Þjóðviljinn - 22.01.1987, Blaðsíða 5

Þjóðviljinn - 22.01.1987, Blaðsíða 5
HEIMURINN Gjaldmiðlar Dollarinn hressist Orðrómur um vaxtalœkkun í Bonn og Tokyo hœkkar dollarann. Gengi dollarans í japönskum yenum frá 1965. Dollarinn hefur heldur rétt við á helstu gjaldeyrismörk- uðum þar sem útlit er fyrir að Bandaríkjamenn fái Japana og Vestur-Þjóðverja til að skerast í leikinn. Dollarinn fékkst í gær fyrir 1,85 þýskt mark og 154 japönsk yen f stað 1,80 og 150 fyrr í vikunni. Um miðjan des- embermánuð var gengi dollar- ans um 2 DM og 160 yen. Rætt er um að í náinni framtíð muni stjórnvöld í Bonn og Tokyo ákveða vaxtalækkun sem drægi úr áhuga á að kaupa yen og mörk og styrkti þannig dollarastöðuna. Vesturþýski Seðlabankinn, Bundesbank, er talinn ætla að lækka helstu vexti úr 3,5 í 3%, en af því verður varla fyrr en eftir kosningarnar á sunnudag. Fjár- málaráðherrar Japans og Banda- ríkjanna hafa verið á fundum í Washington og telja menn að Bandaríkjastjórn sé að reyna að knýja fram vaxtalækkun í Tokyo líka gegn því að Bandaríkjamenn stöðvi dollarafallið. LarrySpeak- es talsmaður Bandaríkjaforseta neitaði í gær sögum um að Washington-stjórn kærði sig koll- ótta þótt dollarinn félli enn meira. Efnahagssérfræðingar telja að þótt unnt reynist að koma kyrrð á gjaldeyrismarkaðinn í bili verði uppdráttarsýkin ekki læknuð nema Washington-stjórn einbeiti sér að því samtímis að rétta úr bæði halla á viðskiptajöfnuði og fjárlagahalla sem hefur verið eitt megineinkenna á efnahagsstefnu Reagan-manna. Bankastjórn þess banka í Mos- kvu sem sér um viðskipti við út- lönd sagði í grein í Prövdu í gær að Sovétmenn vildu fá annan al- I þjóðagjaldmiðil eða gjaldeyris- einingu en dollarann. Banka- stjórinn, sem heitir því ágæta nafni Júrí ívanof, segir Banda- ríkjastjórn notfæra sér stöðu dollarans sem helsta viðskiptagj- 3,00 2.00 T =3 am 26. Feb, 1985 >5j 3,47 Mark WEICHERDOLLAR Wert des Oollar in Mark j 1960 Jatasdárchsctmitte 1965 1970 Tiefststand am3. Jan. 1980J 1.71 Mark 1975 1980 J—L l—L. 1985 Gengi dollarans í þýskum mörkum frá 1965 (úr Spiegel). aldmiðils þjóða í millum. Nú væri Washington-stjómin að setja helstu viðskiptaþjóðum stólinn fyrir dyrnar með dollarafallinu, og hefðu þegar skapast erfiðar stjórnmálaaðstæður af þeim sökum í Vestur-Þýskalandi og Frakklandi. Sovétmenn hefðu aftur hag af sæmilegum friði á gjaldeyrismörkuðum. SovétlKína Landamæra- viðræður hefjast á ný Peking - Talsmaður utanríkis- ráðuneytisins tilkynnti í gær að Sovétmenn og Kínverjar mundu ræðast við um landa- mæradeilur sínar í febrúar í Moskvu. Talsmaðurinn sagði að sam- skipti ríkjanna hefðu enganveg- inn batnað þrátt fyrir ákvörðun um þessar viðræður, enda yrði áður að eyða þrándunum þremur sem Kínverjar hafa talið í götu bættra samskipta: landamæra- málin, Afganistan-stríðið' og Kampútseu-deiluna. Talsmaðurinn sagði þó að Kín- verjar hefðu tekið eftir tilkynn- ingu Sovétmanna um brottflutn- ing hluta sovéska herliðsins í Mongólíu við landamæri