Þjóðviljinn - 22.01.1987, Síða 6
ALÞÝÐUBANDALAGIÐ
Alþýðubandalagið
Starfshópur um utanríkis- og friðarmái
Fundur verður haldinn fimmtudaginn 22. janúar kl. 20.00 í Flokksmiðstöð-
inni, Hverfisgötu 105. Starfshópar taka til starfa.
ABR
Þorrablót
Þorrablót Alþýðubandalagsins í Reykjavík verður haldið þann 31. janúar
nk. að Hverfisgötu 105. Nánar auglýst síðar. - Stjórnin.
FLÓAMARKAÐURINN________________
Fríar auglýsingar fyrir áskrifendur Þjóðviljans á
þriðjudögum og fimmtudögum í viku hverri.
GERIST ASKRIFENDUR - ÞAÐ BORGAR SIG.
Til sölu notað:
barnavagn, brúnn flauels með
burðarrúmi, leikgrind, stór m/dýnu í
botni, plast göngugrind, sem má
leggja saman, Baby-Björn barna-
píustóll og Hókus-Pókus barnas-
tóll. Uppl. í síma 78982.
Óska eftir grásleppu-
og rauðmaganetum, teinum og
faerum. Uppl. í síma 78109.
Dagmamma
Get tekið að mér börn í daggæslu
frá kl. 8-16. Bý í Vesturberginu og
hef leyfi. Uppl. í síma 72439.
Hnakkur
Lítið notður hnakkur til sölu. Uppl. í
síma 83823.
Til sölu
brúnn Silver-Cross barnavagn með
stálbotni. Verð kr. 7.500.-. Uppl. í
síma 71137. Kristín.
Mig vantar
Macintosh Plus tölvu
og prentara. Stefán sími 681333.
Heimasími 23271.
Til sölu sófasett
3+2+1, líturvel út. Verð kr. 10þús-
und. Sími 45196.
Barnavagn
Til sölu ergóðurbarnavagn. Selst á
5 þúsund kr. Uppl. í síma 30789.
íbúð óskast
Þýsk-íslensk stúlka, sem stundar
nám í Reykjavík, óskar eftir lítilli
ibúð sem fyrst. Fyrirframgreiðsla ef
óskað er. Upplýsingar veitir Baldur í
síma 681310 eða 681331 ádaginn.
Fæst gefins
Hjónarúm fæst gefins (stök rúm).
Upplýsingar í síma 11810.
Til sölu
Ljós hillusamstæða _ og vel með
farnir svefnbekkir. Á sama stað
óskast kojur, ódýrt kassettutæki og
grasplöntur. Upplýsingar í síma
622373.
Til sölu
tvenn nýleg skíði með bindingum,
lengd 150 cm Blizzard og 160 cm
löng Rossignol. Upplýsingar í síma
33101 eftir kl. 17.
Til sölu
Eins manns svefnsófi. Rúmfata-
geymsla í baki, tilvalinn í gestaher-
bergi. Verð kr. 1700. Upplýsingar í
síma 50066.
Til sölu
Eldhúsvaskur og eldunarhellur í
nothæfu standi. Selst ódýrt. Upp-
lýsingar í síma 44435.
Til sölu vegna flutninga
Alda þvottavél, sem ný, sófasett,
tvíbreið dýna, bókahillur, furuborð
o.fl. Uþþlýsingar í síma 621796.
Til sölu
Vel með farið eldhúsborð. stærð
110x70 cm. Selst ódýrt. Á sama
stað fæst gefins svefnbekkur með
rúmfatageymslu. Uppl. í síma
26276 til kl. 4 á daginn.
Til sölu
Duo svefnsófi á 8.000 kr. og svefn-
bekkur á 4.000 kr. Upplýsingar í
síma 37137 eftir kl. 18.
Skiði óskast
Óska eftir að kaupa barnaskíði fyrir
2 börn, 8 og 9 ára, ásamt stöfum,
skóm og bindingum. Sími 12007.
Kattaskja
Óska eftir að kaupa gamla hatt-
öskju. Helst úr leðri. Uppl. í síma
28783.
Er ekki kominn tími
til að taka til
á háaloftinu eða í geymslunni? Ef
þú skyldir þá rekast á gömul tísku-
blöð eða sníðablöð, 30 ára eða
eldri, þá endilega hafðu samband
við okkur. Oddný sími 79289 og
Bína 18259.
