðn-
um og til að fastsetja samnings-
bundið verð á olíu frá og með 1.
febrúar.
AUGLÝSING
frá ríkisskattstjóra
Samkvæmt ákvæöum 3. málsl. 7. gr. laga nr.
49/1985 um húsnæðissparnaðarreikninga hefur
ríkisskattstjóri reiknað út þær fjárhæðir er um
ræðir í 2. mgr. 2. gr. laganna og gilda vegna
innborgana á árinu 1987.
Lágmarksfjárhæð skv. 2. málsl. 2. mgr. 2. gr.
laganna verður kr. 20.069 og hámarksfjárhæð kr.
200.690. Lágmarksfjárhæð skv. 3. málsl. 2. mgr.
2. gr. laganna verður kr. 5.017 og hámarksfjár-
hæð kr. 50.170.
Reykjavík 19. desember 1986
Ríkisskattstjóri
Þriðjudagur 30. desember 1986 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 13
-*Z*£jg2.
Se*wv- ”, , 4 -
gramml
Laugavegii7 simi 12040