Kína, og að á síðasta ári hefðu viðskipti ríkjanna aukist. Formaður kín- versku sendinefndarinnar í Mos- kvuviðræðunum verður Qian Qichen varautanríkisráðherra. Sjónvarp Móðgun við SÞ-sveítir Áhrifamenn gagnrýna sjónvarpsþætti um sovéskt hernám í Bandaríkjunum. Sovétmenn vilja kaupaþœttina ogsýna New York - Þrír fyrrverandi ut- anríkisráðherrar Bandaríkj- anna og ýmsir aðrir fyrrver- andi áhrifamenn hafa skorað á sjónvarpsstöðina ABC að láta þáttaröðinni „Amerika" fylgja aðra þætti um friðargæslu- störf herja á vegum Samein- uðu þjóðanna. Fyrsta þættinum í þáttaröðinni „Amerika“ á að sjónvarpa 15. fe- brúar. „Amerika“ (með kái sem á að vera uppá rússnesku) fjallar um ástandið í Bandaríkjunum tíu árum eftir að Sovétmenn hafa lagt þau undir sig með aðstoð hersveita frá Sameinuðu þjóðun- um, og eru þættirnir í hinum nýja kaldastríðsanda sem íslendingar hafa kynnst til dæmis í kvikmynd- unum Rambó, Rauðri dögun, Týndir í orrustu og svo framveg- is. Forystumenn Sameinuðu þjóðanna hafa lýst þáttunum sem móðgun við friðargæslusveitir á vegum Sameinuðu þjóðanna, fyrr og síðar, en slíkar sveitir eru nú í Líbanon. Meðal þeirra Bandaríkja- manna sem nú hafa skorað á sjónvarpsstöðina að láta gera sérstaka fylgiþætti um sveitir SÞ eru Dean Rusk, Edmund Muskie og Alexander Haig fyrrverandi utanríkisráðherrar, Robert McFarlane og Brent Scowcroft fyrrverandi öryggisráðgjafar í Hvíta húsinu og Jean Kirkpatrick og Andew Young, fyrrverandi fulltrúar Bandaríkjanna hjá SÞ. Sovétmenn hafa haft í frammi hávær mótmæli gegn sýningu þáttanna, sem þeir telja að gefi alranga mynd af daglegu Sovétlífi og friðarvilja ráðamanna eystra. Þeir hafa líka sýnt áhuga á að kaupa þættina til sýninga í so- véska sjónvarpinu til að sovésk- um almenningi verði ljóst hvern- ig bandarísk öfgaöfl hugsi sér So- vétmenn. íransklúður Reagan fyrir rann- sóknarnefnd Washington - Ronald Reagan Bandaríkjaforseti svarar á mánudag spurningum rann- sóknarnefndar sem hann skipaði fyrir nokkru til aö at- huga einn þátt vopnasölu- málsins. Fundur nefndarinnar með Reagan verður lokaður blaðamönnum. Reagan hefur verið hljóður um málið í nokkrar vikur, og er enn að jafna sig eftir uppskurð fyrir hálfum, mánuði. Rannsóknar- nefndin sem kallað hefur forset- ann á sinn fund var skipuð til að kanna sérstaklega vinnubrögð Þjóðaröryggisráðsins (NSC) í málinu, en þar störfuðu bæði John Poindexter og Oliver North, sem enn eru einu opin- beru sökudólgarnir. Nefndinni er ætlað að ljúka störfum fyrir 19. febrúar. Utanríkisráðherrann Shultz bar í gær vitni fyrir rannsóknar- nefnd fulltrúadeildar þingsins, og var sá fundur einnig lokaður. Shultz hefur fullyrt að vopnasal- an og fjárstreymið til kontraliða í Nicaragua hafi farið fram án sinn- ar vitundar. Eitt af því sem tefur rannsókn málsins er að William Casey yfir- maður CIA liggur á sjúkrahúsi eftir heilauppskurð og veit eng- inn enn hvort hann nær sér. Rannsakendur telja að hann viti meira en hann læst. Talsmaður Bandaríkjaforseta