Gamlir hægindastólar
með bognum viðarörmum óskast.
Áklæðið má vera slitið. Óska einnig
eftir ódýrum svalavagni. Sími
28257.
Rússneskar tehettur
„Matrúskur"
og grafíkmyndir. Hef til sölu nokkrar
mjög fallegar rússneskar tehettur
og grafikmyndir sem einnig eru
rússneskar. Uppl. Selma sími
19239.
Hjálp!
Ung hjón með 2ja mlan. gamalt
barn óska eftir íbúð strax. Getum
borgað fyrirfram ef óskað er. Sími
10582 og 613907.
Til sölu rauður
barnapíustóll
Uppl í síma 687162 eftir kl. 5 og fyrir
hádegi.
Dúkkuvagn óskast
Uppl. í síma 687162 eftir kl. 5 og
fyrir hádegi.
Rafha eldavél
með ofni í fínu formi fæst fyrir lítið.
Uppl. í síma 13105.
Westinghause þurrkari
til sölu
Verð kr. 29.000.-. Sem nýr. Hentar
vel í sambýlishús. Sími 52356, eftir
kl. 17 á föstudag.
Þvottavél til sölu
Uppl. í síma 76191.
Óska eftir að kaupa
litsjónvarp
ekki minna en 20". Sími 666709.
Til sölu
2 barnarimlarúm vel með farin. Sími
672104.
Ford Cortina
árg. '76 til sölu
Uppl. í síma 53206 á kvöldin.
ísskápur fæst gefins
Hafið samband við augl.deild Þjóð-
viljans í síma 681310.
Skíði
Arctic skíði lengd 130 cm. Skór af
Alpina gerð nr. 31 og Jyrola bind-
ingar fást fyrir lítið. Uppl. í síma
44465.
Heimilisaðstoð
Get tekið að mér heimilisaðstoð
hálfan og allan daginn, helst í
Breiðholti eða nágr. Sími 75745.
DJOÐVIUINN
Sími 681333.
Ferðalangar við tilbeiðsluhús Bahá’í-manna í Nýju-Delhí.
Ferðin til Delhi
Óskar Guðnason kennari skrifar
Margir frómir ferðalangar
hafa heimsótt Indland, þennan
ævintýraheim, þar sem trúar-
brögð eru augljós áhrifavaldur
í lífi milljóna manna. Þó að
fréttir af trúarbragðaátökum
séu nær daglegt brauð í
landinu eru þó milíjónir manna
sprelllifandi þar og iðka sína
trú í sátt og samlyndi.
Von
Nú er svo komið, að sú eining,
sem trúarbrögð mannkyns hafa
stefnt að frá upphafi er í sjón-
máli. Öllum er ljóst að
mannkyninu mundi farnast bet-
ur, ef vinátta og einhugur ríkti
meðal þjóða þess, ef sérhver
jarðarbúi væri gegnsýrður vit-
undinni um að hann tilheyrði
einni fjölskyldu mannsins; fjöl-
skyldu, sem þrátt fyrir allan sinn
fjölbreytileika, ólíkt litaraft og
ólíka siði, er órjúfanlega tengd og
þjónar einum og sama Guði. (1).
Kærleikur
„Jörðin er ei nema eitt ættland
og mannkynið íbúar þess.“ (Ba-
há’ú’lláh).
Þessa framtíðarsýnd upplifði
ég ásamt a.m.k. 7000 Bahá’íum
frá meira en 140 þjóðlöndum, er
við vorum viðstödd vígslu til-
beiðsluhúss Bahá’í trúarinnar í
Nýju Delhi, Indlandi. Amatúl-
Bahá Rúhiyyih Khánum, fulltrúi
Allsherjarhúss réttvísinnar, sem
er æðsta stjórnarstofnun trúar-
innar, lýsti yfir opnun musterisins
í þágu allra manna, 24. desember
1986, við hátíðlega athöfn. Lesið
var úr helgiritum allra megintrú-
arbragða mannkyns, farið með
bænir og sungu þrír kórar, ind-
verskur, persneskur og blandað-
ur kór hinna ýmsu þjóða á milli
atriða, m.a. verk eftir sít-
arsnillinginn Pandit Ravi Shank-
ar. Söngurinn er alheimslegt
tungumál, sem allir skilja og er
samstarf þessara kóra einsdæmi
og ber fagurt vitni einingu Guðs,
einingu trúarbragða Hans og ein-
ingu mannkyns.
