Þjóðviljinn - 30.12.1986, Qupperneq 15
Knattspyrna
Santana
til
Saudi-Arabíu
Tele Santana, landsliðsþjálfari
Brasiiíu í síðustu heimsmeistara-
keppninni, var í gæ1- ráðinn til Al
Ahli í Saudi-Arabíu. Santana
þjálfaði félagið áður en hann tók
við brasilíska landsliðinu fyrir
HM, en lýsti síðan yflr því að
hann væri hættur. Olíuauðurinn
hefur aðdráttarafl...
-VS/Reuter
Vestur-Þýskaland
Buchwald
bestur
Frá Jóni H.Garðarssyni fréttamanni
Þjóðviljans í V.Þýskalandi:
Guidu Buchwald, félagi Ásgeirs
Sigurvinssonar hjá Stuttgart, var
besti bakvörðurinn í fyrri umferð
Bundesligunnar í knattspyrnu, sam-
kvæmt einkunnagjöf blaðsins Kicker.
Uli Stein hjá Hamburger SV var besti
markvörðurinn og Thomas Hörster
hjá Leverkusen besti miðvörðurinn
(libero). Þetta kom fram í fyrri hluta
samantektar blaðsins um helgina en
seinni hlutinn verður birtur um næstu
helgi.
ÍÞRÓTTIR
Ragnheiftur Runólfsdóttir - þrjú met.
Eftvarft Þór Eftvarftsson - tvö met.
Sund
Níu Islandsmet
á stórmótinu
Eitt bœtt mínútu síðar. Sex unglingamet.
Valsmótið
Annað tap
Dananna
Valur vann 24-23
Haukar lögðu Blika
Valsmenn lögðu Aarhus KFUM frá
Danmörku að velli, 24-23, í 2. umferð
Afmælismóts Vals í handknattleik
sem leikin var á Akranesi í gærkvöldi.
Danirnir hafa því tapað báðum
leikjum sínum því Breiðablik sigraði
þá 32-27 f Digranesi í fyrrakvöld.
Þá gerðu Haukar sér lítið fyrir og
sigruðu Breiðablik, efsta lið 1.
deildar, 29-26, á Akranesi í gær-
kvöldi. Þeir höfðu tapað 23-34 fyrir
Val í fyrstu umferðinni.
Valur er því með 4 stig, Haukar 2,
Breiðablik 2 en Aarhus KFUM rekur
lestina með ekkert stig. Þriðja og síð-
asta umferðin verður leikin í Selja-
skóla í Reykjavík í kvöld. Kl. 20 mæt-
ast Valur og Breiðablik en kl. 21.30
leikur Aarhus KFUM við Víkinga,
sem þá taka sæti Hauka í mótinu. Á
milli, kl. 21.15, rriun Jón Páll Sig-
marsson reyna að skora úr 10 vítak-
östum hjá Einari Þorvarðarsyni
landsliðsmarkverði og er þúsundkall í
veði í hverju skoti.
-VS
írland
Ráðist
r
Svanhlldur Kristjónsdóttir var á Þorláksmessu út-
nefnd íþróttamaður Kópavogs þriðja árið (röð af Rotary-
klúbbi Kópavogs. Svanhildur hefur undanfarin ár verið í
fremstu röð í spretthlaupum hér á landi og staðið sig vel,
heima og erlendis. Mynd: E.ÓI.
Kraftlyftingar
Tvö met Harðar
Hörður Magnússon setti tvö fs-
landsmet í 110 kg flokki í
kraftlyftingum á opna Reykja-
víkurmeistaramótinu sem haldið
var í Garðaskóla á laugardaginn.
Hann lyfti 352,5 kg í hnébdygju
og samtals 872,5 kg.
BárðurB. Olsen setti þrjú ung-
lingamet í 82,5 kg flokki, Magnús
Steindórsson tvö í 100 kg flokki,.
Hjalti Árnason tvö í 125 kg flokki
og Snæbjörn Aðils eitt í 100 kg
flokki.
í kvennaflokki settu Nína Ósk-
arsdóttir og Sigurbjörg Kjartans-
dóttir fjögur íslandsmet hvor,
Nína í 60 kg og Sigurbjörg í 67,5
kg flokki. Þá setti Elín Ragnars-
dóttir þrjú íslandsmet í 75 kg
flokki.
Þriftjudagur 30. desember 1986
Ragnheiður Runólfsdóttir frá
Akranesi setti þrjú íslandsmet á
stórmóti Bylgjunnar sem fram fór
í Sundhöll Reykjavíkur á sunnu-
daginn. Eðvarð Þór Eðvarðsson
frá Njarðvík setti tvö en alls féllu
níu íslandsmet á mótinu, þar af
tvö í sömu greininni með mínútu
millibili. Magnús Ólafsson frá
Þorlákshöfn synti þá 50 m flug-
sund á 27,04 sekúndum en Eð-
varð Þór bætti það jafnharðan
með því að synda á 26.61.Í næsta
riðli.