sagði í gær að ekki hefði verið ákveðið að leysa Casey frá störfum, en viður- kenndi að rætt hefði verið um starfann við Howard Baker, leið- toga repúblikana í öldunga- deildinni og hugsanlegan forset- aframbjóðanda. ERLENDAR FRÉTTIR MÖRÐUR ÁRNASON /REU1ER Persaflóastríðið Fljótið skilur herina að Basra ekki talin í hœttu, en íranar tilkynna nýja landvinninga Bagdad/Teheran/Washington - íranar tilkynntu í gær um nýja landvinninga í orrustunni austan Basra, og sögðust hafa tekið gríðarvel varið þorp, Du- ’Ayji, 15 kílómetrum frá borg- inni. Sérfræðingar bandaríska varnarmálaráðuneytisins telja þó að Basra sé ekki f hættu að sinni. Bandaríkjamenn segja að ír- ansher hafi stöðvast um 10 kíló- metra suðaustur af Basra og ekki komist lengra í sókninni í viku. Fljótið Shatt Al-Arab, sem myndast úr Tígris og Evfrat. skilji enn að herina, 200 þúsund Irakar séu til varnar vestan þess, og 200 þúsund íranar austan, 60 þúsund innan landamæra íraks og 140 þúsundviðlandamærin. íransher heldur þó uppi miklum stórskota- árásum á borgina, og bandarísku sérfræðingarnir þora ekki að spá hverju vindur fram. Þeir áætla að af írönum hafi síðasta mánuðinn fallið 20-25 þúsund manns og annar eins hópur óvígur af sár- um. Af írökum séu óvígir milli 10 og 20 þúsund, tæplega helmingur þess fjölda fallinn. Saddam Hussein leiðtogi íraka endurtók í gær friðarboð í bréfi til írönsku þjóðarinnar. Hann sagði skilyrði sín að herirnir yrðu kall- aðir innfyrir landamærin, stríðs- föngum skilað og að gerður yrði friðarsamningur sem kvæði á um afskiptaleysi af innanríkismálum. Hussein sagði að Khomeini- menn í íran ætluðu sér að neyða alla íraka til að taka við shítagerð íslamstrúar sem við lýði er í Iran. Rúmur helmingur íraka fylgir shítasið en Hussein og aðrir ráða- menn eru í hópi „rétt“- trúnaðarmanna. Söluskattur Viðurlög falla á söluskatt fyrir desembermánuð 1986, hafi hann ekki verið greiddur í síðasta lagi 26. þ.m. Viðurlög eru 4% af vangreiddum söluskatti fyrir hvern byrjaðan virkan dag eftir eindaga uns þau eru orðin 20%, en síðan reiknast dráttarvextir til viðbótar fyrir hvern byrjaðan mánuð, talið frá og með 16. febrúar. Fjármálaráðuneytið, 19. janúar 1987 Fimmtudagur 22. janúar 1987 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 5 Laus staða skógarvarðar Hjá Skógrækt ríkisins er laus til umsóknar staða skógarvarðar á Norðurlandi með aðsetri að Vöglum í Fnjóskadal. Staðan veitist frá 1. mars 1987 og er menntun í skógtækni áskilin. Skógarverðinum er ætlað að hafa umsjón með eignum Skógræktar ríkisins á Norðurlandi og stýra starfsemi hennar þar. Þar er m.a. um að ræða gróðrarstöðvarnar á Vöglum í Fnjóskadal og að Laugabrekku í Skagafirði, svo og 15 skóg- lendi víðsvegar á Norðurlandi. Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf sendist fyrir 20. febrúar n.k. til landbún- aðarráðuneytisins, Arnarhvoli, 150 Reykjavík. Landbúnaðarráðuneytið, 19. janúar 1987

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.