Tilbeiðsluhúsin
Lótusmusterið var sjöunda
musteri Bahá’í trúarinnar í
heiminum. Bygging þess hófst
21. apríl 1980. Hönnuðurinn, Hr.
Fariburz Sahba, valdi Lotus fyrir-
myndina, vegna þess að hún
tengist öllum helstu trúarbrögð-
unum, sem iðkuð eru á Indlandi
og er tákn fyrir hreinleika and-
legrar raunveru. Þar að auki er
lótusinn ef til vill fullkomnasta
blómið, sem vex á jörðinni. Það
er í algjöru innbyrðis samræmi og
ólýsanlega fíngert og fagurt, vex í
mýrlandi, en lyftir krónunni upp
úr feninu - tandurhreint og
fullkomið. Vegna þessara vaxtar-
eiginleika er það á táknrænan
hátt sambærilegt við Opinbera-
anda Guðs, sem þrátt fyrir það að
vera fæddur við vorar jarðnesku
aðstæður er hafinn hátt yfir spill-
ingu heimsins.
Vegir liggja
til allra átta
Bahá’u’lláh mælti svo fyrir, að
á hverju svæði skyldi reisa Til-
beiðsluhús, musteri, þar sem fólk
getur komið saman til tilbeiðslu,
hver svo sem trúarbrögð þess
eru. í þessum musterum er lesið
úr helgiritum trúarbragðanna.
Þar sem engir prestar eru í Bahá’í
trúnni, annast venjulegir menn
og konur úr röðum átrúendanna
lesturinn. Engar predikanir eru
fluttar og engir helgisiðir hafðir
um hönd. Bahá’í musterið gegnir
því hlutverki að vera athvarf, þar
sem menn og konur af öllum trú-
arbrögðum geta komið saman til
bænar og hugleiðslu og annað fer
ekki fram í þeim. Hvolfþakið er
sameiginlegt einkenni þeirra,
tákn um einingu manna og á þeim
eru dyr til allra átta, tákn um að
þau séu opin öllu mannkyni.
Fagrir garðir umlykja þau og Ba-
há’u’lláh sagði að í námunda við
þau skyldi reisa menntastofnanir,
munaðarleysingjahæli og aðrar
góðgerðarstofnanir, til þess að
tilbeiðsla á Guði mætti fara sam-
an við fegurð náttúrunnar og
hagnýta þjónustu við alla menn
(2).
Tllvitnun:
(1) Eðvarð T. Jónsson. „Bahá’u’lláh,
líf Hans og Opinberun”, síður 222-
223. Andlegt Þjóðráð Bahá'ía á (s-
landi 1982.
(2) Eðvarð T. Jónsson. „Bahá’u’lláh,
líf Hans og Opinberun”, síður 218-
219. Andlegt Þjóðráð Bahá'ía á (s-
landi 1982.
Óskar Guðnason, kennari.
Nafnnr. 6925-7607.
Utboð
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar óskar eftir
tilboöum í eftirfarandi efni fyrir Hitaveitu Reykja-
víkur:
A. Steinull til einangrunar geyma í Öskjuhlíð.
Magntölur:
1. 1200x580x75mm - 13400 m2
2. 1200x530x75mm - 1600 m2
Tilboðin verða opnuð miðvikudaginn 18. febrúar
n.k. kl. 11.
B. Efni fyrir Nesjavallavirkjun
Magntölur:
1. Stálpípur heildarmagn 2520 m.
2. Beygjur heildarmagn 38 stk.
3. Minnkanir heildarmagn 13 stk.
4. Té heildarmagn 11 stk.
5. Flangsar heildarmagn 22 stk.
Tilboðin verða opnuð miðvikudaginn 25. febrúar
n.k. kl. 14.00.
Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri Fríkirkju-
vegi 3 Reykjavík og verða opnuð þar á ofan-
greindum tíma að viðstöddum þeim bjóðendum
sem þess óska.
6 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR
Fiik11k|iivogi 3 Suiii 25800