Ragnheiður setti met í 50 m
bringusundi, 32,29 sekúndur,
sem jafnframt var besta afrek
mótsins í kvennaflokki, gefur 903
stig. Hún synti síðan 50 m bak-
sund á 31,30 sek. og 100 m bak-
sund á 1:07,49 mín. Allt íslands-
met og hún vann auðvitað allar
greinarnar.
Eðvarð Þór vann besta afrekið
í karlaflokki, hlaut 941 stig fyrir
að synda 50 m baksund á 26,98
sekúndum. Hann sigraði einnig í
50 og 100 m baksundi en náði
ekki metum sínum þar.
Magnús Ólafsson setti íslands-
met í fyrstu grein mótsins þegar
hann sigraði í 50 m skriðsundi á
24,39 sekúndum.
Systur Magnúsar, Bryndís og
Hugrún, settu síðan sitt íslands-
metið hvor. Hugrún sigraði í 50 m
flugsundi á 29,78 sekúndum og
Bryndís í 50 m skriðsundi á 27,36
sekúndum.
Að auki féllu sex unglingamet
á mótinu sem var vel heppnað og
skemmtilegt, enda var aðeins
keppt í styttri vegalengdum.
-VS
a
Coghlan
Eamonn Coghlan, írski
hcimsmcistarinn í 5000 m hlaupi,
varð fyrir árás í Dublin á sunnu-
daginn. Hann var að hlaupa um
götur borgarinnar og skammaði
þá tvö ungmenni fyrir veitast að
konu og barni með ósæmilegu
orðbragði. Ungmennin siguðu þá
á hann hundi sem beit stykki úr
kálfa Coghlans. Coghlan hand-
leggsbrotnaði einnig í átökunum
við hundinn og nú bendir allt til
þess að hann missi af innanhúss-
vertíðinni í Bandaríkjunum sem
hefst fljótlega eftir áramótin.
-VS/Reuter
Körfubolti
Þrir sigrar á Möltu
Pálmar kjörinn besti leikmaður mótsins
ísland sigraði Möltu 72-60 í
lokaumferð alþjóðlegs körfu-
knattleiksmóts sem lauk á Möltu í
gærkvöldi og stóð þar með uppi
sem sigurvegari á mótinu. Það
var b-Iiðið, styrkt með Pálmari
Sigurðssyni og Ivari Webster,
sem fór í þessa ferð og vann alla
þrjá leiki sína.
Möltubúar voru yfir allan fyrri
hálfleikinn, 32-28 í hléi, og náði 9
stiga forystu í byrjun seinni hálf-
leiks. ísland komst fyrst yfir 42-
40 með þriggja stiga körfu Pálm-
ars. Eftir það lét íslenska liðið
ekki forystuna af hendi og jók
hana með mikilli baráttu og
stemmningu. ívar Webster átti
stórgóðan leik, var besti leikmað-
ur íslenska liðsins og skoraði 23
stig en Pálmar gerði 21.
Á sunnudag vann ísland yfir-
burðasigur á úrvalsliði Sikileyjar,
108-64. Einar Ólafsson skoraði
25 stig í þeim leik, Birgir Mikaels-
son 14, lvar Webster 14 og Teitur
Örlygsson 11. í fyrstu umferð
vann ísland Luxemburg 73-63.
Þá skoraði Pálmar 24 stig og Birg-
ir 13.
ísland hlaut því sex stig á mót-
inu, Luxemburg varð í öðru sæti
með 4 stig, Malta fékk 2 stig en
Sikiley ekkert.
Pálmar Sigurðsson var kjörinn
besti leikmaður mótsins en hann
átti jafna og góða leiki. Ekki í
fyrsta sinn sem Pálmar fær slíka
útnefningu á alþjóðlegu móti.
Þeir Pálmar og ívar fara með
A-landsliðinu til Svíþjóðar á
sterkt mót sem hefst í Nyköping á
sunnudaginn, 4. janúar. Þar
verður leikið við Svíþjóð, ísrael
og Grikkland.
-VS
ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 15
lnnanhússknattspyrna
Yfirixirðir KR
Vann Þrótt 13-4 í úrslitaleik
íslandsmeistarar KR í
innanhússknattspyrnu unnu
yfirburðasigur á Þrótturum,
13-4, í úrslitaleik Reykjavík-
urmótsins sem fram fór í
Laugardalshöllinni um helg-
ina. Sæbjörn Guðmundssn og
Heimir Guðjónsson skoruðu 3
mörk hvor í leiknum en staðan
í hálfleik var 8-2 og yfirburðir
KR miklir.
KR-ingar sigruðu ÍR 6-3,
Fylki 5-2 og Ármann 5-1 í
riðlakeppninni en töpuðu 2-3
fyrir Víkingi. KR fékk 6 stig í
riðlinum, IR 5, Víkingur 4,
Fylkir 3 og Ármann 2 stig.
Þróttur fékk 7 stig í hinum
riðlinum, Fram 5, Valur 5,
Leiknir 2 og Víkverji 1 stig.
í kvennaflokki vann Valur
öruggan sigur, fékk 7 stig, KR
5 en Fram ekkert. Liðin léku
tvöfalda umferð, Valur og KR
skildu fyrst jöfn, 4-4, en síðan
vann Valur 6-1.
-VS